Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ - Gróf sig i tonn vio sleðann „ÉG VAR hættur að finna fyrir fótunum á mér og mig kól lítilshátt- ar á tám,“ sagði Steinarr Lár Stein- arsson, 16 ára vélsleðamaður, sem gróf sig í fönn í illviðrinu sl. sunnu- dag í Bláfjöllum. Gerð var víðtæk leit að Steinari en hann skilaði sér sjálfur heill á húfí um kvöldmatar- leytið. Foreldrar og bróðir Steinars biðu hans í skála Breiðabliks. „Ég lagði af stað um kl. hálfell- efu á sunnudagsmorgni frá skála Breiðabliks í Bláfjöllum í góðu veðri. Ég ætlaði í Litlu kaffístofuna og kíkja við í leiðinni í Jósepsdal. Ég keyrði niður í Kaffístofu og hélt þaðan yfír í Jósepsdal um kl. 11. Þegar kom upp úr honum ákvað ég að fara bakvið fjallagarðinn og aftur inn í skála Breiðabliks," sagði Steinarr. Festi sleðann í gili „Skyggnið hafði spillst og ég sá orðið lítið. Skyndilega tókst sleðinn á loft og fór ofan í skjólsælt gil og stöðvaðist hinum megin í gilinu. Ég meiddist lítið en sleðinn sat fastur. Það tók um 45 mínútur að losa sleðann og þegar ég kom upp úr gilinu aftur var komið bandbijál- Steinarr Lár Steinarsson að veður. Ég vissi ekkert hvemig áttimar sneru og taldi óráðlegt að keyra eitthvað út í bláinn. Ég lagði sleðanum upp í vindinn og gróf mér og holu lá þar næstu sex eða sjö klukkutímana. Um sjöleytið að kvöldi, rétt fyrir sólsetur, kom smáglenna í himininn. Ég gjörþekki mig þama á staðnum og afréð þá að leggja af stað og keyrði þá bein- ustu leið upp í skála Breiðabliks," sagði Steinarr. Steinarr gerði sér grein fyrir því að leit væri hafín að honum og vildi hann koma á framfæri þökk- um til allra þeirra sem þátt tóku í leitinni. FRÉTTIR Stórtjón í eldsvoða í húsi við Suðurlandsbraut 16 í fyrrinótt Morgunblaðið/Júlíus HÚSIÐ var alelda þegar slökkvilið kom á staðinn en myndin er tekin um það leyti sem slökkvistarf hófst. Himinháar eldsúlur stóðu upp úr þakinu MIKIÐ tjón varð í einum mesta elds- voða á þessu ári í Reykjavík aðfara- nótt mánudagsins. Eldsvoðinn varð í verkstæði í bakhúsi á Suðurlands- braut 16, húsi sem er kennt við Gunnar Ásgeirsson. Miklar eldtung- ur stóð upp úr þaki hússins þegar slökkvilið kom á staðinn og spreng- ingar höfðu orðið í húsinu. Slökkvi- liði tókst að vama því að eldur kæmist yfír í skrifstofubyggingu sem snýr út að Suðurlandsbraut og í hjólbarða- og mælaverkstæði sem er sambyggt húsinu austan við það. Einnig tókst að vama þvi að eldur kæmist í öryggisþjónustuna Sívaka sem er vestast í húsinu. Þó er ljóst að tjón hleypur á nokkmm milljón- um króna, einkum vegna vatnselgs og sóts á jarðhæð hússins Suður- landsbrautarmegin auk skemmda á húsinu sjálfu. Að sögn RLR er ekki vitað hver upptök eldsins eru. Liklegt þykir að eldurinn hafi náð að krauma einhveija stund í húsinu áður en hans varð vart en það var íbúi i Álfheimum sem sá eldtungum- ar úr stofuglugga sínum sem gerði slökkviliði aðvart upp úr miðnætti. Sprengingar heyrðust alla leið niður á Kleppsveg og stór hurð á verk- stæðinu sprakk út. Öryggisfyrirtæki í húsinu Bjöm Pétursson, eigandi VDO- verkstæðisins, býr inn af verkstæð- inu Suðurlandsbrautarmegin en eld- vamarveggur skiptir húsinu að endi- löngu. „Við rekum héma hjólbarða- og mælaverkstæði og heildsölu á mælum. Hjá okkur var lager upp á margar milljónir í hjólbörðum og mælum auk véla. Ijónið hleypur á milljónum því ein dekkjavél kostar hálfa milljón kr. og ég efast um að tölvumar í þeim virki eftir að vatn hefur farið í