Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 2

Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 2
2 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lítil veiði í Síldarsmugnnni LÍTIL veiði var í Síldarsmugunni en þijú íslensk skip voru þar ein skipa að veiðum í renniblíðu í gær, Kap, Júpíter og Sunnuberg. Ólafur Einars- son skipstjóri á Kap VE sagði að það væri sfld á blettum en hún stæði djúpt. Þó fékk Júpíter rúm 200 tonn af góðri sfld í fyrradag. Olafur sagði að ein og ein torfa hefði skotist upp á kvöldin en þetta væri mikill reytingur. „Við lágum yfir torfum í gærkvöldi og það kom Lést í vél- sleðaslysi MAÐURINN sem lést í vélsleða- slysi við Akureyri á föstudag hét Gunnar Örn Williamsson, 21 árs gamall. Gunnar Örn var fæddur 12. janúar 1974. Hann var til heimilis að Víði- lundi 1 í Garðabæ og lætur eftir sig foreldra og tvö systkini. VIÐGERÐ á Kantat-sæsíma- strengnum hefur tafíst verulega, þar sem slæmt veður og sjólag hefur gert viðgerðarskipi erfítt fyrir. Jón Þóroddur Jónsson, yfírverkfræðing- ur Pósts og síma, sagði í samtali við Morgunblaðið að óvíst væri hve- nær viðgerð lyki, en vonast væri til að það yrði innan einnar til tveggja vikna. Kantat liggur milli Kanada, ís- lands og Evrópu og hefur verið í notkun frá því í nóvember. Einangr- un strengsins gaf sig suður af Græn- landi, miðja vegu milli Kanada og tengibox fyrir grein sem fer til Vest- ekkert upp. Svo komu upp tvær torf- ur nokkrum mflum sunnar. Þetta er því dálítið kvikindislegt og óveiðan- legt eins og er,“ sagði Ólafur. Okkur að meinalausu að vera í höfn Hann sagði að á íslandsmiðum hegðaði sfldin sér öðruvísi og kæmi meira upp. Hann vissi ekki hvað ylli þessu. Sfldin er átulaus og hélt Ólafur að hún gæti jafnvel lyft sér þegar hún færi í æti. Hann segir að það sé töluvert um sfld á stóru svæði á blett- um en það væri langt á milli þeirra. „Við erum með sáralítið, fengum í fyrradag einhver 70 tonn,“ sagði Ól- afur. Sunnuberg kastaði í fyrrakvöld og fékk 30-40 tonn. Ólafur segir að það sé sér að meina- lausu að verða við tilmælum ríkis- stjómarinnar um að sfldarflotinn verði í höfn meðan framhaldsfundur íslend- inga, Norðmanna, Rússa og Færey- inga um stjóm fískveiða í Sfldarsmug- unni stendur næstkomandi þriðjudag. „Meðan ástandið er svona er það okkur að meinalausu. Við höfiim reyndar ekki verið að velta þessu mikið fyrir okkur því sömu aðilar, eins og t.d. Halldór [Ásgrímsson utan- ríkisráðherra], fögnuðu því fyrir nokkrum dögum þegar skip héldu til veiða í Síldarsmugunni," sagði Ólafur. mannaeyja. Sá hluti strengsins sem liggur milli Vestmannaeyja og Kanada er ónothæfur. 4,5 km dýpi Jón Þóroddur sagði að skemmdir á einangrun hefðu ekki reynst meiri en talið hefði verið, en vegna veðurs hefði reynst erfítt að athafna sig við viðgerðir. „Strengurinn er á 4,5 km dýpi og það hefur reynst þrautin þyngri fyrir viðgerðarskip að halda honum uppi til viðgerða. Talið er að strengurinn hafí nuddast á einhvern hátt og einangrunin skemmst, svo straumleki varð út í sjó.