Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 46
-46 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
suður. Ég fékk aldrei þá tilfinningu
að ég væri gestur því alltaf var
eins og einn af heimilisfólkinu
væri kominn heim, gengið var úr
rúmi án þess að mögla ef það var
vandamálið. Af því er ég og verð
stoltur.
Gvendur var hughraustur í bar-
áttu sinni. Ég gleymi seint því
hvemig hann sagði mér frá vágesti
þeim sem nú hefur lokið ætlunar-
verki sínu. Vordag einn í maí
hringdi ég í frænda til að skrafa.
í þessu símtali spurði ég hvernig
hann hefði það. Ékki stóð á svar-
inu: „Bara gott, nema að þú ert
búinn að heyra af þessari óværu í
mér?“ Þegar ég svaraði neitandi
útskýrði hann rólega hvað óværan
væri en áður en mér gafst kostur
á því að spyija nánar kom hann
með spumingu: „Jæja, Magnús,
ætlið þið ekki upp í sumar?“ og
fótboltinn kominn á dagskrá þess
símtals sem margra annarra. Það
var í raun ekki fyrr en símtalinu
var lokið að ég áttaði mig á alvör-
unni og skildi um hvað málið sner-
ist.
Þannig var Gvendur. Á þeim tíma
sem fylgdi var hann hress í anda
og kjaftaglaður alltaf þegar fundum
okkar bar saman. Hann gat rætt
um óvæmna og sagt hver staðan
var en hann vildi miklu frekar fá
fréttir af frændfólkinu á Sauðanesi
og hvemig mér gengi í boltanum
og kennarabaslinu sem ég stóð í,
þar gat hann jú miðlað af ómældri
reynslu.
Ég hitti Gvend síðast í desember
síðastliðnum og átti við hann langt
tal. Ég gerði mér þá loks vemlega
grein fyrir því hvað gæti verið á
næsta leiti. Þrátt fyrir augljósa
vankanta á heilsufarinu náði hann
að ryðja burt allri sorg og sút með
gáska sínum og lífsgleði og ég kýs
nú á sorgarstund að trúa því að
okkar síðasta samtal í þessum
táradal gefi mér vísbendingu um
síðari fundi. Kveðju minni þann dag
svaraði Gvendur: „Já, Magnús, við
sjáumst, vertu viss!“ Og á eftir
fylgdi þetta hlýja, kankvísa og
strákslega bros í skegginu.
Það er mín huggun harmi gegn
að nú þegar er nótt hins bjarta
dags veit ég að við lok hennar rís
bjartur dagur á ný. Við frændur
hittumst seinna, sitjum þá á gullnu
skýi og horfum á leik í Krikanum,
ömgglega jafn æstir og fyrmm.
Við Thelma sendum að lokum
Gullu, Svenna, Krissa, Helgu og
Emmu eins innilegar samúðar-
kveðjur og okkar smáu hjörtu geta
sent, við höldum áfram að biðja
fyrir ykkur í sorg ykkar og vonum
að algóður guð styrki ykkur og
blessi.
Munið með okkur gang sólarinn-
ar, hvern dag sest hún í hafið og
leiðir af sér dimma nóttina, en nótt-
in sigrar aldrei því nýr dagur rís á
ný úr faðmi næturinnar, bjartur og
fagur.
Ykkar einlæg,
Magnús Þór og
Thelma litla.
R AÐ AUGL YSINGAR
Ræstingar
Húsvarsla
Leitum eftir tilboði í ræstingar og húsvörslu.
Upplýsingar í síma 672121 á skrifstofutíma.
Löggiltur
endurskoðandi
- gott tækifæri
Meðalstórt útgáfufélag leitar eftir samstarfi
við sjálfstætt starfandi löggiltan endurskoð-
anda. Verkefnið snýst um gerð ársreikninga
og skattaleg uppgjör ásamttilfallandi ráðgjöf.
Umsækjendur skili upplýsingum um náms-
feril, .atvinnureynslu og vísa til meðmæla.
Svar óskast sem fyrst og skilist á auglýsinga-
deild Mbl., merkt: „Endurskoðun - 7738“.
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna kosninga til Alþingis, sem
boðað hefur verið til þann 8. apríl næst-
komandi, verður fyrst um sinn á skrifstofu
embættisins í Skógarhlíð 6, Reykjavík, á skrif-
stofutíma, kl. 9.30-15.30.
Væntanlegum kjósendum er bent á að hafa
með sér fullnægjandi skilríki.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
HÖNNUNARSTÖÐ
DESIGN CENTER
Hönnun
Lillehammerleikana
Norðmaðurinn PetterT. Moshusvar hönnun-
arstjóri fyrir vetrarólympíuleikana í Lille-
hammer. Hann mun halda erindi um „Lille-
hammers designsprogram" í Norræna hús-
inu í kvöld kl. 20.00.
r
EIMSKIP
ISLANDSBANKI
Aðalfundur
OMEGA FARMAHF.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
verður haldinn á Hótel Sögu, Þingstofu B,
þriðjudaginn 14. mars kl. 16.00.
