Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ______________________________FRÉTTIR______________________________ Davíð Oddsson forsætisráðherra rauf Alþingi að kvöldi laugardagsins 96 ný lög voru af- greidd á þinginu Davið Oddsson forsæt- isráðherra rauf þing um klukkan 21 á laugar- dagskvöld eftir að þing- menn höfðu samþykkt að breyta mannrétt- indakafla stjómarskrár- innar. Alþingiskosning- ar verða 8. apríl. YFIRLITI Salome Þorkels- dóttur forseta Alþingis um þingstörfin kom fram, að alls voru lögð fram 184 laga- frumvörp á þessu þingi, sem stóð frá októberbyijun. Þar af voru 116 stjórnarfrumvörp og 68 þing- mannafrumvörp. 83 stjómarfrum- vörp voru afgreidd sem lög og 13 þingmannafrumvörp urðu að lög- um. Þá voru lagðar fram 80 þings- ályktunartillögur, þar af 14 stjórn- artillögur og 66 þingmannatillög- ur. 17 tillögur voru samþykktar, 8 vísað til ríkisstjómarinnar og 1 vísað frá með rökstuddri dagskrá, tillögu um vantraust á alla ráð- herra ríkisstjómarinnar. Lagðar vom fram 22 skýrslur og 4 beðnir um skýrslur. 173 fyrir- spurnir voru bornar fram og var 166 svarað. Alls voru þingmálin því 463 og voru 292 af- greidd. Ný grunnskólalög Samkomulag náðist um afgreiðslu gmnn- skólafmmvarpsins síðdegis á laug- ardag eftir viðræður forsætisráð- herra, menntamálaráðherra og fjármálaráðherra með fulltrúum kennara, sveitarfélaga og mennta- málanefnd Alþingis. Stjórnarandstaðan og kennarar höfðu gagnrýnt mjög að afgreiða ætti frumvarpið án þess að veita kennurum tryggingar um réttinda- mál sín eftir að rekstur gmnnskóla færist frá ríki til sveitarfélaga. í samkomulaginu fólst að bætt -var ákvæði inn í frumvarpið um að gmnnskólalögin myndu ekki taka gildi fyrr en lögum um Lífeyr- issjóð starfsmanna ríkisins yrði breytt þannig að það tryggði öllum kennurum og skólastjórnendum sem hafi átt rétt til aðildar að sjóðnum áframhaldandi aðild. Einnig yrði gildistaka laganna háð því að sett yrðu lög um ráðningar- réttindi kennara og skólastjórn- enda sem tryggi þeim efnislega óbreytt ráðningarréttindi hjá nýj- um vinnuveitanda. Þingmenn stjómarandstöðunnar lýstu yfir ánægju með samkomu- lagið en sátu þó hjá við endanlega afgreiðslu frumvarpsins þar sem þeir vom ekki sáttir við ýmis efnis- atriði þess. Deilt um vegi Talsverðar deilur vom á laugar- dag um endurskoðaða vegaáætlun fyrir næstu fjögur ár, og fullyrtu þingmenn stjórnarand- stöðunnar að með nýjum reglum um úthlutun vegaíjár til kjördæ- manna hefðu framlög til Austfjarða, Vestíjarða og Vesturlands verið skert hlut- fallslega. Á endanum náðist sam- komulag um að millifæra um 100 milljónir til þessara þriggja kjör- dæma af framlögum til stórverk- efna og var vegaáætlunin þá sam- þykkt. Þingmenn Framsóknar- flokks sátu þó hjá í mótmælaskyni við áðurnefnda úthlutunarreglu. Af öðrum frumvörpum sem urðu að lögum síðasta dag þingsins má nefna eftirfarandi: Felld var niður 108. grein hegn- ingarlaga um sérstaka æruvernd opinberra starfsmanna og sett voru lög um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota. Samþykkt var frumvarp um breytingu á vörugjöldum á bflum, sem felur það m.a. í sér að vöru- gjald lækka á meðalstórum bílum og díselbílum. Einnig var sam- þykkt frumvarp um vörugjald á díselolíu og afnám þungaskatts á díselbílum. Samþykkt voru ný lög um leigu- bifreiðar, vöruflutninga og fólks- flutninga sem m.a. fela í sér að atvinnubílstjórar geta starfað til 75 ára aldurs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Lög