“ Evelyn Stefánsson heimsækir Island FRÚ Evelyn Stefánsson Nef, ekkja Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar, kom til Islands í gærmorgun í boði Vigdísar Finnbogadóttur, forseta ís- lands. Evelyn sagðist við kom- una til landsins vera þreytt eftir langt ferðalag en hún væri mjög spennt að heim- sækja land Villyálms Stefáns- sonar. Sigríður H. Jónsdóttir, deildarsérfræðingur á skrif- stofu forseta íslands, tók á móti henni í gær. Evelyn Stef- ánsson mun m.a. fara til Þing- valla og Vestmannaeyja og á mánudag afhjúpar hún skjöld til minningar um Vilhjálm við athöfn við Sólborg, framtíðar- húsnæði Háskólans á Akur- eyri. Úthafskarf- inn gefur sigekki LÍTIL veiði hefur verið á úthafs- karfamiðum á Reykjaneshrygg frá því um miðjan aprfl. Örn Eiríkur Ragnarsson skipstjóri á Haraldi Kristjánssyni segir að dæmi séu um að skip hafí hætt veiðum og farið á heimamið. Örn Eiríkur sagði að um fímmtán togarar væru á miðunum, þar af nokkrir Færeyingar og Norðmenn. Hann segir aflabrögðin nú mikil viðbrigði frá því í fyrra þegar nán- ast sleitulaus mokveiði var allt frá marsmánuði fram að sjómannadegi. Úthafskarfaveiðar byrjuðu vel á þessari vertíð en síðan dró verulega úr veiðinni. „Einhveijir hafa gefíst upp og farið á heimamið. Ég veit að Sléttanesið fór á heimamið en það hafa reyndar ekki verið það margir íslendingar hérna. Margir hættu við að koma þegar þeir fréttu af aflabrögðum. Hérna hefðu átt að vera 15-20 íslendingar en þeir eru ekki nema sex,“ sagði Öm Ei- ríkur. Gunnar Órn WiUiamsson. Viðgerð hefur taf- ist vegna veðurs Þorbjörg S. Jónsdóttir og Halldór Guðjónsson eiga aldarafmæli í dag „ÉG HEF ekki gert handarvik í mörg ár og geri ekki heldur á af- mælisdaginn," segir Þorbjörg Sig- ríður Jónsdóttir, Laugateigi 5, sem er 100 ára í dag. Jafnaldri hennar er Halldór Guðjónsson, sem lengi var skólastjóri i Vestmannaeyjum. Hann segist spila þrisvar í viku og ætli að gera það eins lengi og hann geti. Fylgist með fréttum Þorbjörg fæddist í Papey 30. apríl 1895 en foreldrar hennar voru Sigríður Gróa Sveinsdóttir frá Hofi í Öræfum og Jón Jónsson frá Efriey í Meðallandi. Árið 1920 giftist hún Emil Þórð- arsyni frá Stöðvarfirði og eignuð- ust þau þijú börn, Nönnu, sem er ógift og býr með móður sinni, Sig- urð Hafstein sem lést rúmlega tví- tugur, og Daníel Þór húsgagna- smíðameistara. Mann sinn missti Þorbjörg 1952 og son sinn Sigurð Hafstein fáum árum áður. Árið 1956 fluttist hún til Reykja- víkur og hefur búið þar síðan. Þorbjörg starfaði lengi við sauma- skap og var orðin 78 ára þegar hún hætti störfum 'eftir 17 ára starf. Þorbjörg er enn við góða heilsu þótt hún hafi misst sjón og heym að miklu leyti og gerir enn leikfimiæfingar. „Ég geng svolítið og hristi mig og geri Miillers-æfingar einstaka sinnum, þær eru alltaf í gildi. Ég lærði þær sem unglingur því það var siður á flestum bæjum að eiga Spila brids og gera Miillers-æfingar Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þorbjörg S. Jónsdóttir æfingar Miillers handa ungu fólki,“ segfir Þorbjörg. Segist hún ekki gera neitt sér til dægrastyttingar og hlær við. „En það er lesið fyrir mig, fyrst og fremst úr dagblöðum svo ég Halldór Guðjónsson geti fylgst með fréttum." Loks seg- ir Þorbjörg að eitt hið minnisstæð- asta sem hún hafi lifað sé að taka á móti bami, sem hún hafi gert þrisvar þegar ljósmóðir var teppt annars staðar. „ Tvöfaldur Iangalangafi“ Halldór Guðjónsson, Hraunbæ 103, fæddist í Smáradalskoti í Flóa í Ámessýslu 30. aprfl árið 1895. Foreldrar hans vom Guðjón Guðna- son frá Tungufelli í Hreppum og Halldóra Halldórsdóttir frá Dísa- stöðum í Flóa. Halldór er þríkvænt- ur og á þijú böm, Sigurð Guðna, Ragnar Inga og Halldóru