Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 31
MINNiNGAR
Þó að hér sé vitnað til fagur-
mæla um föðurætt Valgerðar verð-
ur mér eigi síður hugsað til langafa
hennar Jóns Borgfirðings. Hann var
traustur fulltrúi Jóns Sigurðssonar
forseta og trúnaðarmaður við bóka-
og handritasöfnun. Ferðaðist víða
um land, seldi bækur og keypti og
safnaði handritum. Afrek hans við
skráningu íslenskra bóka flutti
hróður hans í British Museum. Jón
Sigurðsson galt honum laun fyrir
fræðimannatal, sem varðveitt er
með handritum hans í Landsbóka-
safni. Vænt þótti mér að sjá í ferða-
sögu Jóns Borgfirðings að honum
þótti bær afa míns, Eyvindarmúli í
Fljótshlíð, einna fallegastur bæja.
Þó kom þeim afa mínum ekki sam-
an um allt, sem á góma bar í viðræð-
um. Afrek Jóns Borgfirðings, stað-
festa þeirra hjóna og sjálfsafneitun
við uppeldi og menntun barna þeirra
er lýsandi dæmi um stefnufestu og
manntaþrá. Litli bærinn þeirra við
Vesturgötu 20 var naumast stærri
en fjallajeppar, sem nú þeytast um
öræfí landsins. Samt tókst þeim að
koma þar til mennta barnahóp sín-
um. Settu þau öll svip á þjóðlíf,
Finnur prófessor, Klemens landrit-
ari, Ingólfur bankamaður og Vil-
hjálmur stúdent, sem átti frum-
kvæði að því að Jónasi Hallgríms-
syni yrði reistur minnisvarði. Dæt-
urnar Guðný kona Bjöms sýslu-
manns og Guðrún Borgfjörð, sem
skráði gagnmerka frásögn um lífið
í Reykjavík. í bók Guðrúnar er stutt
en áhrifamikil frásögn og forspá.
Guðrún lýsir ferð fjölskyldunnar frá
Akureyri til Reykjavíkur. Ferðin tók
fjórtán daga. Móðir hennar Anna
Guðrún reið liprum fola sem aldrei
gerði neinar „kúnstir". Farið var
Suðurgötu segir Guðrún, „en þegar
við komum fyrir framan leiði Sig-
urðar Breiðíjörðs, lagðist folinn nið-
ur, svo að mamma varð að fara af
baki. Þá sagði hún um leið og hún
stóð upp: „Hér á ég þá að liggja.“
Þetta voru orð að sönnu. Hún ligg-
ur, að heita má í beinni línu, nokkr-
um leiðum ofar.“ Að vera forvitri
var orð sem haft var um þá sem
sáu fyrir óorðna hluti og atburði. í
þeim flokki hefír langamma Val-
gerðar verið.
Mér er það minnisstætt er ég sem
ungur drengur, nýfluttur til höfuð-
staðarins, skokkaði við hlið
Tryggva bróður míns, sem er 9
árum eldri. Á þeim árum var talið
sjálfsagt að allir legðust á eitt um
að afla heimilum sínum tekna.
Börnin bytjuðu snemma að leggja
hönd að verki. Tryggvi bróðir minn
tók að sér að bera út Tímann. Rit-
stjóri blaðsins var Tryggvi Þórhalls-
són búsettur í Laufási. Ekki man
ég hve kaupendur blaðsins voru
margir. En ég minnist þess vel að
Laufás þótti höfðingssetur og var
sagt að víðar lendur þeirra Laufás-
bræðra Þórhalls bískups og Vil-
hjálms á Rauðará lægju saman.
Allt um það var ljúfmannlega tekið
við blaðburðardrengjum er þeir
kvöddu dyra á heimili ritstjórans.
Svo héldum við bræður áfram
göngunni allt suður að Kennara-
skóla. Þar settist bróðir minn stund-
um undir vegg og hugsaði ráð sitt,
en ég hljóp með eitt eintak blaðsins
til áskrifanda í Reykholti í grennd
Pólanna, þar sem nú er gróðrarstöð-
in Alaska. Grös og grónar lendur
voru í grennd við Laufásveginn. Þar
var einnig Gróðrarstöðin. Þangað
fluttist löngu síðar góður vinur for-
eldra minna og systkina, Helgi
Hallgrímsson. Tryggðavinur fjöl-
skyldunnar frá árum hans á Eyrar-
bakka, þar sem hann kenndi um
skeið. Helgi varð tengdafaðir Val-
gerðar. Hallgrímur tónskáld maður
hennar hefír markað djúp spor í
menningarsögu þjóðarinnar. Starf
hans í þágu íslenskrar hljómlistar
verður seint fullþakkað. Þá minnist
ég vinsemdar hans er ég vann að
þáttagerð í útvarpi. Hann sendi mér
þá upplýsingar og frásögn er hann
geymdi í minni. Þessu fylgdi vin-
samlegt bréf með ávarpsorðinu:
Vinarbróðir. Vísaði hann þá til vin-
áttu þeirra feðga við bróður minn.
