Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Norðurlönd
á nýjum nótum
AÐ AFSTÖÐNUM þrennum
þjóðaratkvæðagreiðslum um aðild
að ESB hafa umræður um framtíð
norrænnar samvinnu verið óvenju
fjörugar um öll Norðurlönd. Mikill
meirihluti þeirra stjórnmálamanna
sem tekið hafa til máls hafa stað-
fest eða krafist áframhaldandi nor-
rænnar samvinnu. í fréttum hefur
verið gerð grein fyrir því endurnýj-
unarstarfí sem hafist var handa um
á haustþingi Norðurlandaráðs í
Tromsö. Síðastliðinn mánuð hefur
tillaga Svía, um 150 millj. króna
niðurskurð á þremur árum, vakið
mikla athygli á fjárlögum Ráðherra-
nefndarinnar fyrir 1996.
Heildarmynd fjölmiðla af framtíð-
arhorfum norrænnar samvinnu hef-
ur þó ekki verið nægilega skýr. Ein-
staka höfundum forystugreina hef-
ur tekist að útskýra hugmyndimar
á skiljanlegan hátt. Fólk flest gæti
þó haldið að nú sé verið að afskrifa
norræna samvinnu, samnini Evrópu
yfirskyggi allt og að klofningur
Norðurlanda í tvær fylkingar sé nú
óumflýjanleg staðreynd. Fréttafyr-
irsagnir og blaðagreinar í áhyggju-
fullum tón leiða okkur auðveldlega
í villu vegar. Frá mínu sjónarhorni
er þó mikið bjartara yfir.
Lítum nú fyrst á fjárlögin.
Sænska sparnaðartillagan mætti
einstaklega sterkri og samtaka and-
stöðu frá hinum löndun-
um fjórum. Forsætis- og
samstarfsráðherrar
töldu tímann illa valinn
- þó ekki sé efast um
þörf Svía á að spara.
Niðurstaðan er sú að
fjárlög næsta árs verða
skert um 10 millj. d.kr.
Það samsvarar 1,4% af
heildarfjárlögum sem
hljóða upp á 718 millj.
d.kr. Ékki verður þó af
hefðbundinni vísitölu-
uppbót sem hefði hljóð-
að upp á u.þ.b. 2,5%.
Fjárlög ársins í ár vora
upphaflega 50 millj.
krónum hærri en fyrir
síðastliðið ár. Aukningin frá 1994
til 1995 mun því ekki alveg hverfa
fyrir 1996. Að um skerðingu sé yfir-
leitt að ræða, er að sjálfsögðu vegna
þess að löndin verða að vera sam-
mála. í norrænni samvinnu era ekki
teknar meirihlutaákvarðanir.
Hefur eitthvert landanna eða
þingflokkanna sýnt hug á að leggja
Norðurlandasamstarf niður vegna
ágætis þess evrópska? Umræður um
endurnýjun samstarfsins sýna mjög
skýrt að svo er ekki. Áhugi Dana á
áframhaldandi samvinnu hefur
greinilega aukist eftir að Svíar og
Finnar gerðust aðilar að ESB. Norð-
menn og íslendingar
hafa af skiljanlegum
ástæðum áhuga á eins
föstum samstarfs-
formum og unnt er.
Bæði finnski forsetinn
og forsætisráðherrann
hafa lýst yfir áhuga
sínum á áframhald-
andi norrænni stefnu.
í Svíþjóð varð flár-
lagastefna ríkis-
stjómarinnar til þess
að tveir stjómarand-
stöðuflokkanna lögðu
fram sameiginlega
þingtöllögu um áfram-
haldandi norrænt
samstarf.
Er Norðurlandaráð kemur saman
í Reykjavík nú í vikunni liggur fyrir
skýrsla um endurmat á norrænu
samstarfi. Er þar lögð minni áhersla
á hið norræna? Alls ekki! Að vísu
hafa fjölmiðlar svo sannarlega boð-
að að nú sé örlagastund hins „of-
vaxna norræna skriffinnskukerfis“
rannin upp. Starfshópur um endur-
mat norræns samstarfs, en í honum
hafa starfað samstarfsráðherramir
og fimm þingmenn (ásamt þremur
fulltrúum sjálfstjórnarsvæðanna),
mun leggja fram tillögu sem felur
í sér bæði varðveislu og þróun nor-
rænnar samvinnu. Lagt er til að
PSr Stenback
Norrænar samstarfs-
stofnanir verða ekki
fómardýr fjöldamorða,
segir Par Stenback,
metnaðurinn verður
ekki minni né heldur
uppgjöf fyrir pólitískri
háspennu ESB.
