Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ANNA JÓNSDÓTTIR + Anna Jónsdóttir fæddist í Felli í Sléttuhlíð 31. maí 1918. Hún lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 22. febrúar 1995. For- eldar hennar voru Jón Árnason, hér- aðslæknir á Kópa- skeri, f. 10.9. 1889, d. 10.1. 1944, og Valgerður Guðrún Sveinsdóttir f. 8.12. 1895, d. 10.11. 1983. Anna var elst sjö systkina, Jórunnar, f. 25.8. 1920, d. 24.10. 1987, Bjargar, f. 4.1. 1924, d. 17.5. 1926, Sigurðar, f. 6.10. 1925, Jódísar, f. 12.10. 1927, Árna, f. 2.4. 1929, d. 1.12. 1983, og Svejns, f. 24.8. 1931. Eiginmað- ur Onnu var Olafur Jóhann Sig- urðsson, rithöfundur, f. 26.9. 1918, d. 30.7. 1988. Þau giftust 22. apríl 1943. Foreldar Ólafs Jóhanns voru Sigurður Jóns- son, f. 19.5. 1877, d. 19.6. 1970, og Ingibjörg Þóra Jónsdóttir, f. 9.1. 1879, d. 17.9. 1960. Synir Önnu og Ólafs Jóhanns eru Jón, f. 17.11. 1943, kvæntur Sigrúnu Stefáns- dóttur, f. 29.1.1945, og Ólafur Jóhann, f. 26.9.1962, kvænt- ur Önnu Ólafsdótt- ur, f. 6.8. 1963. Börn Jóns og Sig- rúnar eru Anna Sif, Stefán, Ólafur Jó- hann og Árni. Börn Ólafs Jóhanns og Önnu eru Ólafur Jóhann og nýfædd- ur drengur. Anna ólst upp á Kópaskeri. Hún lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Islands 1937. Hún stundaði skrifstofu- störf fyrstu árin að loknu prófi, lengst hjá Sjóvá, en rak síðan pijónastofu að Suðurgötu 15 allt til ársins 1983. Síðan starf- aði hún við Listasafn Islands til ársins 1989. Anna var ötull stuðningsmaður Kvennalistans frá stofun hans og tók þátt í starfi flokksins. Útför Önnu Jónsdóttur fer fram frá Dómkirkjuni í Reylqa- vik í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. EKKI get ég látið hjá líða að minn- ast höfðingskonunnar Önnu Jóns- dóttur með fáeinum orðum, þó ekki væri til annars en sýna ofurlítinn þakklætisvott fyrir vinsemd hennar og alúðlegheit við mig og fjölskyldu mína. Önnu kynntist ég, þegar hún gift- ist vini mínum Ólafí Jóhanni Sig- urðssyni, sem á þeim tíma var blá- ^nauður ungur rithöfundur, litlu eldri en ég, en orðinn landskunnur fyrir ritverk sín. Þau voru jafnaldr- ar, hann og Anna, en hún var skrif- stofudama í Reykjavík, þegar þau tóku saman, enda hafði hún að baki sér nám frá Verslunarskóla íslands, var hinsvegar ættuð norðan úr landi og alin upp á Kópaskeri, þar sem faðir hennar hafði verið læknir. Heimsstyijöldin síðari var í fullum gangi, þegar þau hófu að búa sam- an í snoturri íbúð á efstu hæðinni að Suðurgötu 15, en Ólafur var þá svo eignalaus maður að ég minnist þess ekki að hann ætti annað til að leggja í búið en ritvélina sína og dálítinn slatta af bókum, — og svo að sjálfsögðu skáldgáfuna. Engu að Síður voru fljótlega komin smekkleg húsgögn í stofuna og ég hygg að flest þeirra hafí verið þar alla þeirra búskapartíð. Anna hafði óbilandi trú á þeim unga og snauða rithöfundi sem hún hafði tengst hjúskapar- böndum og var einsog klettur við hlið hans alla tíð, þótt hann hlyti ekki verðskuldaða viðurkenningu fyrr en seint og um síðir. Heimurinn var í björtu báli, þegar þau giftu sig. Þá voru tvö ár eftir þangað til þeim hildarleik var að fullu lokið. En ungu hjónin trúðu staðfastlega á betri heim. Það gerði ég líka. Við vorum öll mjög róttæk í skoðunum, ekkert bangin við að heita sósíalist- ttt Krossar á leidi I viöarlit og málooir onai mynsiur, vönduo vin Mismunandi mynsh ISIml 91-35P29 og 35735 Crfisdrylfkjur A VaKjngohú/ið cnpi-inn Síml 555-4477 ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200 ar og bjuggumst við sigri hinnar kúguðu stéttar um allan hinn vest- ræna heim, ef ekki á allri jarðar- kringlunni, að stríði loknu. Allir vita hvernig það fór. Eg var tíður gestur á Suðurgötu 15 þessi ár og síðar fengu kona mín og dóttir einnig að njóta góðra stunda með þeim hjónum. Ég hafði ekki fyrr kynnst Önnu en mér var ljóst, að þar fór engin meðalmann- eskja. Ef ég ætti að lýsa lyndisein- kennum hennar mundu þijú orð fyrst koma mér í hug: hispursleysi, hressilegheit og hreinskilni. Þannig gat hún tekið stórt upp í sig um menn og málefni, ef hún vildi það við hafa. En við þetta mætti ýmsu bæta. Hún var góðum gáfum gædd, mikill bókmenntalesandi og dugn- aðurinn einstakur. Ég sá hana aldr- ei mædda. Hún tók lífsbaráttunni eins og sjálfsögðum hlut. Hún hætti skrifstofustörfum nokkru eftir stríð- lok og hóf að reka pijónastofu í kjallara hússins sem þau bjuggu í. Það tryggði þeim hjónum ákveðið öryggi, þegar ýmsir atvinnuhættir urðu ótryggir, að stríði loknu. Þau höfðu og eignast son, er þau nefndu Jón, á fyrsta búskaparári, og þá var betra að Anna væri tiltæk í húsinu meðan snáðinn var á barnaskól- aldri. Löngu seinna eignuðust þau annan son, Ólaf Jóhann. En þegar Anna stundaði pijónastofu sína niðri í kjallaranum, taldi hún ekki eftir sér að hlaupa upp stigann og upp á fjórðu hæð til að veita gesti beina um miðjan dag. Þetta voru enda gestir sem mátu þau hjón mikils: listafólk, bókmenntafólk. Síðan var Anna þotin niður aftur til vinnu sinnar. Hversu oft hef ég ekki setið við borðið í stofunni á Suðurgötu 15 og notið kræsinga og þess and- rúmslofts bókmennta sem þau Ólaf- ur og Anna gæddu vistarverur sín- ar. Oft hef ég hugsað til þeirra stunda með söknuði. En þetta hlaut að taka enda einsog annað í stund- legum heimi. Þá er Jaakklætiskennd- in eftir. Ég heyri Olaf segja frá og herma snillilega eftir þekktum per- sónum Reykjavíkur. Ég heyri hressi- legan hlátur Önnu og ég fínn traust handtak hennar, þegar hún heilsaði gesti sínum eða kvaddi hann. Eftir lát manns síns bjó Anna á Reynimel 49, en í því sama húsi hafði Ragnar í Smára áður búið með fjölskyldu sinni, hann sem fyrr- um hafði.verið vinnuveitandi Ólafs Jóhanns og gefið út bækur hans. Anna hafði þá undanfarin ár unnið á Listasafni íslands, en hún gekk ekki lengur heil til skógar. Hún hafði fengið einhvern blóðsjúkdóm sem ég kann ekki skil á, og hann fór illa með hana svo að hún gat MINIMINGAR ekki lesið á tímabili, en þegar líðan hennar var það betri að hún gat gengið úti, sagði hún við mig á förn- um vegi: Ég er ágæt, það er ekkert að mér. Þá átti Ólafur orðið við mikinn heilsubrest að stríða og um það snerist hugur hennar. Þó hygg ég að hún hafí aldrei náð sér að fullu eftir fyrrnefndan sjúkdóm. Niðurlæging og blekkingaleikur forystumanna sósíalista á íslandi og síðan forustumanna Alþýðu- bandalagsins varð áfall fyrir marga einlæga vinstrimenn og svo var um Önnu. Hún gerðist á seinni árum ákafur fylgismaður Kvennalistans og var í því sem öðru heil og hispurs- laus. Síðast þegar ég heimsótti hana á Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt konu minni var hún orðin illa á sig komin líkamlega, en andlega furðuskýr og handtakið innilegt og traust sem forðum. Jón Óskar. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að sjá hana ömmu mína aftur, hún var alltaf svo stór hluti af mínu lífi og minningar tengdar henni eru margar. Amma og afi bjuggu alla sína búskapartíð á Suðurgötu 15 og þar var amma einnig með pijónastofu í kjallaran- um. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þeirra í Suðurgötuna og oft lumaði amma á andabrauði, en það voru brauðafgangar til að gefa öndunum á Tjörninni. Einnig fórum við systkinin með þeim afa og ömmu í sunnudagsbfltúra og var þá kannski farið út á Álftanes og gengið í fjörunni. Á páskunum fengum við alltaf Makintoshdós frá ömmu og afa en ekki páskaegg. Ástæðan fyrir því var sú að amma sagði við okkur að með þessu móti fengjum við meira sælgæti fyrir sama pening og það vorum við auð- vitað ánægð með. Svona var hún amma mín hagsýn. Eitt sinn fékk ég það verkefni í skólanum að taka viðtal við ein- hvern mér eldri. Ég var ekki í vafa um við hvem ég ætlaði að taka viðtal, það kom enginn til greina nema hún amma mín og eyddi ég þess vegna eftirmiðdegi hjá henni. Amma sagði mér frá ýmsu í þessu viðtali, hvemig lífið var hjá henni á Kópaskeri, flutningnum til Reykjavíkur og náminu í Verslunar- skólanum, hvemig hún kynntist afa og hemámsámnum. Það var mjög gaman að vinna að þessu viðtali með ömmu, enda sagði hún alltaf svo skemmtilega frá. Þegar ég byijaði í þriðja bekk Menntaskólans í Reykjavík var ég í skólanum eftir hádegi en lærði á bókasafninu fyrir hádegi. Þá var nú gott að geta farið til ömmu og afa og borða með þeim í hádeginu. Oft kom pabbi einnig í hádegismat. Þetta vom góðar stundir sem við áttum þarna í hádeginu á Suður- götu. Eftir að afí dó í júlí 1988 flutti amma á Reynimel 49 og þegar ég fór að vinna með pabba sumarið 1991 fór ég oft með honum til ömmu að borða snarl, eða ítalskt hlaðborð eins og amma kallaði það, í hádeginu. Amma bar alltaf hag okkar barnabarnanna fyrir bijósti. Hún fylgdist vel með skólagöngu okkar, enda var hún þeirrar skoðunar að við ættum að mennta okkur. Þegar mér gekk illa í stafsetningu í MR sagði amma ekki neitt en gaf mér stafsetningarorðabók og bauðst til þess að hlýða mér yfír. Amma fylgdist vel með menntaskólanámi mínu og pft lærði ég fyrir próf hjá henni á Reynimelnum þar sem ég hafði herbergi út af fyrir mig. Það var alltaf gott að vera hjá ömmu og gaman að spjalla við hana í pásunum sem oft vildu verða ansi langar. Eftir stúdentspróf ákvað ég að læra sagnfræði í Háskólanum. Amma var ánægð með þessa ákvörðun mína og sagði mér að þetta væri það fag sem hana hefði alltaf langað til að læra. Það gladdi mig mjög að vita þetta. Því miður verður amma ekki með mér þegar ég útskrifast. Ammá var mikil kvennréttinda- kona og tók virkan þátt í starfi Kvennalistans frá stofnun hans. Fyrir alþingiskosningarnar 1991 tók hún sæti á lista Kvennalistans hér í Reykjavík. Fyrir kosningarnar tók hún að sér að bera bæklinga í hús í Vesturbænum þrátt fyrir að vera orðin 72 ára, svo mikill var eldmóðurinn. Fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar fórum við í heil- mikinn bíltúr saman til að amma gæti kosið Kvennalistann. Það er skiýtið að hugsa til þess að geta ekki framar heimsótt ömmu á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hún bjó síðasta hálft annað ár ævi sinnar. Sorgin er sár og missirinn mikill, en ég og bræður mínir eigum margar góðar minningar um ömmu mína sem munu ylja okkur um hjartarætur alla mína ævi. Anna Sif Jónsdóttir. Okkur Önnu fannst við alltaf hafa þekkst. Og í raun og veru var það rétt. Það voru orð að sönnu. Jón Árnason faðir hennar hafði sem ungur læknanemi dvalist á heimili afa míns og ömmu í Læknishúsinu í Keflavík, Þorgrími héraðslækni Þórðarsyni og konu hans Jóhönnu Andreu Ludvigsdóttur. Valgerður Sveinsdóttir, kona Jóns læknis, seg- ir í endurminningum sínum, að Jón maður hennar hafí verið Þorgrími til aðstoðar við læknisstörf. Hafí lesið þar um skeið til læknaprófs, haft frítt fæði og kaup nokkurt. Jón Árnason, læknaneminn ungi, var ein'staklega vel látinn af öllum á læknisheimilinu í Keflavík og hvar sem hann kom á þessum slóð- um. Þegar Jón var farinn til Reykja- víkur hittast þeir, hann og Þorgrím- ur afí minn, á götu í höfuðstaðnum. Jón var þá í húsnæðisleit og tjáði Þorgrími vandræði sín. Varð það úr, að Valgerður fór með Önnu dóttur sína, sem þá var á öðru ári, til Keflavíkur. Á meðan bjó Jón í haginn fyrir þau í Reykjavík. Þær mæðgur, Valgerður og Anna, dvöldust í Læknishúsinu í Keflavík í nokkra mánuði, öllum til mestu ánægju. Amma mín, Jóhanna, og Valgerður bundust tryggðaböndum og héldu sambandi alla tíð. Var þó fjarlægð slík milli heimilanna að naumast gat lengri verið á þessu landi. Önnur bjó á ysta útskaga Suðumesja, en hin á Kópaskeri, norður við heimskautsbaug. Skömmu eftir brottför Valgerðar og Önnu gerist ég fjölskyldumeð- limur í húsi afa míns og ömmu og elst þar upp. Mér er enn í minni þegar amma mín og stúlkurnar heima fara að segja mér frá Önnu litlu, sem nú átti heima að Ási við Kópasker og telja upp alla hennar kosti og brýna fyrir mér að líkjast henni í einu og öllu. Lengi vel vildi ég ekki heyra neinar sögur nema framhaldssöguna af Önnu litlu. Valgerður móðir hennar og Jó- hanna amma mín skrifuðust á og fylgdu bréfunum jafnan sendingar. Állskyns pijónaflíkur og sitthvað annað. Oft var fallegu korti stungið inn í pakkana: Til Önnu og til Bindu. Seinna skrifuðumst við Anna á. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Þetta var aðdragandinn að ævi- langri vináttu. Tíminn leið. Mánuðir og ár. Og allt í einu erum við staddar uppi á lofti í húsi frú Francisku Olsen í Gijótaþorpinu, Garðastræti 9. Uppi á efsta lofti. Systurnar Anna og Jórunn og ég erum þá að feta okk- ar fyrstu spor í Verslunarskólanum. Þessar stundir eru hugstæðar. Hús Francisku, þar sem við sátum og spjölluðum saman og nutum lífsins, er nú flutt af grunni sínum í aðra götu í Gijótaþorpinu, en heimili okkar hjóna er á sama stað og hús Francisku var forðum, þar sem við áttum okkar góðu stundir. Stofan okkar er nákvæmlega á sama stað og þær systur Anna og Jórunn áttu heima sín skólaár. Árin sem við sátum á skólabekk í Verslunarskólanum eru heillandi í minningunni. Allt svo létt og lip- urt. Eitt sumarið fór ég með Val- gerði norður að Ási. Við fórum með strandferðaskipi, sem sigldi inn á hveija smáhöfn á leiðinni. Hvar- vetna vakti Valgerður athygli fyrir glæsileika og glaðlyndi. Djarfleg var hún og greindarleg. Heima í Ási voru Anna og Jórunn ráðskonur á meðan móðir þeirra var að heiman. Allt heimilisfólkið tók vel á móti mér og bar mig á