Tryggvi bróðir minn átti eftir að
njóta blaðburðartímans í Laufási.
Er hann hafði lokið stúdentsprófí
og hugðist halda til framhaldsnáms
voru „erfíðir tímar og atvinnuþref".
Kreppulánasjóður var stofnaður.
Forstöðumenn hans auglýstu eftir
starfsmönnum. Tryggvi bróðir minn
var í hópi umsækjenda. Gekk hann
á fund bankastjóra að bera upp
erindi sitt. Kvaddi dyra. Þar gekk
þá fram Tryggvi Þórhallsson, sem
tekið hafði við stjóm Búnaðarbanka
íslands. „Auðvitað færð þú starfíð,
nafni minn. Þú barst til mín Tímann
í Laufás."
Það varð ævistarf.
Frásagnir Önnu Klemensdóttur,
móður Valgerðar, af fyrstu árum
Landssíma Islands eru mér minnis-
stæðar. Ég heimsótti hana í Laufás
og hlýddi á sögur hennar um undra-
tækni og áhrifamátt símans. Hlust-
aði á sagnir hennar af símameyjum
er fóm fímum höndum um skipti-
borð og tæki tengd þeim er samein-
uðu sveitir landsins og tengdu
tryggðabönd ástvina og elskenda.
Við ræddum um vaskar sveitir,
vinnuflokka Norðmanna og Islend-
inga, er klifu fjallvegi og ófæmgil,
óðu straumvötn og jökulár með
skógargræna staura sína, jökulhvít-
ar postulínskúkur og símalínur.
Þeir sigmðust á hverri þraut. Það
kallaði Símon Dalaskáld að staur-
setja Fjallkonuna. Hann óttaðist
samkeppni símans í fréttaflutningi.
Þegar ég fletti nýverið myndaalb-
úmi frá samkvæmum og ferðum
útvarpsmanna á fyrri áram ber
Valgerði oft fyrir augu. Hún prýðir
þá jafnan hópinn með reisn sinni.
Ég sé hana á ljósmynd sem tekin er
í desembermánuði 1945 á 15 ára
afmæli Ríkisútvarpsins, sem haldið
var í hljómleikasal við hlið þular-
stofu. Þar er gleðisvipur á mörgu
andliti. Páll ísólfsson stjómar þar
söng starfsmanna, útvarpsráðs-
manna og kennara útvarpsins.
Stofnunin lagði þá enn höfuð-
áherslu á menningarhlutverk sitt.
Gaf út kennslubækur. Hlustendur
sem þess óskuðu gátu sent stíla og
fengið þá leiðrétta. Ég sé og heyri
í anda enskukennara útvarpsins
Björn Bjamason magister frá Stein-
nesi segja: „Undur og stórmerki
hafa gerst. Tveir villulausir stilar
komnir austan af Jökuldal. Frá
bræðmm þar.“ Þeir áttu eftir að
verða doktorar við Háskóla íslands.
Ég sé Magnús Jónsson prófessor
syngja manna glaðastan. Hann var
manna fjölhæfastur og fjöllyndur.
Sagði á banabeði: „Ég er svo fullur
eftirvæntingar að ég ræð mér ekki.
Þetta er svo spennandi." Meðal
söngmanna í flokknum er séra Sig-
urður Einarsson, sem kvað: „Undur
var lífíð endur, ör lund og hyggja
snör, spor létt og heilar hendur.“
Og þarna er Helgi Hjörvar, nýbúinn
að ljúka lestri á Bör, en jafnan með
kjamyrði á vör. Milli hans og Jónas-
ar Þorbergssonar, sem einnig prýð-
ir hópinn er stund milli stríða. Hér
er Þórleif Norland, þingeysk hefðar-
kona, dóttir Péturs á Gautlöndum.
Og brosir góður samstarfsmaður
Valgerðar, Sigurður Sigurðsson
innheimtufulltrúi, síðar kunnur
íþróttafréttamaður. Hér sést Krist-
inn Ármannsson rektor Mennta-
skólans. Jón Krabbe rómaði hann
fyrir störf í sendiráði íslendinga í
Kaupmannahöfn.
Á annarri mynd úr skemmtiför
sjást tónlistarfrömuðimir dr. Franz
Mixa, Jón Leifs og þar prýðir hóp-
inn Sigrún Ögmundsdóttir þulan
sívinsæla. Sigurður Hallgrímsson
tæknimaður seinna, þá sendimaður
um fermingu. Sveinn Ólafsson bros-
ir hér að vanda, margfróður og
góðviljaður. Martin Jensen, sem
engin lofthæð ógnaði við uppsetn-
ingu mastranna á Vatnsenda. Og
hér situr Björg Jónasdóttir, ung
blómarós, dóttir frú Sigurlaugar og
Jónasar útvarpsstjóra. Og ekki má
gleyma Sigrúnu Gísladóttur (Sillu)
af ætt Þorleifs ríka á Háeyri. Pétur
Pétursson biskup sagði að Viktoría
Englandsdrottning hefði viljað fá
Þorleif ríka sem íjármálaráðgjafa
bresku stjómarinnar. Hve lengi á
að telja og hvenær nema staðar.
Valgerður prýddi lengi starfs-
mannahóp Ríkisútvarpsins. Hún
hefði getað frætt samtíð sína og
+ Jóhanna Þóra Jónsdóttir
fæddist í Lækjarhúsum,
Borgarhöfn í Suðursveit, hinn
22. apríl 1917. Hún lést í Land-
spítalanum 7. apríl sl. Útför
Þóru fór fram 18. apríl sl. frá
Fella- og Hólakirkju.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
framtíð um svo ótal margt, í póli-
tískri og menningarsögu lands og
þjóðar.
Þáttur Valgerðar í Þjóðleikhús-
inu er mér ekki eins vel kunnur og
störf hennar í Ríkisútvarpi. Við átt-
um samt allnokkur samskipti þar
er ég greiddi götu listamanna, sem
þar komu fram við ýmis tækifæri.
Fór jafnan vel á með okkur og em
margar minningar tengdar þeim
ámm. I Þjóðleikhúsinu gafst Val-
gerði kostur á að njóta leiklistár
og hljómlistar í þeim mæli að segja
má að jafnaðist á við dvöl í heims-
borg. Á starfstíma hennar komu
gestir af gjörvallri heimsbyggð-
inni, hljómlistarmenn, ballett-
dansarar, leikflokkar. Aðals-
menn og konungbomir; almúga-
menn, kotungar og tómthúsmenn
í íslandsklukkunni og Gullna
hliðinu.
Valgerði hefði þótt það við hæfí
að minnst væri langafa hennar,
bókasafnarans mikla, Jóns Borg-
fírðings. En hún hefði ekki viljað
að gleymt væri að geta séra Bjöms
í Laufási, sem kvað af guðmóði:
Hann bylgjur getur bundið
og bugað stormaher,
Hann fótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
Systkinum Valgerðar, tengda-
fólki og vinum flyt ég samúðar-
kveðjur.
Hver minning er dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi.
Hin ljúfu og hljóðu kynni
af alhug þðkkum vér.
Þinn kærleikur í verki var gjðf
sem gleymist eigi,
og gæfa var það ðllum
sem fengu að kynnast þér.
Nú fækkar þeim óðum sem fremstir stóðu
og festu rætur í íslenskri jðrð,
veggi og vörður hlóðu
og vegi ruddu um hraun og skðrð,
bðrðust til þrautar með hnefum og hnúum
og hðfðu sér ungir það takmark sett,
að bjargast af sínum búum,
og breyta í ðllu rétt.
(Davíð Stefánsson)
Þórey Ósk Ágústsdóttir og
Sigurður Smári Sigurðsson.
ERHSDRYKKJUR
Glæsilegir salir, gott verö
..pggóðþjónusta.^
#«VEBLUEtDHUSH)
V!j^|pPÁLFHEIMUM 74 - S. 568-6220
%rossar d Ctiði
Hyðfrítt stáí— varanCegt efni
‘Krossarnir eruframíeúCdir
úr hvítfiúðuðu, ryðfríu stáíú
‘Minnisvarði sem endist
um ófpmna tíð.
Sóíkross (táftiar eiííft ííf)
0-heð 100 smfrájörðu.
Ofefðhundinn kross m/munstruðum
endum. Oáeð 100 smfrájörðu.
Sóíhross m/geisCum.
Oíæð 100 sm. frá jörðu.
Tvöftddur l(ross.
Oíæð 110 smfrájörðu.
Hringið i sima 93-11075 og fáið litabækling.
|A BUKKVERKf
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
L__!PRkl Siml 93-11075, fax 93-13076
Pétur Pétursson þulur.
JÓHANNA ÞÓRA
JÓNSDÓTTIR
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
t
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við útför
mannsins míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og lagafa,
BJARNA Þ. BJARNASONAR
gullsmiðs,
Vallhólma 18,
Kópavogi.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Jón Halldór Bjarnason, Elfsabet Elfasdóttir,
Ragnhildur Bjarnadóttir, Birgir Reynisson,
Lárus Bjarnason, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Svava Bjarnadóttir, Sveinbjörn Imsland,
Bjarni Þ. Bjarnason, Kristfn Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.