Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sérstök lífeynsdeild stofnuð fyrir kennara AÐ MATI fulltrúa fjármálaráðu- neytis og kennara er líklegt að stofn- uð verði sérdeild innan Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins fyrir kennara þegar launagreiðslur tií þeirra flytj- ast frá ríkinu til sveitarfélaganna. Ekkert þokaðist í samningsátt í kjaradeilu kennara í gær. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, varaformaður KÍ, sagðist ekki vera bjartsýn á að deil- an leystist í þessari viku. Alþingi samþykkti grunnskóla- frumvarpið skömmu fyrir þingslit sl. laugardag. Áður hafði tekist sam- komulag milli ríkisstjómarinnar og kennara um breytingar á frumvarp- inu. Breytingamar fela í sér að færslu grunnskólans til sveitarfélag- anna er frestað til 1. ágúst 1996, enda hafí þá verið samþykkt lög um réttindamál kennara. Því er heitið að í lögunum verði að fínna ákvæði sem tryggi öllum þeim kennurum og skólastjómendum við gmnnskóla sem rétt hafa átt til aðildar að Líf- eyrissjóði starfsmanna ríkisins áframhaldandi aðild að sjóðnum. Ennfremur er gert ráð fyrir að lögin tryggi kennumm óbreytt ráðningar- Ekkert þokaðist réttindi hjá nýjum vinnuveitanda. Komi til ágreinings milli samtaka kennara eða sveitarfélaga um form eða ráðningarréttindi getur hvor aðili fyrir sig óskað gerðardóms í málinu. Kennarar ánægðir Guðrún Ebba sagðist líta á þessa niðurstöðu sem mikinn sigur fýrir kennara. Fallist hefði verið á kröfu kennara um að lífeyrisréttindi þeirra yrðu áfram tryggð með aðild að Líf- eyrissjóði starfsmanna ríkisins. Hún sagði að þó að kennarar hefðu ekki fengið tryggingu fyrir því að kennar- ar, sem heQa störf eftir 1. ágúst 1996, fengju aðild að sjóðnum væri frá því gengið að réttindi þeirra yrðu sambærileg réttindum starfandi kennara eins og þau væm í dag þegar sveitarfélögin tækju gmnn- skólann yfír. Hún sagðist líta á það sem mál sveitarfélaganna og ríkisins með hvaða hætti þetta yrði útfært. Fyrir kennara dygði að tryggt væri að réttindi þeirra yrðu ekki skert. samkomulagsátt Magnús Pétursson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu og for- maður nefndar sem fjallar um rétt- indamál opinberra starfsmanna, sagði að embættismenn væm að vinna að þessu máli í samvinnu við fulltrúa sveitarfélaganna og opin- berra starfsmanna. Hann sagði að nefndin fjallaði einnig um réttindi starfsmanna heilbrigðisþjónustunn- ar vegna sameiningar Borgarspítala og Landakotsspítala. Niðurstaða væri ekki fengin en í gmnnskóla- fmmvarpinu væri settur ákveðinn rammi um hvernig fara ætti með lífeyrisréttindamál kennara. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, sagðist vera ánægður með þá niðurstöðu sem fékkst í þessu máli. Hann sagði að sveitarfélögin hefðu áður bent á að besta leiðin til að leysa ágreining um lífeyrisréttindi kennara væri að þeir yrðu áfram í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Vilhjálmur sagði að það hefði aldrei verið ætlun sveitarfélaganna að skerða í neinu réttindi kennara við tilflutning þeirra til sveitarfélag- anna. Sá gmnnur sem lagður hefði verið með gmnnskólafrumvarpinu myndi auðvelda þá vinnu sem eftir væri við tilflutning gmnnskólans. Vilhjálmur tók fram að sveitarfé- lögin hefðu ekki skuldbundið sig til að samþykkja æviráðningu kennara þegar þeir gerðust starfsmenn þeirra. Guðrún Ebba sagði að ævi- ráðningarréttindin væru hluti af launakjörum kennara. Ef æviráðn- ing kennara yrði afnumin yrði að koma til launahækkun til kennara. Kjaradeilan