Morgunblaðið - 28.02.1995, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 51 .
BRÉF TIL BLAÐSINS
Um athugasemd við
fréttaflutning og að-
gerðir lögreglu
Frá Ómari Smára Ármannssyni:
BRÉF frá lesanda með fyrirsögn-
inni „Athugasemd við fréttaflutn-
ing“ birtist í Morgunblaðinu 24.
febrúar sl. Bréfritari lýsir í því
atburði, sem gerðist við Arahóla
sunnudaginn 22.
janúar þegar til
átaka kom á
milli stúlku og
pilts með þeim
afleiðingum að
flytja þurfti
stúlkuna á slysa-
deild, föt hennar
urðu fyrir
, _ _ skemmdum og
Ómar Smári talsvert tjón
Armannsson varð á bifreið
piltsins. Gerðar eru athugasemdir
við vinnubrögð lögreglumanna svo
og fréttaflutning DV af málinu
daginn eftir.
Um þessar athugasemdir er það
eitt að segja að stutt frétt DV
stangast ekki á við fyrirliggjandi
upplýsingar um málavexti í frum-
skýrslu lögreglu. Nokkur vitni
voru að atburðinum er lýstu því
sem gerðist. Vegna umfjöllunar
bréfritara um aðgerðir lögreglu
er rétt að það komi fram að sam-
kvæmt fyrirliggjandi gögnum
neitaði hlutaðeigandi að hlýða fyr-
irmælum lögreglu á vettvangi og
reyndist því nauðsynlegt að færa
hana í handjám svo koma mætti
á sæmilegum vinnufriði fyrir lög-
reglu- og sjúkraflutningamenn.
Mikið hafði gengið á, stúlkan virt-
ist talsvert slösuð og ástæða þótti
að flytja hana á slysadeild með
sjúkrabifreið. Sem betur fer voru
áverkamir minni en talið var í
fyrstu.
Lögreglan hefur samskipti við
fólk í misjöfnu ástandi
Lögreglan þarf árlega að hafa
afskipti af þúsundum mála þar
sem ólíkt fólk í mjög misjöfnu
líkamlegu og andlegu ástandi,
stundum við erfiðar aðstæður,
kemur við sögu. Reynt er að af-
greiða einstök mál eins vel og
nokkur er kostur, en niðurstaða
slíkrar afgreiðslu hlýtur þó ávallt
að markast að einhveiju leyti af
viðmóti og ástandi hlutaðeigandi
aðila. í svo margþættu og viðam-
iklu starfi sem löggæslustarfið er
og hinnar miklu nálægðar við fólk
er ekki ólíklegt að eitthvað geti
einhvern tíma komið upp á er ork-
að geti tvímælis og ekki séu allir
sáttir við hvernig til hafi tekist.
Þegar fólk deilir finnst einhveijum
stundum á sig hallað. Oft reynist
nauðsynlegt fyrir lögreglumenn
að taka afstöðu og grípa til ákveð-
inna aðgerða. Það á ekki síst við
þegar granur vaknar eða vitneskja
liggur fyrir um að ekki hafi verið
farið að settum reglum. En þó
einhveijum mislíki aðgerðir henn-
ar er ekki þar með sagt að rang-
lega hafi verið að málum staðið.
Um þær geta þó eftir sem áður
verið skiptar skoðanir, en við því
er lítið annað hægt að gera en að
fólk fái tækifæri til að tjá afstöðu
sína og ræða málin.
Öllum getur hins vegar einhvern
tímann orðið eitthvað á. Það á
jafnt við um lögreglumenn og ann-
að fólk. Þegar mistök eða hand-
vömm hafa átt sér stað skiptir
máli að læra af reynslunni, laga
það sem aflaga hefur farið og
draga þannig úr líkum á að það
gerist aftur. Við verðum að treysta
því að allir reyni ávallt að gera
sitt best og að enginn vilji verða
valdur að því að meiða aðra ef hjá
því er hægt að komast með ein-
hveijum ráðum.
