Morgunblaðið - 26.02.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR1995 B 21
NÆSTA verkefni Manuels var að stoppa upp stórlax fyrir leigu-
taka Rangánna, Þröst Elliðason. Hér er hann að flá roðið af laxinum.
bungótt, þá væri fiskurinn ekki eins
og menn sjá hann í náttúrunni."
Hvað má segja að þurfi til?
„Það er í raun mjög lítið. Vinnu-
stofu og' frystikistur. Góða hnífa,
sag, gleraugu til að stinga í tóttirn-
ar og svo Moggann, nóg af Mogg-
anum“
Moggann?
„Já, einu sinni voru menn að
stinga hálmi eða gifsi inn í ham-
ina, en ég er horfinn frá því að
mestu. Gifsið er svo rosalega þungt
og hálmurinn myndar ekki nógu
góðan massa. Mogginn kemur hér
í góðar þarfir. Eg tek gamla
Mogga, sýð þá í potti og bý til
massa. Massanum sting ég inn í
hamina og þetta er það besta sem
ég hef notað til þessa. Þetta er fi-
slétt og níðsterkt og má móta á
alla kanta meðan það er að þorna.“
„Það er svo allt önnur tækni sem
notuð er á fiska. Áður var algengt
að það væru einfaldlega teknar
gifsafsteypur af
fiskum og fiskur-
inn síðan hrein-
lega málaður á
gifsið eftir ljós-
mynd. Ég nota
hins vegar alltaf
roð fisksins. Fyrst
þarf fiskurinn að
liggja í formalíni ________________
til að treysta hrei-
strið. Síðan flæ ég haminn af og
bý til líkan eftir afsteypu. Legg
síðan roðið yfir og hressi það við
með málningavinnu, enda dofna lit-
irnir á fiskinum dauðum. Það má
segja að í grundvallaratriðum sé
þetta hið sama og gert er með fugla
og spendýr, nema að meðferðin á
haminum er önnur,“ segir Manuel.
En er ekki erfiðara að stoppa
t.d. fugl upp þannig að hann sé í
flugstellingu, eða að ránfugl gíni
yfir bráð?
„Það er ekki svo miklu meiri
vinna. Margir virðast halda það og
koma oft og halda að slíkt sé miklu
dýrara. En í sumum tilfellum hef
ég það jafndýrt og ef fuglinn ein-
faldlega sæti á steini, eða í öðrum
tilvikum að ég hef það aðeins dýr-
ara og þá feílst það gjarnan í því
að ég er að stoppa upp tvö dýr á
sama fletinum, t.d. ref með rjúpu,
eða mink með smáfugl," segir
Manuel.
ísbjörn og hreintarfur
Hvað er skemmtilegast að kljást
við í þessu fagi?
Manuel Arjona
Cejudo lifir á
þvi aó stoppa
upp dýr
„Skemmtilegast finnst mér að
glíma við stór verkefni. Ég lauk
nýlega við stóran og fallegan
hreintarf. Öll vinnan var mjög
spennandi, að verka haminn, búa
til afsteypuna og finna síðan hvem-
ig allt smellur saman. Hreininn
gerði ég fyrir 87 ára gamlan landa
minn sem hefur veitt lax hér á landi
í mörg ár. Hann á stórkostlegt
náttúmgripasafn á heimili sínu á
Norður-Spáni. Hann vildi endilega
koma upp íslandsdeild og óskaði
eftir því að ég sendi sér gott úr-
tak. Hann deildarskiptir safni sínu
eftir löndum, hefur glfurleg salar-
kynni og leggur ómældar fjárhæðir
í að allt sé sem best úr garði gert.
Þetta er eitt virtast safn sem ég
hef heyrt um og það er opið skóla-
börnum. Ég sendi honum einnig
blöðrusel með vorinu og hámerin
sem ég hef verið að vinna er einn-
ig fyrir karlinn. Svo sendi ég honum
ref með ijúpu og 10 til 20 fugla
_______________ sem geta talist ein-
kennisfuglar fyrir
ísland."
