Morgunblaðið - 19.05.1995, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Þorkell
ÞRETTÁN manna sveit björgunarkafara, ellefu slökkviliðsmenn
og tveir lögreglumenn, var útskrifuð í síðustu viku.
Slökkviliðið útskrifar
bj örgunarkafara
Páll Pétursson á fundi um
atvinnuleysi ungs fólks
Skráningakerfi
atvinnulausra
verði stokkað upp
ENDURSKOÐA verður atvinnuleysistryggingakerfið frá grunni að mati
Páls Péturssonar félagsmálaráðherra. Ráðherra lýsti áhyggjum sínum af
vaxandi atvinnuleysi í yngstu aldurshópum samfélagsins á fundi BSRB
um atvinnuleysi ungs fólks. Hann kvað atvinnuleysistryggingakerfið vera
í nokkrum meginatriðum stórgallað og þjóna oft ekki tilgangi sínum.
Hann kvaðst munu grípa til margháttaðra aðgerða til að eyða atvinnuleys-
isbölinu.
Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur
Kannað
hvort auka
megi hjúkr-
unarrými
FÉLAGSMÁLARÁÐ Reykjavíkur-
borgar hefur samþykkt tillögu Sjálf-
stæðisflokks um að kannaðir verði
möguleikar á að auka og bæta hjúkr-
unarrými í Heilsuvemdarstöðinni.
Jafnframt að kannað verði hvort
hagkvæmt sé að reka hjúkrunar-
heimili eða deild í nánum tengslum
við Droplaugarstaði.
Borgarráð vísaði tillögunni til
vinnuhóps á vegum félagsmálaráðs
sem er að skoða_ framtíðarskipan
hjúkrunarheimila. í greinargerð með
tillögunni er bent á að fram hafa
farið allmiklar umræður um Heilsu-
verndarstöðina og að óvissa ríki um
framtíð hennar.
Ríkið vill kaupa
Heilbrigðisráðuneytið hafi lýst
áhuga á að kaupa 60% hlut borgar-
innar í byggingunni en ríkið á 40%.
Fram kemur að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks í nefnd um sparnað í borgar-
rekstri hafi strax sett fyrirvara um
sölu á Heilsuvemdarstöðinni. Skort-
ur væri á hjúkrunarrýmum í borg-
inni og því rétt að kanna rækilega
þennan möguleika.
ÍSLAND var um seinustu áramót
stytzt á veg komið af ríkjum Frí-
verzlunarsamtaka Evrópu (EFTA) í
lögleiðingu reglna Evrópska efna-
hagssvæðisins. Þetta kemur fram í
fyrstu ársskýrslu Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA). í skýrslunni kemur
jafnframt fram að tíu kærumál, sem
beinast að íslenzkum stjómvöldum
vegna meintra brota á reglum EES,
eru nú til meðferðar hjá ESA.
í lok ársins 1994 höfðu 93%
þeirra tilskipana Evrópusambands-
ins, sem em hluti af EES-samningn-
um, verið lögfest í EPTA-ríkjunum
að meðaltali. Finnland stóð sig bezt
og hafði lögfest 97% tilskipananna.
Þá kemur Svíþjóð með 96%, Noreg-
ur með 94%, Austurríki með 89%
og ísland rekur lestina, hafði um
FYRSTA sveit björgunarkafara
var útskrifuð hér á landi sl. föstu-
dag. í hópnum eru 11 slökkviliðs-
menn og 2 lögreglumenn. Hrólfur
Jónsson, slökkviliðssljóri, segir
að slökkviliðið hafi nú réttindi til
að útskrifa kafara samkvæmt
reglugerð samgönguráðuneytis-
ins. „Tveir slökkviliðsmenn höfðu
áður hlotið réttindi björgunar-
kafara eftir nám erlendis og þeir
þjálfuðu hópinn nú, ásamt at-
vinnuköfurum á vegum lögregl-
unnar og þjálfurum frá slökkvi-
liðinu í Gautaborg, sem var okkur
innan handar við skipulagningu
og framkvæmd námskeiðsins.
Sérstök áhersla var lögð á björg-
áramót fest í lög 88% af löggjöf
EES.
