Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ JÓN HARÐARSON -U Jón Harðarson ' fæddist á Hólmavík 1. októ- ber 1963 og ólst upp í Kópavogi. Hann lést af slys- förum 19. febrúar síðastliðinn. Jón var elstur fjögurra barna hjónanna Ragnheiðar Bjarg- ar Jónsdóttur og Harðar Guðmunds- sonar, systkini hans eru Harpa, Haukur og Hrönn. Jón varð stúdent frá Menntaskólanum í Kópa- vogi 1983 og lauk BS-prófi í tölvunarfræði frá Háskóla ís- lands 1987. Hann starfaði hjá Almennu kerfisfræðistofunni. Jón var rnikill útivistarmaður og félagi í Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi. Utför hans fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 28. febrúar og hefst athöfnin kl. 15.00. ÞEGAR slys og hamfarir ganga nærri rótum blómlegra byggðar- laga, eins og raun bar vitni í Súða- vík, eru oft fyrstir til aðstoðar fé- lagar björgunarsveita. Þá ganga þeir hiklaust til verks við erfið skilyrði og leggja sig óhikað í nokkra hættu. Slíkt er ekki unnt nema að baki búi mikil þjálfun og kunnátta fyrir utan áhuga og fóm- fýsi þefrra sem í hlut eiga. Þjálfun og nám við erfíðar aðstæður er nauðsyn þeim sem vilja fást við björgunarstörf. Jón Harðarson, sem ungur gekk til liðs við Skátafé- lagið Kópa í Kópavogi, var einn hinna ungu björgunarsveit- armanna. Hann var virkur félagi í skátafélagi sínu, gegndi þar ábyrgðarstörfum, varð flokksfor- ingi, sveitarforingi og virkur félagi í dróttskátastarfi uns hann hafði aldur til að ganga til liðs við Hjálp- arsveit skáta í Kópavogi. Jón Harð- arson var fjölhæfur og áhugasam- ur félagi í hjálparsveitinni, lagði sig eftir að læra til björgunarstarfa á sjó og landi, var í bátaflokki og sleðaflokki sveitarinnar. Hann lét ekki heldur sitt eftir liggja í þjón- ustu við félaga sína og sat um hríð í stjóm sveitarinnar. Mikill skaði er að því að sjá á bak ungum og dugmiklum manni. Jón Harðarson var trygglyndur félagi, sem hafði að leiðarljósi hug- sjón sem hann kynntist ungur skáti — að hjálpa öðmm. Stjórn Banda- lags íslenskra skáta flytur ástvin- um hans einlægar samúðarkveðjur og þakkar störf hans að málum skátahreyfingarinnar. Kveðja frá Bandalagi íslenskra skáta Hvað er dýrmætara en góður vinur? Það er ekki auðvelt að segja hvenær maður eignast góðan vin, hvemig hann velst og hvað þarf til vináttu. Úr stórum kunningjahópi ungl- ingsáranna vaxa nokkrir áfram án átaka og verða að ævilöngum vin- um. Hvemig geta níu ólíkir krakk- ar, hver úr sinni áttinni og með misjöfn áhugamál, sem hittast fyr- ir tilviljun í skóla orðið vinir? Og ekki sem vinir í hóp heldur alvöru vinir, þar sem hver og einn er mikilvægur? Það er erfítt að átta sig á því fyrr en skóla lýkur og hvert um sig hefur markað sér farveg að aðskilnaðurinn breytir engu, nálægð vina verður ekki mæld í metrum. Það er margt sem erfítt er að skilja og kannski á ekki að reyna það, við vitum að slíkur vinskapur er alltaf einstakur. Ekki þarf sameiginleg áhugamál né vettvang til að halda vinátt- unni, ekki tíðar heim- sóknir, ekkert áþreif- anlegt. Samt — samt er vináttan heil og hrein. Við með honum í menntaskóla reyndum að gera mikilvægi hvers annars ljóst með einhveiju áþreifanlegu móti, oft í gamansöm- um tón en í fullri al- vöru. Jón fékk titla, þeir breyttust með tímanum en áttu alltaf að draga fram sérstöðu. „Aðmíráll“, vegna starfa í hjálparsveitinni, „sir“, fyrir einstaka prúðmennsku, og „dr. Jón leiðangursstjóri". Okk- ar leið til að segja hver ætti að leiða hópinn á ferðalögum innan lands og utan. Enginn vinur var traustari en Jón Harðarson. Það skarð sem myndast við fráfall hans verður ekki fyllt. Minningin lifír. Við vottum foreldrum og systkinum Jóns okkar dýpstu sam- úð. Arna, Bergljót, Hrund, Ingibjörg, ívar, Ólafur, Soffía og Þór. í dag er til moldar borinn vinur okkar og ferðafélagi Jón Harðar- son. Sunnudagskvöldið 19. febrúar sl. barst okkur sú hræðilega frétt að einn