Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSIIMS ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 51 Slysagildrur á þjóðvegum Frá Páli Pálssyni: EKKERT er betra til búsetu í okk- ar landi en að vegir séu vel færir allt árið. Það eru frumskilyrði að fólk og farartæki geti treyst á góð- ar samgöngur. Framleiðsla afurða geti verið örugg allan ársins hring, ennfremur að ferðafólk og farkost- ar þess komist óhindrað leiðar sinn- ar. Hér í mínu byggðarlagi á sunn- anverðu Snæfellsnesi hefur upp- byggingu og endurnýjun vegakerf- isins miðað nokkuð undanfarin ár, því ber að fagna. En mikið vantar ennþá til þess að öruggt vegakerfi sé allt árið. Það skal tekið fram að hér eru veður oft válynd og sterkir vindar, sérstaklega af norðri og suðri geta oft hindrað ferðir fólks, en því ráðum við lítið. Það sem kemur mér til þess að stinga niður penna, er það hörmu- lega umferðarslys sem varð hér 14. febrúar við brúna á Laxá. — Hvað kom til að slík slysagildra var sett hér. Hvað hugsa þeir sem þessum málum stjórna, sjá þeir ekki sem kallast verkfræðingar, eru þeir blindir á öðru auga eða báðum. Örugglega er þessi brú ekki fyrsta eða síðasta slysagildran sem sett er á þjóðvegi landsins, því miður. Það eru aðrir tímar, tækninni og þekkingunni hefur fleygt fram, frá því að hér var í árdögum vegagerð- ar, þegar efni í vegi var flutt á hestvögnum, stungnir hnausar til að byggja upp vegkantinn. Verk- færin voru skófla, járnkall og gaff- all (kvísl), svo mætti lengi telja og minna á þegar tómar járntunnur vom notaðar í vegræsi. í þá daga voru farartæki með öðrum hætti, vörubílar að koma til landsins, þeir voru ekki stórir og umferðin um þessa mjóu og þröngu vegi, sem þá voru lífæðar dreif- býlisins, ekki mikil. Á öllu þessu hefir orðið undra- verð breyting, pi.a. jarðýtur voru ekki til, meira að segja jarðýta nýyrði í íslensku máli þá. Það var ekki fýrr en setuliðið kom til lands- ins að slík tæki komu hér til sög- unnar við vegagerð. Eflaust mætti skrifa heila bók um vegamál og vegagerð hér á landi, en ég tel mig ekki færan til þess. Það var árið 1985 sem uppbygg- ing vegar hér í Miklaholtshreppi hófst, þ.e.a.s. hluta úr hreppnum, og endurbygging vegarins var á þann hátt að bundið slitlag kom í kjölfar endurbótanna. Svo hagar hér til, að til sjávar renna fimm ár, þ.e.a.s. Laxá, Kleifá, Grímsá og Straumfjarðará. Á öllum þess- um ám voru gamlar brýr sem þurftu endurbóta við, enda byggðar í árdögum vegagerðar 1930 og síð- ar. Fyrst var endurnýjuð brúin á Laxá, hún er eins og sjá má í dag, hörmuleg slysagildra. Um hana getur aðeins farið einn bíll í senn (einbreið). Ég minnist þess að þeg- ar verið var að byrja á byggingu á brúnni, átti ég erindi við brúar- smiðinn. Ég spurði í minni ein- feldni, geta ekki tveir bílar farið yfir þessa brú í einu. Svar brúar- smiðsins var: „Ég er steinhissa að þessi brú skuli eiga að vera svona mjó, mér var fengin þessi teikning og mér ber að fara eftir henni.“ Sá heiðursmaður vissi hvað hann sagði. Síðan hafa verið byggðar brýr, á Kleifá var settur breiður hólkur. Fáskrúð, Grímsá og Straumfjarð- ará allar tvíbreiðar. Aðkeyrsla að þessum brúm að Laxá undanskildri er ágæt. Er nú nokkur furða þótt vegfarandi sem ekur þessa leið og sér brúna á Laxá velti fyrir sér hversvegna þessi mjóa brú var byggð svona. Eg er ekki búinn að lýsa öllum þeim óhöppum sem orðið hafa við brúna á Laxá síðan hún var byggð. Vegagerðin hefur ekki ennþá girt hér með vegum, þótt um það hafi verið marg oft beðið. Flest sumrin síðan brúin var byggð hafa kindur orðið undir bílum á brúnni, sl. sum- ar voru drepnar þar fimm kindur. Ég gæti týnt hér ýmislegt til sem sýnir það andvaraleysi og hættu sem þessi brú hefur uppá að bjóða. Við skulum bara iiugsa okkur þeg- ar ekið er vestan af Snæfellsnesi og búið að fara yfir nýju brýrnar að vestan, þá er allt í einu komið að þessari slysagildru á Laxá. Ég vil beina orðum mínum til þeirra sem þessum málum stjórna. „Brúna á Laxá verður að endur- bæta.“ Það mega ekki verða fleiri slys en orðið hafa. Hreppsnefnd Miklaholtshrepps sendi strax frá sér umkvörtun þegar brúin var byggð, hversu mjó hún væri. Vega- gerðin hefur ekki hlustað eða svar- að þessari ábendingu. Það er löngu tímabært að hefja endurbætur. Það eru fleiri brýr hér sem þyrftu endurbóta við, en við brúun Laxár voru gerð mannleg mistök, sem verður að leiðrétta hið allra fyrsta. PÁLL PÁLSSON. Borg, Miklaholtshreppi Árangur af samstarfi Hjartaverndar, Krabbameínsfélagsins, Manneldisráðs og Vöku-Helgafells: MEISlfANDI RÉTTIR - OG ALUR HOLLDt! Matreiðslubókin Af bestu lyst hefur algjöra sérstöðu meðal matreiðslubóka á íslenskum markaði. Hér er afsönnuð sú kenning að það sem er hollt sé lítt spennandi! LYST jpskrifhr aö hollum og Ijúffengum réttum Aðgengilegar leíðbeiníngar um matreiðsluna, stig af stigi. Fallegar lítmyndír af öllum réttum. Upplýsingar um hitaeíninga- fjölda og magn mettaðrar og ómettaðrar fitu fylgja hverri uppskrift. "" liókiu er gefin út i samvinnu viö Hjartavernd, Krabbameinsfélagið og Manneldisráð. VAKA-HELGAFELL - Með matreiðslubókina AF BESTU LYST við höndina geturðu búið til girnilega, holla og góða réttí sem allir á heimilinu munu kunna að meta! Stórglæsileg matreiðslubók á gjafverði - aðeins 1.680 krónur! VAKA-HELGAFELL Síðumúla 6,108 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.