Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 50

Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 50
50 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ KAPPAKSTUR „MAÐUR veit aldrei hvað er handan við næsta horn. Hvorki í kappakstri né í daglegu lífi“, segir breski ökuþórinn Damon Hili meðal annars í viðtali við Morgun- biaðið. Hér slapp Hill án meiðsla eftir að ekið var aftan á hann í keppni á síðasta keppnistímabiii, þó bíillnn hafi endað á hvolfi. 2400 gírskipt- ingar í keppni DAMON Hill getur vænst þess að skipta 2400 sinnum um gír í Imola kappakstrinum. 1 hveij- um hring má gera ráð fyrir um 40 gírskiptingum og ef það er margfaldað með 63, sem er fjöldi ekinna hringja í keppn- inni, fæst þessi ótrúlega tala. 220 manna starfslid HILL og félagi hans hjá Wfll- iams eru í góðum höndum, því 220 manna starfslið annast kappana. Höfuðstöðvar Will- iams eru í Englandi. Þetta lið hefur nærri 100 bfla og flutn- ingabíla til taks til að flytja keppnisbfla og varahluti milli staða. Tuttugu skipta um dekk í VIÐGERÐARHLÉUM í kapp- akstri er 20 manna sérþjálfað viðgerðarlið sem sér um dekkjaskiptingu og áfyliingu eldsneytis. Hver maður hefur ákveðið hiutverk og dekkja- skiptingin tekur aðeins 9 sek- úndur ásamt áfyllingu elds- neytis. Ótrúleg elds- neytiseyðsla FORMULA 1 bfll er tvær sek- úndur í 100 km hraða, fjórar sekúndur í 160 km hraða og nær mest 330 km hraða. Keppnisbíll kemst tvo kflómetra á hveijum lítra af eldsneyti. Eyðslan á hveija 100 km er því 50 lítrar, meðaleyðsla fólks- bíls er 8 lítrar. Ef Formula 1 bfll æki milii Reykjavíkur og Akureyrar myndi eldsneyti- seyðslan vera 225 lítrar. Yfir keppnistímabil eyðir eitt lið 44.000 lítrum af eldsneyti. Dýr útgerð WILLIAMS liðið áætiar að með öllu kosti hönnun og smíði topp- bíls 55 milijónir doilara, sem svarar til tæplega 3,5 miiljarða króna, keppnisvélar yfír eitt keppmstímabil kosti 4,5 miiijón- ir dollara, og Goodyear dekkinn sem öll liðin nota kosti samtals 1,8 milijón doliara. Hvert dekk kostar 600 dollara, um 40.000 íslenskar krónur, en hver öku- maður má nota 28 dekk í keppni, að æfíngum meðtöldum. Margir aðstoða , HVERT keppnislið er með sér- stakt aðstoðarlið, sem sér um æfíngar milii móta, en í mótun- um sjálfum er annað aðstoðar og viðgerðarlið. Á keppnisstað er 40 manna aðstoðarlið og það flytur samtals 13 tonn af bún- aði á milli keppnisstaða í við- gerðar- og flutningabflum. Aldrei öruggur, hvorki í kappakstri né daglegu lífi Bretinn Damon Hill var aðeins einu stigí frá heimsmeistaratitli í Formula 1 kappakstri í fyrra, eftir mikla baráttu við Þjóðverjann * Michael Schumacher. I hugum margra var Hill, sem Gunnlaugnr Rögnvaldsson ræðir hér við, móralskur meistari, því í lokakeppn- inni ók Schumacher í veg fyrirhann og þeir urðu báðir að hætta keppni. Það dugði Schumacher til að vinna titilinn. HILL TÓK óhappinu í síðustu keppninni í fyrra karlmann- lega og vann sér hylli fyrir vikið meðal margra áhugamanna um kappakstur. Á nýbyijuðu keppnis- tímabili hefur Hill þegar sigrað í öðrum kappakstrinum af þeim tveimur sem lokið er. í dag mun hann etja kappi við 27 keppinauta í Imola kappakstrinum í San Mar- ínó. Þátttaka í keppninni í Imola verður örugglega erfið, því í kapp- akstrinum á þessum stað í fyrra lést Brasilíumaðurinn Ayrton Senna, sem ók með Hill í liði, og Austurríkismaðurinn Roland Ratz- enberger lét lífið á æfingu fyrir keppnina. Það verður því enginn leikur fyrir Hill að hafa fulla ein- beitingu, minnugur atvikanna fyrir ári síðan. „Vissulega mun reyna á taugamar, en við erum atvinnuöku- menn og verðum að standa okkur, sama hvernig tilfinningar okkar eru. Senna var góður. félagi og það væri virkilega gaman að knýja fram sigur á Imola brautinni. Það myndi gefa mér mikið“, sagði Hill í sam- tali við Morgunblaðið á æfingu á Silverstone kappakstursbrautinni fyrir skömmu. Brautina notar Will- iams liðið, sem Hill ekur fyrir, oft til æfinga. Þar vann Hill í fyrra fyrir framan tugþúsundir landa sinna. „Sigurinn á Silverstone var það besta sem gat hent. Liðið tví- efidist og við náðum að hrista af okkur slenið sem fráfall Senna hafði haft á alla. Við lærðum að líta fram veginn, en Senna var einn besti ökumaður sem uppi hefur verið og ég bar mikla virðingu fyrir honum. Ég lærði mikið á því að fylgjast með honum, [Nigel] Mansell og [Alain] Prost gegnum tíðina.