Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL1995 15
og Malí er hlutfall grunnskólamennt-
unar þeirra aðeins um 1-2%, en í
flestum ríkjum er það á bilinu
40-60%. Læsi á meðal kvenna eldri
en 15 ára er á bilinu 1% (Malí).til
60% (Egyptaland) og atvinnuhlut-
deild þeirra jafnvel enn lægri.
Munurinn á stöðu kvenna í borg-
um og sveitum er sláandi. í sveitum
og minni bæjum vinna þær yfírleitt
almenn landbúnarstörf eins og geta
leyfir. í borgum, sérstaklega stór-
borgum, er atvinnuleysi það mikið
að karlmenn ganga fyrir um flest
betri störf. Flestar útivinnandi konur
í borgum vinna láglaunastörf, s.s.
þjónustustörf, verslunarstörf og
verksmiðjuvinnu. Bamavinna er
einnig algeng í stórborgum. Nýlega
heimsótti undirritaður verksmiðju í
Kaíró þar sem stök teppi eru ofin
að gömlum sið. Vinnuaflið reyndist
vera böm á aldrinum 7-12 ára og
voru flest þeirra helstu fyrirvinnur
fjölskyldna sinna.
Það viðgengst enn að ráðstafa
Iranskar konur
albúnar aó verja
byltinguna.
dætrum í hjónabönd eftir vild. í
mörgum löndum getur stúlkan þó
neitað, en sjaldnast þorir hún að
standa gegn vilja foreldra sinna.
Jafnvel ungir menn Iáta til leiðast
undan þrýstingi foreldra. Fjölkvæni
er enn stundað í íslömskum löndum,
en vegna breyttra samfélagsað-
stæðna hafa fæstir karlmenn ráð á
að sjá fyrir fleiri en einni eiginkonu.
Lögmæti fjölkvænis hefur einnig
verið umdeilt alveg frá fyrstu öldum
íslams.
Endurbótasinnar og
ofstækismenn
Síðari heimsstyijöldin fæddi af sér
íslamska vakningu í flestum löndum
Miðausturlanda. Saudi-Arabía af-
nam hinar ottómönsku lagasetningar
þegar á þriðja áratugnum og mörg
önnur lönd fylgdu á eftir frá lokum
síðari heimsstyrjaldarinnar. Iran hélt
þó áfram á braut vestræns hugsunar-
háttar undir keisarastjórn Resa Pa-
hlevis en með íslömsku byltingunni
árið 1979 voru afnumin flest frjáls-
lynd lagaákvæði og konur festar í
sömu fjötrum og áður.
í hófsömum ríkjum múslima hefur
þrýstingur á afnám afkvæma vest-
rænnar siðmenningar orðið til þess
að kúgun kvenna hefur aukist frá
því sem áður var.
Helsta stefnumál íslamska öfga-
samtaka hefur verið að hverfa aftur
til íslamskra laga (shari'a) og varpa
„vestrænum" lagaákvæðum fyrir
róða. Ein kenning hins klassíska ísl-
ams er: „Konunni er aðeins ieyft að
fara þrisvar úr húsi sínu: þegar hún
giftist, þegar foreldrar hennar deyja
og þegar hún er borin til grafar. “ í
íslömskum lögum eru slíkar skoðanir
algengar hvað snertir stöðu kvenna.
íranski fræðimaðurinn Jamal Al-
Afghani (1838-1897), einn þekktasti
hugmyndafræðingur íslömsku vakn-
ingarinnar, taldi að innbyrðis styrj-
aldir múslima væru sök eiginkonu
Múhameðs spámanns, Aishu, sem
leiddi fyrsta íslamska uppreisnarher-
inn til orrustu. Með því að leyfa henni
að spreyta sig hafí Allah aðeins ver-
ið: „að kenna okkur lexíu í samskipt-
um kynjanna. Það virðist sem Ailah
hafi skapað konuna til að fjölga
mannkyninu, aia upp kyn-
slóðir framtíðarinnar og
hugsa um heimilið. “ Þess-
ar og aðrar líkar kenningar
hafa yfirleitt verið kenndar
við íslamska bókstafstrú
eða „fundamentalisma“.
Slík nafngift er þó röng,
þar sem íslömsk „bókstafs-
trú“ lítur ekki aftur til
Kóransins heldur til orða
Múhameðs og ritskýringa
íslamskra guðfræðinga.
Á hinn bóginn hafa
kvennasögufræðingar tek-
ið aðra stefnu í rannsókn-
um sínum á stöðu íslam-
skra kvenna. Þekktustu
kvennasögufræðingar í ísl-
am eru vafalaust Nikki R.
