Morgunblaðið - 30.04.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SIINNIJDAGUR 30. APRlL 1995 11
Halitn A1 á skrifstofu sinni. Á skrifborðinu er mynd
af Rúnu og Dagbjörtu.
um fyrir dómsniðurstöðuna hvaða
alþjóðasamninga íslendingar hafi
undirritað enda eru hvorki íslend-
ingar né Tyrkir aðilar að þeim
samningum sem máli skipta um
viðurkenningu erlendra forsjár-
ákvarðana.
Eftir að þessi dómur féll var ljóst
að Sophia varð að afla sér staðfest-
ingar á íslenskum skjölum um hjú-
skap þeirra, lögskilnað, íslenskan
ríkisborgararétt Halims og forsjár-
ákvörðun. Kom lögmaður hennar,
Hasíp Kaplan, hingað til lands í
þeim erindagjörðum. Rétt er að
geta þess að Sophia nýtur ekki leng-
ur aðstoðar íslensks lögmanns. Síð-
an var fengin staðfesting tyrkneska
utanríkisráðuneytisins á íslensku
vottorðunum. En samt sem áður
vísaði héraðsdómarinn málinu frá
20. apríl síðastliðinn þótt lögmaður
Sophiu teldi að hann væri með
vænlegt mál á grundvelli hæstarétt-
ardómsins. Vegna þess að rök-
stuðning skorti hjá héraðsdómaran-
um er ekki unnt að átta sig á hvað
veldur frávísuninni.
Sophia hyggst kæra frávísunar-
úrskurðinn. Urskurðurinn skilur
málið eftir í lausu lofti að því leyti
að ekki er að sjá að nein forsjár-
ákvörðun sé í gildi í Tyrklandi
vegna þess að Hæstiréttur hefur
ómerkt alla fyrri dóma héraðsdóm-
arans. Sama virðist eiga við um
umgengnisréttinn, að hann sé niður
fallinn.
Þrjár hugsanlegar skýringar
Þröstur Ólafsson, sem meðal
annars hefur hitt þennan umrædda
héraðsdómara, vekur athygli á að
hann hafi ekki gert neinar athuga-
semdir við hin framlögðu skjöl.
Hann hafi einfaldlega ekki getað
fengið það af sér að dæma Sophiu
forsjána.
• SUMARIÐ 1990: Halim
A1 fer með dætur sínar í
sumarleyfi til Tyrklands
þar sem hann hefur haldið
þeim síðan.
• 10. APRÍL 1992: Sophiu
Hansen úrskurðuð forsjá
dætra sinna á íslandi.
• 12. NÓVEMBER 1992:
Héraðsdómur í Istanbul
dæmir Halim A1 forsjá
dætranna en Sophiu um-
gengnisrétt í júlí ár hvert.
• 25. FEBRUAR 1993:
Hæstiréttur Tyrklands
ómerkir héraðsdóminn
vegna þess að málsmeðferð
hafi verið verulega ábóta-
vant.
• 28. JÚNÍ1993: Héraðs-
dómur í Istanbul rýmkar
umgengnisrétt Sophiu
• 7. OKTÓBER1993: Hér-
aðsdómur í Istanbul stað-
festir fyrri niðurstöðu um
forsjá Halims.
• 30. MARS 1994: Hæsti-
réttur ómerkir enn héraðs-
dóminn vegna þess að áður
en forsjá sé ákveðin þurfi
að fást úr því skorið hvert
sé ríkisfang aðilja og hjú-
skaparstaða.
• 20. APRÍL 1995: Hér-
aðsdómur í Istanbul vísar
málinu frá án rökstuðn-
ings.
Þröstur segist sjá þijár hugsan-
legar skýringar á frávísunarákvörð-
un dómarans. í fyrsta lagi að hann
hafi út frá eigin trúarlegu gildis-
mati verið sannfærður um að Sop-
hia ætti ekki að fá börnin heldur
ættu þau að vera hjá föðurnum.
Auk þess geti verið að öfgatrúar-
menn hafi hótað honum öllu illu. í
öðru lagi kunni faðir barnanna að
hafa mútað dómaranum. í þriðja
lagi kunni dómarinn sem lögfræð-
ingur að eiga erfitt með að eta fyrri
ákvörðun ofan í sig.
Annars segir Þröstur að afskipti
sín af málinu hafi fært sér heim
sanninn um það hve karlaveldið sé
mikið í Tyrklandi og það hafi lík-
lega sín áhrif.
Feður fá frekar forsjá dætra
Til þess að fá álit annarra tyrk-
neskra lögfræðinga en lögmanns
Sophiu á málinu sneri blaðamaður
sér til Sennur Hamangiogly, eigin-
konu ræðismanns íslands í Istanb-
ul, en hún rekur lögmannsstofu þar
í borg og hefur fylgst með máli
Sophiu úr fjarlægð.
Hún segir að mál Sophiu hafi
verið mikið í fjölmiðlum fyrir tveim-
ur til þremur árum, en heldur hafi
dregið úr því, meðal annars vegna
þess að það séu svo mörg sambæri-
leg mál fyrir tyrkneskum dómstól-
um.