Björn Friðfmnsson, eftirlitsfull-
trúi hjá ESA, sagði í samtali við
Morgunblaðið að Islendingar hefðu
staðið sig mjög vel varðandi lögfest-
ingu reglna á pumum sviðum, til
dæmis viðvíkjandi bankastarfsemi
og fjármagnsmarkaði. Hins vegar
vantaði til dæmis nokkuð upp á
varðandi löggjöf um fóðurvöru og
fræ, sem heyrði undir landbúnaðar-
ráðuneytið, og vinnuverndar- og
hollustulöggjöf.
Ekkert mál fyrir
dómstólinn ennþá
Alls voru 66 kærumál til meðferð-
ar hjá ESA í lok síðasta árs. Af
þeim varðaði 21 Austurríki, 15 Finn-
unarstörf, til dæmis var bílum
með dúkkum í sökkt í höfnina.
Við þurfum sennilega að halda
fleiri svona námskeið, því við
stefnum að því að hafa ávallt tvo
þjálfaða björgunarkafara á
hverri vakt hjá slökkviliðinu. Til-
felli, þar sem björgunarkafara
er þörf, eru ótrúlega mörg, eða
um 20 á ári, þótt þar sé ekki
ávallt spurning um björgun
mannslífa. Við stöndum vel að
vígi nú og þess má geta að
Reykjavíkurdeild Rauða krossins
gaf búnað fyrir 5Vi milljónir
króna, til að gera námskeiðið og
starf kafarasveitarinnar mögu-
legt.“
land, 13 Svíþjóð, 10 ísland og ekki
nema sjö Noreg. Meðtalin eru bæði
þau mál, sem stofnunin tók upp sjálf
og þau, sem tekin eru upp í fram-
haldi kæru eða kvörtunar.
Á meðal þeirra atriða, sem ESA
hefur skoðað hér á landi, eru tvö
mál vegna álagningar vörugjalds,
álagning sérstaks gjalds á innfluttan
bjór, einkaréttur ÁTVR á innflutn-
ingi og heildsölu áfengis, ríkisstyrk-
ur til flotkvíar á Akureyri, rík-
isábyrgð á skuldbindingum ríkis-
bankanna og fjárhagsaðstoð ríkisins
við Landsbankann og samkeppni
Pósts og síma við einkarekin póst-
dreifingarfyrirtæki.
Ekkert af málunum 66 hefur enn
verið sent til EFTA-dómstólsins, en
einkaréttur íslenzka ríkisins á áfeng-
Páll taldi sérstaklega koma til
greina að taka upp nýtt skráningar-
kerfí atvinnulausra einstaklinga
með það að markmiði að fleiri ættu
rétt á því að vera á atvinnuleysis-
skrá og þiggja atvinnuleysisbætur.
Hann taldi óhjákvæmilegt að veija
fjármunum til framfærslu þeirra
sem ekki fengju vinnu. Ýmsir hópar
væru þó settir hjá í þessu sambandi
og ættu ekki kost á atvinnuleysis-
tryggingum. Þar á meðal væri stór
hópur ungs fólks sem annaðhvort
væri að ljúka námi eða hefði litla
sem enga menntun eða starfs-
reynslu.
„Ég tel að þeim peningum sem
samfélagið ver til atvinnuleysis-
trygginga eigi að nota til að fram-
færa þeim sem sannanlega eru at-
vinnulausir og eru að leita sér að
vinnu, þeim sem vilja vinna en fá
enga vinnu,“ sagði Páll. „Þetta tel
ég að eigi að gera án tillits til aðild-
ar að verkalýðsfélagi eða starfs-
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur
sýknað 37 ára gamlan mann af
ákæru um að hafa brotið lög um
bann við hnefaleikum með því að
kenna „kickbox“ á námskeiðum.
Málið kom upp í nóvemberlok 1993
eftir að myndir birtust í sjónvarps-
fréttum af keppni í bardagaíþróttum
á vegum mannsins, þar sem m.a. var
sýndur bardagi 12-13 ára drengja.
Jafnframt var honum gefið að sök
brot á lögum um skotvopn, sprengi-
efni og skotelda með því að hafa í
eigu sinni loftriffla, höggsverð, kylfur
og veiðiboga.
isinnflutningi og -heildsölu gæti orð-
ið það fyrsta, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Veltur það
væntanlega á afdrifum frumvarpa
þeirra um afnám einkaréttarins, sem
lögð voru fram á Alþingi í gær.