þær,“ sagði Bjöm. Mikið vatn var notað við slökkvi- starfíð og fór það niður á jarðhæðina á Suðurlandsbraut þar sem er raf- tækjaverslun. Brunaveggur er á milli skrifstofuálmunnar og verkstæðisins og urðu hita- og sótskemmdir víða. Engin starfsemi var í húsinu þar sem eldurinn varð laus en þar gjöreyðilögðust tveir bflar í eigu verk- takafyrirtækis sem var að flytjast í annað hús- næði. Vestast í húsinu var öryggisþjónustan Sívaki hf. Húsið var alelda þeg- ar slökkvilið kom og himinháar eldsúlur stóðu upp úr þakinu. Ekki var tekin áhætta á því að senda reykkaf- ara inn í húsið því óljóst var hvort gaskútar væm þar inni og auk þess gat þakið fallið niður á hverri stundu. Stórtækt slökkvistarf Jón Viðar Matthíasson vara- slökkviliðsstjóri segir að aðstæður hafi verið mjög slæmar þegar slökkvilið kom á staðinn. Öll tæki þurfti að staðsetja Iangt frá húsinu vegna þess hve alelda það var orðið. Eldurinn teygði sig út úr gluggaröð á húsinu að tækjum slökkviliðs- ins og sagði Jón Viðar að mesta hættan hefði verið sú að eldurinn næði að læsa sig í nær- liggjandi hús. Neðri byggingin nær Suður- landsbraut var í mestri hættu og var hún rýmd. „Við fengum strax flugvallarbflinn til okk- ar svo þetta gekk betur en á horfðist," sagði Jón Viðar. 6-7 slökkvibflar vom á staðnum og hátt í 70 slökkviliðsmenn tóku þátt í starfinu. Jón Viðar segir að þetta sé mesti eldsvoði í Reykjavík á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum frá RLR vom rafmagnsmál í húsinu í nokkuð góðu horfí. Lítil starfsemi var í hús- inu og það mjög mikið bmnnið og því erfitt að átta sig á upptökum eldsins. Björn Pétursson \ I I Morgunblaðið/Árni Sæberg ODDUR Valdimarsson og Benedikta Hannesdóttir með frum- burðinn óþreyjufulla en mæðginunum heilsast að sögn vel. Sextán ára móðir eignaðist barn í sumarbústað Greip drenginn á lofti „ÉG VAKTI Odd um sexleytið því ég var búin að missa vatnið. Þá var ég orðin virkilega hrædd, enda búin að átta mig á hvað var að gerast,“ sagði Benedikta Hannesdóttir 16 ára móðir í sam- tali við Morgunblaðið í gær en sonur hennar kom í heiminn í Miðhúsaskógi er hún var 33 vikur gengin á leið aðfaranótt síðast- liðins laugardags. Hefðbundinn meðgöngutimi er 38-40 vikur. „Ég fann fyrir samdráttar- verkjum um klukkan fimm en fannst það ekkert merkilegt því ég er búin að vera með þá alla meðgönguna meira eða minna svo við fórum bara öll að sofa,“ segir Benedikta en auk hennar voru fimm ungmenni um tvítugt í bústaðnum. Drengurinn kastaðist út „Oddur fór og vakti alla og sendi bróður sinn eftir sjúkrabíl. Síðan kom systir mín inn til mín ásamt vini Odds og ég fékk að hárreyta þau og klípa. Oddur hvatti mig áfram og sagði mér hvað ég ætti að gera. Síðan kast- aðist drengurinn út, hann greip hann bara á lofti. Ég var búin að eiga kortér yfir sjö,“ segir Benedikta. Hún segir að Oddur hafi lært handtökin á skyndihjálparnám- skeiði og eins hafi þau sótt for- eldranámskeið. „Svo tók Oddur bendlana af sænginni, batt um naflastrenginn og klippti með skærum úr sjúkrakassa sem við höfðum meðferðis,“ segir Bene- dikta. Að hennar sögn kom sjúkra- bíllinn síðan tuttugu mínútur í átta og flutti hann foreldrana ásamt fyrirburanum á sjúkrahús- ið á Selfossi. En þaðan voru þau flutt á Landspítalann. „Hann kom síðan úr kassanum í dag og heilsast n\jög vel,“ segir Bene- dikta en fyrirburinn reyndist tæpar átta merkur og 44 sentí- metrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.