Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 45
MINIMINGAR
margra góðra tilfinninga, fyllum
hugann af þakklæti fyrir það liðna.
Minningarnar munu ylja. Gerum
þetta af sömu reisn og sama æðru-
leysi og Guðmundur okkar barðist
við krabbameinið. í guðs friði.
Vilborg Traustadóttir
og fjölskylda.
En eitt sinn verða allir menn að deyja,
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.
Þetta brot úr kvæði Vilhjálms
Vilhjálmssonar, best þekkt í flutn-
ingi hans, segir í raun það sem mér
býr í brjósti nú á þeirri stund sorg-
ar sem nú hefur dunið yfír. í dag
er mikilmenni borið til hinstu hvíld-
ar, ástkær frændi og vinur, Guð-
mundur Sveinsson, Strandamaður
búsettur í Hafnarfírði. Mikilmenni
sökum traustrar vináttu, mikillar
starfsorku, ómældrar lífsgleði og
væntumþykju, sér í lagi sem fjöl-
skylduföður.
Guðmundur, eða Gvendur eins
og minn armur ættar okkar nefndi
hann, dvaldi mörg sumur í sveit hjá
afa mínum og ömmu á Sauðanesi
við Siglufjörð eftir að fjölskylda
hans fluttist að vestan og á mölina.
Sveitin var sterk í huga hans og
því lá beint við að fá að vinna hjá
Trausta frænda sínum innan um
fólkið sem hann þekkti svo vel úr
Djúpuvík. Þessi sumarstopp hans á
unglingsárunum leiddu svo af sér
sterk tengsl hans við afa, ömmu
og okkur hin frá Sauðanesi. Þau
tengsl héldust allt til föstudagsins
17. febrúar 1995 að sláttumaður,
ólíkur þeim sem Gvendur þekkti,
knúði dyra og fékk inngöngu eftir
langt stríð.
Mín fyrsta minning tengd Gvendi
er þegar hann sendi afa og ömmu
plötu með söng hljómsveitarinnar
Randvers. Þá vissi ég fyrst af
frændanum fræga sem öðlaðist nú
mikinn dýrðarljóma í hug smágutta
úr sveitinni, sem trúði nú að fyrst
þessi kúasmali væri orðinn frægur
hlyti ég að fylgja í kjölfarið. Gvend-
ur var lífsglaður með eindæmum,
kankvísa brosið falið í alskegginu
lifír í mínu minni að eilífu og sjald-
an sást hann skipta skapi. Því var
það alltaf mikið tilhlökkunarefni
þegar von var á honum í sveitina.
Hann var auðfenginn með í leiki
með okkur guttunum og er byijað
var að spila fótbolta gat sá leikur
staðið lengi fram yfir háttatíma og
önnur mörk velsæmis, auðvelt var
að fá frænda til að gleyma tímanum
með okkur hinum þegar hann var
byrjaður að sparka á annað borð.
Gvendur var mikill söngmaður,
m.a. þekktur sem meðlimur Rand-
vers ásamt samkennurum sínum í
Oldutúnsskóla. Söngurinn tengist
sterkt minningunni um hann því
koma hans leiddi oft af sér gleðskap
á bænum þar sem mikið var gant-
ast og sungið og fór Gvendur þar
yfírleitt fremstur í flokki góðra vina.
Það var svo vorið 1989 að kynni
mín af Gvendi og fjölskyldu hans
urðu veruleg. Gvendur var alla tíð
hugfanginn af fótbolta og var á
þessum tíma í stjórn knattspyrnu-
deildar hjá liði sínu FH í heimabæn-
um Hafnarfirði. Ég var þá ósáttur
í mínu liði en eftir heimsókn hjá
frænda á Stekkjarhvamminum var
vandamál mitt úr sögunni. Á nokkr-
um tímum var búið að gera mig
að FH-ingi. Ég sneri aftur til náms
en að skóla loknum gat ég gengið
að öllu vísu, frændi var búinn að
„redda“ öllu því sem var hægt að
redda. Ég dvaldi næstu tvö ár í FH
og á meðan á því stóð var ég eins
konar heimalningur fjölskyldunnar
í Stekkjarhvamminum og fékk að
kynnast þeirri manngæsku og ást
sem réð ríkjum á heimilinu. Við
frændur tengdumst nú sama liði í
áhugamáli okkar og umræðurnar
um liðið og ýmislegt tengt því voru
aldrei kláraðar, sama þó erfitt sé
að henda reiður á klukkustunda-
fjöldanum.