félagi okkar úr hjálpar- sveitinni hefði látist í vélsleðaslysi á Mýrdalsjökli. Ég átti erfítt með að trúa að það gæti verið Jón því hann fór alltaf svo varlega á fjöll- um og maður var nokkuð öruggur ef Jón var með í ferðinni. Ég kynntist Jóni fyrst þegar ég gekk til liðs við Hálparsveit skáta í Kópavogi fyrir 10 árum. Hann starfaði m.a. í báta- og sleðaflokk og í stjórn sveitarinnar. Það fór ekki mikið fyrir honum og það var því ekki fyrr en við fórum að fara með honum í jeppaferðir að við kynntumst honum betur. Hann var mjög góður vinur og traustur ferðafélagi. Það var alltaf hægt að treysta því sem hann sagði, hann vissi alltaf hvaða leið við gátum farið því hann hafði yfír- leitt komið þangað áður. Hann hafði ferðast um landið þvert og endilangt í mörg ár og hafði mikla reynslu af vetrarferðum. Það kem- ur margt upp í hugann þegar ég hugsa til baka, allar jeppaferðirn- ar, páskaferðimar og hinar ógleymanlegu árlegu 17. júní-ferð- ir á Vatnajökul. Við vorum nokkur sem ferðuðumst saman og stofnuð- um svo ferðaklúbbinn „Þvert á leið“ fyrir tæpum tveim árum. Það er stórt skarð höggvið í þennan vinahóp og við munum aldrei gleyma svo traustum vini sém Jón var. Jóns verður sárt saknað í ferð- um. Megi guð styrkja foreldra, systkini og aðra ættingja. Minning Jóns mun lifa. Eygló og Ingólfur. Það er margs að minnast úr fjögurra ára menntaskólagöngu. Fjörugir unglingar hittast í fyrsta sinn og búa sig saman undir lífíð. Alvaran blasir við en hópurinn sleppir sér oft og hieypur af sér hom unglingsáranna. Kátína, gleði og samstaða einkennir hópinn. Nú 12 árum eftir útskrift hittist hópur- inn að nýju til þess að kveðja góð- an félaga og vin. Jón Harðarson var greindur námsmaður, hversu oft þegar við félagarnir áttum í erfíðleikum með námsefnið var ekki sagt; Jón, gast þú leyst þetta dæmi? Og skömmu MINNINGAR síðar sat allur bekkurinn með geislabaug yfír höfðum sínum, all- ir með réttar lausnir fyrir framan sig. Jón var góður ferðafélagi. Þegar kom að ferðalögum hvort heldur sem var árlegum ferðum í Þórs- mörk eða ferðinni frægu til Ítalíu, var Jón með allt á hreinu. Áhugi hans á ferðalögum var mikill og ekki fannst betri fararstjóri en hann. Eftir að skólagöngu lauk varð Jón ein af driffjöðrunum inn- an Hjálparsveitar skáta í Kópavogi og elja hans þar lýsir honum kannski best. Jón var tilbúinn í útkall hvenær sem var og hann kom sér upp stórum bíl og góðum útbúnaði öðrum til þess að geta leyst vanda annarra hraðar og betur. En Jón var fyrst og fremst góð- ur vinur. Bekkjarfélagar hans úr N-bekknum sakna vinar, hans skarð verður aldrei fyllt en minning Jóns Harðarsonar mun lifa. Við vottum foreldrum Jóns og systkin- um okkar dýpstu samúð. Bekkjarfélagar úr 4-N. Það var tómlegt þegar við kom- um saman í síðustu viku, enda vantaði Jón í hópinn, aldrei slíku vant. Okkur hafði borist sú harm- afrétt að Jón hefði farist í vélsleða- slysi. Við höfðum þekkst síðan við vorum böm í skátafélaginu Kópum og eyddum á unglingsárum okkar nær öllum stundum saman. Það er margs að minnast frá þessum árum þegar ýmislegt var brallað. Ekki fór þó mikið fyrir Jóni, hann frekar hlustaði á okkur þar sem við töluðum hvert í kapp við annað og hristi stundum höfuðið yfir uppátækjunum en hafði þó lúmskt gaman af. Ef eitthvað fór úrskeið- is var alltaf hægt að slá því upp í grín og segja að það væri Jóni að kenna. Jón bara brosti íbygg- inn. Ástæðan var auðvitað sú að það var aldrei honum að kenna. Og það við vissum við öll. Hann sem fór alltaf svo varlega, tefldi aldrei í tvísýnu og passaði alltaf upp á að allt væri í lagi. En eftir unglingsárin fækkaði samverustundunum en alltaf voru þær jafn skemmtilegar. Flest okk- ar fóru að sinna nýjum hugðarefn- um. Nokkur gengu í hjálparsveit- ina og var það einkum Jón sem skildi alvöruna á bak við starfíð sem fram fer í sveitinni, enda var hann sá sem entist lengst í