Morgunblaðið - 17.06.1995, Side 10
10 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einkaþota á Reykjavíkurflugvelli
Deila um leigu vænt
anlega að leysast
DEILA um leigu einkaþotu af
gerðinni Cessna Citation, sem
staðið hefur á Reykjavíkurflug-
velli frá 2. maí sl. er að öllum
líkindum að leysast, að sögn
Ástþórs Magnússonar.
Fyrirtækið Goldfeder Jet Ltd.,
sem Ástþór tengist, hefur haft
þotuna á leigu af Medraco Lim-
ited. Bæði fyrirtækin eru skráð
í Karíbahafinu.
Deilur risu á milli eigenda og
leigutaka vegna leigu þotunnar
og segist Ástþór hafa flogið
henni hingað til lands eftir að
deilurnar komu upp í því skyni
að geyma hana hér þar til ágrein-
ingurinn leystist. Þotan hefur
lengst af staðið í flugskýli Helga
Jónssonar.
Flugmenn Medraco komu
Þotan var tekin út úr skýlinu
á miðvikudag en þá voru hingað
komnir tveir flugmenn á vegum
Medraco. í fréttatilkynningu frá
Peace 2000, samtökum sem Ást-
þór Magnússon er í forsvari fyr-
ir, segir að flugmennimir hafi
reynt að ná yfírráðum yfir vél-
inni áður en samningar hafi ver-
ið frágengnir að fullu og hafí
þurft að kalla til lögreglu.
Lögreglan í Reykjavík hefur
staðfest að hún hafi verið kölluð
á Reykjavíkurflugvöll vegna
ágreinings í tvígang þetta kvöld
en málin hafí verið afgreidd á
vettvangi. Deiluaðilar munu báð-
ir hafa kvatt til lögreglu, hvor í
sitt skiptið. Það varð síðan að
samkomulagi að fá menn til að
gæta vélarinnar þar til deilan
leystist. í fréttatilkynningu frá
Peace 2000 segir að vélin sé
undir eftirliti slökkviliðsins á
Reykjavíkurflugvelli en það hefur
ekki fengist staðfest þar.
Morgunblaðið/Kristinn
ÞOTAN, sem ber einkennisstafina VR-CEB, var dregin út úr
flugskýli á miðvikudag og var þá skoðuð af flugmönnum á
vegum eigendanna.
Deiluaðilar tjá sig ekki
Ástþór vildi ekki tjá sig um
málið frekar og lögmaður
Medraco hefur einnig verið ófá-
anlegur til þess en eftir því sem
næst verður komist er verið að
semja um uppgjör fyrir leigu
vélarinnar.
Í frétt Morgunblaðsins sl.
laugardag var ranglega sagt að
þotunni hefði verið flogið hingað
í mars sl. Þá var haft eftir tals-
manni Loftferðaeftirlits að vélin
hefði verið kyrrsett að beiðni eig-
anda en það mun ekki vera rétt,
kyrrsetningarbeiðni var hafnað.
Úrtökumót
PCA í atskák
Jóhann og
Margeir
standa vel
AÐ LOKNUM fyrri _degi úrtöku-
móts Atvinnumannasamtakanna
PCA í New York standa stórmeist-
ararnir Jóhann Hjartarson og
Margeir Pétursson nokkuð vel að
vígi.
Þeir hafa báðir hlotið fjóra vinn-
inga eftir sex umferðir og_ eru í
tíunda sæti ásamt fleirum. Á mót-
inu eru tefldar 30 mínútna langar
atskákir.
Sex efstu komast áfram
Stórmeistaramir Adams frá
Englandi og Kharlov frá Rússlandi
eru efstir og jafnir með fímm vinn-
inga. Sex efstu skákmenn mótsins
komast áfram. Á síðari degi móts-
ins í gær átti að tefla síðustu fimm
umferðimar.
Eldri borgara íbúð til sölu
Gullfalleg, mjög lítið notuð 2ja herb., ca 66 fm, íbúð á 2. hæð
í þjónustu-fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi.
