Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D 126. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vatnsyfirborðið rís mun hægar í Mjosa og 0yaren. • Gagnrýna svartsýnar flóða- spár. • Hætta á hlaupum og skriðuföllum talin víða fyrir hendi vegna asahláku Morgunblaðið/Kristinn Hugað að húsinu HJÓNIN Bjarne og Reidun Ha- arberg, sem búa á Eyjunni í Fetsund, skammt frá Lilleham- mer, fylgdust í gær með því hvernig flóðið í Gyaren hækk- aði stöðugt og nálgaðist hús þeirra. Flætt hafði inn í kjallar- ann og vart líða nema tveir til þrír dagar þar til fyrsta hæðin fer undir vatn. Búist var við að öll Eyjan, sem stendur afar lágt, færi undir vatn og voru íbúarn- ir skyldaðir til að flytjast á brott. Bjarne og Reidun hafa búið á Eynni í fjörutíu ár og þetta er því í þriðja sinn sem þau upplifa flóð og verður að öllum líkindum í annað sinn sem húsið þeirra fer undir vatn. Árið 1967 náði flóðið upp á miðja glugga á fyrstu hæð en gangi svartsýn- ustu spár eftir nú, mun það ná uppfyrir gluggana. Þrátt fyrir þessi ósköp lá vel á hjónunum og buðu þau blaðamönnum með í bátsferð um hverfið, sem var að fara í kaf. Þau eru þau einu sem eftir eru og nú verða þau að hverfa á braut. „ Við erum hér til þess að fylgjast með húsinu okkar. Við höfum flutt öll húsgöngin upp á loft tæmt eldhúsið og rúllað gólfteppunum upp. Nú er ekk- ert annað en að bíða,“ segir Reidun. Við blasir að húsið er mikið skemmt en þau eru þó ekkert á því að gefast upp. „Við flytjum aftur inn. Það er vissulega hræðilegt að sjá hvernig húsin eru útleikin en það er ekkert annað að gera en halda áfram. Við viljum hvergi annars staðar búa.“ Bosníu-Serbar neita að hafa fundið flugmanninn 108 gíslum var ekið tíl Júgóslavíu í nótt Pale, Sar^jevo, London. Reuter. RÚTU með 108 gíslum úr röðum friðargæsluliða Sameinuðu þjóð- anna, sem Bosníu-Serbar höfðu í haldi, var ekið í nótt til Mali Zvorn- ik í Júgóslavíu. Ráðamenn Bosníu- Serba sögðust í gærkvöldi vera í þann mund að láta lausa 58, en þeir hafa 148 manns á valdi sínu. Fréttastofa Bosníu Serba greindi frá því að búið væri að flytja gæsluliðana til landamæra- bæjarins Zvornic, en ekki var þess getið hvenær þeir yrðu fluttir yfir landamærin til Serbíu. Ekki hafði fengist staðfest í gærkvöldi að gísl- arnir hefðu verið látnir lausir. Serbar hafa 148 enn í haldi Fréttastofan sagði einnig að fleiri gæsluliðar yrðu ef til vill leystir úr haldi, en ekki var getið um hve margir eða hvenær. Utanríkisráðherra Grikklands, Karolos Papúlías, hefur ásamt varnarmálaráðherra landsins átt viðræður við Slobodan Milosevic Serbíuforseta til að fá hann til að skerast í leikinn og þvinga þjóð- bræðurna í Bosníu til að sleppa gíslunum. Enn er óljóst hvort bandarískur flugmaður komst lífs af þegar Bosniu-Serbar skutu þotu hans niður í liðinni viku. Talsmaður bandaríska flughersins sagði að veik fjarskiptaboð hefðu heyrst frá norðurhluta Bosníu sem vektu von- ir þótt þau væru engin sönnun þess að maðurinn væri á lífi. Að- stoðarmaður Radovans Karadzics, leiðtoga Bosníu Serba, sagði við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN í gær að Bosníu Serbar hefðu ekki náð flugmanninum. Dregnr úr ákefð Litla ofsa í Noregi Vonir eru bundnar við að vatnsyfir- borðið í Lillestrom hafi náð hámarki Ósló. Morgunblaðid. FLÓÐIN í suðausturhluta Noregs virðast vera í rénun. Spár um það hversu hátt vatnsyfirborðið í vötnunum Mjosa og 0yaren nái eru mun lægri en í fyrstu og var jafnvel búist við að yfirborð 0yaren myndi ná hámarki seinni hluta gærdagsins eða í dag. Ekki er búist við að Mjosa nái hámarki fyrr en á sunnudag. Yfirborð beggja vatna hækkaði um 1 sm á klukkustund í gær. Þetta getur þó breyst aukist úrkoma og hiti á flóðasvæðunum. Spár norsku orkuveitnanna (NVE) hafa verið síbreytilegar og segja talsmenn stofnunarinnar ástæðuna m.a. ónákvæmar veðurspár og mælingar. Flóðunum hefur verið gefið nafn. Það heitir „Litli ofsi.