er enn í hnút Guðrún Ebba sagði afar mikil- vægt að ágreiningur í sambandi við grunnskólafrumvarpið væri úr sög- unni því að hann hefði spillt fýrir vinnu við nýjan kjarasamning. Hún sagði að þessi niðurstaða leysti ekki kjaradeiluna sjálfa. Staðan í henni hefði ekki breyst að því leyti að áfram væri jafnmikill ágreiningur um breytingar á skipulagsmálum skólanna og með hvaða hætti ætti að leiðrétta laun kennara. Góð loðnuveiði 152 þús. tonnáland BÚIÐ er að landa rösklega 152 þús- und tonnum af loðnu það sem af er vetrarvertíð. Skipunum gekk vel að fylla sig í gær, en slæmt veður var á miðunum í fyrrinótt. Mikið var um átu í loðnunni sem veiddist í gær og veldur það erfiðleikum við fryst- ingu. Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni, var að fylla skipið við Lónsbugt þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Hann sagði að lítið vandamál væri að ná loðn- unni ef friður væri að veiða hana fyrir veðri. Hann sagði að loðnan sem veiddist austan við aðalgönguna væri smærri og því ekki eins góð til frystingar. Stærstur hluti loðnuflotans var við veiðar suður af Þorlákshöfn í gær. Þar er mjög mikið af loðnu. Morgunblaðið/RAX SKRIFLEG atkvæðagreiðsla fór fram á Dagsbrúnarfundinum, en hann sóttu um 600 manns. Andlát ÞÓRIR KR. ÞÓRÐARSON DR. ÞÓRIR Kr. Þórð- arson prófessor lést á heimili sínu í Reykjavík síðastliðinn sunnudag, 26. febrúar. Þórir fæddist í Reykjavík 9. júní 1924. Foreldrar hans voru Þorbjörg Baldursdóttir húsmóðir og Þórður Nikulásson vélstjóri. Fyrri eiginkona Þórðar var Inger Margrethe Schiöth Þórðarson hús- móðir, hún lést 15. nóv- ember 1961. Síðari eig- inkona Þórðar er Jak- obína Guðríður Finn- bogadóttir húsmóðir, fædd 6. desember 1928. Þórir lauk stúdentsprófí frá MR árið 1944 og embættisprófi í guð- fræði frá HI 1951. Árið 1959 lauk hann doktorsprófí í guðfræði frá University of Chicago. Auk þessa nam Þórir fomleifafræði í Jórdaníu árið 1956, kynnti sér félagslega þjónustu í Kaup- mannahöfn 1964 og var við framhaldsnám í Edinborg 1971-72. Þórir var dósent í guð- fræði við HÍ 1954-57 og prófessor frá 1957. Auk þess var hann gistiprófessor við McCormick presta- skólann í Chicago 1957-59 og kennari við Edinborgarháskóla árið 1972. Þórir var borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík og fyrsti varaforseti borg- arstjórnar 1962-1970 auk fjölmargra annarra starfa. Hann var sæmdur heiðurspeningi Skálholts 1963, varð riddari Dannebrogsorðunnar árið 1966 og hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1984. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fímm stjúpböm. Dr. Þórir Kr. Þórðarson Dagsbrúnsam- þykkti naumlega VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dags- brún samþykkti nýgerða kjara- samninga á félagsfundi í gær með 290 atkvæðum gegn 252. 16 at- kvæði voru ógild og 20 skiluðu auðu. Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Dagsbrúnar, sagði að andstaða fundarmanna við samninginn hefði ekki komið sér á óvart. Félagsmenn hefðu vænst meiri launahækkana og eins væri megn óánægja með atvinnuleysið og að ekki skyldi vera tekið á því í samningunum. Dagsbrún hafði boðað verkfall, sem komið hefði til framkvæmda í dag, hefði kjarasamningurinn ekki verið samþykktur á fundin- um. Stjóm félagsins mælti með því að samningurinn yrði sam- þykktur. Einn stjórnarmaður var samningnum andvígur og mælti eindregið með þvl á fundinum að hann yrði felldur. Guðmundur sagði að kjör Dags- brúnarmanna hefðu verið að versna á síðustu árum. Yfirvinna