Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samkomulag um samstarf í ferðamálum FERÐAMÁLARÁÐHERRAR Fær- eyja og íslands hafa undirritað sam- komulag um samstarf á sviði ferða- mála. Samningurinn nær til tveggja ára og er gert ráð fyrir að hvor að- ili um sig leggi fram 600 þúfe. dansk- ar krónur eða um 6,7 millj. ísl. króna. Skal fénu varið til að íjölga ferðum milli landanna. Miðli af reynslu Samningurinn gerir ráð fyrir að þjóðimar miðli af reynslu sinni af námi á sviði ferðamála og að stuðlað verði að starfskynningum. Þá_ skulu námsmenn í Færeyjum og á íslandi eiga kost á að stunda ferðamálanám í báðum löndunum eftir því sem við á ef þeir fullnægja þeim inntökuskil- yrðum sem gilda í viðkomandi landi. Alþjóðleg markaðssetning Leitast skal við að hvetja einka- aðila í ferðaþjónustu til að bjóða fleiri ferðir til landanna til viðbótar við dvöl á aðaláfangastað. Samstaða er um að efla ferðaþjónustu milli land- anna með áherslu á heimsóknir fé- laga í ýmsum samtökum og félögum. Þá verður leitast við að leysa hindr- anir á vegi samgangna með sam- starfí fyrirtækja á þessu sviði í lönd- unum tveimur. Aðilar eru einnig sammála um að auka samstarf um alþjóðlega markaðssetningu land- anna og að kannaðir verði möguleik- ar á að Færeyjar taki þátt í markaðs- kynningu íslands í Frankfurt, New York og Tókíó. Morgunblaðið/Kristinn Samningur undirritaður MAGNI Arge formaður ferða- málaráðs Færeyja, Sámal Petur í Grund ferðamálaráðherra Færeyja, Halldór Blöndal ferða- málaráðherra og Birgir Þorgils- son formaður ferðamálaráðs ís- lands undirrituðu samstarfs- samning milli íslands og Fær- eyja um ferðaþjónustu. Bændur samþykkja ekki tengiveg BÆNDUR og eigendur jarða við tengiveg sem fyrirhugaður er um Akrafjall vegna Hvalfjarðarganga hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þeir muni ekki sam- þykkja veg um land sitt. Samkvæmt nýjum samningi milli Spalar hf., sem sér um undir- búning og framkvæmd jarðgang- anna, og fjármálaráðherra og sam- gönguráðherra, skuldbindur sam- gönguráðherra sig til að ábyrgjast nauðsynlegt eignarnám vegna byggingar ganganna ef slík aðgerð reynist óhjákvæmileg. Alþingi staðfesti samninginn með þingsá- lyktun rétt fyrir þinglok. Yfirlýsing jarðeigendanna er svohljóðandi: „Að gefnu tilefni vegna fréttar í Ríkisútvarpinu 10. janúar síðastliðinn um jákvæða stöðu mála vegna fyrirhugaðra ganga undir Hvalfjörð, vilja undir- ritaðir bændur og eigendur jarða, þar sem fyrirhugaður tengivegur vestur eða austur um Akrafjall á að koma, taka eftirfarandi fram. Við munum ekki samþykkja neinn veg um land okkar. Eignarnám er ekki mögulegt þar sem fyrirhuguð veglagning er í þágu einkafyrir- tækis. Stjórnarskráin verndar eignarréttinn. Við lýsum undrun okkar á svona fréttaflutningi. Ólaf- ur Sigurgeirsson, Þaravöllum, Hrönn Friðriksdóttir, Þaravöllum, Jóhanna Ólafsdóttir, Völlum, Indr- iði Þórisson, Kjaransstöðum, Anna Geirsdóttir, Kjaransstöðum, Þor- grímur Jónsson, Kúludalsá, Mar- grét A. Kristófersdóttir, Kúludalsá, Gunnar Nikulásson, Másstöðum, Sigurður Brynjólfsson, Gerði, Geir Guðlaugsson, Kjaransstöðum, Jó- hanna Þórarinsdóttir, Kjaranstöð- um.“ Samverustund fyrir aðstandendur SAMVERUSTUND fyrir aðstand- Gestur kvöldsins verður Ólöf endur verður í húsi Krabbameinsfé- Helga Þór, forstöðumaður Rauða lags íslands, Skógarhlíð 9, í kvöld, kross-hússins. þriðjudaginn 28. febrúar, kl. 20-22. AKUREYRI Snjófióð lokaði Olafsfjarðargöngunum um tíma á sunnudag Ljósmynd/Þórhallur Jónsson STRAX var farið að hreinsa eftir snjóflóðið með stórvirkum snjóruðningstækjum. Rann fyrir munnann o g inn í göngin TVÖ snjóflóð féllu í Ólafsfjarðarmúla á sunnudag, en annað j)eirra rann yfir gangamunnann Ólafsfjarðar- megin og fór hluti flóðsins inn í göng- in. Flóðið féll úr Kúhagagili sem er beint ofan við gangamunnann, það rann fyrir munnann og inn í göngin þannig að þau lokuðust um stund eða þar til búið var að hreinsa það. Jón Konráðsson lögreglumaður í Ólafs- fírði sagði að flóð hefði áður fallið á sama stað ekki alls fyrir löngu en þá hefði starfsmaður vegagerðarinnar verið nýkoihinn út úr göngunum. Göngin sanna