ESB-víddin verði dregin inn í sam-
starfið og þess auðvitað krafíst að
starfsemin öll skuli grandvallast á
raunveralegum samnorrænum
hagsmunum.
Samstarfsstofnanir verða ekki
fómardýr fjöldamorða, metnaðurinn
verður ekki minni né heldur verður
um uppgjöf fyrir pólitískri háspennu
ESB að ræða. Þýðing norræna þátt-
arins fyrir löndin fímm og sjálf-
stjórnarsvæðin þrjú mun hins vegar
verða skilgreind upp á nýtt á raun-
hæfan hátt, ekki síst með það fyrir
augum að brúa bilið á milli land-
anna innan og utan ESB.
Ef farið verður að tillögu starfs-
hópsins um að sameina báðar skrif-
stofumar í Kaupmannahöfn á árinu
1996 mun það hafa í för með sér
kærkomna nálgun fulltrúa ríkis-
stjórna og þingmanna.
Á þingi Norðurlandaráðs í
Reykjavík mun athygli þingmann-
anna trúlega beinast að endurskipu-
lagningu Norðurlandaráðs, en ráðið
er stofnun þingmannanna. Það verð-
ur athyglisvert að fylgjast með
hvemig tillögum starfshópsins verð-
ur tekið, því þær munu hafa áhrif
á uppbyggingu og hlutföll valdsins.
Fyrsta skref í evrópska átt er ein-
mitt tillagan um að þingflokkarnir
fái aukin áhrif, líkt og í Evrópuráð-
inu og innan Evrópuþingsins. I besta
falli - ef viljinn til endurnýjunar er
fyrir hendi - getur Norðurlandaráð
orðið enn kröftugri umræðuvett-
vangur fyrir mikilvæg norræn og
evrópsk málefni.
Það liggur sem sagt ekki beint
við að túlka niðurstöður starfshóps-
ins sem einhvers konar Norður-
landa-bölsýni og Evrópu-algleymi.
Þeir fimm forsætis- og utanríkisráð-
herrar sem hittust á leiðtogafundi
í Kaupmannahöfn 29. janúar hafa
þegar fagnað meginþáttum niður-
staðnanna. Má vera, að hætta sé á
að endurbótatillögumar verði orðn-
ar útþynntar og útvatnaðar áður en
upp er staðið. Sú hætta er fyrir
hendi þegar fimm löndum, fjórum
þingflokkum, ríkisstjómum og þing-
mönnum ásamt ýmsum sérhags-
munahópum leyfíst að leggja orð í
belg. Það era forsætisráðherrarnir,
samstarfsráðherrarnir, stjórnir
þingflokkanna og fulltrúar þess
lands er nú tekur við formennsku,
Danmerkur, sem munu bera veg og
vanda af hvernig til tekst.
Norðurlönd á nýjum nótum
standa nú frammi fyrir einskonar
eldskírn: getum við tryggt (vega-
bréfslaust) ferðafrelsi yfir (norsk-
sænsku) landamærin? Gildistaka
Schengen-samningsins þann 26.
mars mun hafa áhrif innan Norður-
landa. Ef við getum ekki leyst það
vandamál mun stór hluti hins alþýð-
lega grandvallar norrænnar sam-
vinnu bresta. En það vandamál
verður leyst.
Höfundur er frnmkvæmdnstjóri
Norrænu ráðherranefndarinnar í
Kaupmannahöfn.