um vísitölu neysluverðs voru samþykkt auk breytinga á skatta- lögum í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Lögum um Hollustuvemd ríkis- ins var breytt þannig að mengunar- varnasvið Siglingamálastofnunar var fært undir Hollustuvemd. Þá voru samþykkt lög um að styrkja framkvæmdir sveitarfélaga í frá- veitumálum og sérstök lög vom sett um vemdun Breiðaíjarðar. Af þingsályktunartillögum þing- manna, sem fengu afgreiðslu má nefna tillögu frá Gunnlaugi Stef- ánssyni, þingmanni Alþýðuflokks, um að skipa nefnd til að fjalla um fréttaflutning og upplýsingaskyldu stofnana um slysfarir og harm- raunir fólks. Og samþykkt var til- laga frá Hjörleifi Guttormssyni, þingmanni Alþýðubandalags, um að sett verði á fót stofnun um heimskautamálefni á Akureyri, sem kennd verði við Vilhjálm Stef- ánsson landkönnuð. Áfengismál óbreytt Ýmis mál náðu ekki fram að ganga. Þar á meðal voru frumvörp um breytingar á innflutningi og heildsölu á áfengi, en eftirlitsstofn- un EFTA hafði lýst því yfir að ísland yrði kært til EFTA-dóm- stólsins ef einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á innflutn- ingi yrði ekki afnumin á þinginu. Um var að ræpa þijú frumvörp og var eitt þeirra' afgreitt úr þing- nefnd, frumvarp um að taka upp áfengisgjald, svipað vörugjaldi, í stað vínandagjalds sem ÁTVR inn- heimtir nú. Ekki náðist þó sam- komulag um að lögfesta þetta frumvarp og frumvarp um afnám einkaréttar ÁTVR á innflutningi komst ekki úr nefnd. Eftirlitsstofnun EFTA gaf í síð- ustu viku 6 vikna frest til að breyta þessum máli áður en kært yrði fyrir meint brot á samningnum um Evrópska efnahags- svæðið. Samkvæmt upp- lýsingum úr fjármála- ráðuneytinu mun stefnt að því að hraða málinu í Brussel svo EFTA- dómstóllinn nái að fjalla um það áður en dómurum verður fækkað í sumar. Frumvarp um breytingar á yfir- stjóm náttúruvemdarmála dagaði uppi í þinginu en stjórnarandstöðu- þingmenn vora margir ósáttir við frumvarpið og héldu um það lang- ar ræður. Þá var ekki útrædd þingsályktunartillaga um embætt- isfærslu umhverfísráðherra, vegna flutnings embættis veiðistjóraemb- ættisins til Akureyrar. Og fram- varp Eggerts Haukdals um afnám lánskjaravísitölunnar dagaði uppi í efnahags- og viðskiptanefnd að venju. Tóbaksvarnafrumvarp óafgreitt Frumvarp um tóbaksvamir náði ekki fram að ganga þótt heilbrigð- is- og trygginganefnd þingsins hefði afgreitt það frá sér sam- hljóða. Nefndin lagði meðal annars til að banna að flytja inn, fram- leiða og selja fínkornað neftóbak en áfram verði leyft að selja gamla neftóbakið sem Áfengis- og tób- aksverslun ríkisins hefur framleitt og selt hér á landi um áratuga skeið. Ingi Björn Albertsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, var mjög and- vígur þessari breytingu og gaf í skyn að hann myndi halda langar ræður um málið þegar það kom á dagskrá síðla aðfaranætur laugar- dags. Þá var umræðu um frum- varpið frestað og málið var síðan ekki tekið aftur á dagskrá. Þingmenn kvörtuðu yfir þessu úr ræðustól á laugardagskvöldið. Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður Kvennalista, krafðist þess að málið fengið lýðræðislega afgreiðslu á þinginu og Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að málið strandaði á einum þingmanni og það vekti upp spurn- ingar fyrir þingheim hvort eðlilegt væri að nýta ótakmark- aðan ræðutíma með þessum hætti. Hjörleifur Guttormsson hvatti til þess að leitað yrði sam- komulags við þann, sem vildi bregða fæti fyrir framvarpið, um að það mætti koma á dagskrá. Ingi Björn sagði að við aðra umræðu um málið hefði ein ræða verið flutt fyrir utan framsögu- ræðu. Ingi Björn sagði að sú ræða hefði staðið í 40 mínútur og benti í því sambandi á að Hjörleifur hefði talað í 5 tíma um frumvarp um náttúruvemd. Samkomulag á síðustu stundu Lög um vísi- tölu neyslu- verðs Morgunblaðið/Kristinn FYLKISMENN með steininn góða. Frá vinstri eru Halldór Jónsson, Björgvin Björgvinsson, Stein- þór Gunnarsson, Matthías, Örn Torfason og Kristín Ingimundardóttir eiginkona Matthíasar Vestfirðingar heiðra Matthías VESTFIRÐINGAR heiðruðu Matthías Bjarnason með ýmsum hætti eftir að hann sat sinn síð- asta fund á Alþingi á laugardag. Matthías hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vestfjörð- urní 32 ár. Ólafur Þ. Þórðarson þingmað- ur Framsóknarflokksins á Vest- fjörðum ávarpaði Matthías úr ræðustól Alþingis á laugardags- kvöldið og þakkaði honum sér- staklega fyrir störf í þágu Vest- firðinga. Ólafur sagði að ýmsir sjálfstæð- ismenn hefðu tekið upp á því að kalla Matthías framsóknarmann. „Við höfum ekki tekið því illa og hann hefur ekki alltaf borið hönd fyrir höfuð sér,“ sagði Ólafur. Matthías þakkaði fyrir og sagð- ist hafa eignast marga góða vini á þingmennskuferli sínum í sínum eigin flokki. „Þar á ég nú ekki við Framsóknarflokkinn heldur Sjálfstæðisflokkinn og að sumu leyti í öðrum flokkum,“ sagði Matthías. Sljórn Fylkis, félags ungra sjálfstæðismanna á ísafirði, heim- sótti Matthías á laugardagskvöld- ið, en Matthías var að eigin sögn formaður þess félags fyrir mörg- um mannsöldrum. Til að þakka Matthíasi fyrir samstarf liðinna ára afhenti stjórn Fylkis honum hraunmola, sóttan inn í Vestfjarðagöngin þar sem verið er að sprengja nú. Á steininn hefur verið markað Is- landskort og fiskveiðilögsagan en Matthías skrifaði sem sjávar- útvegsráðherra undir reglugerð um útfærslu landhelginnar í 200 mílur á sínum tíma. Féll fjóra metra á vélsleða fram af fjallsbrún „SLEÐINN var farinn að halla eitthvað svo skringilega og svo fór hann bara fram af. Ég kastaði mér af sleðanum þegar hann var í lausu lofti og lenti rétt hjá honum. Þetta hefur verið um fjögurra metra fall en ég lenti á mjúkri snjó- dýnu,“ sagði Þórir Þrastarson, 35 ára gamall, sem féll fram af þverhnípi á Þver- felli á vélsleða á Breið- dalsheiði sl. laugar- dag. Brá óskaplega „Mér brá alveg óskaplega en spáði lítið í það hvort þetta væri mitt síðasta. Mín eina hugsun var að halda mér föstum í snarbrattri hlíðinni og ég rak hendurnar á kaf í snjó og hélt mér,“ sagði Þórir „Ég var á leið frá Þingeyri til ísafjarðar um kl. 14 á laugardag. Það var hvasst og skafrenningur. Við voram tveir á ferð, eram með verk á Þingeyri og fóram að skoða það sl. föstudag í blíðu- veðri. Fjallið liggur nánast í boga þama uppi á heiðinni og ég reiknaði ekki með honum og fór fram af,“ sagði Þórir. Kaupi aldrei vélsleða Þórir sagði að þegar hann hefði áttað sig á því hvað hefði gerst sá hann á eftir sleðan- um sem hélt áfram mannlaus niður fjallið. Félagi Þóris reyndi að slaka til hans ól af snjógalla sínum en hún náði ekki niður til hans. Þórir náði að skríða skáhallt upp hlíðina. Vélsleðinn endaði 200 metram neðar í hlíðinni en fannst skömmu síðar og sá ekki á honum, sagði Þórir. „Ég kaupi mér aldrei vélsleða og fæ ekki delluna fyrir þessu í bráð,“ sagði Þórir. Þórir Þrastarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.