Mar- gréti. Núverandi eiginkona hans er Elin Sigríður Jakobsdóttir frá Litla- Ósi í Miðfirði í Húnavatnssýslu. Halldór er kennari að mennt og var lengi skólasljóri Baraaskólans og Kvöldskóla iðnaðarmanna í Vestmannaeyjum. Hann var einnig bæjarfulltrúi og bæjargjaldkeri og gegndi fjölmörgum öðmm trúnað- arstörfum. Þegar Halldór hætti störfum í Eyjum árið 1956 vann hann hjá Múrarafélagi Reykjavíkur og síðar þjá Skólaeftirliti ríkisins. „Ég ætla að drekka kaffi í faðmi fjölskyldunnar sem er ansi stór. Eg hef verið tvöfaldur langalang- afi i tvo mánuði og svo bættist einn við i fjölskylduna í fyrradag," seg- ir hann. „Núna geri ég ekkert mér til dægrastyttingar annað en að spila brids og leggja kapal. Ég get ekki Iesið á bók og sé ekki á sjón- varp. Ég sé ekki nema stærstu fyrirsagnir i blöðum en sé á spil með sérstökum gleraugum ef ég fæ birtuna í bakið en ekki í aug- un, því þá sé ég ekkert. Ég spila þrisvar í viku og ætla að gera meðan égget.“ ► l-56 Biðin langa ►Erforsjárdeila Sophiu Hansen og Halims A1 komin á byijunar- reit? Hvernig stendur á því að tyrk- neskir dómstólar kveða ekki upp lokadóm? /10 Sjálfstæðiskonur og jafnréttið ►Konur í Sjálfstæðisflokki báru skarðan hlut frá borði við nýaf- staðna stjómarmyndun en þær eru ekki sammála um hvaða afleiðing- ar það geti haft og stöðu jafnréttis- mála í flokknum. /12 Konan og kóraninn ►Uppgangur öfgasamtaka hefur orðið til þess að hagur kvenna hefur víða fariðversnandi í ríkjum múslima. /14 Makalaust makaval ►Kynin gera ólíkar kröfur þegar makaval er annars vegar en leitast þó oft við að fínna sér maka sem líkist þeim sjálfum. /22 Byrjaði strax með bombu ►Færeyingurinn Jákúp Jacobsen opnaði fyrsta Rúmfatalagerinn á Islandi fyrir sjö árum. Nú telja búðimar fjórar talsins og J ákup er ekki hættur enn. /24 B ► l-36 í kjölfar Kólumbusar ►Sveinn Guðjónsson fór í kjölfar iandkönnuðarins og lýsir undrum og sögu Dóminíkanska lýðveldis- ins./l Hver var Þórður gamli halti? ►Varhann lifandiper- sóna af holdi og blóði, eða hug- smíð höfundar? spyr Pétur Péturs- son og rifar upp sögufrægan upp- lestur Halldórs Laxness í Iðnó á degi verkalýðsins fyrir 60 ámm. /6 Aftur til f ramtíðar ►Bob Dylan bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðá- mennimir en í nýjum útgáfum tek- ur hann skref aftur á upprunaleg- um slóðum. /10 í iðrum Eyjabakkajök- uls ►Stórbrotin náttúruundur hafa fundist í iðmm Eyjabakkajökuls, geysistór og mikill íshellir. Hér birtast stórbrotnar myndir teknar af Ólafi H. Guðgeirssyni, ferða- langi sem kannaði hellinn um síð- ustu helgi. /18 Nær óbreytt heimili frá 1916 ►Það er eins og að ganga inn í fyrri hluta aldarinnar að koma inn í hús númer 43 við Laufásveg, sem Reykjavíkurborg keypti og hefur falið Árbæjarsafni umráð yfir, en hugmyndin er að gera húsið að safni. /34 C BÍLAR ► l-4 Framtíðarþróun raf- bíla ►Leiðir til að draga úr aukinni loftmengun /2 Reynsluakstur ►Stratus frá Chrysler. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 42 Leiðari 28 Fólk í fréttura 44 Helgispjall 28 Bíó/dans 46 Reykjavíkurbréf 28 íþróttir 50 Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 52 Myndasögur 40 Dagbók/veður 55 Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. Brids 42 12JUKvikmyndirl4b fdag 42 Dægurtónlist 16b Stjörnuspá 42 INNLENDAR FRÉTTIR: 2—4—8—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.