Morgunblaðið - 21.02.1995, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
4
MIIMNIIMGAR
i
i
i
GUNNAR ÞORSTEINSSON
OG BERGUR ÞORSTEINSSON
+ Gunnar Þorsteinsson
var fæddur á Litla-
Hofi í Öræfasveit 20.
september 1907. Hann
lést á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Skjólgarði 8.
febrúar síðastliðinn.
Bergur Þorsteinsson var
fæddur á Litla-Hofi í Ör-
æfasveit 22. júlí 1903.
Hann lést á Skjólgarði 15.
febrúar síðastliðinn. For-
eldrar þeirra voru Þor-
steinn Gissurarson bóndi,
f. 4. 10. 1864, d. 1937, og
Sigrún Jónsdóttir hús-
freyja, f. 3.3. 1864, d.
1955. Systkini þeirra voru:
Guðjón, f. 1894, drukknaði
ungur, Jórunn, f. 9.5. 1895,
Gróa, f. 17.7. 1896, Magnús, f.
7.12. 1897, Guðrún, f. um 1900,
dó í æsku, Jón Páll, f. 7.4.1901,
Bergur, f. 22.7. 1903. Þau eru
öll látin.
Eftirlifandi ekkja Gunnars
er Sigrún Jónsdóttir, f. 21.
febrúar 1920, húsfreyja, og
eignuðust þau þijú börn. Þau
eru Halla Jónína, f. 5. desem-
ber 1941, húsmóðir í Vestmanna-
eyjum, gift Loga Snædal Jóns-
syni, Siguijón Þorsteinn, f. 11.
júní 1943, bóndi Litla-Hofi, gift-
ur Guðbjörgu Magnúsdóttur,
Bryndís, f. 4. febrúar 1948,
starfskona á barnaheimili í
Reykjavík, gift Jón Hirti Gunn-
laugssyni. Gunnar ól einnig upp
bróðurdóttur sína, Jórunni Þor-
gerði Bergsdóttur, f. 22.sept-
ember 1935, starfsstúlka á
Hraunbúðum i Vestmannaeyj-
Síðustu tíagar
útsölunnarí
,.5o%
I
CALIDA
m
......mmm
Austurstræti 8, sími 14266
um, gift Bjarna Jónassyni.
Gunnar tók við búi for-
eldra sinna á Litla-Hofi
1938 og stundaði búskap
þar til sonur hans Sigur-
jón tók við búinu. Útför
Gunnars fór fram frá
Hofskirkju í Öræfum
laugardaginn 18 febrúar.
Hinn 9. júní 1930 giftist
Bergur Pálu Jónínu Páls-
dóttur, f. 17. janúar 1906
á Prestbakkakoti á Síðu,
d. 20. janúar 1991. Þau
komu upp níu börnum.
Þau eru: Sigrún, f. 27.7.
1930, húsmóðir á Hnappa-
völlum, gift Þórði Stefánssyni,
Páll, f. 30.9. 1932, bensínaf-
greiðslumaður á Selfossi, -
kvæntur Þorgerði Dagbjarts-
dóttur, Guðrún, f. 27.7. 1934,
húsmóðir á Hnappavöllum,
ekkja eftir Ingimund Gíslason,
Jórunn Þorgerður, f. 22.9.
1935, starfsstúlka í Hraunbúð-
um í Vestmannaeyjum, gift
Bjarna Jónassyni, Steinunn, f.
22.9. 1937, afgreiðslukona í
Reykjavík, gift Gísla Odd-
steinssyni, Guðjón Bergsson, f.
7.12.1939, bóndi Hofi, Sigþrúð-
ur, f. 23.7. 1943, starfskona
Kópavogi, gift Braga S. Ólafs-
syni, Helga, f. 16.5. 1945, hús-
móðir, Hofi, gift Rúnari Garð-
arssyni, Þorlákur Örn, f. 17.6.
1952, bóndi, Hofi, kvæntur
Brynju Krisljánsdóttur..
Bergur var vinnumaður, fór
á vertíðar og stundaði síðan
búskap alla tíð. Útför hans
verður gerð frá Hofskirkju í
Öræfum í dag.
