Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 1
96 SIÐUR LESBOK/C/D
135.TBL.83.ÁBG. LAUGARDAGUR17. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Faðir í
fimm mín-
útur á dag
London. Daily Telegraph.
KARLMENN heyrast oft og tíð-
um guma sig af því hvað þeir
taki virkan þátt í uppeldi barna
sinna og þykir það bera vitni
breyttum tímum. Hlutimir hafa
hins vegar lítið breyst ef marka
má nýja könnun, sem gerð var
á Bretlandi og leiddi í ljós að á
virkum degi veija karlmenn þar
í landi að jafnaði ekki nema
fimm mínútum með afkvæmum
sínum.
Samkvæmt könnuninni kjósa
feður fremur að slappa af fyrir
framan sjónvarpið, skreppa út á
krá og svitna í íþróttasölum en
að skipta á bömunum sínum,
mata þau og svæfa. Ekkert er
föðumum jafnkærkomið og
hringing úr vinnunni þegar hann
er að lesa sögu fyrir barnið sitt
fyrir svefninn.
Höfundur könnunarinnar,
Rob Parsons, segir að karlar
láti samkeppni á vinnustað
ganga fyrir og hugsi með sér
að þeir muni hafa tíma síðar.
„Sá tími kemur hins vegar aldr-
ei,“ segir hann.
Arás Tsjetsjena á Budennovsk hefur kostað að minnsta kosti 117 manns lífið
Algert ráðleysi ríkir hjá
rússneskum yfirvöldum
kvu, Budennovsk. Reuter.
RÚSSNESKIR embættismenn virt-
ust í gær vera algerlega ráðalausir
gagnvart gíslatöku tsjetsjenskra
skæruliða í rússneska bænum Bud-
ennovsk. Talið er að gíslarnir séu
um 2.000 en að minnsta kosti 117
manns hafa látið lífið. Þá myrtu
skæruliðarnir fimm gísla í fyrri-
nótt. Sagði Pavel Gratsjov, varnar-
málaráðherra Rússlands, í gær að
eina leiðin til að þess að bjarga
gíslunum væri að beita hervaldi,
„eins fljótt og auðið er“. Nikolaj
Jegorov, aðstoðarforsætisráðherra,
kvaðst hins vegar telja að ekki
ætti að ráðast gegn skæruliðunum
þar sem það stefndi lífum hundraða
manna í hættu.
Skæruliðarnir ítrekuðu í gær
hótanir sínar um að sprengja
sjúkrahúsið í loft upp eftir að samn-
ingaviðræður við rússneska emb-
ættismenn fóru út um þúfur. Að
sögn Andrejs Tsjernenkos, emb-
ættismanns stjórnarinnar í Bud-
ennovsk, tókst ekki að ná sam-
komulagi í viðræðum við skærulið-
ana, sem fram fóru í gegnum síma.
Vilja Jeltsín heim
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
sem hélt í gær til Kanada þar sem
hann situr fund leiðtoga sjö helstu
iðnríkja heims, sagðist hafa íhugað
að hætta við för sína vegna gísla-
tökunnar í Budennovsk en ákveðið
að sækja fundinn. Hefur þessi
ákvörðun vakið mikla reiði og er
talin veikja stöðu ríkisstjórnarinnar
en 21. júní nk. verða greidd at-
kvæði um vantrauststillögu á hana.
Kommúnistar og lýðræðisöfl á
rússneska þinginu sameinuðust um
ályktun þar sem segir að „atburðir
í norðurhluta Kákasus, sérstaklega
harmleikurinn í Budennovsk, sýni
greinilega að yfirvöld séu óvirk og
ófær um að fínna lausn á vandan-
Reuter
Shamil Basajev
um í Tsjetsjníju". Ályktunin var
samþykkt með 258 atkvæðum
gegn engu.
Jegor Gajdar, leiðtogi Valkosts
Rússlands, sagði að „valdamikla
ráðherra" ætti að reka, þeirra á
meðal Gratsjov, Viktor Jerín,
innanríkisráðherra og Sergei Step-
hasjín, yfirmann leyniþjónustunn-
ar.
