Morgunblaðið - 07.06.1995, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hugmynda- og
endumýtingarlist
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
AHUGAMENN um samtímalist,
á leið um Kaupmannahöfn, ættu
ekki að láta Málmey og Rooseum
framhjá sér fara. Rooseum er safn
og sýningarmiðstöð, til húsa í gam-
alli gasstöð, skammt frá aðkomu
flugbátanna í miðborg Málmeyjar.
Nú í byijun júní var opnuð þar sýn-
ing, sem er ein af mörgum samtíma-
listasýningum, er opnaðar eru víða
um Evrópu sem uppbót á Feneyj-
atvíæringinn. Sex listamenn sýna
þar verk, sem öll má túlka sem ein-
hvers konar athugasemdir eða neð-
anmálsgreinar við neysluþjóðfélag
nútímans.
Rooseum heitir eftir stofnandan'-
um Frederik Roos er lést í fyrra,
langt fyrir aldur fram. Roos var
fésýslumaður, sem hafði efnast vel.
Hann var listaverkasafnari af llfi
og sál og hafði safnað að sér merki-
legu safni. Hann lagði sig einkum
eftir samtímalist og kom Rooseum
upp, bæði til að sýna eigin verk og
halda sýningar. Ýmsir íslenskir
listamenn komu oftar en einu sinni
við sögu hans, meðal annars bræð-
umir Sigurður og Kristján Guð-
mundssynir, Hreinn Friðfinnsson
og Georg Guðni. Rooseum starfar
áfram, þó Roos sé fallinn frá. For-
stöðumaður Rooseum er Lars
Nittve, sem reyndar er á förum
yfir sundið, þar sem hann mun taka
við forstöðu Louisiana nú í sumar.
Eftirmaður hans er Bo Nilsson frá
Moderna Museet í Stokkhólmi.
Aperto
Undanfarin ár hefur tíðkast að
halda sérstaka sýningu á Feneyj-
artvíæringnum undir heitinu
„Aperto", sem er ítalska og þýðir
„opinn“. Þar voru sýnd verk ungra
listamanna, sem þóttu athyglisverð
og oft hefur þessi hluti tvíæringsins
einmitt þótt sá bitastæðasti. í ár, á
aldarafmæli tvíæringsins, verður
engin „Aperto“-sýning. Því tóku
ýmis söfn og sýningarsalir í Evrópu
sig til og buðu ungum listamönnum
að sýna undir samheitinu „Aperto“.
Sýningin í Rooseum heitir „Nútopi“.
Samkvæmt Nittve skírskotar heitið
til heims, sem liggur mitt á milli,
sem er hvorki heimur listar né veru-
leika, hvorki draumur né höfnun
hans.
Listamennirnir, sem sýna eru
Clay Ketter, Bandaríkjamaður er
býr á Skáni, landar hans Jeffrey
Wisniewski, Andrea Zittel og Dan
Peterman, Yutake Sone frá Japan
og Rirkit Tiravanija frá Tælandi.
Allir fást á einhvem hátt við að
nota efni, sem fellur annars staðar
til, eða að setja saman hluti, sem
í fljótu bragði gætu virst nytjahlut-
ir.
Ketter vinnur sem húsamálari
auk þess að vera listamaður og
verk hans eru unnin úr stöðluðum
iðnaðareiningum. Eitt verkið er eins
og eldhúsinnrétting, unnin úr
IKEA-einingum, en án vasks eða
eldavélar, sumir skápamir em með
gleri eins og útstillingargluggar,
kannski framtíðarverk til minning-
ar um þá tíma, meðan eldhús vom
enn notuð á heimilum. Wisniewski
er myndhöggvari, sem raðar hlutum
sáman eins og klassískum högg-
myndum. Verk hans á sýningunni
er raðað saman úr hlutum, sem fólk
notar í tómstundum, tjaldi, hjóli,
seglbretti, veiðibyssu og fleiru slíku.
Kannski skoplegt í fyrstu, en stærð-
in gerir það svolítið yfirþyrmandi.
Nítján manna hjól
Zittel býr í vinnustofu sinni í New
York og er upptekin af að hanna
húsgögn, sem sameina allar þarfir,
einhvers konar allsherjarhúsgögn,
sem geta bæði verið listaverk og
nytjahlutir. Hugarheimur Peter-
mans snýst I kringum endurnýtingu
og framlag hans eru endurnýttir
plastpallar með ónýttum hjólbarða-
ræmum. Sone býr til nítján manna
hjól, sem um leið er nokkurs konar
þraut og ætluð til að stuðla að sam-
skiptum hjólreiðamannanna. Tira-
vanija byggir verk sín á staðnum.
Við hliðina á Rooseum er bama-
heimili og Tiravanija fékk meðal
annars bömin þaðan til að innrétta
litla trékofa, sem hann byggði eftir
fyrirmynd í Málmey.
Þessi fjölbreyttu verk njóta sín
vel í gömlu gasstöðinni og gefa
skemmtilega hugmynd um listhrær-
ingar þessi árin.
LISTIR
ROLF Johansen, ræðismaður Mexíkó á íslandi, Hanna C. Jónsdótt-
ir, fulltrúi Mexíkó og Einar Sigurðsson, landsbókavörður.
Mexíkósk bókagjöf
FYRIR skömmu afhenti Rolf Jo-
hansen, ræðismaður Mexíkó á ís-
landi, Landsbókasafni íslands -
Háskólabókasafni bókagjöf frá
mexíkóskum stjórnvöldum. Til gjaf-
arinnar er stofnað í tilefni af opnun
Þjóðarbókhlöðu.
Bækurnar flalla um bókmenntir,
listir, sögu og menningu Mexíkó
og eru valdar í samráði við safnið
pg kennara í spænsku við Háskóla
íslands.
Einnig fylgdu gjöfinni mynd-
bandsspólur með heimildaþáttum
undir samheitinu „The Burried
Mirror“.Þeir fjalla um samruna
tveggja heima fyrir 500 árum og
hvernig sá samruni mótaði sögu og
menningu Mexikó og tilveru þeirrar
þjóðar sem landið byggir.
Þættirnir eru á ensku og leið-
sögumaður áhorfenda í gegnum
aldimar er hinn kunni mexíkóski
rithöfundur, Carlos Fuentes. Þá
fylgdu einnig fyrirheit um mexí-
kóska tónlist á geisladiskum og
áskrift að tímaritinu Vuelta, sem
ljallar um bókmenntir og listir og
er ritstýrt af skáldinu og Nóbels-
verðlaunahafanum, Octavio Paz.
Safnið metur mikils þessa ágætu
gjöf, sem stuðlar að því að auka
með landsmönnum þekkingu á
Mexíkó og mexíkóskri menningu.
Nýjar bækur
Hvítur himinn
Ara Gísla
HVÍTUR himinn úr
glugga er Ijórða
ljóðabók Ara Gísla
Bragasonar. I henni
leitast höfundurinn
við að tala opinskátt
við lesandann. í
bókinni eru einnig
kímilegar myndir úr
daglegu lífí.
I kynningu útgef-
anda segir:
„Reynsluheimur
skáldsins leiðir oft
til snjallra og vel
spunninna mynda
Ari Gísli
Bragason
úr reykvískum
raunveruleika og
hnyttni höfundar
beinist oft á óvænt-
ar brautir.“
Útgefandi er
Bókavarðan. Bókin
er prentuð í Prent-
smiðju Óiafs Karls-
sonar. Kápa er
unnin í Ingólfs-
prenti og bókband
hjá Flatey. Dreif-
ing Islensk bóka-
dreifing. Bókin
kostar 1.890 kr.
Ertu eld-
gleypir
eða fakír?
AÐ VENJU verður einn af
dagskrárliðum hátíðarhald-
anna 17. júní götuleikhússýn-
ing I miðbæ Reykjavíkur.
Sérstaklega er leitað að
leikurum, línudönsurum, sjón-
hverfingamönnum, en einnig
að öðru áhugafólki um leiklist
eða leikmuna- og búningagerð.
Þá vill götuleikhúsið fara
þess á leit vð fólk að það leggi
því til leikbúninga sem það
gæti átt I kjöllurum, bílskúrum
og á hanabjálkum. Allt er hægt
að nýta: Gömul föt og leikbún-
inga, furðuföt, einkennisbún-
inga, útskriftarbúninga og
annan fatnað sem fólk telur
að gæti komið fátæku götu-
leikhúsi til góða.
Þeir semvilja leggja götu-
leikhúsinu lið eða vilja taka
þátt I sýningunni en komast
ekki á kynningarfundinn geta
haft samband við Hitt Húsið
við Ingólfstorg.
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
HM á íslandi
I anddyri Morgunblaðshússins í Kringlunni 1 hefur verið komið upp yfirlitssýningu á Ijósmynd
um sem Ijósmyndarar blaðsins tóku á heimsmeistaramótinu í handbolta sem stóð yfir 7.- 21
maf. A sýningunni - sem ber yfirskriftina HM á íslandi eru 20 séri/aldar myndir sem
sýna meðal annars áhorfendur, leikmenn og afhendingu verðlauna.
Morgunblaðið hefur ávallt lagt ríka áherslu á myndbirtingar í blaðinu og hefur Myndasafn
Morgunblaðsins að geyma fjöldann allan af Ijósmyndum sem birst hafa f blaðinu. Myndir sem teknar
hafa verið af Ijósmyndurum blaðsins eru seldar til einstaklinga og fyrirtækja og hefur þessi jijónusta farið
vaxandi með hverju árinu enda mikið af myndum sem birtast f Morgunblaðinu hvern útgáfudag.
Sýningin stendur til föstudagsins 16. júní
og er opin á opnunartíma blaðsins,
kl. 8.00 - 18.00 alla virka daga og
laugardaga kl. 8.00 - 12.00.
Itofgiiiililftfeifr
Myndasafn