Morgunblaðið - 24.03.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FÖSTUDAGUR 24. MARZ 1995 21
Reuter
JAPANSKIR lögreglumenn með gasgrímur færa til poka með eiturefninu natríumflúoríð
sem fannst í vöruskemmu sértrúarsafnaðarins Aum Shinri Kyo í gær.
Sértrúarsöfnuður grunaður um taugagastilræði
Eiturefni finnast í
húsum safnaðarins
Kamiku Isshiki, Tókýó. Reuter.
JAPANSKA lögreglan réðst í gær
inn í vöruskemmum sértrúarsafnað-
arins Aum Shinri Kyo og fann þar
mikið magn af efnum sem notuð
eru til að búa til sarin, taugagasið
sem beitt var í tilræðinu í neðanjarð-
arlestum Tókýó á mánudag. Leitinni
var hætt þar sem efnin eru stór-
hættuleg. Sértrúarsöfnuðurinn er
með 80.000 fylgismenn í Moskvu
og hermt er að hann hafi keypt
herþyrlu og taugagasskynjara í
Rússlandi.
Leit var gerð í vöruskemmum
safnaðarins í þorpinu Kamiku Iss-
hiki, við rætur Fuji-fjalls, og enginn
var handtekinn. Lögreglan handtók
hins vegar mann, sem sagður er í
söfnuðinum, í borginni Hikone. í bíl
hans fannst gasgríma og vökvi, sem
reyndist ekki hættulegur eða með
eiturefni.
Stórhættuleg efni
Lögreglan kvaðst hafa fundið tvö
eiturefni, natríumflúoríð og fosfór-
þríklóríð. „Það að þessi tvö eiturefni
skuli hafa fundist eykur mjög lík-
umar á því að þeir hafi verið að
reyna að búa til sarin eða hafi þeg-
ar gert það,“ sagði Hidenori Wata-
bane, prófessor í efnafræði við
80.000 fylgis-
menn í Moskvu
Tókýó-háskóla. „Þessi tvö efni eru
uppistaðan í sarin.“
Lögreglan kvaðst hafa fundið
fleiri stórhættuleg efni, svo sem blá-
sýrusalt, sem er banvænt eitur. Efn-
ið var geymt í sterkum pappírspok-
um og nokkrir þeirra höfðu verið
opnaðir. Of hættulegt var að flytja
pokana þannig að leitinni var fre-
stað þar til eiturefnasérfræðingar
hersins kæmu á staðinn.
Daginn áður höfðu fundist leysi-
efni, sem notuð eru til að búa til
sarin, í húsakynnum safnaðarins.
Söfnuðurinn neitar þó enn að
hafa staðið fyrir taugastilræðinu í
Tókýó, sem varð tíu manns að bana,
auk þess sem þúsundir manna veikt-
ust, þar af 70 alvarlega. Talsmaður
safnaðarins sagði að eiturefnin
hefðu verið notuð við framleiðslu
tölvukubba og málmskeytingu.
Áróðursherferð í Moskvu
Japanskir fjölmiðlar hafa greint
frá því að sértrúarsöfnuðurinn hafi
hafíð mikla áróðursherferð í útvarpi
og sjónvarpi í Rússlandi skömmu
eftir hrun Sovétríkjanna. Söfnuður-
inn hafi laðað til sín 80.000
Moskvubúa, flesta á þrítugsaldri.
Um 10.000 manns eru í söfnuðinum
í Japan.
Margar fjölskyldur rússnesku
fylgismannanna hafa kvartað yfir
söfnuðinum við yfirvöld í Moskvu.
Borgarasamtök höfðuðu mál gegn
honum í september vegna meintra
fjársvika og mannréttindabrota
gagnvart safnaðarfólki. Samtökin
kröfðust þess að söfnuðurinn greiddi
skaðabætur vegna sálræns og lík-
amlegs skaða sem hann hefði valdið
fólkinu. Máiaferlunum er enn ólokið.
Fumihiro Joyu, forystumaður
safnaðarins í Moskvu, sagði að yfír-
völdum og fjölmiðlum í Japan væri
í nöp við söfnuðinn vegna þess að
hann byði kapítalismanum og hefð-
bundnum trúarbrögðum birginn.
Hann kvað fréttir rússneskra ijjöl-
miðla um að söfnuðurinn hefði gerst
sekur um að ræna ungu fólki og
heilaþvo það algjöran tilbúning.