Lögfesting hundraða
nýrra gerða
Knut Almestad, forseti ESA,
sagði á blaðamannafundi í Brussel
í gær að EES-samningurinn hefði
að mestu leyti verið innleiddur í laga-
kerfi EFTA-ríkjanna. Á þessu ári
myndi stofnunin einbeita sér að eftir-
liti með lögfestingu þeirra hundraða
nýrra gerða, sem sameiginlega EES-
nefndin hefði bætt við samninginn,
og að réttri beitingu EES-reglna á
íslandi, í Noregi og Liechtenstein.
reynslu og fortíðar einstaklings."
Ósættanlegt ástand
Ráðherra taldi fráleitt að viður-
kenna að atvinnuleysi væri komið
til að vera á íslandi. Það væri ósætt-
anlegt ástand og leita þyrfti allra
leiða til að minnka það en brýnast
væri að leysa vanda yngstu og elstu
aldurshópa samfélagsins.
Aðrir frummælendur á fundinum,
Óttar Ólafsson hjá Vinnumiðlun
Reykjavíkurborgar og Benóný
Ægisson starfsmaður Hins hússins
tóku undir orð Páls og töldu jafn-
framt farsælustu lausn á atvinnu-
Ieysisvandanum felast í menntun.
Menntun væri besta íjárfesting ungs
fólks sem tryggði því réttindi á at-
vinnumarkaðinum. Áherslur í núver-
andi menntakerfi eru þó að þeirra
mati í nokkrum atriðum rangar.
Nauðsynlegt væri að rétta hlut
verknáms, styttri starfsnámsbrauta
og starfsþjálfunar.
í niðurstöðum Allans V. Magnús-
sonar héraðsdómara er vísað til
myndbandsupptöku frá keppninni og
segir að búningum hafi ekki svipað
til þess sem tíðkist í hnefaleikum
heldur fremur karate og judo og beitt
hafi verið spörkum, höggum og fang-
brögðum. Megineinkenni hnefaleika,
sem bannað sé með lögum að keppa
í, kenna eða að sýna, sé að tveir
menn beijist með hnefum. Skýra
verði ákvæði laganna um bann við
hnefaleikum þannig að þar sé átt við
að sýnd séu afbrigði högga og vam-
araðferða sem tíðkast í hnefaleikum.
í keppninni á vegum mannsins
hafí átt að fara eftir reglum sem
iðkendur og leiðbeinendur í austur-
lenskum bardagaíþróttum höfðu sett.
Heimilt hafi verið að beita „semi-kon-
takt“ höggum á líkama og höfuð
andstæðings. Snerting hafí ekki verið
leyfð í kennslu en leyft hafí verið að
snerta andstæðing í keppni.
Ekki hafí verið sannað að maður-
inn hafí ætlað að láta sýna hnefa-
leika né að hann hafí kennt þá íþrótt
og gildi þá einu þótt keppendur kunni
að hafa brotið þær reglur sem um
keppnina giltu og hvort dómgæslu
hafí verið áfátt.
Enda þótt hanskar keppenda hafi
líkst hnefaleikahönskum og þá megi
nota við hnefaleika varði notkun
þeirra ekki við lög um bann við hnefa-
léikum.
Því var maðurinn sýknaður af
refsikröfu íyrir að hafa brotið bann
við því að kenna og sýna hnefaleika.
Einnig var hafnað kröfum um að
refsa manninum og leggja hald á
hnífa, sverð og kylfur svo og boga
sem hann átti þar sem ekki þótti
vera um Iásboga að ræða, en slíka
boga er bannað að eiga.
Maðurinn þótti því aðeins hafa
gerst brotlegur við lög með því að
hafa haft undir höndum loftriffla í
leyfísleysi. Hins vegar hafði hann
síðan aflað sér leyfís til að eiga slíka
riffla. Því var ákvörðun refsingar
yfir manninum fyrir það lagabrot
frestað skilorðsbundið í 1 ár.
KAFARARNIR nýútskrifuðu fengu afhenta hálsfesti með alþjóð-
legu tákni björgunarkafara.
Tíu kærur á íslenzk sljórnvöld hjá Eftirlitsstofnun EFTA
ísland stytzt komið í
lög’leiðingn EES-reglna
Sýknaður af
hnefaleikaákæru