Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Hvers konar skáldsögn Það er ekkert fólk í henni! Allt Ég bæti við öðrum hundi.
kallar þú þetta? sem í henni er, eru sex hundar!
BREF
ITL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Toyota eða Nissan, það
er ekki spumingin
Svar til Kjartans Jónssonar
Frá P. Samúelssyni hf.:
Kaup og sala notaðra bíla getur
verið afar flókið mál. Þegar bílaum-
boð kaupa bíla miða þau við viðmið-
unarverðlista sem byggðir eru á
raunverulegum dæmum og mikilli
reynslu, enda er staðreyndin sú að
oftast er ekki mikill munur á milli
umboða þar sem samkeppnin um
viðskiptavininn er hörð.
Þegar kaupandi sér að 40% mun-
ur er milli tveggja aðila við mat á
sama bílnum er greinilega um óeðli-
legan mun að ræða sem hlýtur að
ráðast af mistökum sem felast í
því að ekki er í raun verið að meta
sama bílinn. Það á einmitt við í
þessu tilviki.
Umræddur bíll er af gerðinni
Nissan Patrol með bensínvél og
skráður árgerð 1986. Samkvæmt
upplýsingum Ingvars Helgasonar
hf. er verð slíks bfls um 800.000
krónur, en við uppítöku lækkar
verð hans um 15% og er þá kominn
í 680.000 krónur. Við söluskoðun
þessarar tilteknu bifreiðar hjá okk-
ur kom í ljós að lagfæra þurfti
nokkur atriði til að bíllinn yrði
hæfur til endursölu m.v. núgildandi
lög um vernd neytenda. Þannig er
tilboð okkur um kaup bílsins á kr.
600.000 fengið.
Nú segja okkur upplýsingar Ing-
vars Helgasonar hf. að árgerð bíls-
ins sé rangt skráð, sem þeir ætli
að fá leiðrétt. Augljóslega er það
ekki í okkar valdi að hafa áhrif á
hugsanlega ranga skráningu eldri
Nissan bfla, en sé bíllinn af árgerð
1987 eins og Kjartan Jónsson held-
ur fram þá munar 'það rúmum
100.000 krónum á staðgreiðslu-
verði bílsins, aftur skv. upplýsing-
um Ingvars Helgasonar hf.
Hafi Ingvar Helgason hf. boðið
Kjartani kr. 1.000.000-1.200.000
fyrir bílinn, er umboðið einfaldlega
að ákveða að tapa umtalsverðri
upphæð á þessum viðskiptum af
ástæðum sem er ekki okkar að
meta. Þegar Kjartan heimsótti okk-
ur til að ræða hugsanleg bílakaup
hafði hann á orði að þjónusta sölu-
manna okkar væri einstaklega lipur
og að við hefðum verið eina umboð-
ið sem brðalaust bauð honum að
fara í reynsluakstur, án þess að
sölumaður færi með, en það fannst
honum sýna mikið traust á sér sem
17 ára pilti.
Við hörmum að afstaða Kjartans
skuli hafa tekið slíka stefnubreyt-
ingu frá því hann heimsótti okkur,
en fullvissum hann um að okkur
liggur ekkert slæmt að baki þessu
tilboði og það er ekki óeðlilegt mið-
að við núverandi skráningu bílsins
og upplýsingar Ingvars Helgasonar
hf. um markaðsverð á slíkum bfl..
Virðingarfyllst,
f.h. P. Samúelssonar hf.,
SKÚLIK. SKÚLASON
sölustjóri
Opið bréf til
heilbrigðismála
Frá Hannesi B. Kolbeins:
HÆSTVIRTI heilbrigðisráðherra.
Hér á íslandi er álitið að 20%
þjóðarinnar sé með ofnæmi og
5-6% með asma. Auk þess eru
aðrir teppusjúkdómar, langvinn
berkjubólga og lungnaþemba, al-
gengir hjá fólki á efri árum ævinn-
ar. Samtök gegn astma og ofnæmi
eru málsvari þessa fólks.
Það hefur ekki farið framhjá
okkur, frekar en öðrum þegnum
þessa þjóðfélags, það aðhald sem
gætt hefur í útgjöldum ríkissjóðs
til velferðarmála, sérstaklega til
heilbrigðis- og tryggingamála, í
ráðherratíð þinni. Okkur, og fjöl-
mennum hópum annarra sjúklinga,
hefur verið gert að borga sífellt
stærri hluta kostnaðar við sér-
fræðiþjónustu og lyf; réttur til
trygginga hefur verið þrengdur og
við verðum vör við aukið álag á
stærstu sjúkrahús landsins. Við
spyijum því, höfum við ekki þegar
fengið okkar hlut af byrðunum?
Nú hefur þú, heilbrigðisráð-
herra, boðað nýja leið til spamað-
ar, tilvísanakerfið. Mörg okkar eru
haldin langvinnum sjúkdómum í
öndunarfærum. Af þeirri ástæðu
höfum við farið í meðferð til þeirra
lækna sem við treystum best,
stundum árum og áratugum sam-
an. Mjög oft eru það sérfærðingar
á sviði öndunarfærasjúkdóma. Nú
leyfist þetta ekki lengur nema við
greiðum allan kostnaðinn. Sam-
kvæmt tilvísanakerfmu eigum við
fyrst að fara til heimilislæknisins,
sem stundum þekkir þessi vanda-
mál okkar lítið, og eiga undir vilja
hans hvort við fáum tilvísun til
sérfræðings. Þetta skapar auka-
kostanð, fyrirhöfn og óvissu fyrir
mörg okkar.
Við værum varla að ónáða þig
með þessum skrifum, nú þegar
annir aðsteðjandi kosninga fara í
hönd, ef við hefðum séð frá þér,
eða embættismönnum þínum, út-
reikninga á því hvað sparast með
tilvísanakerfinu og hvernig það
kemur niður á einstökum sjúkl-
ingahópum. Teljum við að breyting
þessi muni valda skólstæðingum
okkar verulegum útgjaldauka, sem
standast á við þau grundvallarrétt-
indi sem þeim eiga að vera tryggð
með gildandi heilbrigðis- og trygg-
ingalöggjöf.
F.h. Samtaka gego astma og ofnæmi,
HANNES B. KOLBEINS,
formaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.