Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 2b tæknilega nokkuð erfiður og þar naut sín raddskipan orgelsins en seinni hlutinn, sem táknar lífið, minnir á köflum á orgelverk G, Francks, endalausa og fallega líð- andi hljóma, með laglínu táknræna fyrir eih'fan og himneskan sigur Krists yfir dauðanum. Lokaverkið var fíðlu-sjakonnan úr d-moll fiðlupartítunni (nr. II) eftir meistara J.S. Bach. Verkið var umritun orgelleikarans á útfærslu Busonis og var þar um að ræða, vægast sagt, ótrúlega skrumskæl- ingu á þessu meistaraverki, bæði hvað varðar raddskipan og útfærsl- una í heild, er var oft mjög affærð frá upprunalegri gerð verksins. Svona meðferð gengur gegn heið- ursrétti þeim, sem allir tónlistar- menn ættu að virða, í umgengni sinni við verk genginna höfunda. Keith John er fær orgelleikari en ætti að hemja löngun sína til að umsemja verk annarra, sem í raun vitnar fremur um óafsakanlegt hu- mynda- og smekkleysi en að um sé að ræða einhveija nýsköpun eða betrumbót, þar sem hennar er ekki þörf og nóg til af góðum verkum ef menn vilja sýna leiknikunnáttu sína. Jón Ásgeirsson finningar eru. Og þó. Það er eins og þær séu að læðast aftan að henni og kannski á hún möguleika að hefna sín - á einhverjum. Mér finnst allir einþáttungarnir óhemju áhugaverðir. Þeir eru svo ótrúlega vel skrifaðir að hver per- sóna rígheldur athygli manns og það er ekki hægt að vera sama um þær. Þær beijast allar við að móta líf sitt. Þær reyna að segja ævisögu sem lítur vel út, velja sér minningar og taka vitsmunalega afstöðu til sjálfra sín og nánustu fjölskyldu. En frá- sögn þeirra afhjúpar allt aðra sögu en þær reyna að segja. Það er ekki þar með sagt að þær séu líkar eða eigi margt sameiginlegt. Heldur þvert á móti, þótt vissulega megi segja að þær hafi fremur verið þo- lendur en gerendur í lífínu. En það er nú svosem lífsins saga. Það er mjög freistandi að sál- greina þessar persónur og útskýra orsakir og afleiðingar í lífi þeirra, en þeirri hugarleikfími verður sleppt að sinni. Það er svo miklu meira spennandi að „upplifa" þær, ef nota má svo slæmt orð; skynja þær djúpt niður í undirmeðvitundina, finna til með þeim og átta sig á því, einu sinni enn, hvað það getur verið sárt að vera manneskja. En hversu sárt sem það er, hefur lífið sínar spaugi- legu hliðar - og það hafa þessar konur iíka. Það er heilmikill húmor í textanum, en ekki neinn fíflahú- mor, heldur mjög svo afhjúpandi húmor. Þær eru að reyna að breiða yfir eitthvað með honum en tekst ekki. Heldur þvert á móti, segja meira en þær ætla sér. Þessar þijár, mjög svo áhuga- verðu konur, eru leiknar af Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur (Dóttirin), Guð- björgu Thoroddsen (Bóndinn) og Ingrid Jónsdóttur (Slaghörpuleikar- inn). Og allar fara þær á kostum. Persónusköpun þeirra er skýr og sterk; hreyfingar, svipbrigði og raddbeiting unnin af stakri ná- kvæmni og konurnar þijár birtast manni ljóslifandi og sterkar í öllum sínum vanmætti. Umbúnaður sýningarinnar er ein- faldur, sem og búningar og lýsing. Hver þáttur byggir á texta og reyn- ir virkilega á hæfni hverrar leikkonu til að vinna úr honum án þess að missa athygli áhorfenda. Þar reynir virkilega á leikstjórann, sem hefur ekkert annað í höndum en mikinn texta og eina leikkonu í senn. Sú vinna er sérlega vel unnin og ber vott um næmni og skilning á þeim möguleikum sem leikarinn býr yfir. Þetta er sterk sýning og áhrifamikil og tvímælalaust ein sú áhugaverð- asta sem er á ijölum leikhúsanna þessa dagana. Og ekki bara vegna þess að hún fjallar um konur, heldur vegna þess að hún fjallar um mann- eskjur. Súsanna Svavarsdóttir LISTIR KEITH John konsertorganisti. SÍÐASTA HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ! E3 Viltu margfalda lestrarhraðann og afkðst í starfí? ö Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi? Ef svar þitt er jákvætt við annarri ofangreindra spum- inga skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestramámskeið vetrarins sem hefst fimmtudaginn 9. mars n.k. Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091 HFVVÐLJESTTTfc/NFtSKÖLJNN KÓLÓMBÍUKAFFI Afburða ljúffengt hreint Kóloinbíukaffí ineð kröftugu og frískandi bragði. Kaffið er meðalbrennt sem laðar fram hin fínu blæbrigði í bragði þess. Kólonihíukaffí var áður í hvítum umbúðuni. MEÐÁLBRENNT Einstök blanda sex ólíkra kaffitegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu er megin uppistaðan. Kólombíukaffí gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð. Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku og kjarnmiklu Kenýakaffí. íiAX\Vr 1-BR \ GG 'úr 111 an<ia Kaffi sem lagað er í sjálfvirkuin kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum eiginleikuin til að útkoman verði eins og best verður á kosið. Gevalia E-brygg er blandað nicð sjálfvirkar kaffíkönnur í huga. Aðeins grófara, bragðmikið og ilniaudi. MAWVKI.L IIOl Si: H0f Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt, liefur mikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim sem einkennir Old Java. Kaffi sem ber afí GEVALIA -lJað er kaffið!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.