Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Dýragarðurinn á Slakka í Laugarási í Biskupstungum var opnaður um helgina
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
HEIMALNINGARNIR fengu mjólk úr pela. HELGI Sveinbjörnsson og kona hans Hólmfríður Björg Ólafsdóttir.
Geit og lömbum gefíð,
kisu strokið meðan han
inn spókaði sig og gól
Selfossi - Dýragarður var opn-
aður laugardaginn 3. júní við
garðyrkjustöðina Slakka í
Laugarási í Biskupstungum. í
dýragarðinum eru hænur, han-
ar, endur, hvolpar, dvergkanín-
ur og venjulegar kanínur, geit-
ur, heimaalningar og kisur, svo
eitthvað sé nefnt.
Dýrin eru hvert um sig innan
lítillar girðingar og hafa þar
lítinn torfbæ sem skjól. I stórum
torfbæ á svæðinu er veitinga-
sala þar sem á boðstólum verður
kaffi, mjólk og kökur. Staður-
inn er tilvalinn fyrir þá sem
leita að afþreyingu fyrir yngstu
börnin um leið og þeir kaupa
sér hollt grænmeti. Selt er inn
í garðinn og er aðgangseyrir
100 krónur fyrir börn og 200
krónur fyrir fullorðna.
Hjónin Helgi Sveinbjörnsson
garðyrlgumaður og kona hans
Hólmfríður Björg Olafsdóttir
reyndu fyrir sér með þessa
starfsemi í litlum mæli í fyrra
og gafst vel. Þeir sem komu
heim á garðyrkjustöðina til að
kaupa grænmeti kunnu vel að
meta nýbreytnina og það varð
hvati að stækkun aðstöðunnar.
Auk þess að rækta grænmeti
fást þau við gerð minjagripa og
munu hafa þá til sölu í veitinga-
húsinu.
Þeir sem voru viðstaddir opn-
un Slakkadýragarðsins gátu
ekki leynt hrifningu sinni og
börnin kunnu vel að meta það
að geta fengið að halda á dverg-
kanínunum, gefið geitinni
brauð og heimaalningunum
pela eða klappað kisu sem vapp-
aði um í rólegheitunum. Haninn
úr hænsnahópnum spókaði sig
á svæðinu og gaf karlmennsku
sína til kynna með myndarlegu
gali öðru hverju. Grísirnir voru
frekar heimóttalegir og flýttu
sér inn í bæinn sinn þegar ein-
hver nálgaðist girðinguna
þeirra. Þeir ráku síðan trýnið
út um dyrnar til að kanna málið
betur. Lítið leiksvæði er aftan
við veitingahúsið og getur fólk
fylgst með börnunum þar á
meðan það fær sér kaffi og
köku.
Þau Helgi og Hólmfríður
sögðu þessa stækkun eitt skref
í. að þróa garðinn. Þau ættu sér
ýmsar hugmyndir til að fram-
kvæma í tengslum við þá að-
stöðu sem komin er.
Hátíðleg
fermingar-
guðsþjónusta
á Flateyri
FIMM drengir í Flateyrar-
kirkju fermdust jt hvíta-
sunnudag, 4. júní sl. Það voru
þeir Atli Már Sigurðsson,
Gunnar Páll Hálfdánarson,
Grétar Öm Eiríksson, Halldór
Gunnar Pálsson og Hólmar
Jóhann Hinriksson.
Viðstaddir guðsþjónustuna
voru fjórir fermingardregngir
sem nú héldu upp á það að
50 ár eru liðin frá fermingu
þeirra. Þeir fermdust í Flat-
eyrarkirkju á hvítasunnudag
fyrir hálfri öld, hinn 20. maí
1945. Þeir sem nú vitjuðu
kirkju sinnar í tilefni af ferm-
ingarafmælinu voru Garðar
Þorsteinsson, Hallur Stefáns-
son, Óskar Magnússon og
Snæbjöm Ásgeirsson. Þijár
fermingarsystur þerira vom
fjarstaddar, þær Dóróthea
Guðmundsdóttir, Guðbjörg
Gunnarsdóttir og Rakel Jóns-
dóttir. Einn úr hópnum er
látinn; Guðmundur B. Þor-
láksson, jarðsettur í kirkju-
garðinum á Flateyri.
