Morgunblaðið - 07.06.1995, Page 64
*« •« <1
immm.- *■' ■• *
a.lltaf á
MiövikudögTon
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kjarasamningar leikskólakennara
Samninganefndir sjómanna og LÍÚ boðaðar til fundar
Sjómenn geti krafist
samninga um verð
FORYSTUMENN sjómannasam-
takanna og LÍÚ samþykktu í gær-
kvöldi að taka upp viðræður til
lausnar kjaradeilu sjómanna á
grundvelli óformlegrar sáttatillögu
sem ríkissáttasemjari lagði fram í
gærmorgun. Forystumennimir
náðu saman um samningstexta og
verður hann lagður fyrir samninga-
nefndir beggja aðila í dag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er í tillögu ríkissáttasemj-
ara gert ráð fyrir að sjómenn geti
■krafíst samninga um viðskipti með
afla hvort sem um er að ræða við-
skipti milli aðila þar sem útgerð og
fískvinnsla er á sömu hendi eða í
viðskiptum óskyldra aðila.
í tillögum sem ræddar voru fyr-
ir helgi var gert ráð fyrir að sjó-
menn gætu krafist samninga milli
skyldra aðila og að lágmarksverð
yrði ákveðið til að koma í veg fyr-
ir að brotið yrði á sjómönnum í
viðskiptum milli óskyldra aðila.
Tillagan gerir ráð fyrir að ef ekki
náist samningar um fiskverð geti
sjómenn leitað eftir áliti eða úr-
skurði nefndar.
Bjartsýni ríkjandi
Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Farmanna- og fískimannasam-
bandsins, sagði að deiluaðilar hefðu
samþykkt að reyna að feta sig í
átt til lausnar deilunni um verð-
myndun á físk á grundvelli tillögu
sáttasemjara. Hvort það tækist
kæmi í ljós í dag.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði að þokast hefði í rétta
átt og að hann væri bjartsýnni um
lausn en áður. Hann sagði áður en
samningafundi lauk í gær að samn-
inganefndirnar yrðu ekki boðaðar
saman til fundar nema að líkur
bentu til að skriður væri að komast
á viðræður.
Forystumenn sjómanna og LÍÚ
gengu á fund sjávarútvegsnefndar
Alþingis í gær og gerðu henni grein
fyrir stöðu viðræðnanna.
■ Sérsamningar til skoðunar/4
Byijunarlaun um 80
þúsund kr. á mánuði
FÉLAG íslenskra leikskólakennara
hefur lokið gerð kjarasamnings við
ríkið og borgina en í gærkvöldi var
haldinn samningafundur félagsins
með launanefnd sveitarfélaga.
Að sögn Bjargar Bjarnadóttur,
varaformanns Félags íslenskra leik-
skólakennara, er kjarasamningurinn
sem gerður var við ríkið og Reykja-
víkurborg hliðstæður kjarasamning-
um landssambanda ASÍ.
Honum til viðbótar er komið til
móts við einstakar sérkröfur leik-
skólakennara. Sagði hún samning-
ana fela í sér umbun til starfsmanna
sem eru í fullu starfi. Einnig eru
gerðar leiðréttingar á kjörum leik-
skólastjóra þar sem tekið er aukið
tillit til náms þeirra í sambandi við
starfsaldurshækkanir.
í launalið samningsins er kveðið
á um krónutöluhækkanir frá 1. maí
og aftur um næstu áramót, mismun-
andi miklum eftir einstökum hópum
en nýliðar fá þó mestu hækkanirnar
að sögn Bjargar og eiga byrjunar-
laun að vera komin í um 80 þúsund
kr. á mánuði innan ákveðins tíma.
Tveir drengir fluttir rænulausir og með uppköst á bráðamóttöku Landspítalans
Morgunblaðið/Kristinn
Sól og sumarís
Það hefur verið sumarlegt
um að litast í Reylyavík
undanfarið. Þessar ungu
hnátur notuðu tækifærið einn
góðviðrisdaginn og fengu sér
gómsætan ís með dýfu og
hrís sem aldrei bragðast bet-
ur en í hlýrri sumarsól.
Landsmenn vona að suðrænir
vindar reki kulda og nepju
norður í höf svo ylur sum-
arsins megi umvefja landið
allt. í dag var gert ráð fyrir
hægri vestlægri átt eða
breytilegri um landið, skýj-
uðu veðri með köflum vestan
til en víðast léttskýjuðu
austanlands.
Fárveikir af landadrykkju
TVEIR drengir, 11 og 13 ára, veiktust alvar-
lega í gær eftir hafa drukkið landa en sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu er ekki hægt að
útiloka að einhver hættuleg efni hafi myndast
í vökvanum. Drengirnir höfðu báðir kastað upp
og voru fluttir meðvitundarlausir á bráðamót-
töku Landspítalans. Eftir læknisskoðun var
annar drengurinn lagður á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Samkvæmt upplýsingum læknis á bráðamót-
töku Landspítalans voru drengirnir mjög illa
haldnir eftir landadrykkju þegar komið var
með þá svo ástæða þótti til að leggja þá báða
inn. Var líðan piltanna eftir atvikum í gær-
kvöldi.