hönd- um allan tímann, sem ég dvaldist þar. Anna settist stundum við píanóið á kvöldin og spilaði lag, sem átti hug allra ungmenna þá: Vertu hjá mér Dísa. Við Jórunn sungum og allur skarinn tók undir. Kvöldin voru yndisleg á Ási. Þetta sumar var hlýtt og bjart og kvöldin unaðs- fögur. Við Anna og Valgerður gengum stundum á kvöldin upp á ásinn. Þar er mikið beijaland og jörðin þakin unaðslegum villigróðri. Þar sungu fuglarnir sætast sem ég hefí heyrt um ævidaga mína. Him- inninn tær og fagur við heimskauts- bauginn. Loftið hreint og ómengað. Margs er að sakna þegar rifjaðar eru upp liðnar stundir. Mér er eink- ar minnisstæður hlátur þeirra mæðgna allra. Það var einhver heið- ríkja og sönn gleði sem hljómaði í eyrum. Ég hafði aldrei heyrt slíka gleði í hlátri fyrr. Það var sannur hlátur og ósvikin gleði. Nærri sumarmálum árið 1943 giftist Anna Ólafi Jóhanni Sigurðs- syni rithöfundi. Jafnræði var með þeim hjónum Önnu og Ólafi Jó- hanni. Hann naut óskertrar virðing- ar skáldbræðra sinna í umræðuhópi þeirra. Ólafur mælti „hnyttilegustu setningarnar á fundum þeirra". Og þeir spurðu: „Hversvegna gátum við hinir ekki ort jafnvel?" Anna var glögg á skapgerð manna og kunni góð skil á málefn- um. Hún fylgdist vel með í heimi bókmennta og lista. Fróðlegt var að heyra frásagnir hennar af sam- kundum skálda og rithöfunda er settu svip á samtíðina með verkum sínum. Heyra álit hennar á persón- unum bak við ritverkin. Önnu lét einkar vel að segja frá liðinni tíð. Frásagnir hennar ljósar og lifandi. Sérstæðum persónum lýsti hún af snilld og lék atburði sem á leiksvæði væri. Kvöldstundirnar á Suðurgötu hjá Önnu og Ólafi voru sannkallaðar sólskinsstundir. Ólafur var manna glaðastur og mikill skemmtimaður heim að sækja. Iðjusemi var í hávegum á heimili þeirra hjóna. Ólafur sat við skriftir og fágaði hvert orð. Að loknu námi stundaði Anna ýmis skrifstofustörf. Síðan starf- rækti hún pijónastofu í Suðurgötu. Veitti henni forstöðu og vann þar sjálf af þeirri festu er einkenndi öll hennar störf. Ég veit ekki hveiju eða hveijum er að þakka fyrir hana Önnu Jóns- dóttur. Hversu góð, hreinlynd og skemmtileg hún var. Guði, henni sjálfri _eða Ólafi Jóhanni Sigurðs- syni? Ég þekkti hann líka vel og vissi að það var alltaf mannbætandi að vera í návist hans. Það var líka mannbætandi að vera nálægt Önnu minni. Henni var lagið að hressa mann upp þegar ólund sótti að og gleðjast með manni á góðri stund. Fyrir henni bar maður virðingu. Jafnvel þegar á unglingsárum og treysti henni í einu og öllu. Eftir að Ólafur Jóhann var látinn og Anna flutt í íbúð sína á Reyni- mel kom hún oft í heimsókn til okkar hjóna í Garðastræti. Hún kom þá gangandi vestan af Melum og taldi ekki eftir sér sporin. Þótt heilsu hennar hrakaði var kjarkur hennar óbilandi og vilji hennar sterkur. Anna og Ólafur höfðu barnalán. Synir þeirra eru Jón prófessor í haffræði og Ólafur Jóhann rithöf- undur og forstjóri. Nú eru þau horfín, pilturinn ungi, sem komið hafði að austan, úr sveit þar sem skiptust á gulgráir móar og mýraflákar, en einnig angan víðis, ilmur birkiskóga og kliður söngfugla og bjarta norræna stúlk- an, sem kom með hjartahlýju og kjark úr heimkynnum hafíss og heiðríkju sólbjartra sumarnátta. Innilegar samúðarkveðjur til vandamanna. Birna Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.