Söfnuðurinn er sagður hafa keypt
herþyrlu fyrir jafnvirði 22 milljóna
króna og taugagasskynjara í Rúss-
landi skömmu eftir hrun Sovétríkj-
anna.
Fast lagt að Willy
Claes að segja af sér
Brussel. Reuter.
FJÖLMIÐLAR og stjómmálamenn
í Belgíu leggja nú æ fastar að Willy
Claes, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins (NATO, að segja
af sér eftir að flokksbróðir hans,
Frank Vandenbroucke utanríkisráð-
herra, lét af embætti vegna mútu-
máls.
Vandenbroucke, sem hafði gegnt
embættinu í sex mánuði, viður-
kenndi að hafa vitað um leynilegan
sjóð Sósíalistaflokksins flæmska og
kvaðst hafa fyrirskipað að pening-
arnir, jafnvirði 11 milljóna króna,
yrðu brenndir. Hann sagði þetta
„barnalega" ákvörðun.
Talið er að ítalska fyrirtækið
Agusta hafi greitt flokknum þetta
fé til að greiða fyrir samningi um
kaup á herþyrlum árið 1989.
Dagblöð í Belgíu kröfðust þess
að Claes og Karel Van Miert, sem
á sæti í framkvæmda-
stjórn Evrópusam-
bandsins (ESB), gerðu
hreint fyrir sínum dyr-
um. Van Miert var fyr-
irrennari Vandenbro-
ucke sem leiðtogi Sós-
íalistaflokksins.
Claes yfirheyrður?
Stjórnmálamenn
bentu á að þingið væri
að afgreiða ný lög sem
auðveldi saksóknurum
og dómstólum að yfir-
heyra núverandi og
fyrrverandi ráðherra.
„Claes verður efstur á listanum,“
sagði dagblaðið Vers 1-Avenir.
Nokkrir belgískir stjómmála-
menn hvöttu Claes til að segja af
sér. Gerard Deprez, formaður
Kristilega lýðræðis-
flokksins (PSC), sem
er í stjórnarsamstarfi
með Sósíalistaflokkn-
um, kvaðst „ekki skilja
upp né niður“ í þvi að
Claes skuli enn vera
framkvæmdastjóri
NATO.
„Það eina sem kem-
ur til greina núna er
að Claes segi líka af
sér,“ sagði Filip Dew-
inter, leiðtogi hægri-
flokksins Vlaams Blok.
Claes neitaði því í
febrúar að hafa vitað
um mútufé en viðurkenndi síðar að
hafa heyrt minnst á að Agusta hefði
boðið Sósíalistaflokknum „gjafir“.
Hann og Vandenbroucke segjast
hafa hafnað þeirri hugmynd.
Willy Claes
VERÐIÆKKUW
zag
sæng
lum
með tveimur skúffum
Verð án dýnu:
4.990 kP.
Aður: 5.990 kr.
Nú aðeins:
3.990 kr.
i t r y •• ' • w ;
* j
j ' ai
Skrifborð
með hvítum hillum
Verð aðeins:
4.990 kr.
Kommóða
3 skúffur_
Áður: 3.500 kr.
Nú aðeins:
1.990 kr.
ÓDÝRUSTU
rimlagluggatjöldin
á íslandi *__
50 cm x 160 cm 290 KP.
60 cm x 160 cm 390 kP.
70 cm x 160 cm 450 Kr.
80 cm x 160 cm 490 KP.
90 cm x 160 cm 550 KP.
100 cm x 160 cm 590 KP.
110 cm x 160 cm 890 KP.
120 cm x 160 cm 790 KP.
130 cm x 160 cm 890 KP.
140 cm x 160 cm 990 kP.
150 cm x 160 cm 1.090 kP.
160cmx160cm 1.190 kP.
Vaxdúkar
Lampi
2 Ijósastillingar
Áður: 3.900 kr.
Nú aðeins:
3.500 kr.
20%
atslattur
tar-
og kaffistell
_______fyrir fjóra
Áður 1.990
Nú aðeins:
990 kp.
vitir
barnasokkar
Áður: 69 kr.
Nú 10 stk. aðeins:
399 kr.
isar
Fallegir
sokkar
barnastærðum
1 Stk 169
Nú 3 pör aðeins:
399 kr.
30x30 hver flís
6 saman_____
Áður: 1.390 kr.
Nú aðeins:
990 kr.
I HoftagörAum Skwlunni 13 Reykjarvtkurvegi 72 Norðurtanga 3
i Reykjavik Reykjavik Hanúríiföi Akureyn