“ Fjölskyldan skiptir mestu Hill ók með Prost í liði Williams á fyrstu árum sínum í Formula 1 og lærði margt af honum. Hill var ökumaður númer tvö í liðinu, en er í dag aðalökumaður liðsins, David Coulthard er nú félagi hans. Um tíma leit út fyrir að Nigel Mansell myndi aka fyrir Williams ásamt Hill, en hann endaði hjá McLaren liðinu. Mansell mun aka í fyrsta skipti á árinu í Imola kappakstrin- um í dag. Hann passaði ekki í bíl- inn sem búið var að smíða og þurfti að endurhanna hluta bílsins, svo Manseil kæmist fyrir um borð. Helstu keppinautar Hill í ár verða vafalítið Coulthard, heimsmeistar- inn Schumacher og Ferrari öku- mennirnir Jean Alesi og Gerhard Berger, en ítalska liðið virðist hafa tekið sig saman í andlitinu, eftir að hafa eytt tugum milljóna í hönn- un nýrrar vélar og keppnisbíls. Þó Hill sé nú heimsfrægur kapp- akstursökumaður, er hann mjög jarðbundinn, nokkuð sem Frank Williams, eigandi Williams keppn- isliðsins metur mikils. Hill er ekk- ■ ert að baða sig í frægðarljómanum, eins og margir keppinauta hans. „Ég geri allt til að geta verið með fjölskyldunni minni, sem skiptir meira máli en nokkuð annað í líf- inu“, sagði Hill. Hann á tvo syni með konu sinni, en sá yngri, Joshua fæddist með ólæknandi sjúkdóm og það hefur haft sín áhrif á fjölskyldu- lífið. Georgie kona hans, sem ætl- aði að verða fatahönnuður hætti við sína framadrauma og ákvað að sinna fremur stráknum heima. „Ég þekki ekki betri tilfinningu en að koma heim eftir keppni og að vera fagnað af strákunum mínum. Allt glys kappakstursheimsins er sem hjóm við hliðina á því. Því miður eru stundirnar fáar sem ég get eytt með fjölskyldunni, en þegar við hittumst þá kemst ekkert annað að.“ Aldrei öruggur í iífinu Hill þekkir það vel að alast upp í heimi kappaksturs, því faðir hans var þekktur kappakstursökumaður, Graham Hill. Hann vann heims- meistaratitilinn tvívegis og vann sigraði 14 sinnum í Formula 1 keppni áður en hann fórst í flug- slysi árið 1975. „Vissulega hafði starf föður míns áhrif á mig. Ég var fæddur með kappakstur og spennuna í blóðinu. Faðir minn tók bæði góðu og slæmu tímunum af yfirvegun og festu. Slíkt lærði ég að gera, þegar ég hafði hann við hlið mér. Slíkt hið sama vonast ég til að geta miðlað til barna minna í framtíðinni. Þegar amstrinu í kringum Formula 1 kappaksturinn lýkur, þá mun ég helga mig fjöl- skyldunni. En hvenær það verður er náttúrlega óljóst. Það er ekkert öruggt, allra síst þegar þú vinnur um borð í keppnisbíl sem nær 330 kílómetra hraða. Maður veit aldrei hvað er handan við næsta horn. Hvorki í keppni, né í daglegu lífi“, sagði Hill. Skömmu síðar var hann kominn um borð í Williams bílinn og æddi um Silverstone brautina á þriðja hundrað km hraða. Markmið hans var að bæta bílinn, svo hann kæmist enn hraðar í þeim 16 kapp- akstursmótum sem hann keppir árlega í. Hann stefnir á heimsmeist- aratitilinn í ár. Keppnin í dag verð- ur honum erfið, en sigur er samt markmið hans, sem fyrr. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Samstada mikilvæg HILL ekur með landa sínum David Coulthard í Williams liðlnu. Mllli móta æfa þeir og reyna að bæta bílanna. Þeir hafa lítinn tíma fyrir fjölskyldulíf, en nýta þær stundlr vel sem gefast. Báðir þykja iíklegir árangurs í ár og þó þelr séu í raun keppinautar sýna þeir samstöðu í keppni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.