Hundaskattur og aðrir
skrýtnir skattar og gjöld
LAUNAMENN hér á landi kvarta
í vaxandi mæli undan æ þyngri og
þyngri skattabyrði, sem þeir segjast
hreinlega vera að kinka undan og
hver skyldi lá þeim það, enda fer
kaupmáttur þeirra hraðminnkandi
með hverjum degi að heita og þeir
hugsa nú með mikilli eftirsjá til
þeirra tíma þegar þeir forsjálu með-
al þeirra áttu þó nokkurn tekjuaf-
gang eftir að þeir vora búnir að
greiða skuldir sínar. í beinu fram-
haldi af þessu mætti geta þess að á
frönsku er til málsháttur „býsna
sérkennilegur, við fyrstu sýn: „Qui
paie ses dettes, s’enriche“, sem
mætti íslenska svona: „Sá sem borg-
ar skuldir sínar, verður ríkur“, enda
höfum við það flest á tilfinningunni,
að þessu sé einmitt öfugt farið, þ.e.
að menn verði ekki ríkari fyrir
bragðið heldur fátækari eða öllu
heldur féminni. Enn þegar grannt
er skoðað og hugsað þá kemur ann-
að í ljós, vegna þess að sá sem hef-
ur vit á að fjárfesta í réttum fyrir-
tækjum eða fasteignum, hjá réttum
aðilum og á hárréttum tíma, hlýtur
óhjákvæmilega að komast í góðar
álnir með tíð og tíma og með þessum
orðum lýkur inngangi mínum.
Fyrst langar mig til að ræða lítil-
lega um vatnsskattinn eða réttara
sagt vatnsgjaldið, sem okkur höfuð-
borgarbúum er skylt að greiða til
gjaldheimtu Reykjavíkurborgar. Það
er ekki tiltökumál að okkur sé gert
að borga fyrir tæra og ómengaða
vatnið okkar, enda
dettur engum í hug að
fetta fingur út í það,
en hitt er svo annað
mál að við greiðum
ekki á sama hátt fyrir
kalt vatn eins og t.d.
heitt vatn og rafmagn
sem mælt er með ná-
kvæmum þar tilgerð-
um mælum. Kalt vatn
er mælt á allt annan
álagningarkvarða, í
senn furðulegan og
langsóttan. Vatns-
gjaldið miðast nefni-
lega við rúmmál húss
og stærð lóðar, en
hvorki við neyslu né
fjölda íbúa eins og víst flestir eða
allir halda. Væri ekki hægt að kippa
þessu í lag og leysa þetta ófremdar-
ástand með því að setja kaldavatns-
mæli í hvert hús, sem mætti svo
hæglega lesa af um leið og lesið er
af heitavatnsmælinum, kynni ein-
hver að spyija? Ekkert mál nema
það að ráðamenn í íslensku þjóðfé-
lagi hafa- það jafnan fyrir sið að
taka lítið sem ekkert tillit til skoðana
almennings og óska eins og svo
mýmörg dæmi sanna. Og gárung-
arnir hafa þetta í flimtingum og
spyrja hvort ekki mætti rétt eins
miða vatnsgjaldið við líkamsstærð
húseiganda, þyngd eða jafnvel skó-
númer eins og stærð lóðar? En burt-
séð frá öllu gamni, þá greiðir undir-
ritaður kri 16.448 í
vatnsgjald en hann býr
einn með konu sinni í
stóra húsi, sem gæti
hæglega hýst 15-20
manns og ef svo væri
yrði gjaldið nákvæm-
lega það sama. Er nokk-
uð við í þessu? Ég get
ekki annað sagt að dýr
sé dropinn úr Gvendar-
brunni eða hvað svo sem
vatnsból borgarinnar nú
heita. Rétt er að geta
þess þegar í stað að hér
er ekki við núverandi
borgarstjórn að sakast,
vegna þess að viðmiðun-
ar- eða álagningarregl-
urnar í samræmi við vatnsgjaldið
voru víst settar fyrir langa löngu
af skattpyndingarmönnum og það
býsna óskammfeilnum.
Hitt er svo annað mál að núver-
andi borgaryfirvöldum hefði verið í
lófa lagið að lagfæra þetta og af-
nema með öllu þessar fáránlegu
álagningarreglur og koma þar með
eðlilegri skipan á þessi mála en satt
best að segja geri ég mér litlar sem
engar vonir um að þau taki á sig
rögg og leiðrétti þetta fáheyrða
viðmiðunarviðundur eða réttara sagt
vitleysu. Ég treysti þeim einfaldlega
ekki til þess. Punktur og basta.