björg- unarstörfunum og starfaði þar allt fram á síðasta dag. Sum okkar fóru utan í nám eða hafa verið fjarri af öðrum orsökum, en Jón sá alltaf um að kynnin töpuðust ekki, því hann var dug- legur við að halda sambandi og vissi alltaf hvar allir voru. Þegar við lítum til baka sjáum við fyrir okkur útilegur oftast uppi í Þristi og ýmsar aðrar ferðir sem farnar voru með skátunum, alltaf var Jón þar fremstur í flokki, traustur og góður félagi sem fórn- aði öllu til þess að hjálpa öðrum. Haldnar voru kvöldvökur og kannski var Jón ekki sá sem var mest áberandi en nærvera hans var alltaf rík af hlýju og trausti. Þá var Jón mikið náttúrubarn og notaði mest allan sinn frítíma í náttúrunni, við veiðar, siglingar og fjallaferðir. Okkur fannst að ekkert gæti haggað þessum hópi, en nú er Jón farinn, hann sem alltaf var horn- steinninn í hópnum. Og nú fylgjum við honum síðasta spölinn. Tengjum fastara bræðralagsbogann, er bálið snarkar hér rökkrinu í. Finnum ylinn og lítum í logann og látum minningar vakna á ný. í skátaeldi býr kyngi og kraftur, kyrrð og ró, en þó festa og þor. Okkur langar að lifa upp aftur liðin sumur og yndisleg vor. (Har. Ól.) Við sendum fjölskyldu Jóns inni- legustu samúðarkveðjur. Gömlu skátafélagarnir. Þeir voru þrír á ferð uppi á jökli í hvassviðri og skafrenning. Ferð- inni var heitið niður af jökli og heim. Fremsti maður ók sleða sín- um af gætni sökum slæms skyggn- is. Allt í einu gerðist eitthvað sem enginn skilur og einn sleði ásamt manni féll niður í sprungu. í einni sviphendingu er hann Jón okkar allur. Eftir stöndum við dofin og miður okkar og spyijum hvers vegna Jón, þessi trausti og rólegi drengur sem var hvers manns hug- ljúfi. I félagsskap eins og hjálparsveit binst fólk sterkum böndum. Við lendum í mörgu saman, erfiðum leitum, skemmtilegum æfíngaferð- um, útköllum sem eru afturkölluð þar sem hinn týndi kemur fram heill á húfi, flugeldasölu og mörgu öðru. Allt stuðlar þetta að því að gera hópinn samheldinn, fólk kynnist mjög vel og þekkir tak- mörk sín og félaga sinna. Jón hafði starfað í Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi í 15 ár og var einn af þeim sem allir vissu að hægt var að treysta í öll verkefni. Iðulega var hann stjómandi leitarhópa, hvort sem um var að ræða gönguhóp eða sleðahóp. Hann var til margra ára formaður bátaflokks sveitarinnar og flutti sig síðan yfír í sleðaflokk. Systir hans tók við formennsku í bátaflokki en eins og ávallt áður var hann boðinn og búinn að veita ráð og vera henni og félögum sín- um innan handar við þjálfun á „bátafólkinu" okkar. í sleðaflokki var sama upp á teningnum, Jón var vel liðinn og treyst í öll verk og útköll. Til nokkurra ára var hann í stjóm sem gjaldkeri og stóð sig þar með stakri prýði. Jón var mikill útivistarmaður. Rólegur og öruggur maður sem aldrei flanaði að neinu. Hann átti jeppa sem hann ferðaðist mikið á um fjöll og fírnindi ásamt félögum sinum úr hjálpasveitinni og ferða- klúbbnum „Þvert á leið“. Hann hugsaði vel um jeppann sinn og það var sárasjaldan sem bíllinn bilaði. Eða eins og einhver sagði: „Meðan hinir jeppakarlarnir lágu í viðgerðum þá bónaði Jón bílinn sinn.“ Þetta lýsir Jóni vel. Traustur og áreiðanlegur. Boðinn og búinn að hjálpa félögum sínum, alltaf tilbúinn að gera eitthvað fyrir sveitina. Viðgerðir, tölvuvinna, til- tektir, ferðir, leit, kennsla, aðstoð; alltaf var Jón tilbúinn að koma. Við félagar Jóns í Hjálparsveit skáta í Kópavogi erum þakklátir fyrir ánægjuleg kynni. Hans er sárt saknað af öllum sem hann þekktu. Stórt skarð er komið í hópinn okkar, enginn mun koma í hans stað en við reynum að gera okkar besta til að halda minningu hans á lofti. Foreldrum hans og systkinum sendum við innilegar samúðarkveðjur, sorg þeirra er mikil. Guð gefí þeim styrk til að koma heil út úr áföllum þeim sem á þeim hafa dunið að undanförnu. Halldór Theódórsson, Vala Dröfn