hefði minnkað hjá mjög mörgum. Um 700 félagsmenn væra at- vinnulausir og makar margra Dagsbrúnarmanna hefðu misst vinnuna. Óánægja fólks með kjör sín væri því mikil og það endurspe- glaðist í atkvæðagreiðslunni á Dagsbrúnarfundinum. Kjarasamningarnir hafa verið samþykktir í öllum félögum fram að þessu. Um helgina voru þeir samþykktir í Félagi jámiðnaðar- manna í Reykjavík og Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri. Þeir hafa einnig verið samþykktir í verkalýðsfélaginu Fram á Sauð- árkróki og hjá Aftureldingu á Hellissandi. Verslunarmannafé- lögin á Akureyri og Akranesi hafa og samþykkt samningana. í gærkvöldi voru samningarnir samþykktir í Verkakvennafélag- inu Framtíðinni í Hafnarfirði. 74 sögðu já, 19 nei og 6 atkvæðaseðl- ar voru auðir eða ógildir. Drukknaði á loðnu- miðunum SKIPVERJI af loðnuskipinu Sigurði frá Vestmannaeyjum féll útbyrðis og drukknaði þegar skipið var að veiðum um 12 sjómílur aust- norðaustur af Bjarnarey. Verið var að undirbúa að kasta nótinni þegar skipveijinn féll í sjóinn. Stýri- maðurinn á skip- inu fór í flotgalla og henti sér í sjó- inn á eftir mann- inum og náði honum upp. Maðurinn var látinn þegar hann náðist um borð. Slysið varð um kl. 3.30 aðfara- nótt sunnudags í mjög góðu veðri. Talið er að skipveijinn sem lést hafi verið um átta mínútur í sjónum. Hinn látni hét Gunnar Ingi Ein- arsson til heimilis að Búhamri 58 í Vestmannaeyjum. Hann var 43 ára gamall. Gunnar Ingi lætur eftir sig eiginkonu og þijár dætur. ----------» ♦ ♦----- Skjálfta- hrina á Suðurlandi SÍÐUSTU tvo daga hefur skjálfta- hrinu orðið vart á Suðurlandi og mældist einn, 3,4 á Richter, um hálfníu í gærkvöldi norðarlega á Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Ragnari Stefánssyni jarðskjálfta- fræðingi. Einnig varð skjálfti um þijúleytið í gærdag, fyrir norðan Hveragerði, að sögn Ragnars og fylgdi dálítil skjálftahrina í kjölfarið til klukkan fímm þegar dró úr virkni. „Upp úr klukkan sjö óx virknin aftur og kl. 20.38 varð stærri skjálfti, 3,4, norð- ur undir Skarðsmýrarfjalli á Hellis- heiði,“ sagði Ragnar. Hefur hrinan varað í tvo daga en þrír jarðskjálftar að styrkleikanum 3.2 til 3,4 á Richter urðu við Hvera- gerði á sunnudag og aðfaranótt mánudags. Kristján Ágústsson, jarð- eðlisfræðingur á Veðurstofunni, seg- ir að skjálftanna hafí orðið vart frá Hellu upp á Akranes. Engar tjónstil- kynningar hafi hins vegar borist til stofnunarinnar. Kristján segir að hrinan hafi haf- ist með stærsta skjálftanum klukkan 11.40 á sunnudag. Hann hafí mælst 3,4 á Richter og átt upptök sín í botni Grensdals, um 6 km norðan við Hveragerði. Skjálftanum fylgdu aðrir minni, en virknin var nánast orðin að engu um kl. 15. Önnur lota hófst með jarðskjálfta, 3.3 á Richter, klukkan 17.42. Upp- tökin voru á svipuðum slóðum og áður og fylgdu nokkrir minni skjálft- ar skjálftanum eftir. Eftir miðnætti, eða klukkan 00.50, hófst svo þriðja lotan með 3,2 stiga skjálfta. Kristján sagði erfitt að svara því hvort hér gæti verið um fyrirboða Suðurlandsskjálfta að ræða. Hins vegar minntu skjálftarnir hann á hrinu í ágúst i fyrra. Sú hrina stóð í 10 daga. ------» ♦ ♦ --- Almenn lögfræði 83/7%féUu 83,7% fall varð á prófí í almennri lögfræði við Háskóla íslands í janúar síðastliðnum. Er það svipað hlutfall og verið hefur undanfarin ár. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu nemendaskráningar voru 235 skráðir til prófs og af þeim mættu 190. Þar af féllu 159 eða 83,7%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.