Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 24

Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 24
J 24 SUNNUDAGUR 30. APRÍL1995 BYRJAÐI STRAX MEÐ BOMBU eftir Guðmund Guðjónsson JÁKUP er fæddur í Þórshöfn 25. september 1961 og er því tæpast farinn að grána. Hann gekk hefðbundinn menntaveg fram að 13 ára aldri, en þá fékk hann sín fyrstu kynni af sjómennsku. 14 ára var hann alfarinn á sjó og stundaði hann sjó- mennsku, einkum með línubátum, til 24 ára aldurs. „Þegar þá var komið sögu var ég farinn að hugsa mér að fínna eitthvað nýtt. Eg segi ekki að ég hafí verið orðinn leiður á sjómennsku, en maður er svo mikið að heiman. Síðustu tvö árin á sjónum sást ég varla heima hjá mér. Þetta var farið að verða gott. Spurningin var hvað hægt væri að gera og svarið fékkst þegar ég var í sumarfríi með föður mínum í Dan- mörku. „ Við vorum á vappi í Kaupmanna- höfn og sáum þá búð sem heitir „Jyske Sengetejs lagret“, eða jóski sængurfatalagerinn. Ég fór strax á velta fyrir mér hvort slík verslun gæti gengið í Færeyjum. Við fórum inn og þar var ungur maður að af- greiða sem vildi vita hvort við vær- um Finnar. Þegar við svöruðum því til að við kæmum frá Færeyjum barst talið að því hvort það væri ekki snjallt að setja á stofn búð af þessu tagi í eyjunum. Var það fast- mælum bundið að ræða málið aftur síðar,“ segir Jákup og strýkur blý- antslagað yfirvaraskeggið. Málið var sannarlega rætt á ný og ákveðið að slá til og reyna. Það hefur nú kostað sitt að stofna versl- un, hvaðan kom fjármagnið? Jákup er greinilega skemmt yfir spurningunni, því hann glottir er hann svarar: „Eg var búinn að vera lengi á sjó og græða vel. Á sjónum hefur maður ekkert við peningana á gera, þeir voru því allir til. Svo nutum við auk þess mikils trausts þeirra aðila í Danmörku og Þýska- landi sem við fengum vörurnar hjá. Við gátum því með mikilli vinnu komið búðinni af stað.“ Og hvemig gekk? „Þetta bytjaði strax með bombu og gengur enn ofsalega vel. Það eru átta ár síðan að búðin opnaði í Þórs- höfn og ári síðar opnaði ég síðan fyrstu búðina á íslandi. Hún var í Kópavogi í kjallaranum þar sem Byko er núna. KRON var áður í húsinu. Þetta gekk alveg bærilega, en síðar keypti Byko húsnæðið og hugðist nota það allt saman. Ég fór þá að leita að nýjum stað og fann gott húsnæði í Áuðbrekku í Kópa- vogi og var nýbyijaður þar þegar ég fann húsnæðið i Faxafeni. Ég sé það svona eftir á, að það hefur bjargað mér að Byko keypti húsið í Kópavoginum og vildi ekki leigja mér áfram. Þótt ég opnaði verslun í Faxafeni, hætti ég ekki í Auð- brekkunni fyrr en ég opnaði verslun- ina í Holtagörðum. Rúmföt og Bónus Af því þú nefnir verslunina í Holta- görðum, þá er hún í heljarmiklu samkrulli við Bónus og Ikea. Það er talað um samstarf á milli aðila. Hvað er um það að segja? „Við höfum verið í nánu sam- bandi við Bónus. Það var Jóhannes í Bónus sem átti frumkvæðið að því og rótin liggur í því að bæði Bónus og Rúmfatalagerinn hafa verið með mjög ódýra vöru á boðstólum. Jó- hannes taldi að það gæti verið beggja hagur að hafa verslanir fyrirtækjanna samliggjandi. Þessu var ég sammála og við reyndum þetta. Þetta hefur komið mjög vel út og ég held að allir hlutaðeigend- ur séu ánægðir með fyrirkomulagið. Við Jóhannes höfum því keypt lóð í Smárahvamminum í Kópavogi og þar er hugmyndin að reisa samliggj- andi verslunarhús Rúmfatalagersins og Bónus,“ svarar Jákup. Því er fleygt að það fáist sitthvað fleira í Rúmfatalagernum en rúm- föt, sbr. sjónvarpsauglýsingar þar sem þú situr sjálfur fyrir og býður boli og drykkjarfanta fala fyrir ótrú- lega smápeninga? Enn glottir Jákup og segir: „í fyrstu vorum við eingöngu með rúmföt, sængur og rúm. Síðan bætt- ist allt mögulegt við. Einn náungi sem kom í búðina horfði forviða í kringum sig og sagðist halda að hér fengist allt nema kannski flugvélar. Ég leiðrétti hann og sagði að skömmu áður hefðu vissulega feng- ist flugvélar. Að vísu leikfangaflug- vélar! Um vöruúrvalið er það annars að segja, að enn sem fyrr leggjum við mesta áherslu á að selja rúm- föt. Önnur vara kemur og fer, en við viljum gjaman hafa allt mögu- legt á boðstólum. Koma fólki á óvart. Svo leggjum við auðvitað mikla áherslu á að halda verðinu niðri.