Og svo er það hundaskatturinn.
Ekki era allir allskostar sáttir við
hann, enda hefur hann hækkað
Halldór
Þorsteinsson
Má ekki leggja skatta á
fleiri dýr en hunda, t.d.
ketti og hross, spyr
Halldór Þorsteinsson,
sem hér gagnrýnir
skattheimtu Reykjavík-
urborgar.
ískyggilega mikið á undanfömum
áram og í engu samræmi við þann
kostnað, sem fylgir hundaeftirlitinu.
Sökum megnar óánægju hundaeig-
enda, sem þurfa að greiða tæpar tíu
þúsundir í hundaskatt á ári hverju,
hefur umboðsmaður Alþingis verið
beðinn um að láta í ljós álit sitt á því
hvort kostnaðartölur Heilbrigðiseftir-
lits Reylqavíkurborgar við hundaeftir-
lit geti staðist lögum samkvæmt eða
með öðram orðum séu löglegar og
réttlátar. Fátt virðist enn um góð og
skýr svör, en nú kvað vera leitað með
logandi ljósi að allt að því tíu ára
gömlum fylgiskjölum eða reikningum
í örvæntingarfullri tilraun til að rétt-
læta hundaskattshækkanimar, en enn
er allt á huldu um árangurinn. Minnir
þetta óneitanlega nokkuð á margtí-
undaða eftirgrennslan Ríkisendur-
skoðunar á glötuðum fylgiskjölum
menningarfulltrúans víðfræga við ís-
lenska sendiráðið í London. Og ekki
orð um það meir.
Þetta kann ef til vill að koma úr
hörðustu átt, en undirritaður treyst-
ir sér til að benda Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkurborgar eða borgaryfir-
völdum á snjallan mótleik í þessari
erfiðu stöðu. Væri t.d. ekki ráð að
láta krók koma á móti bragði með
því að leggja líka skatt á fleiri dýr
eins og t.d. ketti og hross. Við það
fengist bæði nýr og velkominn tekju-
stofn fyrir borgina og svo væri auð-
vitað hægur vandi að lækka hunda-
skattinn, en sá galli er þó á gjöf
Njarðar að bæði katta- og hrossaeig-
endur yrðu sennilega hundóánægðir
með slíka gjaldtöku, en engu að síð-
ur yrði þetta farsælasta lausnin á
þessu vandræðamáli að mínum dómi.
Enda þótt borgarstjórinn okkar
nýi sé óumdeilanlega málsnjall, rök-
fastur og víðsýnn málafylgjumaður,
sem hefur nú þegar sannað að
mörgu leyti ágæti sitt og látið margt
gott af sér leiða, þá hefur hann líka
bragðist vonum manna og það eink-
um í einu veigamesta hitamáli. Þess-
um æðsta émbættismanni borgar-
innar verður t.d. seint fyrirgefið fyrir
að hafa látið Machiavelli í íslenskum
stjómmálum, hann Þorstein Pálsson,
dómsmálaráðherra leika á sig og
hræða með hótunum um skaðabóta-
mál út af mannvirkjagerð á ákaflega
umdeildri lóð fyrir norðan Safnahús-
ið. Ingibjörg Rún Gísladóttir má
nefnilega muna sinn fífil fegri meðan
sól skein í heiði. Vonandi hefur það
ekki farið fram hjá neinum lesanda
að fyrri liður seinna skírnarnafnsins
hefur verið felldur niður af þeirri ein-
földu ástæðu að sól Ingibjargar sett-
ist fyrst í granninn undir dómshús
fyrir hæstarétt og hafnaði loks á
sama dýpi og holræsakerfí borgarinn-
ar og spumingin er hvort hún muni
aftur upp rísa. Ingibjörg á eflaust
enn eftir að láta margt gott af sér
leiða, en það er hins vegar alveg
óvíst hvort henni auðnist að endur-
heimta þann geislabaug, sem henni
er nú með öllu glataður.
Höfundur er skólastjóri Málaskóla
Halidórs.
Inn í framtíðina með Novell NetWare 4.1
N O V E L L
NetWare
Mest selda netstýrikerfið
í heiminum í dag.
NetWare frá Novell.
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664