íbúðin er til'afhendingar nú þegar.
Upplýsingar í síma 555 2568.
Opið hús sunnudag kl. 14-17
Laugateigur 34
Mikið endumýjuð risíbúð með 3 svefnherb. Grunnflötur ca 85
fm. Suðursvalir. Verð 7,3 millj. Áhvílandi langtlán ca 4,0 millj.
Vilborg og Óli taka á móti ykkur.
Borgir, fasteignasala,
sími 588 2030.
Til sölu í Þorlákshöfn
Oddabraut 17 - einbýlishus
Til sölu 190 fm einbýlishús á tveimur hæðum, ásamt
bílskúr. Skemmtilegt hús á góðum stað.
Skipti á höfuðborgarsvæðinu koma til greina.
Básahraun 35 - einbýlishús
Til sölu glæsilegt 183 fm einbýlishús ásamt 36 fm bíl-
skúr. Eignin er á tveimur hæðum. Toppeign.
Skipti á höfuðborgarsvæðinu koma til greina.
Nánari upplýsingar gefur umboðsmaður Lögmanna
Suðurlandi í Þorlákshöfn, Laufey Ásgeirsdóttir,
í síma 483 3424.
í þessu vatni veiðast
þeir stóru!
Örfáar vatnsbakkalóðir við friðsaelt veiðivatn I Borgarfirði, 85 km frá
Reykjavík. Lóðirnar eru á móti suðaustri. Á svaeðinu er golfvöllur og
sundlaug. Lóðirnar eru frá 0,75 ha uppí ha. Vatn og rafmagn á svæðinu.
Upplýsingar í síma 552 3721.
Verktaki í Keflavík sendir athugasemd til félagsmálaráðuneytis
Telur sig ekki hafa
sömu atvinnutækifæri
BJÖRN Blöndal verktaki hjá Vík-
ingaferðum sf. í Keflavík hyggst
leita lögfræðiaðstoðar þar sem
hann telur sig ekki sitja við sama
borð og Sérleyfísbifreiðir Keflavík-
ur, SBK, sem alfarið annast akstur
á vegum sveitarfélagsins.
Bjöm keypti eina hópbifreið af
SBK árið 1993 og er með hópferða-
leyfí. í september sama ár sendi
hann bæjarstjóm Keflavíkur síðan
erindi vegna þess að hann taldi sig
ekki njóta atvinnutækifæra til jafns
við SBK.
„Þar óska ég þess að fá að njóta
sömu fríðinda og Sérleyfísbifreiðir
Keflavíkur, SBK, sem bærinn á og
rekur. Bærinn kaupir allan akstur
af þeim og greiðir fyrir úr bæjar-
sjóði, svo sem skólaakstur og ann-
að. Eg ræddi einnig við skólastjór-
ann sem telur sig skuldbundinn til
þess að skipta við SBK,“ segir
Björn.
Erindi hafnað
Segir Björn bæjarráð hafa hafn-
að erindinu skriflega á þeim for-
sendum að þar sem bæjarsjóður
greiði alfarið eða að langstærstum
hluta kostnað vegna aksturs fyrir
stofnanir bæjarins beri þeim að
skipta við SBK.
I nóvember í fyrra sendi Björn
einnig erindi til nýrrar bæjarstjóm-
ar Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna
sama efnis. „Þar bið ég um að fá
verkefni hjá þeim, til dæmis ef
mikið er að gera hjá SBK; að ég
fái tækifæri sem undirverktaki á
álagstímum. Erindið er tekið fyrir
í bæjarráði, þar sem framkvæmda-
stjóri SBK á sæti, og vísað til al-
menningsvagnanefndar. Nefndin
svarar þannig að eðlilegt sé að
stofnanir bæjarins leiti til fyrirtæk-
is í eigu bæjarsjóðs, eða SBK,“
segir Björn.
Athugasemd til
félagsmálaráðuneytis
Bjöm sendi félagsmálaráðuneyt-
inu bréf þar sem beðið er um rann-
sókn og umsögn um meðferð bæj-
aryfirvalda og almenningsvagna-
nefndar á málefnum Víkingaferða.