AFI okkar, Guðmundur Bergur
Þorsteinsson, er látinn aðeins viku
á eftir bróður sínum Gunnari Þor-
steinssyni. Þeir voru frá bænum
Litla-Hofi í Öræfasveit þar sem
Gunnar bjó alla tíð en Bergur flutt-
ist að Austurhúsum, næsta bæ við
Litla-Hof. Örlítið fyrir neðan Berg
afa bjó þriðji bróðirinn Magnús.
Bergur og Magnús bjuggu félags-
búi sem synir þeirra tóku við er
þeir hættu búskap.
Bergur Þorsteinsson bjó alla sína
tíð í Öræfasveit. Hann giftist 9.
júní 1930 Pálu J. Pálsdóttur frá
Prestbakkakoti á Síðu í Vestur-
Skaftafellssýslu en hún lést 1991
og höfðu þau þá verið gift í rúm
60 ár. Bergur kynntist Pálu er
hann var vinnumaður hjá fóstra
hennar en hún og Magnús bróðir
Bergs og GunnarS voru uppeldis-
systkini. Pála og Þuríður Sigjóns-
dóttir, kona Magnúsar, voru
systradætur og giftust því Magnús,
Bergur og Gunnar allir konum úr
sömu ætt. Bergur og Pála komu
níu börnum til manns en fjögur
fæddust andvana. Fimm þeirra eru
búsett í Öræfum, tvö í Reykjavík,
eitt á Selfossi og eitt í Vestmanna-
eyjum. Afkomendur Bergs og Pálu
eru að nálgast 70. Eftir að Bergur
missti konu sína fór hann fljótlega
á EIli- og hjúkrunarheimilið Skjól-
garð á Höfn og kom aðeins einu
sinni aftur í sveitina. Það var eir.s
og hann gæti ekki hugsað sér að
fara til baka eftir að hann hafði
misst lífsförunaut sinn þrátt fyrir
að hann hefði heilsu til framan af.
Á Skjólgarði dvaldi hann svo í tæp
íjögur ár allt til dauðadags í ágætu
yfirlæti. Þó Bergur hafi verið á 92.
ári var ekki til að hann hefði tapað
andlegu atgervi sínu, líkamlegri
heilsu hafði hrakað í áranna rás
en afi fylgdist vel með öllu, bæði
fréttum af landsmálum og afkom-
endum sínum.
Afi var hæglátur maður, lítið
fyrir æsing og vildi helst hafa
slökkt á útvarpi nema til að hlusta
á talað mál. Hann var glettinn og
gerði góðlátlegt grín að sjálfum sér
og öðrum. Hann var sömuleiðis
afskaplega heimakær líkt og
amma. Hvorugt þeirra fór úr sveit-
inni nema ríka nauðsyn bæri til og
í seinni tíð varla innan sveitar held-
ur. Afi var mikill grúskari, Ias mik-
ið og var fróður um ýmis málefni.
Hann hafði sérstaklega gaman af
ævisögum stjórnmálaforingja fyrri
ára. Bergur var reglumaður og
segja sögur að einu sinni hafi sést
vín á honum en það var eftir að
rauðvínstunnu rak á fjöru í sveit-
inni.
Gunnar Þorsteinsson tók við búi
foreldra sinna 1938 og bjó fyrst
með systrum sínum Jórunni og
Gróu og móður sinni Sigrúnu.
Gunnar giftist Sigrúnu Jónsdóttur
en hún er dóttir Höllu Pálsdóttur,
sem var systir Pálu ömmu okkar.
Börn þeirra eru þrjú. Gunnar átti
einnig fósturdóttur, móður okkar,
en hún kom á þriðja ári til ömmu
sinnar og Jórunnar, Gróu og Gunn-
ars, föðursystkina sinna á Litla-
Hofi, og ólst þar upp. Bamabörnin
Ókeypis lögfræðiþjónusta
íkvöld milli kl. 19.30 og 22.00
ísíma 55 11012.
Orator, félag laganema.
og barnabarnabörnin eru orðin 12.
Gunnar Þorsteinsson var líklega
einn skemmtilegasti maður sem við
höfum kynnst, einstaklega lífsglað-
ur og kunni að skemmta fólki með
sögum. Þau voru líka fá böllin sem
hann lét sig vanta á í sveitinni.