Lá veikur
á skólalóð
Lögreglunni barst síðdegis tilkynning um
að ungur drengur lægi veikur á lóð
Austurbæjarskóla. Þegar lögreglan kom á
staðinn var ljóst að ástand drengsins var ekki
eðlilegt. Hann var rænulaus og var hann þegar
í stað fluttur á bráðamóttöku Landspítalans.
Nærstödd börn gátu gefið lögreglu upplýs-
ingar um að annar piltur hefði einnig veikst
og væri kominn heim til sín.
Brutust inn
Þegar lögregla og sjúkraflutningsmenn
komu að heimili hans var ekki svarað þegar
þeir reyndu að komast inn og þurftu
sjúkraflutningamenn að bijótast inn í húsið til
að finna drenginn. Komu þeir að honum einum
og illa höldnum uppi í rúmi og hafði hann
kastað upp. Var drengurinn þegar í stað fluttur
á Landspítalann til aðhlynningar.
Lögreglan fann plastbrúsa á lóð Austur-
bæjarskóla sem talið er að drengirnir hafi
drukkið úr og var megn spíralykt úr brúsan-
um. Innihald brúsans var sent í greiningu í
gærkvöldi en samkvæmt upplýsingum lögreglu
er ekki útilokað að um illa gerðan og hættuleg-
an landa hafí verið að ræða.
Landi ” bruggaður
á salernum
Lögreglan varar mjög við drykkju unglinga
og barna á landa sem er í umferð og bendir
á að hann sé mjög misjafn að gæðum og
geti verið stórhættulegur heilsu fólks. Nokkur
tilfelli, mismunandi alvarleg, hafa komið upp
þar sem unglingar hafa veikst eftir
landadrykkju.
Að sögn Ómars Smára Ármannssonar að-
stoðaryfirlögregluþjóns sanna dæmin að landi
sem er í umferð getur verið mjög varasamur
og oft framleiddur við aðstæður þar sem þrifn-
aði er ábótavant.
Ómar sagði að dæmi væru um að landi hefði
verið bruggaður inni á salernum, í ílátum sem
ekki hefðu verið hreinsuð. Sagði hann lögregl-
una hafa verulegar áhyggjur af þessu því allt-
af væri sú hætta fyrir hendi að einhver ólyfjan
kæmist í vökvann.
Morgunblaðið/Golli
FRIÐRIK Björgvinsson lögreglumaður
með landabrúsann sem fannst við Austur-
bæjarskóla. Talið er að drengirnir hafi
drukkið úr brúsanum.
Bjargaði
8 ára dótt-
ur sinni
ór sjónum
ÁTTA ára gömul stúlka féll í
sjóinn við höfnina á Suðureyri
í gær en faðir stúlkunnar, sem
var við vinnu skammt frá,
stökk á eftir henni í sjóinn og
náði henni fljótt upp úr. Stúlk-
- an var á reiðhjóli og hjólaði á
bryggjukantinn með fyrr-
greindum afleiðingum og féll
milli skips og bryggju. Lög-
reglu var tilkynnt um slysið
kl. 18.40.
Að sögn lögreglu varð faðir
stúlkunnar fyrst áskynja um
slysið þegar hann heyrði
skvamp í sjónum. Höfuð stúlk-
unnar slóst utan í bát þegar
hún féll fram af bryggjunni
og skarst hún á höfði. Stúlkan
var flutt á sjúkrahúsið á
^ísafirði. Þar var gert að sárum
hennar og m.a. saumuð fímm
spor í skurð á höfði hennar.
Önnur meiðsl hennar voru
smávægileg.
Að sögn lögreglu hjólaði
stúlkan utan í bryggjukantinn
og svo virðist sem hún hafí
farið kollhnís fram af og í sjó-
inn.
Kólerusótt
í kúmí
Eyjafirði
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðid.
BLÓÐKREPPUSÓTT, sem er
smitandi veirusótt, heijar nú á
eyfírskar kýr.
Að sögn Ármanns Gunnars-
sonar héraðsdýralæknis Aust-
ur-Eyjafjarðarumdæmis hefur
veikin verið að stinga sér niður
á nokkrum bæjum á Svalbarðs-
strönd og í Eyjafjarðarsveit.
Þegar pestin berst í fjósið smit-
ast flestar kýrnar og missa
veruleg nyt. Sumar kýr fara illa
útúr veikinni og ná sér ekki
fyrr en á næsta mjólkurskeiði.
Því getur verið um verulegt tjón
að ræða fyrir kúabændur.