Biður hann ekki
um fugla sem ekki
er hægt að verða
við, fálka, örn og
hvitu ugluna?
„Nei, ekki þessi.
_______________ Safnið hans er op-
inbert og hann veit
hvað má og hvað ekki. Hann hefur
aldrei nefnt það. Ég er viss um að
hann vildi ekkert heldur en að eiga
slíka gripi í safni sínu, en hann
virðir lög hvers lands.
Af því þú spurðir mig hvað væri
skemmtilegast að gera, þá á ég ef
til vill enn eftir að takast á við
mitt skemmtilegasta og mest krefj-
andi verkefni. Það er búið að viðra
það við mig að ég stoppi upp ís-
björninn sem komið var með til
hafnar í Bolungarvík á sínum tíma.
Mér skilst að nú hafi farið fram
allar þær rannsóknir sem hægt er
að koma við og næsta skref sé að
stoppa björninn upp. Það er mikið
tilhlökkunarefni að takast á við
slíkt verkefni," segir Manuel.
Og að lokum: Er virkilega hægt
að hafa lífsviðurværi af þessu?
Manuel hugsar sig um og kinkar
síðan kolli. „Já, ég myndi segja
það. Það er að vísu mismikið að
gera, mest á sumrin og það getur
orðið rólegt á veturna. Én það er
stöðugt eitthvað í gangi og ég hef
frekar álitið í seinni tíð að verkefn-
um fari fjölgandi . .
PARIS
40 sm hár er
þriggja ára
og ao meoa
hefur það verið
þvegið 600
sinnum og
burstað 2100
sinnum.
Það reynir á!
Þegar hárið eldist
tapar baS smátt og
smátt bindiefninu.
Hornþekjan fíagnar
af og hárið verour
reytt og slitið.
Smásjáin sýnir að
bindiefnið er
horfið. Eftir eru
holrúm milli
hornþekjunnar og
kjarnans.
CERAMIDE R*
smýgur inn í háriði,
fylíir upp í holrúmin
oa "límir" fíögurnar
/ nornþekjunni
fastar við kjamann.
Háríð er
endurbyggt.
I smásjánni má
sjá að holrúmin
eru aftur full af
bindiefni. Hárið
er aftur orðið slétt
og sterkt.
Á rannsóknastofum
L'ORÉAL hefur verið búin til
ný sameind: CÉRAMIDE R*
NYJUNG! FORTIFIANCE með CÉRAMIDE R*
byggir hárið upp að nýju - innan frá.
DJÚPNÆRING NÆRINGARSJAMPÓ
HÁRNÆRING FROÐUNÆRING
L'ORÉAL
MEÐ CÉRAMIDE R*
Þegar hárið slitnar hverfur náttúrulega
bindiefnið (ceramide) sem límir
hornþekjuna við kjarnann. Hárið hrörnar
og missir mýkt, styrk og,gljáa.
A rannsóknastofum L'OREAL hefur lengi
verið unnið að lausn vandamálsins og nú
hefurjtekist að þróa nýtt bindiefni sem
L'QREAL hefur fengið einkarétt á -
CERAMIDE R* - sem kemur í stað þess sem
glatast. CERAMIDE R* binst hárinu og gefur
því fyrri styrk - glataða æsku - á ný.
Nýja hársnyrtilínan frá L'ORÉAL,
FÓRTIFIANCE, er sú eina sem inniheldur
CÉRAMIDE R*. Gagnstætt öðrum
hársnyrtivörum vinnur FORTIFIANCE ekki
utan á hárinu, heldur styrkir það innan frá og
vinnur þannig á móti hrörnun þess. Hárið
verður sterkt, mjúkt og gljáandi á ný.
Sýnilegur árangur eftir 3 vikur!
FORTIFIANCE með CERAMIDE R* er svo
hraðvirkt að þriggja vikna notkun á sjampói
og næringu nægir til að bæta byggingu og
útlit hársins.
FYRSTA HÁRSNYRTILÍNAN SEM VINNUR Á MÓTI HRÖRNUN HÁRSINS