Hann hafði gaman af gestum og
hjá Gunnari og Sigrúnu hefur alla
tíð verið opið fyrir gesti og gang-
andi og tekið höfðinglega á móti
fólki. Þar hefur verið viðhöfð gest-
risni eins og tíðkast hefur á íslensk-
um sveitaheimilum í gegnum tíð-
ina. Ótölulegur fjöldi barna hefur
einnig verið þar í sveit. Seinustu
árin hefur heilsu Gunnars stöðugt
hrakað. Þrátt fyrir það fylgdist
Gunnar vel með og var andlega
hress eins og alltaf. Hann lét sig
til dæmis ekki vanta á ættarmót
sem haldið var síðastliðið sumar
og þegar við bræðurnir heimsóttum
hann á sjúkrahús í janúar sl. spurð-
ist hann fyrir um sumarvinnu ann-
ars okkar og hvort fært væri flug
austur.
Við bræðurnir dvöldum allir ein-
hvern tíma í sveit hjá Bergi afa
og Gunnari. Jónas var fjölmörg
sumur í sveit hjá Gunnari og Sigr-
únu á Litla-Hofi. Rúnar heitinn
bróðir var mörg sumur hjá afa og
ömmu og eitt hjá Gunnari og Sigr-
únu. Bergþór var bæði hjá Gunnari
og afa í stuttan tíma en Valgerður
hjá móðursystur okkar á Hnappa-
völlum. Fleiri barnabörn Bergs og
Pálu voru hjá þeim um lengri eða
skemmri tíma. Það er vart hægt
að hugsa sér fallegri sveit en Öræf-
in og batt dvölin okkur sterkum
böndum við sveitina milli sanda.
Dýrmætt var sömuleiðis að kynnast
þeirri kynslóð sem nú er að mestu
fallin frá og læra að bera virðingu
fyrir hinum eldri sem eiga dýr-
mæta reynslu að miðla af. Hvort
sem það er nábýlið við jökulinn,
lambakjötið sem var daglega á
borðum eða eitthvað annað náðu
þeir bræður Magnús, Bergur og
Gunnar háum aldri, um eða yfir
nírætt. Þeirra kynslóð vann í sveita
síns andlits og þó fólk hafi kannski
ekki soltið var lífsbaráttan erfið á
þeirra uppvaxtarárum og ekkert
sjálfgefið. Bændur veiddu lunda í
Ingólfshöfða, söfnuðu rekaviði á
ströndinni og sigu til eggja svo eitt-
hvað sé nefnt fyrir utan hefðbund-
inn búskap. Á ævi þeirra bræðra
hefur einnig orðið tæknibylting og
langur vegur frá heyskap með orf
og ljá til vélvæðingar nútímans.
Þessi bylting sýnir kannski í hnot-
skurn breytingarnar á íslensku
þjóðfélagi á þessari öld.
Með Bergi og Gunnari eru geng-
in þau síðustu af börnum Þorsteins
Gissurarsonar og Sigrúnar Jóns-
dóttur frá Litla-Hofi. Bergur og
Gunnar kvöddu þennan heim með
viku millibili. Þeir voru nágrannar
alla tíð, í sveitinni, á elliheimilinu
á Höfn og nú í sinni hinstu för.
Það er líkt og þeir hafi viljað fylgj-
ast að áfram. Við hugsum af hlý-
hug til ekkju Gunnars, Sigrúnar, á
þessum erfiðu tímum og annarra
aðstandenda. Minning þeirra
bræðra lifir lengi.
Jónas, Valgerður og
Bergþór Bjarnabörn.
• \/íkingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó*Tvöfaldur*\/íkingalottó*Tvöfaldur*\/íkingalottó«Tvöfaldur*\/íkingalottó*Tvöfaldur« Vikingalottó«Tvöfaldur«Vikingalottó*Tvöfaldur»Víkingalottó*Tvöfaldur«Víkingalottó«Tvöfaldur*Víkingalottó*
Síðast var fyrsti vinningurinn í Víkingalottóinu rúmlega
Vertu með
fyrir kl 17:00
á morgun!
mUljónir kr.
í tvöföldum potti
:
Tvöfaldur pottur! Freistaðu gæfunnar - karmski er röðin komin að þér!
Í
í
í
í
I
i
i
i
i
i
i
i
• Vikingalottó*Tvöfaldur»Víkingalottó*Tvöfaldur«Víkingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó*Tvöfaldur* Víkingalottó»Tvöfaldur«Víkingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó*Tvöfaldur*Vikingalottó*Tvöfaldur«Víkingalottó*