í umræddu máli er ekki annað
að sjá en að eðlilega hafi verið að
málum staðið. Ef bréfritari telur
hins vegar að ekki hafi verið farið
að settum reglum er honum bent
á að snúa sér til yfirlögregluþjóns.
ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON,
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Skagfirsk sveifía
Shagfirsh söng- og shemmtihvöld á Höfelíslandi,
fösludagshvöldið 10. mars.
MI^ð -
i: Stefán R.
laii'öinijaliámr aóshagftfshum hætti. Stjónianili: Ei
; Cisli, flskaj’ Pétur og Sigfús Peturssjnir
taka laqið vii
Hljómsveit Geirmunilar Valtjssonar leikur fjrir úansi.
UM'Od
steiktum jarðeplum oo gljáðu grænmeti.
íurvali
Innbyggð og utanáliggjandi
frákr. 14.221,-
♦BGÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
V_______________________________________
VpKVABÚNAÐUR
IVINNUVÉLAR
PVG $AMSVARANDI
STJORNtOKAR 0G
FJARSTYRINGAR
GfRAR 0G BREMSUR
Þekkir einhver
konumar?
ÍSLANDSBÓKARHÖFUNDUR-
INN Werner Schutzbach tók
þessa mynd í Reylyavík fyrir
sem næst fjörutíu árum. Nú
langar hann að vita hveijar
stúlkurnar á myndinni eru og
biður þær vinsamlega að gefa
sig fram. Heimilisfang Werners
er Bergholzstrasse 16,9500 WIL
í Sviss, sími 9041-73-235360.
Þær geta líka haft samband við
Baldur Ingólfsson, Fellsmúla 19,
í Reylqavík, sími 35364. Hann
kemur þá skilaboðum áfram.
H
HC7m,tjlAND
Sími 687111
GOTT VERD ■ GÓÐ ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
I VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Saltkjöt og baunir með grænmeti. Handa fjórum til sex
o
N
<C
0.
OC
<
>
<
w
X
UJ
H
1 kg saltkjöt, ekki allt of magurt
500 g gular baunir
1 lárviðarlauf
1 lítill laukur, saxaður
2 gulrætur, skornar í sneiðar
má sleppa
1 rófa, skorin í bita
5 kartöflur, skornar í bita
1 tsk þurrkuð steinselja
1/2 tsk þurrkað timjan
1/2 tsk þurrkuð kryddmæra
(meiran)
Baunirnar eru látnar liggja í bleyti í nægu köldu vatni í 8-12 klst. Kjötið er
soöiö í vatni svo aö fljóti yfir. Fitan á kjötinu er ekki skorin burt fyrr en síðast.
Fróðan veidd vandlega ofan af þegar sýður. Kjötið er soðið í 30-45 mínútur
eða þar til það er meyrt og losnar rétt aðeins frá beinunum. Vatninu er hellt af
baununum. Þær eru settar í stóran pott og helit á þær 1-1 1/2 I af vökva;
soði af kjötinu blönduöu með vatni eöa grænmetissoöi. Fleytiö vel ofan af.
Laukur og lárviðarlauf er sett út í og látið sjóða við vægan hita i um 30-40
mínútur eða þar til baunirnar verða að mauki. Fylgjast þarf með baununum
svo aö þær brenni ekki viö, en best er samt að hræra ekki of mikið í þeim.
Undir lokin er bætt við kryddjurtum. Grænmetið er annaöhvort soðiö hætilega
lengi meö baununum eða sér í potti, en soðið er þá notað í súpuna.
Grænmetiö má ekki veröa mauksoöið. Kjötið er skorið frá beinunum, snyrt og
skorið i litla bita og sett út í baunirnar og grænmetinu bætt við ef það er soöiö
sór. Bætt er við meira soði eöa vatni þar til baunirnar þykja hæfilega þykkar
og hæfilega salfar. Borið fram rjúkandi heitt, öll máltíðin í einum potti.
ÁmtilSíÍfMtaHfíin^ir
i} i va q