I svari þess segir meðal annars að
ráðuneytið hafí ekki úrskurðarvald
um hvort samkeppnislög hafi verið
brotin. „Einnig segir að þótt fram-
kvæmdastjóri SBK hafr greitt at-
kvæði með fundagerðum almenn-
ingsvagnanefndar, telji ráðuneytið
að það brjóti ekki í bága við sveitar-
stjórnalög því ekki sé um að ræða
afgreiðslu á máli sem hann varðar
svo sérstaklega að ætla megi að
viljaafstaða hans mótist þar af,“
segir Björn.
Hann segir jafnframt að SBK
hafi keypt nýjar hópbifreiðir á und-
anfömum árum gegn bæjarábyrgð-
um og einnig hafí lánin verið boðin
út. „Eg veit að þeir eru að fara
að kaupa nýjan bíl og sendi inn ósk
fyrir bæjarábyrgð fyrir fjórar millj-
ónir því ég ætlaði að kaupa bíl með
lyftu fyrir fatlaða sem ekki er til
á svæðinu. Því var vísað til lög-
manns sem afgreiddi málið þannig
að ég hefði ekki nægt veð en ég
hafði tekið fram að ég myndi leggja
fasteign að veði. Ég sendi því bréf
til bæjarstjómar þar sem ég óska
eftir því að málið verði tekið upp
að nýju þar sem mér hafi ekki
gefíst kostur á að leggja fram
nægar tryggingar en því var hafn-
að. Ég sé ekki annað en að ég
verði að leita ráða hjá löglærðum
mönnum til þess að sjá hvað ég
get gert,“ segir Bjöm loks.
Deilt um aðgerðir í at-
vinnumálum í borgarsljórn
SJÁLFSTA^ÐISMENN gagnrýndu
meirihluta R-listans í borgarstjórn
harðlega fyrir aðgerðaleysi sitt og
vanefndir á kosningaloforðum í at-
vinnumálum, á fundi borgarstjómar
Reykjavíkur s.l. fimmtudag. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, vísaði gagnrýninni á bug og
sagði R-listann hafa sýnt frum-
kvæði í þessum málaflokki.
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, fullyrti að ein-
staklingum á atvinnuleysisskrá
hefði fjölgað um allt að 18% frá
því að R-listinn tók við völdum fyr-
ir réttu ári. Hann lýsti því yfir að
skýringar R-listans um að nýir hóp-
ar hafi komið inn á skrána, væru
marklausar. Árni sagði að 14. júní
í fyrra hafí 2.628 verið skráðir at-
vinnulausir í Reykjavík en væru nú
ríflega 3.100.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, vísaði fullyrðignum
sjálfstæðismanna um dugleysi á
bug. R-listinn hafí sýnt frumkvæði
í þessum málaflokki, stofnuð hafí
verið atvinnu- og ferðamálaskrif-
stofa, blásið hafí verið lífi í Aflvaka
og hlutafé aukið í Þórsbmnni,
hlutafélagi um útflutning vatns, svo
nokkuð væri nefnt. Hún benti á,
að skömmu eftir að R-listinn tók
við völdum hafí skráningarkerfi
atvinnulausra verið tölvuvætt og
þannig mættl búast við nákvæmari
skráningu, m.ö.o. væru tölur um
atvinnuleysi í ár og í fyrra ekki
fyllilega sambærilegar.
Betri tíð ekki í augsýn
Ingibjörg Sólrún sagði að kæmi
það í ljós að skýringar R-listans,
um að rekja megi fjölgun á atvinnu-
leysisskrá til skráningaraðferða,
ættu ekki við rök að styðjast, yrði
að draga í efa spár forsætisráð-
herra um að betri tíð væri framund-
an í atvinnumálum. Atvinnulausum
fjölgaði þannig þrátt fyrir að fram-
kvæmdaumsvif borgarinnar væru
heldur meiri í ár en á síðasta ári
og þrátt fyrir betri rekstrarafkomu
fyrirtækja...............-