Keddie og Fatima Mernissi
og hefur sá sem þetta ritar
dregið mikið af efni sínu
úr smiðju þeirra.
Sú fyrrnefnda lýsti
áherslum í íslamskri
kvennasögu með þessum
hætti: „Endurbótasinnar
vitna iðulega til frumheim-
ilda, Kóransins og for-
skrifta Múhameðs, og
hafna síðari tíma túlkun-
um, sem leitt hafa til sterk-
ari karlímynda en Kóran-
inn opinberaði. Ef Kóran-
inn er túlkaður að nýju
geta lagaákvæði verið lag-
færð. Slík ný túlkun getur
stöðvað fjölkvæni og bætt
stöðu kvenna. “
Góð dæmi'um slíka að-
ferð eru hinar fjölmörgu
bækur Fatimu Mernissi
sem varpa, umfram flest
önnur rit, ljósi á misræmið
á milli stöðu múslimskra
kvenna og kenninga Mú-
hameðs.
„Haldið kyrru fyrir...“
Samkvæmt klassískum
skilgreiningum hefur ein-
angrun kvenna innan veggja heimil-
isins verið réttlætt með versum 30-33
í þrítugasta kafla Kóranins: „Haldið
kyrru fyrir í húsum ykkar. “ Arabíska
orðið sem þýtt er sem „að halda
kyrru fyrir" er „qrn“ sem klassískir
guðfræðingar hafa túlkað sem
„qarna“, að sitja um kyrrt. Hins veg-
ar er upphaflega skilgreining orðsins
„qirna“ sem þýðir að vera hljóður
eða virðulegur. Því er óvíst hvort
lagalegur grundvöllur sé fyrir ein-
angrun kvenna innan veggja híbýla
þeirra.
í annan stað, er enginn grundvöll-
ur í Kóraninum fyrir þeim klæðnaði
sem strangtrúaðar múslimskar kon-
ur bera á okkar tímum. Skylda þeirra
var að hylja þá hluta líkamans sem
væru hvað mest „æsandi“ fyrir karl-
menn og fjarlægja ökklahringi og
annað glingur. Sá klæðaburður sem
kallaður hefur verið ,járntjaldið"
[hijab eða skýla) var tekinn inn í
íslam frá klæðaburði persneskra
kvenna á 8. öld. íslam hefur tekið
inn á sig mikið af menningu þeirra
þjóða sem sverð Spámannsins lagði
undir sig. Auk ofangreindra atriða
er umskurn kvenna það alvarlegasta,
en sú athöfn er á meðal sársauka-
fyllstu og grimmileg>jstu aðgerða
sem mögulegt er að framkvæma á
mannslíkama.
Þótt lagaleg staða kvenna sé mun
verri í íslam en kristni, hafa múslim-
ar gengið mun lengra í kúgun kvenna
en heimild hefur verið fyrir í Kóranin-
um. Grundvallarkenning bókar þeirr-
ar um stöðu kvenna er sú að konan
sé eign mannsins, en honum beri
hins vegar skylda til að sjá henni
farborða og annast af góðmennsku.
Yfirleitt getur kona ekki fengið lög-
skilnað frá eiginmanni sínum nema
með samþykki hans og verður hún
þá að tilgreina ástæður fyrir kröfu
sinni, svo sem misþyrmingar, getu-
leysi, geðbilun, framfærsluleysi eða
alvarlegan sjúkieika mannsins. Eig-
inmaðurinn getur hins vegar skilið
við konu sína með því að tilkynna
það þrisvar sinnum í viðurvist hennar
og tveggja vitna, án þess að tilgreina
ástæður.
Því er oft haldið fram að í raun
sé heildarstaða múslimskra kvenna
gróft brot á mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og lítilsvirðing
við þennan mikilvæga helming
mannkynsins. I framkvæmd sé víð-
ast hvar lítill munur á stöðu kvenna
og þræla. í Tyrklandi, Egyptalandi,
Túnis, Jórdaníu, Marokkó og í gömlu
kommúnistaríkjunum er staða mú-
slimakvenna þó talin nokkuð þolan-
leg.
Staðreyndin er þó sú, að jafnvel í
þessum löndum hefur þróunin verið
í þá átt að takmarka enn frekar frelsi
kvenna sem gerst hefur samhliða
vexti íslainskra öfgasamtaka.