“ Stóri bróðir, „Stóri ofsi,“ varð árið 1789, og mældist 70 sentimetrum hærri en flóðið nú. NVE-fyrirtækið hefur verið sak- að um að hafa verið of svartsýnt í spám sínum en talsmenn stofnunar- innar neita því. Segja þeir ástæðuna fyrir því að vatnsyfirborðið virðist ætla að verða lægra en spáð var í fyrstu vera meiri nákvæmni við vatnamælingar, minni hita og úr- komu en spáð var. Illmögulegt sé að spá fyrir um flóðin af nokkurri nákvæmni. Gangi spár NVE eftir í Lille- strom, fer miðbærinn þar ekki á kaf, eins og talið var í fyrstu. Þá var því spáð að yfirborð 0yaren færi í 11 metra en það er að jafn- aði 5,5 metar. Nú vonast menn til að toppnum sé náð en vatnsyfir- borðið í gærkvöldi var þá 7,85 metrar og hafði ekki breyst í sjö stundir. Allt þar til í gær var talið að flóðið næði hámarki í bænum um helgina. Eysteinn Hilmarsson, sem býr ásamt konu og tveimur dætrum i Lillestram, getur nú búið sig undir að flytja uppþvotta- og þvottavélina aftur á sinn stað en fjölskyldan var viðbúin hinu versta um tíma, þrátt fyrir að hún búi töluvert frá vatninu og hafi ekki talist á mesta hættu- svæði. Fluttu þau hluti úr kjallara og stærstu heimilistækin á fyrstu hæð í geymslu þar sem þau bjugg- ust við að flæddi inn í kjallarann. Gríðarstór drullupollur Ástandið í Hamar við Mjosa var ekki alveg eins gott en þó er talið að vatnsyfirborðið fari ekki yfir 8,5 metra. Venjuleg vatnshæð er 5,25 metrar. Yfírborð Mjosa er nú í 7,4 metrum. Mikið skólp og spilliefni, m.a. úr áburði sem bændur bera á tún, hefur borist í vatnið, sem er einna líkast gríðarstórum drullu- polli. Hafa menn áhyggjur af því að mörg ár líði áður en vatnið verð- ur álíka hreint og það var fyrir flóðið. í gær var milljónum lítra af vatni dælt inn í Víkingaskipið í Hamar, íþróttahöllina sem reist var fyrir ólympíuleikana. Er þetta gert til þess að þyngja húsið og koma á þann hátt í veg fyrir að það fljóti upp, hækki meira í Mjosa. Þá hefur mikill varnargarður verið reistur í miðbænum, verslanir tæmdar og fólki ráðið frá að vera þar á ferð. Eru eigendur margra fyrirtækja í bænum æfír vegna þessa, segja fólk hafa verið hrætt að óþörfu. 18 milljarða tjón? Erfítt hefur reynst að fá yfirlit yfír skemmdir af völdum flóðanna og er ekki búist við að fyrstu áætl- anir liggi fyrir fyrr en um mánaða- mótin. Talsmaður tryggingafélag- anna sagði í gær að upphæðin hefði enn ekki farið yfir þá 18 milljarða sem tiyggingafélögin reikna með. Er Ijóst að norskir húseigendur munu borga brúsann i formi hærri tryggingaiðgjalda. Þá er talið að bændur muni tapa um 1,2 milljörð- um ísl. króna. en um 120.000 fer- kílómetar ræktaðs lands muni fara undir vatn. Að minnsta kosti 4.000 manns hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín. Flóðin höfðu þau áhrif á verð- bréfamarkaði í gær, að hlutabréf í tryggingafélögum lækkuðu en bréf í bygginga- og verktakafyrirtækj- um hækkuðu. í gærkvöldi rofnaði klakastífla í á í Káfjord í Troms-fylki með þeim afleiðingum að uppistöðulón hand- an hennar hljóp fram. Nokkur hús urðu fyrir flóðinu og flýðu íbúar þeirra að heiman. Hætta af hlaup- um af þessu tagi og skriðuföllum er talin víða fyrir hendi vegna skyndilegrar hlýnunar. ■ Flóðin í Noregi/22-35 og 32-33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.