Hauksdóttir, Þórarinn Söebech. Það hafði aldrei hvarflað að mér, þegar ég flutti til Danmerkur um sumarið 1993, að ég ætti aldr- ei aftur eftir að sjá einn af mínum allra bestu vinum, Jón Harðarson. Vinátta okkar á sér langa og sól- ríka sögu sem þó endar nú allt of snemma líkt og skyndilega kæmi nótt um hábjartan dag. Það er ennþá óskiljanlegt að við eigum ekki lengur eftir að eiga samleið í gegnum lífíð, geta glaðst saman og ég geti ekki lengur sótt til hans stuðning og hjálp á erfiðum stund- um. Ég hef ekki tölu á hversu oft við höfum keypt ís, farið einn rúnt eftir bíó, skemmt okkur og ferðast saman. Annaðhvort tveir einir eða í góðra vina hópi. Vinátta okkar var byggð á traustum grunni og þó að stundum hafí liðið langt á milli þess að við höfðum möguleika á að hittast á því tímabili sem ég var við nám í Danmörku voru tengsl okkar jafn sterk eftir sem áður, þegar við hittumst tókum við bara upp þráðinn þar sem frá var horfið. Við Jón töluðum oft um að hann þyrfti að fara að drífa sig í heimsókn hingað niður eftir og ég hafði lengi hlakkað til að hitta hann aftur og njóta samveru hans. Því miður hafa örlögin nú gripið inn í áætlanir okkar á versta mögu- lega hátt. Jón var traustur vinur og ég er viss um að móðir mín svaf betur ef hún vissi að ég var með Jóni, sama hvort við vorum á flandri um bæinn eða á ferðalagi um hálend- ið, það var nefnilega þannig að þegar Jón var með, var öryggið og skynsemin líka með. I okkar vinahópi var margt brallað og þó að Jón væri ekki mikið fyrir að láta á sér bera, var hann alltaf tilbúinn til að taka þátt í félagsskapnum og koma oft á tíðum á óvart með hæfileikum sem hann hafði ekki flíkað fyrr. Hann var fámáll en ákveðinn í skoðunum og við lærðum fljótt að þegar Jón sagði eitthvað, var það þess virði að hlusta á það. Jón var ekki einn af þeim sem völdu auð- veldustu leiðina að markmiðum sínum, hann náði þeim með þraut- seigju og ákveðni og þegar við vorum um tíma bekkjarfélagar naut ég oft góðs af erfiði hans. Seinna nutu bæði móðir mín og systir góðs af hjálpsemi Jóns. Ég veit að ég á alltaf eftir að sakna Jóns, en ég veit líka að ég á alltaf eftir að eiga minningarnar um góðan og hjálpsaman vin sem alltaf var til taks. Jón var fyrir mér áreiðanlegur vinur í þessari óáreiðanlegu tilveru og ég er þakk- látur fyrir að hafa átt þess kost að eiga með honum margar góðar stundir. Ég Charlotte, mamma og Hildi- sif vottum fíölskyldu Jóns samúð okkar og ég vona að minningarnar um góðan dreng og bróður geti hjálpað þeim á þessum erfiðu stundum Kjartan. Sá er eftir lifír deyr þeim sem deyr en hinn látni lifír í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfír. (Hannes Pétursson) Jón Harðarson er farinn heim. Þannig taka skátar um allan heim til orða um þá sem kveðja þennan heim. Jón var skáti. Hann gerðist ylf- ingur um leið og hann hafði aldur til og óx upp sem skáti og foringi í Kópum, skátafélagi heimabyggð- ar sinnar, Kópavogs. Hann vann félagi sínu af einurð og glaðværð í hópi góðra skátavina. Eins og eðlilegt er ungum mönnum sem hafa brennandi áhuga á útivist og það að sigra æ hærri tinda lá leið Jóns í Hjálparsveit skáta um leið og aldur leyfði. En skátafélagarnir lifa nú eftir og minnast æskuvinar. Skátafélagið Kópar sendir for- eldrum, systkinum og öðrum ætt- ingjum innilegar samúðarkveðjur og biður góðan guð að styrkja ykkur. En meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu á eftir þér í sárum trega þá blómgast enn og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Með skátakveðju, Skátafélagið Kópar. Síminn hringir. Lág og vingjarn- leg karlmannsrödd heilsar mér. Það er Jón. Eftir stutt spjall ber hann upp erindið: Hvað með bíó- ferð? Jú, við tilkippileg eins og allt- af. Jón sækir okkur á stóru, rauðu Toyotunni. Með tilgerðarlausri kurteisi er mér boðið framsætið,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.