Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 9
FRÉTTIR
Glæðist í Norðurá
- fyrstu laxamir
úr Þverá
LAXVEIÐIN hefur heldur glæðst
í Norðurá og fyrstu laxarnir hafa
komið á land úr Þverá. Báðar
árnar hafa sjatnað nokkuð eftir
að það kólnaði ögn í veðri á nýjan
leik.
Af því að dæma sem komið er,
er tveggja ára laxinn mun smærri
að jafnaði í sumarbyijun heldur
en í fyrra, en ástandið í hafinu
þykir ráða þar mestu um. Laxinn
til þessa hefur verið 8 til 11 pund,
en í fyrra var megnið af vorlaxin-
um 11 til 16 pund.
24 úr Norðurá
Hollið sem tók við af stjórn
SVFR í Norðurá fékk 18 laxa og
voru þar með komnir 24 laxar á
land frá 1. júní. „Áin lítur prýði-
lega út, en er heldur köld ennþá,
aðeins 3 gráður,“ sagði Walter
Lenz, einn veiðimanna sem var
að hætta í Norðurá í gærdag.
Walter sagði það skoðun sína
að allnokkuð af laxi gæti verið
gengið upp fyrir Laxfoss, t.d.
hefði Stokkhylsbrotið verið besti
veiðistaðurinn það sem af væri,
en undarlega líflítið á frægum
stöðum fyrir neðan fossinn, s.s. á
Eyrinni og Brotinu. „Það ætti að
loka stiganum til 1. júlí, því það
er varla gerlegt að finna laxinn
sem fer upp fyrir í svo miklu
vatni,“ sagði Walter.
Skoðun Walters hefur heyrst
víðar og í vor, er veiði var í þann
mund að heíjast var að sjá að
hátt í 50 laxar væru farnir um
teljarann efst í nýja stiganum.
Leiðin er greiðari eftir að nýi stig-
inn var opnaður fyrir þremur
árum og laxinn rennur hraðar
fram dalinn.
Það sama gerðist fyrir um ára-
tug, er laxastiginn í Glanna var
opnaður. Fossinn sem áður var
mikii fyrirstaða var svo ekki leng-
ur og stórt veiðisvæði fyrir neðan
hefur ekki verið svipur hjá sjón
síðan.
Þeir fyrstu úr Þverá
Leigutakar Þverár veiddu eng-
an lax fyrstu daganna sem veiði
stóð, enda áin kolgruggug og i
miklum vexti. Jón Olafsson, einn
leigutaka, sagði að bændur sem
tóku við þeim hefðu fengið tvo
fyrstu laxana í veiðistaðnum Hól-
matagli.
„Þeir sáu fleiri, bæði þar og
víðar á svæðinu. Áin hafði sjatnað
talsvert og gruggið hreinsast að
verulega leyti. „Kjarráin átti að
opna 10. til 15. júní, en við gætum
orðið að fresta því eitthvað,
ástandið við ána er víða erfitt,
himinháir skaflar skagandi fram
í á og svo er tvísýnt með veginn
fram eftir,“ bætti Jón við.
Franskar prjónadragtir
TBSS
- Verið velkomin -
X"
neðst við Opifl virka^daga
Dunhaga, laugardaga
sími 562 2230 kl. 10-14.
Laxveiði við
skaflana
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson.
LAXVEIÐI hófst í Blöndu um
helgina og er svo mikill snjór við
ána á aðalveiðisvæðinu að menn
muna ekki annað eins, stálið allt
að tíu metra hátt að baki veiði-
manna þar sem þeir standa og
reyna að trúa því að komið sé
sumar og veiðitími.
Þrátt fyrir ótíðina veiddist fyrsti
laxinn í gærmorgun, 10 punda
hrygna, sem tók maðk á Breið-
unni. Daginn áður lá einn hoplax
í valnum. Á myndinni rennir veiði-
maður í Blöndu og má glöggt sjá
hvað vetur konungur hefur skilið
eftir sig.
Sérlega
/andaðir
stólar í
miklu
itaúrvali
Ný sending
af barnabíl-
stólum og
reiðhjóla-
stólum frá
bobob
ALLT FYRIR BORNIN
KLAPPARSTÍG 27 - SÍMI 55 22 522
'&NAVÞ&'
Sjómannadaguri
58. hóf sjómannadagsráðs CL HÓtel íslandi
íaugardaginn 10.júní 199 5
Dagskrá:
✓ Húsið opnað kl. 19.00.
✓ Guðmundur Hallvarðsson, íormaöui
sjómarmadagsráös, setur hóíiö.
✓ Kynnir kvöldsins veröur Egill Ólafsson.
✓ Fjöldi glœsiiegra skemmtiatriða:
Diddú, Egill Olafsson, Björgvin Halldórsson,
Gunnar Þórðarson, Reynir Jónasson,
Símon Kuran og Bjarni Sveinbjörnsson.
Kvöldverður
Laxapaté mcð sjávarréttasósu og fersku saCati.
Lambavöðvi dijon með sfierry sveppasósu,
IqyddsteilitumjarðepCum 0£gtjáðugrœnmeti.
Ujommís ípönnuíjþku með heitri súktjulaðisósu.
Gömlu brýnin
leika fyrir dansi til kl. 03.00.
Ver5 kr. 4.500 á mann.
wibHiid
HOTEI
Miða- og borðapantanir í síma 568 7111.
. ^ - * * i^' - ■ -'4 ^-' e '
RÍKISVtXILL
Spariskírteini ríkissjóðs með
mismunandi gjalddaga
• Við bjóðum eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga eftir
1 ár, 2 ár, 3 ár, 4 ár og 5 ár.
• Þú getur raðað saman mismunandi flokkum spariskírteina þannig
að þú sért alltaf með laust fé þegar þú þarft á því að halda.
• Spariskírteini eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast.
Helstu flokkai
spaiiskírteina:
1991 1D5 Gjalddagi 1/2 1996
1992 1D5 Gjalddagi 1/2 1997
1993 1D5 Gjalddagi 10/4 1998
1994 1D5 Gjalddagi 10/2 1999
1995 1D5 Gjalddagi 10/2 2000
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar.
Sími 562 6040.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Fjölmargir aðrir flokkar spariskírteina eru einnig til sölu. Hafa skal í huga að spariskírteini ríkissjóðs eru markaðsverðbréf
sem eru skráð á Verðbréfaþingi Islands, og eru því auðseljanleg á lánstímanum. Kynntu þér möguleika spariskírteina ríkissjóðs.
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum