Morgunblaðið - 28.02.1995, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Siyókarlinn minn bráðnaði ... Þið hljótið að hafa verið Ég var hjá honum þeg-
ég sé hann aldrei aftur. mjög nánir. ar hann bráðnaði.
BRÉF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fleygjum
ekki fiski
Frá Önundi Ásgeirssyni:
ÞAÐ var sama daginn, 4. febrúar,
og skýrt var frá því, að þorskur
væri talinn útdauður við Kanada,
af því að stofnstærð hrygningar-
stofnsins væri komin niður í 2.700
tonn, að LÍÚ birti mynd af nýju
plakati sínu, sem setja á um borð
í öll þeir Fleygjum ekki fiski. Frétt-
inni frá Kanada fylgdi, að stofn-
stærðin hefði verið 400.000 tonn
1991, og taka myndi 20 ár án
veiða að byggja upp stofninn, ef
það tækist á annað borð. Norsk-
íslenzki síldarstofninn var 10 millj-
ón tonn, þegar hann hvarf af
Rauða torginu 1968, og Norð-
mönnum hefír fram til þessa tekist
að halda honum það niðri, að hann
hefír ekki leitað þangað aftur. Síld-
arstofninum í Hvalfirði var gjö-
reytt á tveim árum í byrjun 6.
áratugarins, og hefír ekki fundist
síðan. Það tók 10 ár að bjarga
Suðurlandssíldinni. Hún er nú
veidd i troll á dýpi, og ekkert kem-
ur á land nema demantssíld, því
að við fleygjum ekki físki. Hrygn-
ingarstofn þorsksins hér hefir
minnkað úr um 1,5 milljónum
tonna, eftir að skuttogarabyltingin
hófst, og er nú á þessari vertíð
talinn vera um 220.000 tonn, eftir
því sem helzti sérfræðingur Hafró
og landsins um þorskveiðar, Sigfús
A. Schopka, fískifræðingur, upp-
lýsti í grein í Mbl. 16. desember
sl. Þetta er helmingurinn af því,
sem var við Kanada 1991. Leyfíst
að spyija: Hvenær hrynur stofninn
hér? Hvaða viðurlög liggja við því
að láta hann hrynja? Er það
kannski án ábyrgðar?
Fram til þessa hefír LÍÚ látið
nægja, að formaðurinn væri látinn
segja við fjölmiðla, svo sem tvisvar
á ári, að flotinn ætti að hlífa þorsk-
inum og ekki drepa smáfísk, sem
enginn hefír tekið mark á nema
sjávarútvegsráðuneytið. Út á þetta
hefír djúpveiðiflotinn síðan skafíð
og mengað botninn, allt upp í fjör-
ur. Hvemig til hefír tekizt má lesa
af ofangreindum tölum. í 8 ár sam-
fellt hefír nýliðun þorsksins misfar-
ist í góðæri til sjávarins. Þorskur-
inn er hættur að hrygna í alla ýld-
una frá skuttogurunum. Nú stend-
ur yfir 9. hrygningarvertíðin, og
ekkert gert þorskinum og þjóðinni
til bjargar. LÍÚ vonast nú til þess
að fá áframhaldandi heimildir til
iðju sinnar, því að þeir geta nú
sýnt plakötin um borð í skipunum.
Það getur ekki verið neitt að. Al-
þýðuflokkurinn ætlar að lækna
ástandið með veiðigjaldi eftir 8 ár,
og frambjóðendur á Vestfjörðum
raða sér nú að baki þeirra, þótt
sýnilegt sé að það gjöreyði kjör-
dæmi þeirra á þessu næsta kjör-
tímabili. Hættið kvótavitleysunni
strax, og bannið allar togveiðar
minnst innan 50 mílna línunnar.
Þess í stað komi fijálsar beituveið-
ar, með skyldu til að skila öllum
afla á land til fullvinnslu. Guð
blessi kónginn.
ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON,
fv. forstjóri Olís.
Endalok alspryngis
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
UNDANFARIN 30 ár hefur hugs-
anafléttan um punktinn alsmáa —
sem einn var til og varð að öllu
sem er (á milljónasta parti úr sek-
úndu!) — verið, ekki aðeins hin
virtasta og viðurkenndasta heims-
myndunarkenning (kosmógónía),
heldur hreinlega talin óhjákvæmi-
lega samfléttuð eðlisfræði, stjömu-
fræði og fleiri greinum. Það er nú
komið í ljós, að svo er ekki. Ef
menn vilja ekki trúa því, skulu
þeir bara fletta upp í erlendum
blöðum — eða fara á Internet.
Svo er komið að alspryngisveld-
ið riðar til falls! Það fínnst „vetrar-
brautaveggur“ sem skagar út úr
hinum útreiknaða alheimi. Það
fínnst aðdráttarsvið með kraftm-
iðju fyúr utan alspryngishvelið.
Það fínnast vetrarbrautir, sem eru
„eldri en alheimurinn"! Það er
meira að segja komið í ljós að sex
hundruð milljón ljósára fjarlægar
vetrarbrautir sýna eiginhreyfingu
miðað við bakgrunnsgeislunina.
Allt er i uppnámi.
Fyrsta bára hins komandi stór-
brims í heimsfræði, sem ég tek
eftir hér á landi, er frétt í Morgun-
blaðinu 21. febrúar sem byijar
þannig: „Afdrifaríkur hjónahvell-
ur. Tilraunir mannkynsins til að
skilja Hvellinn mikla — frum-
sprenginguna við sköpun alheims-
ins — hafa stöðvast vegna rifrildis
hjóna.“ Síðan kemur útlistun á al-
varlegum afleiðingum hjónarifrild-
isins, en eiginmaðurinn var reynd-
ar starfsmaður við CERN-stofnun-
ina í Svisslandi.
Þessu henda menn gaman að,
þótt það sé ef til vill harmleikur
einhverra. En hitt er ekki nein
skrítla, að „heimsbresturinn“ er
brostinn. Alspryngið er sprungið,
og þar með botninn dottinn úr
hundrað þúsund ritgerðum eða
fleiri, sem hafa verið skrifaðar í
trausti þess síðastliðin 40 ár og
lengur.
Hjá öllu þessu hefði mátt kom-
ast, ef menn hefðu viljað hugsa
með Giordanó Brúnó, að heimurinn
er óendanlegur, og getur ekki ver-
ið öðruvísi en þannig, og guð er
óendanlegur að afli, getu og ást
og getur ekki öðruvísi verið. Það
er að byija að rofa til fyrir nýrri
öld, þrátt fyrir allt, ekki aðeins hér
á jörð heldur miklu víðar.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt I
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.