gildi sitt Jón sagði að forskáli ganganna Ólafsfjarðarmegin hefði verið lengd- ur eftir rigningarsumarið 1988 um 20-30 metra en þá hefðu menn gert sér ljósa grein fyrir að flóð gætu fallið úr Kúhagagili. Rætt hefði verið um í Ólafsfirði að skálinn hefði mátt vera örlítið lengri til að fyrirbyggja alveg hættu af völdum flóða. „Ann- ars erum við afar ánægð með göng- in, þessi vetur hefur verið mjög snjó- þungur og harður og menn geta ekki hugsað þá hugsun til enda h'vernig ástandið væri ef engin væru göngin. Það má búast við að Múlinn hefði verið lokaður meira og minna í allan vetur vegna snjóflóðahættu eða ófærðar,“ sagði Jón Konráðsson. Hitt flóðið sem féll á sunnudag kom úr Kleif, sem er Dalvíkurmegin ganganna. Það var ekki stórt að sögn Jóns. Tæplega 100 milljóna króna hagnaður hjá Skinnaiðnaði Árangur hagræðing- ar og markaðsstarfs HAGNAÐUR af rekstri Skinnaiðnaðar hf. eftir skatta á síðasta ári nam 97,4 milljónum króna. Nettótekjur félagsins á liðnu ári voru 696,9 milljón- ir króna, eignir þess voru 649,3 milljónir í árslok og eigið fé 150,5 milljónir króna. Andlát RAGNAR STEINBERGSSON RAGNAR Steinbergs- son hæstaréttarlög- maður lést á Akureyri á sunnudag, 26. febr- úar. Ragnar fæddist á Siglufirði 19. apríl 1927. Foreldrar hans voru Steinberg Jónsson sölumaður og Soffía Sigtryggsdóttir. Ragnar varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1947, lauk embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla Is- lands 1952, hdl. 1954 og varð hæstaréttarlögmaður 1965. Hann starfaði hjá Kaupfélagi Eyfirðinga 1953-’54, var fulltrúi hjá Útvegsbanka íslands á Akur- eyri 1954—’68. Forstjóri Sjúkra- samlags Akureyrar var hann frá 1970 til 1989, hann var fram- kvæmdastjóri Læknamiðstöðvar- innar á Ákureyri sem síðar varð Heilsugæslustöðin á Akureyri frá 1973-1990. Hann rak eigin lög- fræðistofu á Akureyri ásamt öðrum og var ráðinn lögfræðingur trygg- ingamála hjá Sýslu- manninum á Akureyri frá 1990. Ragnar gegndi fjölda trúnaðarstarfa, var formaður knatt- spymuráðs Akureyrar 1953—’56, formaður Stúdentafélags Akur- eyrar, formaður Sam- bands ungra sjálfstæð- ismanna, sat í yfirkjör- stjórn Norðurlands- kjördæmis eystra, þar af formaður frá 1963. Hann var ritari og síð- ar formaður Lions- klúbbs Akureyrar um skeið, og varabæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjórn Akureyrar. Þá var hann í sóknarnefnd Akur- eyrarkirkju og í stjórn Kirkjugarða Akureyrar. Hann var formaður Golfklúbbs Akureyrar frá 1989. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigurlaug Ingólfsdóttir. Þau eign- uðust ljórar dætur, Guðbjörgu Ingu, Soffíu Guðrúnu, Ingibjörgu og Rögnu Sigurlaugu. „Við erum mjög ánægð með þessa útkomu, allar okkar áætlanir gengu eftir, bæði hvað varðar hag- ræðingu og markaðsmál," sagði Bjarni Jónasson framkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar hf. Hagræðing og markaðsstarf Á liðnu ári var markvisst unnið að hagræðingu í vinnslunni og sagði Bjarni að hún hefði skilað sér mjög vel og þá hafi salan einnig verið mjög góð. „Það markaðsstarf sem unnið hefur verið hjá fyrirtækinu og forvera þess á síðustu árum er nú að skila sér,“ sagði Bjarni. Hann sagði aukna eftirspurn um þessar mundir eftir mokkaskinnum, en það væru ætíð sveiflur milli ára og markaða hver eftirspurnin væri. Mokkaskinnsflíkur væru í tísku nú um stundir sem skilaði sér í aukinni sölu hjá Skinnaiðnaði. Fyrirtækið hefur verið að selja til Italíu, aukin eftirspurn er á Skandin- avíumarkaði og þá hefur á síðustu árum verið unnið að því að koma vörunni á markað í Asíulöndum og sagði Bjarni að sala þangað hefði gengið vel. Sveiflukenndur iðnaður „Það er ágætt að safna í sarp- inn,“ sagði Bjarni um hagnað af rekstri liðins árs, „því þetta er sveiflukenndur iðnaður og það þarf eitthvað að vera til í sjóði á móti niðursveiflunum þegar þær koma. Þær koma, það er ekki spurning, það þarf bara að vera hægt að mæta því án þess að lenda úti í horni.“ Utlitið fyrir þetta ár er einnig gott, að sögn framkvæmdastjórans, „þetta stefnir allt í rétta átt áfram,“ sagði hann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.