50. ára fermingarbörnin
færðu kirkjunni umbúnað um
kaleik og patínu (velum og
bursa) að gjöf og fermingar-
drengjum vorið 1995 færðu
þeir Passíusálmana áritaða.
Þennan sama daga fermd-
ust í Holtakirkju í Ónundar-
firði þrir drengir; Hlynur
Kristjánsson, Hörður Bjarna-
son og Jónatan Magnússon.
Morgunblaðið/Gísh Fnðnk ___
BÁTSLÍKÖN Gríms Karlssonar skipstjóravoru til sýnis í Kjarnanum og vöktu mikla athygli hátíðar-
gesta. Þar mátti finna ólíkar skipategundir allt frá Iitlum bátum upp í stærstu togara. Líkönin og
fjölmargar skipamyndir verða til sýnis í Kjarnanum út sumarið.
FJÖLMENNT var á mar-
hnútaveiðikeppninni í Njarð-
víkurhöfn.
Sumarvaki á Suðurnesjum
Velheppnuð
fjölskylduhátíð
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN
Sumarvaki á Suðurnesjum var
haldin í fyrsta sinn um hvíta-
sunnuhelgina og heppnaðist
hún mjög vel að mati skipu-
leggjenda hátíðarinnar. Hátíð-
arhöldum sem þessum er að
sögn skipuleggjenda ætlað að
efla menningarlíf á svæðinu og
laða að ferðamenn á Suður-
nesjasvæðið, jafnt innlenda sem
erlenda.
Að líkindum fundu allir eitt-
hvað við sitt hæfi en hátíðar-
gestir gátu reynt sig í mar-
hnútaveiðikeppni, skoðað báts-
líkön Gríms Karlssonar skip-
stjóra og farið í útsýnisferðir
um Keflavíkurflugvöll, í göngu-
ferð um nágrenni Keilis og
fjöruskoðunarferð um Fitjar.
Hitaveita Suðurnesja var með
opið hús og kynnti starfsemi
sína. Málverkasýningar var
opnaðar af þessu tilefni og kór
Keflavíkurkirkju hélt tónleika í
Keflavíkurkirkju. Ungu kyn-
slóðinni var loks boðið á popp-
tónleika í Félagsbíói og á dans-
leik í Stapa.
AHUGAMENN um flugvélar og módelsmíði komu saman á
íþróttavellinum í Keflavík og fylgdust með flugsýningu
Flugmódelklúbbsins.
f skóla
í 50 ár
Skagaströnd - Við skólaslit
Höfðaskóla 31. maí voru Elín-
borgu Jónsdóttur þökkuð
heilladijúg störf fyrir skólann
í hálfa öld.
Elínborg hefur verið
starfs-
maður
skólans í
50 ár nú
í vor,
lengst af
sem
kennari
en síð-
ustu ár
sem
bóka-
vörður og bókasafnskennari.
Á skólaslitunum var henni
afhent gjöf sem þakklætis-
vottur frá Skagstrendingum
og á eftir var haldið kaffisam-
sæti henni til heiðurs.
Hefur kennt
þremur ættliðum
í ávarpi skólastjóra, Ingi-
bergs Guðmundssonar, til
Elínborgar kom fram að hún
hefur nú kennt allt upp í
þremur ættliðum Skag-
strendinga. Þar á meðal hon-
um sjálfum og töluverðum
hluta af núverandi kennaral-
iði skólans. Sagði hann það
styrk skólans að njóta enn
starfskrafta Elínborgar og
reynslu, væri hún víðlesin og
margfróð.
Elínborg þakkaði hlýhug í
sinn garð en sagðist þó vera
í vafa hvort ekki væri nær
að hún þakkaði Skagstrend-
ingum fyrir að hafa treyst sér
fyrir hluta af uppeldi barna
sinna svo lengi.
Elinborg
Jónsdóttir