Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 7
FRÉTTIR
Lj ósmyndasýning
Morgunblaðsins
Flóðin í
Noregi
NY ljósmyndasýning með yfirskrift-
inni Flóðin í Noregi hefur verið sett
upp í anddyri Morgunblaðsins í
Kringlunni 1.
Fyrir skömmu fóru Urður Gunn-
arsdóttir blaðamaður og Kristinn
Ingvarsson ljósmyndari frá Morg-
unblaðinu á flóðasvæðin í Noregi og
eru myndir sýningarinnar frá þeirri
ferð og sýna hinar miklu náttúru-
hamfarir.
Mestu flóð frá 1789
Flóðin hófust um síðustu mánaða-
mót í austurhluta Noregs og eru ein
mestu flóð sem orðið hafa frá árinu
1789. Þúsundir manna hafa neyðst
til að yfirgefa heimili sín og að
minnsta kosti 120.000 ferkílómetrar
ræktaðs lands hafa farið undir vatn.
Flóðin eru nú í rénun víðast hvar að
stöðuvatninu Mjösa frátöldu en talið
er að flóðin þar muni standa fram í
júlí.
Myndasafn Morgunblaðsins hefur
að geyma ijöldann allan af ljósmynd-
um, bæði litmyndir og svarthvítar.
Einstaklingar og fyrirtæki geta
keypt myndir úr safninu, sem birst
hafa í blaðinu, og eru því allar mynd-
irnar á sýningunni til sölu.“
Sýningin stendur til föstudagsins
30. júní og er opin kl. 8-18 alla virka
daga og laugardaga kl. 8-12.
Morgunblaðið/Kristinn
EYÐILEGGING er yfirskrift þessarar myndar sem
er á sýningnnni í anddyri Morgunblaðsins.
Breytt götuheiti
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögur bygginganefndar um að
breyta götuheiti við Sigtún og taka
upp nýtt götuheiti í Borgarhverfi.
Samþykkt var að fella niður
götuheitið Sigtún á þeim hluta göt-
unnar sem liggur vestan Kringlu-
mýrarbrautar og taka upp nýtt
nafn Sóltún á götu sem liggur milli
Nóatúns og Borgartúns.
Þannig verður Sigtún 1 að Sól-
túni 1, Sigtún 3 að Sóltúni 3, Sig-
tún 7 að Sóltúni 24, Sigtún 9 að
Sóltúni 20 og Sigtún 10 að Sóltúni
16. Þá verður ný gata sem liggur
milli Sóltúns og Borgartúns nefnd
Mánatún. Jafnframt verður götu-
heitið Laugarnesvegur milli núver-
andi Sigtúns og Laugavegar fellt
niður og sá hluti götunnar nefndur
Hátún. Laugamesvegur 13 verður
Hátún 49.
Fyrirhuguð breyting hefur verið
kynnt húseigendum og bárust skrif-
leg mótmæli frá einum aðila.
Þá hefur verið samþykkt tillaga
um ný götuheiti í Borgarhverfi A
og B hluta, sem verða Vættaborg-
ir. Götuheitið Malarvegur fellur
jafnframt niður.
Prince Polo
I nýjum búnlngi!
Nú er hið eina sanna Prince Polo komið í nýjar og betri umbúðir.
Fullkomnari framleiðsluaðferðir tryggja þér alltaf nýtt og ferskt Prince Polo.
Mundu eftir því næst þegar þú vilt taka þér góða Prince Polo pásu!
------»■ -------
Ahtisaari í
heimsókn
FORSETI Finnlands, Martti Ahtis-
aari, hefur þegið boð forseta ís-
lands um að koma ásamt eiginkonu
sinni Eevu Ahtisaari í opinbera
heimsókn til íslands dagana
26.-28. september nk.
Laus emb-
ætti og
störf aug-
lýst til um-
sóknar
BISKUP íslands hefur auglýst
nokkur embætti og störf hjá
þjóðkirkjunni laus til umsókn-
ar.
Skeggjastaðaprestakall í
Múlaprófastsdæmi. Sérá
Gunnar Sigurjónsson, sókhar-
prestur, hefur fengið veitingu
fyrir Digranesprestakalli.
Prestakallið verður veitt frá
1. ágúst.
Seyðisfjarðarprestakall í
Austfjarðaprófastsdæmi. Séra
Kristján Róbertsson, sóknar-
prestur hefur fengið lausn frá
störfum fyrir aldurs sakir frá
1. ágúst og verður prestakallið
veitt frá þeim tíma.
Bjarnarnesprestakall í
Skaftafellsprófastsdæmi. Séra
Baldur Kristjánsson, sóknar-
prestur, hefur verið ráðinn
biskupsritari. Prestakallið
verður veitt frá 1. september.
Staða fræðslustjóra við
fræðslu- og þjónustudeild
kirkjunnar á Biskupsstofu.
Séra Bernharður Guðmunds-
son sem hefur verið í leyfi frá
starfi fræðslustjóra síðan 1991
vegna starfa sinna fyrir Lút-
herska heimssambandið í Genf
hefur sagt starfi sínu lausu.
Staðan veitist frá 1. október.
Staða verkefnisstjóra í safn-
aðaruppbyggingu við biskups-
embættið. Staðan veitist frá
1. ágúst.
Ásbjörn Ólafsson hf.
Skútuvogi 11A Sími: 588 7900