Morgunblaðið - 30.04.1995, Síða 40

Morgunblaðið - 30.04.1995, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska MV ATTORNEV' ANPIARE HERE T0 5UE VDU FOR HITTINé ME U)ITH YOUR. LUNCH BOX.. that's WHAT yOU THINKÍ IVE GOT HI5 SUPPER PISH, SEE? IFYOU SUEME, l'LL THROU) IT OVER THE FENCE' AFTER CAREFUL CONSIPER ATION, iVE PECIPEP WE PON'T HAÆ A CA5E.. Við lögfræðingurinn minn Það heldur þú! erum hér til að stefna þér fyrir að lemja mig með nestisboxinu þínu... Ég er með dallinn hans, sérðu? Að vel athuguðu Ef þú stefnir mér, kasta ég máli, höfum við honum út fyrir girðinguna! ákveðið að höfða ekki mál... BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eigi víkja - Sókn er besta vörnin Frá Jóni Rafni Valdimarssyni: ÞANN 24. mars sl. hleypti Junior Chamber félagið Nes af stokkun- um átak sem ber yfírskriftina „Eigi víkja - Sókn er besta vöm- in!“. Átak þetta er fyrst og fremst ætlað til þess að koma á framfæri sjónarmiðum og réttindum okkar íslendinga í nýtingu á okkar eigin sjávarauðlindum og einnig til að skapa skilning á bæði efnahags- og sögulega þættinum í veiðum okkar. Það er því miður staðreynd að víðs vegar um heiminn og eink- anlega löndum þar sem einhliða áróður ýmissa umhverfíssamtaka hefur verið fyrir hendi, hefur al- menningur litla sem enga hug- mynd um afleiðingar þessa áróð- urs fyrir margar fiskveiðiþjóðir, þjóðir sem byggja afkomu sína á veiðum, þjóðir sem byggja afkomu sína á nýtingu þeirra auðlinda sem til staðar eru. Hugmyndin með átakinu er að safna nægt fé til handa kaupum á 10.000 eintökum af myndböndum sem hafa að geyma m.a. sögu hvalastríðs ís- lendinga við erlendar þjóðir og afleiðingar einhliða áróðurs gagn- vart ýmsum þjóðum svo dæmi séu nefnd. Myndbönd þessi eru fram- leidd af Magnúsi Guðmundssyni sem getið hefur af sér gott orð við að kynna málstað okkar íslend- inga á erlendri grundu. Magnús hefur síðustu misseri ferðast mikið um Bandaríkin og orðið var við mikinn áhuga ýmissa stofnana á að kynnast hinni hliðinni á nýtingu auðlinda hafsins. Að loknu þessu átaki verður þeim spólum sem til safnast dreift til menntastofnana í Bandaríkjun- um og Evrópu þar sem nemendum gefst kostur á að kynna sér efni hennar. Spólunum verður dreift á skipulagðan hátt og verður eftir- fylgja í kjölfar dreifíngarinnar. Nú þegar er kominn árangur á þessari aðferð og sem dæmi má nefna að 30 nemendum við mjög virtan Háskóla á vesturströnd Bandaríkjanna var nýlega sýnd mynd Magnúsar, „Lífsbjörg í Norðurhöfum“ og þau síðan beðin um að skrifa ritgerð um hug sinn til þessa máls. Arangurinn var sá að allir nemendur með tölu voru á einu máli um réttmæti þess að þjóðir sem byggja afkomu sína að miklu eða öllu leyti á veiðum á sjávarspendýrum ættu að nýta þau óáreitt en þó með skynsamlegum hætti. Hyggðaverkefni Átakið Eigi víkja - Sókn er testa vörnin er sett fram til að sýna hina hlið málsins þannig að almenningur í öðrum löndum geti metið báðar hliðarnar og þar með myndað sína eigin skoðun en ekki skoðun einhverja samtaka sem boða oft á tíðum aðeins hálfan sannleikann og stundum engan sannleika. Til að þetta geti orðið að veruleika þá hefur JC-Nes nú þegar farið fram á stuðning frá ýmsum aðilum hér á landi og við- tökurnar hafa almennt séð verið góðar, sjómenn, útgerðarfélög og ýmis önnur fyrirtæki sjá að vonum hag sinn í þessu átaki og munu þar af leiðandi styrkja átakið með kaupum á spólum sem síðan eru sendar til erlendra menntastofn- ana með kveðju frá þeim. Styrkur- inn í hugmyndinni felst ekki í að leitað sé til einhverra ákveðinna hagsmunaaðila innan sjávarútvegs heldur breiðfylkingarinnar, fólks- ins í landinu í heild sinni. Með þessu er ein grasrót að koma skila- boðum og upplýsingum til annarr- ar grasrótar. Ástæðan fyrir því að JC-Nes ákvað að hefja þetta átak er fyrst og fremst sú að innan okkar hreyf- ingar eru svokölluð svið tækifæra, þetta eru svið stjórnunar, svið ein- staklingsins, svið alþjóða sam- starfs og svið byggðarlags. Þessi svið eru hvert og eitt sjálfstætt út af fyrir sig, og gefa félags- mönnum tækifæri á að auka hæfni sína með námskeiðum, leiðbein- endastörfum og samstöðu félags- manna, þau veita einnig tækifæri á að öðlast stjómunarhæfni með stjórnþjáifun. Átak það sem JC- Nes stendur nú fyrir fellur undir svið byggðarlagsins en í lögum hreyfingarinnar um það svið segir m.a. að sviðið skuli veita tækifæri á að auka skilning á viðfangsefn- um þjóðfélagsins eða byggðarlags- ins í JC-starfi. JC-Nes er stolt af því að geta unnið byggðarlags- vvrkefni sem fellur vel inn í það starf sem við viljum vera þekkt fynr, það er að bæta og efla byggðarlagið. Nu bætum við og eflum málstað okkar og aukum um leið skilning á lífsháttum ís- lendinga og annarra veiðiþjóða. Það er von okkar að bæði ein- staklingar og aðrir aðilar sjái sér fært að standa við bakið á okkur og nýta tækifærið sem í boði er. Fjárgæsluaðili þessa átaks er ís- landsbanki á Seltjarnarnesi og hefur átakið reikningsnúmerið 0512-26-4303. Víkjum ei, sóknin er okkar besta vörn. JÓN RAFN VALDIMARSSON, kynningarfulltrúi átaksins Eigi víkja - Sókn er besta vörnin. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.