“ Af því að umræddar auglýsingar báru á góma. Þær voru óvenjuleg- ar. Virkuðu þær? „Hvort þær gerðu! Það bókstaf- lega fylltust búðirnar af fólki. Þetta form var eftir okkur sjálfa. Að vísu höfðum við vitneskju um svipaðan stíl hjá búðinni í Danmörku og þar hafði þetta einnig virkað. Við reynd- um þetta því líka og það var bomba! Að sigra kreppu... Það vekur athygli að uppgangur fyrirtækisins er mestur á tímum þegar efnahagskreppa heldur þjóð- félaginu í klóm sínum. Var ekki erfitt að sækja á brattann í slíku umhverfí? „Nei, það var ekki. Einmitt við slíkar kringumstæður sækir fólk í verslanir á borð við Rúmfatalager- inn sem líkt og Bónus er með lægra verð en gengur og gerist. Einmitt í kreppu virka svoleiðis viðskipta- hættir best. En það var gott efna- hagsástand þegar ég var að byrja og það hefur farið batnandi aftur að undanförnu. Það dregur ekkert úr sókn fólks í búðirnar þótt tíðin sé betri.“ En er það ekki rétt að þú hefur reynt að opna búðir víða úti á lands- byggðinni en þær hafi ekki enst? „Jú, jú, á Seyðisfírði, Egilsstöðum MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ámi Sæberg VIDSKIPnAIVmNULÍF ÁSUNNUDEGI ► Jákup Jacobsen heitir geðþekkur ungur Færeyingur sem rekur stóra verslunarkeðju hér á Iandi. Rúmfatalagerinn heitir fyrirtækið og er um fjórar verslanir að ræða. Þijár á höfuðborgarsvæðinu og ein á Akureyri. Það eru átta ár síðan að fyrsta verslunin var opnuð hér og þrátt fyrir að flest árin, sem fyrirtækið hefur starfað, hafi verið efnahags- lægð í landinu hefur það ekki staðið í vegi fyrir því að fyrirtækið hefur vaxið og dafnað. Svo mjög að enn stefnir í fjölgun Rúmfatalagera. Hér á landi og ef til vill erlendis. og í Vestmannaeyjum. Þær voru opnar eitt sumar hver og hættu ekki af því að það hafði gengið illa. í raun og veru gengu þær mjög vel. Aftur á móti var það gífurleg vinna að halda úti verslunum á landsbyggðinni samhliða rekstrin- um á höfuðborgarsvæðinu. Það er aðeins ein búð á landsbyggðinni í dag, á Akureyri, og í fermetrum talið er það stærsta búðin." Hver er stærst í veltu talið? „Það er búðin í Holtagörðum, engin spurning." Og hver er veltan? Jákup glottir og ekki í fyrsta sinn: „Segðu bara að hún sé góð.“ Skattar og yfirbygging... Hver er lykillinn að velgengni Rúm- fatalagersins, að lágu verði slepptu? Nú hugsar Jákup sig um og strýk- ur skeggið mjóa. Og segir svo: „Ætli það sé ekki yfirbyggingin og ósérhlífni. Það er algert stórmál að halda yfirbyggingu í lágmarki. Ég er viss um að mörg fyrirtæki standa verr en ella vegna þess að þau sitja föst í of stórri yfirbyggingu. Alveg frá upphafi hefur yfirbyggingin hjá mér verið í lágmarki. Það sést best á því að sjálfur hleyp ég í flest eða öll störf. Svo þegar umfangið stækkar má ekki allt lenda á sömu herðunum. Það er nauðsynlegt að hafa 2-3 trausta vini með sér. Menn sem hægt er að treysta hundrað prósent, sama á hverju dynur. Mín- ir menn eru Poul og Arne, báðir Færeyingar. Annars er ég með 40 Islendinga í vinnu.“ Nú hefur ástandið í Færeyjum verið heldur svart um nokkurt skeið og þær raddir hafa heyrst að íslend- ingar væru á sömu leið. Hvernig upplifir þú slíkt? „Ég held ekki að íslendingar séu á sömu leið og Færeyingar. Til að byija með hafa íslendingar eitt og annað umfram þorskinn. í Færeyj- um hefur maður upplifað að sjá þorskinn hverfa og þjóðina með. Það er átakanlegt að horfa upp á þróun- ina sem þar hefur verið. Margir hafa flúið eyjarnar, sérstaklega unga fólkið sem ætti að vera fram- tíð eyjanna. Munurinn að vera í rekstri á íslandi eða í Færeyjum er gífurlegur. Þar er þetta eins í Kína, þú vinnur nánast fyrir ríkið. Af 25.000 dönskum krónum í árslaun stóð ég uppi með 10.000 krónur eftir skatta. Á íslandi fæ ég meira útborgað fyrir miklu minni heildar- upphæð. En það er með ástandið í Færeyjum, ástandið getur ekki versnað og í raun og veru hefur mér skilist að það sé heldur að skána,“ segir Jákup. Út fyrir landsteina? Þegar talið berst að því hvernig Jákup sjái nánustu framtíð fyrir sér, þá ri^ar hann upp byggingará- formin í Smárahvammi með vini sínum Jóhannesi í Bónus. Hann ætlar sér ekki stærri hlut hér innan- lands eftir það. En kannski erlend- is? Hann lætur þess getið að hann eigi helming í tveimur Bónusversl- unum í Færeyjum, en það er fleira í bígerð: „Eg held að það hafi ekkert upp úr sér að setja upp fleiri búðir á íslandi þegar allt er komið í gang í Smárahvammi. En það kemur vel til greina að koma á fót verslun erlendis. Beina kröftum sínum í þá átt. Það er vissulega til athugunar,“ segir Jákúp. I hvaða landi eða löndum? „Það er ekki frágengið 0g

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.