Eftir að ég fluttist úr landi varð
erfiðara um vik að hittast en þó
var það fastur liður að heimsækja
Stekkjarhvamminn þegar farið var
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRIR HARALDSSON
fyrrv. vörubílstjóri,
Langholtsvegi 169a,
lést í Landspítalanum þann 25. febrúar.
Börn hins látna.
t
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka,
BRYNDÍS ÁRNADÓTTIR,
andaðist 25. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigríður Jónasdóttir, Árni Markússon,
Jónas Árnason,
Guðjón Árnason, Rannveig Gunnlaugsdóttir,
Halldóra Árnadóttir, Jónas Ágústsson,
Ragnheiður Árnadóttir, Sigurður Sigurðsson,
Kristján Árnason, Rósa Kristmundsdóttir,
María Árnadóttir, Karl Karlsson
og frændsystkin.
t
ÓLI MAGNÚS ÍSAKSSON,
Dyngjuvegi 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju miðviku-
daginn 1. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Bogi Nilsson, Gunnar Petersen.
+
. V: m ' % U
S1 ^ W
Útför ástkærs sambýlismanns míns,
sonar okkar og bróður,
HILMARS B. GUÐMUNDSSONAR
tannlæknis,
Hjarðartúni 7,
Ólafsvík,
fer fram frá Kristkirkju í Landakoti
fimmtudaginn 2. mars og hefst athöfn-
in kl. 13.30.
Björgunarsveit Ólafsvíkur hefur stofnað
sérstakan minningarsjöð um Hilmar við Sparisjóð Ólafsvíkur,
reikningsnúmar 401802, og eru þeir, sem vildu minnast hans,
t.d. með krönsum og blómum, beðnir að láta andvirðið renna í
þann sjóð.
Kolbrún Steinunn Hansdóttir,
Hedwig Meyer og Guðmundur Guðjónsson,
Guðjón Karl Guðmundsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
sem lést þann 22. febrúar, verður jarð-
sett frá Bústaöakirkju fimmtudaginn
2. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað-
ir, en þeim, sem vildu minnast hennar,
er bent á Slysavarnafélag íslands.
Unnur.E. Melsted, Gunnar Melsted,
Ástrfður L. Eyjólfsdóttir, Gyða Hansdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns
míns og föður,
SVEINBJÖRNS JÓHANNSSONAR,
Álftamýri 34,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Hafnar-
búðum og 1-A Landakotsspítala.
Þórdfs Bjarnadóttir,
Hildur Sveinbjörnsdóttir.
+ Þökkum sýnda samúð við andlát og útför GUÐRÚNAR MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR vistheimilinu Seljahlíð, Hjallaseli 55, áðurtil heimilis á Lindargötu 21. Aðstandendur.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar THEÓDÓRU JÓNSDÓTTUR frá Patreksfirði, Ljósvailagötu 22, Reykjavfk. Sérstakar þakkirtil starfsfólks á deild 4-B á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jón S. Guðmundsson, Svanhvít Kristjánsdóttir, Una Sveinsdóttir, Ólafur Sveinsson.
+ Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur sam- úð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HALLDÓRU KRISTÍNAR ÞORKELSDÓTTUR, Austurbraut 2, Keflavík, áður Seljavegi 7, Reykjavík. Ásdís Óskarsdóttir, Jóhannes G. Jóhannesson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
+ Hjartans þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, stjúp- föður, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS GUNNARSSONAR, Eyjaseli 5, Stokkseyri. Guð blessi ykkur öll. Sigurlaug Siggeirsdóttir, Elín Ingólfsdóttir, Ingibjörg Kristfn Ingólfsdóttir, Siggeir Ingótfsson, Sigríður ísafold, Ingólfur Vigfússon, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför systur okkar og mágkonu, HELGU GUÐRÚNAR INGÓLFSDÓTTUR, Sólheimum 25. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á gjör- gæslu Landspítalans fyrir góða hjúkrun. Fyrir hönd annarra vandamanná, Torfi Þ. Ólafsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samuð og vinarhug við andlát og ^ ^■g útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, H ÞÓRDÍSAR GUÐNADÓTTUR, ^ * I Grýtubakka 22, JH Reykjavík. Mt
Haukur Otterstedt, Skúli Garðarsson, Sigþrúður Sigfúsdóttir, Guðrún Otterstedt, Eyjólfur Hilmarsson, Lena Otterstedt, Jón Einarsson, Erna Otterstedt, Kristján Pétursson, Hanna Otterstedt, Kristján Sveinsson og barnabörn.
Lokað Tölvudeild Vífilfells verður lokuð í dag, þriðjudag, vegna jarðarfarar JÓNS HARÐARSONAR. Tölvudeildin.