Rússar óttast mjög að Tsjetsjen-
ar beri næst niður í Moskvu, en
leiðtogi skæruliðanna, Shamil
Basajev, sagði þá hafa verið á leið
þangað, er þeir ákváðu að láta til
skarar skríða í Budennovsk. Hefur
hann ýjað að því að skæruliðarnir
líti á gíslatökuna sem sjálfsmorðs-
árás, segir þá alla reiðubúna að
láta lífið. Basajev er einn af reynd-
ustu stríðsmönnum Tsjetsjena. Er
hann sagður svífast einskis til að
ná sínu fram, en fullyrt er að ell-
efu ættingjar hans hafi látið lífið
í stríðinu í Tsjetsjníju.
■ Samningaviðræður/24
Bankaræningjar
myrða lögreglumann
Mikil
leitá
Jótlandi
Herlið múslima tekur
mikilvægan þjóðveg
Pale, Sarajevo. Reuter.
SVEITIR bosníska stjómarhersins
náðu í gær á sitt vald þjóðvegi á hæð
við Sarajevo, sem til þessa hefur ver-
ið í höndum Serba. Embættismenn
Sameinuðu þjóðanna sögðu að ef
múslimum tækist að halda veginum
milli Pale og Lukavica, væri um veru-
legan hemaðarsigur að ræða. Serbar
efndu hins vegar til gagnsóknar og
var hart barist áfram um veginn.
Bardagar brutust út við Sarajevo
strax í dögun á föstudag og vom
hörðustu átökin suður af borginni,
þar sem vegurinn á milli Pale, sem
er „höfuðborg“ Bosníu-Serba, og
Lukevica, þar sem helsta herstöð
Serba er.
Stjómarhemum hefur tvisvar áður
í stríðinu tekist að ná veginum á sitt
vald, en í bæði skiptin vom sveitir
þeirra hraktar til baka Serbar em
sigurvissir, en viðurkenna þó að
stjómarhemum hafi vaxið ásmegin
að undanfömu.
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims,
sem sitja á fundi í Halifax, hvöttu til
þess í gær að öllum hernaðaraðgerð-
um í Bosníu yrði hætt tímabundið.
Muhamed Sacirbey, utanríkisráð-
herra Bosníu, sagði slíka hvatningu
gagnslausa. „Við teljum það vera fár-
ánlegt af leiðtogunum að biðja um
að öllum hemaðaraðgerðum verði
hætt þegar umsátrið um Sarajevo 5
sjálfu sér er hemaðaraðgerð," sagði
Sacirbey.
Morgunblaðið/Golli
Gleðilega
þjóðhátíð!
BÖRNIN á leikskólunum
Jöklaborg, Seljaborg, Hálsa-
borg og Hálsakoti héldu í gær
sína eigin þjóðhátíð. Þau eru
því vel undirbúin fyrir þjóð-
hátíðina sjálfa, sem haldin er
um land allt í dag. Spáð er
austanátt í dag, allhvassri
norðanlands, en hægari norð-
austan annars staðar. Syðra
og vestra á að verða úrkomu-
lítið en annars staðar skúrir
eða rigning.
MÖRG hundmð lögreglumenn á
mótorhjólum, í bílum og þyrlum
tóku í gær þátt í leit að fjórum eða
fímm mönnum sem rændu banka í
Árósum á Jótlandi í gærmorgun og
skutu rúmlega fertugan lögreglu-
þjón á mótorhjóli til bana er hann
reyndi að stöðva ræningjana, að
sögn Berlingske Tidende. Hópur
lögreglumanna á Sjálandi, vopnað-
ur vélbyssum, handtók seint í gær-
kvöldi þijá menn sem komu með
feiju frá Jótlandi er þeir óku á land.
Var talið að þeir tengdust málinu
en ekki var búið að yfirheyra þá
er síðast fréttist.
Ránið var framið í útibúi Jyske
Bank í Höjbjerg í suðurhluta Árósa.
Mennirnir töluðu ensku með sterk-
um hreim við starfsfólk bankans
en erlent tungumál sín í milli, talið
að það hafí ef til vill verið serbó-
króatíska eða annað Balkanmál.
Þeir báru grímur og voru allir
vopnaðir. Aðstoðarmenn þeirra,
sem biðu sinna manna í hvítum
Renault-bíl, skutu lögregluþjóninn
með öflugri skammbyssu, en flúðu
síðan af vettvangi.
Engir viðskiptavinir voru í bank-
anum. Ræningjamir handjámuðu
fjóra starfsmenn við miðstöðvar-
ofna og komust undan með sem
svarar sex milljónum ísl. króna. Á
flóttanum rændu þeir bíl og tóku
tvo gísla en slepptu þeim ósködduð-
um.