Morgunblaðið - 19.05.1995, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Kasparov leikur
sér að ungu stór-
meisturunum
SKAK
VSB m i n n i n ga r m ó t-
ið um Max Euwc:
AMSTERDAM
12.-19. MAÍ
GARY Kasparov, PCA heims-
meistari, teflir mikið um þessar
mundir. Nú tekur hann þátt á
móti hollensku
sparisjóðanna,
sem haldið er til
minningar um
Max Euwe,
fyrrum heims-
meistara og
FIDE-forseta.
Keppinautar
Kasparovs eru
þrír ungir skák-
menn, Búlgar-
inn Veselin
Topalov, Frakk-
inn Joel Lautier og heimamaður-
inn Jeroen Piket. Þessir fjórir
skákmenn tefla tvöfalda um-
ferð. Þegar mótið er hálfnað
hefur Kasparov tekið forystuna
með tvo og hálfan vinning,
Lautier hefur tvo vinninga, Top-
alov einn og hálfan, en Piket
hefur tapað öllum
þremur skákum
sínum.
Lautier náði að
þjarma talsvert að
Kasparov í fyrstu
umferð, með því að
beita fjögurra peða
árásinni í Kóngs-
indverskri vörn.
Síðan tefldi Ka-
sparov við Piket og
beitti aftur Evans
bragðinu sem gafst
svo vel gegn Anand
á minningarmótinu
um Tal um daginn.
Hvítt: Kasparov
Svart: Piket
Evans bragð
1. e4,- e5 2. Rf3 - Rc6
Bc4 - Bc5 4. b4!? - Bb6
Að vísu hafa a.m.k. fjórir
heimsmeistarar valið þennan
leik, Steinitz, Lasker, Capa-
blanca og Botvinnik, en gömul
speki segir að það eigi að þiggja
peðsfómir í byijun tafls. Það
gerði Anand og framhaldið varð
4. - Bxb4 5. c3 Be7!?, en einn-
ig er leikið 5. - Ba5.
5. a4 - a5?!
5. - a6 er þjálla.
6. b5 - Rd4 7. Rxd4 - Bxd4
8. c3 - Bb6 9. d4 - exd4 10.
0-0! - Re7 11. Bg5 - h6 12.
Bxe7 - Dxe7 13. cxd4 - Dd6
14. Rc3 - Bxd4
Sjá stöðumynd.
15. Rd5!! - Bxal 16. Dxal -
0-0 17. e5 - Dc5 18. Hcl -
c6 19. Ba2 - Da3 20. Rb6 -
d5 21. Rxa8 - Kh8 22. Rb6 -
Be6 23. h3 - Hd8 24. bxc6 -
bxc6 25. Hc3 - Db4 26. Hxc6
- Hb8 27.
Rxd5 - Dxa4
28. Hcl - Da3
29. Bc4
og nú loksins
gaf Piket þessa
vonlausu stöðu.
I þriðju um-
ferð hefndi Ka-
sparov síðan
fyrir tapið gegn
Topalov á
Ólympíuskák-
mótinu í
Moskvu. Hann vann Búlgarann
örugglega með svörtu í 28 leikj-
um. Það eru litlar líkur á því
að þessir ungu meistarar nái að
veita honum mikla keppni.
Skákmót öðlinga
Júlíus Friðjóns-
son sigraði á skák-
móti 40 ára og eldri
sem lauk í síðustu
viku. Að venju var
mótið vel skipað
þrautreyndum
skákmeisturum.
Öðlingamir gáfu
sér góðan tíma í
mótið, það hófst 15.
mars og lauk ekki
fyrr en 3. maí. Það
hentar vel skák-
mönnum sem telja
hæfilegt að tefla
einu sinni í viku.
Júlíus Friðjóns-
son hefur verið sig-
ursæll í vor. Um
páskana tryggði
hann sér sæti í landsliðsflokki
þegar hann sigraði á áskorenda-
flokki á Skákþingi íslands ásamt
Magnúsi Pálma Örnólfssyni.
Röð efstu manna:
1. Júlíus Friðjónsson 6 v. af 7
2. Jóhann Öm Siguijónsson 5*/2
v.
3. Sveinn Kristinsson 5 v.
4. Gunnar Gunnarsson 4 '/2 v.
5. -6. Ögmundur Kristinsson og
Halldór Garðarsson 4 v.