Dagskrá:
a. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr.
samþykkta félagsins.
b. Breytingar á samþykktum félagsins til
samræmis við ný lög um einkahlutafélög. -
c. Tillaga stjórnar um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
d. Tillaga stjórnar um niðurfærslu hlutafjár.
e. Önnur mál
Reikningar félagsins, ásamt dagskrá fundarins
og endanlegum tillögum, munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Stjórn OMEGA FARMA HF.
Sunnubraut 4-b, Höfn, Hornarfirði, þingl. eig. Sigtryggur Benedikts,
gerðarbeiðandi Sparisjóður vélstjóra, Borgartúni 18, 6. mars 1995
kl. 13.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
27. febrúar 1995.
Hús úti á landi óskast
Má þarfnast endurbóta. Allt kemur til greina.
Greiðist með yfirtöku lána og veðskuldabréfi
í eigninni.
Nánari upplýsingar í síma 91-887826.
Félagsfundur
Vegna nýgerðra kjarasamninga verður haldinn
félagsfundur í Baðstofu félagsins í Ingólfs-
stræti 5 í dag, þriðjudaginn 28. febrúar,
kl. 17.00.
Stjórnin.
Reykjavíkurdeild
Stofnfundur
Stofnfundur Reykjavíkurdeildar Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn á
Suðurlandsbraut 22 fimmtudaginn 2. mars
nk kl. 20.00.
Allir hjúkrunarfræðingar, sem hafa áhuga á
að taka þátt í uppbyggjandi félags9tarfsemi,
eru hvattir til að mæta á fundinn. Það stytt-
ist í fulltrúafund og tímabært að hjúkrunar-
fræðingar í Reykjavík tryggi sér sína fulltrúa.
Undirbúningsnefndin.
Útgerð - úreldingar
Getum losað ykkur að kostnaðarlausu við
báta sem búið er að úrelda. Bátarnir verða
að vera haffærir.
Upplýsingar í síma 92-11980 og 988-18676
(talhólf).
Norðurljósin
heilsustúdíó,
Birna Smith,
Laugarásv. 27,
sími 91-36677.
Sogæðanudd
Öflugt sogæðanuddtæki og
cellolite-olíunudd losar líkama
þinn við uppsöfnuð eiturefni,
bjúg, aukafitu og örvar ónæmis-
kerfið og blóðrásina. Trimm
Form og mataræðisráðgjöf inni-
falin. Acupuncture-meðferð við
offltu, reykingum og tauga-
spennu.
Vöðvabólgumeðferð
Með léttu rafmagnsnuddi, acu-
puncture-meðferð og leisertæki
opnum við stlflaðar rásir. Heilun-
arnudd með ilmkjarnaolíum inni-
falið. Góður árangur við höfuð-
verk, mígreni og eftir slys.
□ EDDA 5995022819 I FRL.
□ FJÖLNIR 5995022819 III 1
□ HLÍN 5995022819 IV/V 2 Frl
I.O.O.F. Rb. nr. 1 =1442828. - 9.0
Dalvegi 24, Kópavogi
( kvöld kl. 20.30 bænastund.
Allir hjartanlega velkomnir.
AD KFUK,
Holtavegi
Fundur I kvöld kl. 20.30 við
Holtaveg.
Hvernig les ég Bibliuna?
Karin Axelsdóttir, Sigrlður Jó-
hannsdóttir, Sigurlaug Þorkels-
dóttir og Steinunn Pálsdóttir
ræða um efnið.
Allar konur velkomnar.
FERÐAFÉIAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682S33
Myndakvöld F.í.
Myndasýning
frá Ferðafélagi Akureyrar
Miðvikudaginn 1. mars verður
næsta myndakvöld F.f. ( Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14, og
hefst stundvíslega kl. 20.30.
Ingvar Teitsson frá Ferðafélagi
Akureyrar lýsir gönguleiðum í
máli og myndum á norðaustur-
landi, þ.e. Ódáðahrauni, Gler-
árdal og víðar. Aðgangur kr. 500
(kaffi og meðlæti). Allir velkomn-
ir félagar og aðrir. Einstakt tæki-
færi til að kynnast nýjum göngu-
leiðum um stórbrotið landsvæði!
Helgarferð 4.-5. mars
Kringum Hengil, skíðagöngu-
ferð. Gist í svefnpokaplássi í
Nesbúð. Brottför kl. 09 laugar-
dag.
Ferðafélag íslands.
Hallveigarstig 1 »slmi 614330
Myndakvöld
fimmtudaginn 2. mars
kl. 20.30
Á næsta myndakvöldi mun Sig-
urður Sigurðarson sýna m.a.
vetrarmyndir frá Aðalvík frá því
í apríl 1994, frá vetrarferð fjög-
urra Útivistarfélaga yfir Vatna-
jökul í apríl 1992, en gengið var
frá Goðahnúkum í austri i Esju-
fjöll og Öræfajökul. Sýnt verður
í Fóstbræðraheimilinu við Lang-
holtsveg. Innifalið í aðgangseyri,
kr. 600, er hið vinsæla hlaðborð
kaffinefndar.
Helgarferð 4.-5. mars
Skíðaganga
við rætur Hengils
Gangan hefst austarlega á Hell-
isheiði og verður gengið yfir
hana í Nesbúð þar sem gist
verður. Á sunnudag verður
gengið^m Dyradal og Marardal
að Kolviðarhól. Fararstjóri Óli
Þór Hilmarsson. Nánari uppl. á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.