Varðandi forsjárákvörðunina þá
skipti það minnstu máli að Sophia
sé útlendingur en Halim Tyrki, en
hins vegar vegi það sjónarmið þungt
hjá tyrkneskum dómstólum í for-
sjármálum að dætur eigi að vera
hjá feðrum og synir hjá mæðrum.
Rökin fyrir því að dæturnar séu
ekki hjá móðurinni séu þau að það
geti risið vandamál ef konan giftist
á ný.
Hamangiogly segist vantrúuð á
að héraðsdómarinn hafi eitthvað
á móti Sophiu Hansen. Hún undr-
ast það hins vegar að lögmaður
Sophiu skyldi ekki fylgja um-
gengnisréttinum fastar eftir. Það
ættu að vera úrræði til þess sam-
kvæmt tyrkneskum lögum. Snjall
lögmaður myndi ekki láta annan
aðilann komast upp með slík brot
á umgengnisrétti.
Þegar þessi síðustu ummæli voru
borin undir Sigurð Pétur Harðarson
þá sagði hann að það væri að vissu
leyti rétt að umgengnisréttinum
hefði ekki verið fylgt eftir til hins
ítrasta. Beðið væri úrlausnar
Hæstaréttar Tyrklands um það efni
enda væru líkur á að hann myndi
dæma Halim í þunga refsingu fyrir
54 brot sín á umgengnisréttinum.
Auk þess hefði Sophiu verið hótað
öllu illu ef hún fylgdi umgengnis-
réttinum fast eftir og í samráði við
íslensk stjórnvöld hefði verið ákveð-
ið að stofna öryggi hennar ekki í
hættu.
Hagsmunir barnanna mega
ekki gleymast
Hasíp Kaplan, lögmaður Sophiu,
lýsti því einnig í samtali við Morg-
unblaðið fyrr í vetur hvernig hann
hefði eitt sinn fengið því framgengt
með aðstoð lögreglu að Sophia hitti
dætur sínar. Það uppnám sem
fylgdi hefði leitt til þess að ekki
hefði verið talið rétt að beita fram-
ar lögregluvaldi af tillitssemi við
stúlkurnar tvær. Er það viðhorf
mjög í samræmi við niðurstöðu allra
þeirra sem hafa haft eitthvað af
forsjárdeilum að segja; hagsmunir
barnanna mega ekki gleymast enda
eiga þeir að vega þyngst.
Fundur um tækniyfirfærslu
Evrópusambandið hefur auglýst styrki til samstarfsverkefna á
sviði tækniyfirfærslu innan Evrópu.
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna (KER) og Samtök
iðnaðarins efna til fundar til að kynna þessi verkefni á Grand
Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 3. maí, kl. 13:00 - 15:15.
Gestur fundarins verður Guido Haesen, sérfræðingur hjá fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Einnig flytja framsögu:
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís-
lands.
Hermann Kristjánsson framkvæmdastjóri Vaka hf. og dr. Ragnar
Jóhannsson verkefnisstjóri á Iðntæknistofnun lýsa tveimur íslensk-
um tækniyfirfærsluverkefnum.
Þátttaka tilkynnist í síma 62 13 20.
HAFNARFJARÐARBÆR
TIL SÖLU - TILBOÐ
Hafnarfjarðarbær auglýsir til sölu íbúðarhúsið að Suðurgötu 11, Hafnarfirði, járnklætt timbur-
hús, hæð og ris á steyptum kjallara. Húsið, sem er allt ný endurnýjað, er um 317 m2. Tilboð
óskast í húsið og skal þeim skilað á skrifstofu bæjarverkfræðings Strandgötu 6, fyrir kl. 14:00
] þriðjudaginn 9. maí n.k. og verða
þau opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum. Til
að fá nánari upplýsingar, uppdrætti
og að skoða húsið, vinsamlegast
hafið samband við skrifstofu
bæjarverkfræðings sími 555-3444.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.
TilboÖsverÖ
til Benidorm
1. iúní í 3 viknr
fra kr. 49.730f®
Aðeins 6 ■
vjðbótaríbuðir
Síðustu sœtm
Tilboðið okkar til Benidorm seldist strax upp og höfum við nú fengið nokkrar viðbótar-
íbúðir á vinsælasta gististaðnum okkar, Century Vistamar þann 1. júní á hreint einstöku
tilboðsverði. Hér ert þú staðsett(ur) á besta stað á Benidorm, býrð við frábæran aðbúnað
í glæsilegum nýlegum íbúðum og veðrið á Benidorm er frábært á þessum tíma.
Verð frá kr. 49.730
m.v. hjón með 2 böm, 1. júní.
Verð frá kr. 59.960
m.v. 2 í íbúð.
lnnifaliil í verði; Flug, gisting,
fararstjórn.ferðir til ogfrá
flugvelli erlendis, skattar og
foifallagjöld.
Frábær þjónusta:
Móttaka
Garður
Sundlaug
Veitingastaður
Verslun
Bar
Sjónvarp í íbúðuni
Sími í íbúðum
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2.
^æð. Sími 624600.