7.-8. Kári Sólmundarson og Frí-
mann Benediktsson 3V2 v.
Mótsstjóri var Ólafur Ás-
grímsson.
Margeir Pétursson
Snyrti- og *
NO NAME í dag 15% kynningarafsláttur
COSMETICS ..
Verið velkomin
I DAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á stór-
mótinu í Dos Hermanas á
Spáni um daginn. Frakkinn
Joel Lautier (2.655) var
með hvítt, en Spánverjinn
Miguel Illescas (2.600) var
með svart og átti leik.
Svartur er peði undir og
hefur lagt allt sitt traust á
sóknina:
22. - Rxg3! 23. Bf3! -
Dg6 24. hxg3 —
Dxg3+ 25. Khl -
Bg4 26. Dcl - He6!
27. Bg2 - Dh4+ 28.
Kgl - Bh3 29.
Bxh3 - Hg6+! 30.
Bg2 - Dg3 31. Bg5
— Hxg5 32. Dxg5 —
hxg5 og með drottn-
ingu yfir vann Spán-
veijinn auðveldlega.
Mælt í stigum var
þetta sterkasta mót
ársins, þrátt fyrir að
þeir Kasparov og
Anand hafi verið
fjarri góðd gamni.
Kamsky, Karpov og Adams
sigruðu. Það lítur nú ekki
út fyrir að PCA-heims-
meistarinn Kasparov og
FIDE-heimsmeistarinn
Karpov muni mætast í einni
einustu skák á þessu ári.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Týnt hjól
GLÆNÝTT grænt 21
tommu, 21 gíra fjallahjól
tapaðist þar sem það stóð
læst við hús í Voga-
hverfi. Viti einhver um
hjólið er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
5586407.
Sundpoki fannst
ADIDAS-poki með sund-
dóti fannst á Ásvallagötu
fyrir nokkru. Eigandi má
hafa samband í síma
10285.
mánuði. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
5536137.
Pennaveski
tapaðist
AFLANGT, fjólublátt
skinnpennaveski sem í
voru, fyrir utan ritföng,
eitthvað af peningum og
úr, tapaðist í strætis-
vagni, leið 15, eða á
Grensásstöð, sl. þriðju-
dag. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
672081.
Gæludýr
Pennavinir
ÞRJÁTÍU og eins árs dönsk
kona með margvísleg
áhugamál:
Helena Chrístensen,
Hejreskovalle 2B 2TV,
3050 Humlebæk,
Da.nma.rk.
FIMMTÁN ára stúlka á
Álandseyjum með áhuga á
bókmenntum, sundi, tón-
list, teiknun o.fl.:
Lisa Rydell,
Kalmarnas 73,
22100 Maríehamn,
Aland,
Finland.
TUTTUGU og níu ára
Ghanastúlka með áhuga á
útivist, tónlist og íþróttum:
Ernestina Sagoe,
c/o Paaku,
Box 459,
Cape Coast,
Ghana.
TVÍTUG sænsk stúlka með
margvísleg áhugamál og
hyggur á Islandsheimsóknb
í sumar:
Maria Avenhem,
Faltspa t viigen 4A,
S-80631 Gavle,
Sverige.
ÞRJÁTÍU og eins árs kana-
dísk kona, flugumferðar-
stjóri, með margvísleg
áhugamál:
Joanne Wells,
ÍOOA Garndner St.,
Cornwall,
Ontario,
Canada.
ÞRETTÁN ára álensk
stúlka með áhuga á dýrum
o.fl.:
Carolin Wikstrand,
Gölby 13,
22150 Jomala,
Áland,
Finland.
LEIÐRÉTT
Árétting
Vegna fréttar, sem birt-
ist sl. miðvikudag, um
fjölgun kennslustunda í
grunnskólum næsta haust
skal áréttað að aukning
verður alls um 15 stundir
á viku og dreifast tímamir
15 á milli bekkjardeilda.
Ekki hefur endanlega
ákvörðun verið tekin um
hversu mikla aukningu
hver árgangur fær.
Samkór
Trésmiðafélagsins
í frétt í blaðinu í gær
misritaðist nafn Trésmiða-
félags Reykjavíkur. Sam-
kór Trésmiðafélagsins
heldur vortónleika sína í
Bústaðakirkju á sunnudag-
inn kl. 20.