Menntaðasta þjóð hins íslamska
heims, Palestínumenn, hefur ekki
síst orðið fyrir barðinu á vaxandi
öfgatrú í röðum sínum. Sökum rit-
skoðunar og hafta á vísindalegum
rannsóknum í flestum löndum hins
íslamska heims er það helst staða
palestínskra kvenna sem tekist hefur
að draga upp ljósa mynd af. Sam-
kvæmt nýlegum rannsóknum fræði-
manna hefur komið í ljós að jafnvel
á þeim bæ er víðast hvar pottur brot-
inn.
Blóð og heiður
SUMARjífeLA
Á SUNNUDÖGUM í SUMAR
Létt, sumarlegt og gómsætt
grænmetisréttahlaðborð í dag
frá kl. 18-22. Aðeins kr. 899.
Laugavegi 20b • Sími 28410
Viðarkynntir pottar
Fyrir sumarbústaðinn eða garðinn heima.
Frá þvt' að friðarsamkomulagið í
Osló var undirritað hefur gott sam-
starf tekist á milli ísraelskra og pa-
lestínskra kvenna. Tvær friðar- og
mannréttindastofnanir kvenna hafa
risið í Jerúsalem sem huga að rétti
kvenna í Miðausturlöndum.
Þótt Yasser Arafat, formað
Frelsissamtaka Palestinu (PLO), hí
þegið friðarverðlaun Nóbels fyi
hönd Palestínumanna, hefði sá hei
ur að margra mati frekar átt s
ganga til palestínskra kvenna. Mör;
um árum áður en ísraelskir og pales
ínskir karlmenn komu saman
Madrid 1991 höfðu konur þein
samþykkt drög að friðarsamninj
sem gekk mun lengra en Óslóarsan
komulagið. Bæði í ísrael og á með:
Palestínumanna eru konur fremsta
í flokki friðarhreyfinga og án fram
lags þeirra er vafasamt að friðar
samningar hefðu verið undirritaðir.
Að hinu ber þó að gæta að flestai
áhrifamestu konur í hópi Palestínu-
manna hafa kristinn bakgrunn, eins
og til dæmis Hanan Ashrawi sem
var mjög áberandi í friðarviðræðun-
um. Að baki frjálslyndari ímynd búa
palestínskar konur þó við næstum
því sama grundvallarmisréttið og
aðrar múslimskar konur.
Samkvæmt upplýsingum palest-
ínsku menntakonunnar Souha Araf
myrtu siðgæðisverðir al-Fatah,
hreyfingar Arafats, að minnsta kosti
107 palestínskar konur á árunum
1988-1993 fyrir að vera of „vestræn-
ar“ í hugsunarhætti. Dæmi um slíkt
var ósiðsamlegur klæðnaður, kynlíf
fyrir hjónaband, samband við
„óæskilega aðila“ eða fyrir að neita
að senda börn sín í gijótkast við ísra-
elska hermenn. Að sögn Arafats eru
ástæðurnar þær að palestínskar kon-
ur voru í fararbroddi uppreisnarinnar
á hernámssvæðunum,/nt/fada, og
gleymdu við það sínum hefðbundna
stað í samfélaginu. Hafi þær síðan
ógnað karlaveldinu með þessum af-
leiðingum. Helstu gagnrýnendur
þessara grimmilegu aðfara hafa ver-
ið palestínskar kvennahreyfingar
sem hafa ítrekað mótmælt þessum
„siðgæðismorðum" en aðeins þegið
svívirðingar og jafnvel barsmíðar að
launum.
Kannski er eina leiðin til friðar
fyrir botni Miðjarðarhafs og annars
staðar í hinum íslamska heimi fólgin
í því að bæta stöðu kvenna og leyfa
þeim að hafa vit fyrir karlmönnunum
hvað þetta snertir.
Höfundur er sagnfræðingur og
stundar framhaldsnám íJerú-
salem.
spa hf. ______________________________________viðarkyntir pottar
Bústaðavegi 69 -108 Reykjavík - S. 552 84 40 & 588 58 48 • thorthor@ismennt.is
DUX-
Bakið er ekki að drepa þig - það er líklega dýnan!
DUX rúmdýnan - einstök og frábær hönnun.
DUX dýnan er mjúk og lagar sig fullkomlega
að líkama þínum.
Þú liggur ekki á henni - hún umvefiir þig.
Það er stundum dýru verði keypt að kaupa ódýrt.
Á harðri dýnu liggur
hryggsúlan í sveig ,
Á DUX-dýnu liggur
hryggsúlan bein