Starfsmenn
Garðabæjar ekki
Kópavogs
Á baksíðu Morgunblaðsins
í gær birtist mynd af starfs-
mönnum Garðabæjar við
að mála vegamerkingar á
götur. I texta sagði að
þama væru starfsmenn
Kópavogskaupstaðar á ferð
og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Sundskýla
tapaðist
BLÁ og hvít sundskýla
tapaðist á planinu við
sundlaugamar við
Laugardal fyrir u.þ.b.
Kettlingur óskast
UNGUR kettlingur,
helst svört læða, óskast
á gott heimili. Upplýs-
ingar í síma 876409 eft-
ir kl. 17 og á daginn um
helgina.
Með morgunkaffinu
VERTU nú góður
drengur og segðu
pabba hvar þú grófst
bílinn.
MÁ ég eiga við þig ÉG hef nákvæmlega
orð, Sigurður. FIMM mínútur til að
tala við þig.
Yíkveiji skrifar...
VÍKVERJI hefur notfært sér
hraðbankaþjónustu Lands-
bankans með glöðu geði í áravís
og eini tilgangurinn með því að
fá debetkort var að geta skotist í
hraðbankann og náð í peninga
með lítilli fyrirhöfn.
Einn aðalkosturinn við hrað-
bankann er, að það er hægt að
sækja þangað pening, hvenær sem
er utan opnunartíma banka.
Stundum gerist það, að hraðbank-
inn er lokaður vegna einhverrar
bilunar. Það er auðvitað ekki gott.
En Víkveiji veit, að allar vélar
geta bilað og þá líka hraðbankavél-
ar. Við því er ekkert að gera, þeg-
ar svo stendur á og nóttin ennþá
ung. Menn nota þá bara debetkort-
ið til greiðslu, þótt það kosti sitt.
Hitt er aftur, að komi Víkveiji
að hraðbankanum lokuðum á opn-
unartíma bankans, verður hann
að borga 9,50 krónur fyrir að taka
út af bankareikningi sínum með
debetkortinu gegn um gjaldkeral-
úguna.
Víkveiji gæti svo sem leitað
uppi annan hraðbanka í von um
að hann sé í lagi. En sú leit myndi
sennilegast kosta meira í bensíni
og tíma, en svarar til tíu króna.
xxx
• •
OLLU haganlegar er málum
háttað í Sparisjóði Hafnar-
flarðar í Strandgötu, en þar var
Víkveiji á ferð fyrir skemmstu. Þar
eru hraðbankarnir tveir, annar til
að millifæra, taka út, fá stöðu og
yfirlit, og er opinn allan sólarhring-
inn, en hinn einskonar þjónustuvél,
kölluð upplýsingaþjónn, sem opin
er á afgreiðslutíma bankans og þar
má fá yfirlit og kanna stöðu á
reikningum, notanda að kostnaðar-
lausu. Þjónusta til fyrirmyndar.
xxx
ÍKVERJI verður að viður-
kenna að hann hefur lúmskt
gaman af því þegar mönnum verð-
ur fótaskortur á tungunni í út-
varpi og hefur fyrir sið að hripa
hjá sér þegar komist er (ó)heppi-
lega að orði. I því seðlasafni má
sjá setningar eins og: „hann stend-
ur í miðjum sólblóma frægðarinn-
ar“, sem sagt var um knattspyrnu-
mann, og fleira ámóta. í söfnun-
inni á Víkveiji sér uppáhalds
fréttamann á Stöð 2. Til að mynda
sagði sá fyrir nokkru frá atkvæða-
greiðslu á hollenska þinginu „um
afléttingu þinghelgarinnar yfir
Willy Claes“.
XXX
ANNAÐ dæmi úr seðlasafninu,
sem er reyndar nokkuð al-
gengur misskilningur, er þegar.
viðkomandi fréttamaður ræddi
fyrir skemmstu um formannsslag
Álþýðubandalagsins og sagði að
Ólafur Ragnar stæði að baki Mar-
gréti Frímannsdóttur.
Vísast hefur hér verið átt við
að hann stæði á bak við hana,
þ.e. væri „(leynilegur) hvatamað-
ur“, eins og það er orðað í Orða-
bók Menningarsjóðs, nema hér
hafí fréttamaður verið að láta í
ljós álit sitt á Ólafi og Margréti,
þ.e. að Ólafur sé henni síðri.