Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 11
Formaður Alþýðubandalagsins í um-
ræðu um frumvarp um greiðsluaðlögun:
Þarf að standa
við stóru orðin
FRUMVARP um greiðsluaðlögun
kom til fyrstu umræðu á Alþingi á
fimmtudag, á síðasta starfsdegi
þingsins í vor. Frumvarpið er flutt
sameiginlega af öllum stjórnarand-
stöðuflokkunum og er samhljóða
frumvarpi sem Framsóknarflokkur-
inn flutti fyrir kosningar í vor.
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, - sagði að
Framsóknarflokkurinn hefði rætt
mikið um greiðsluvanda heimilanna
í kosningabaráttunni og gefið fyrir-
heit um aðgerðir, enda væri þarna
um brýnt vandamál að ræða sem
þegar þyrfti að taka á. Vitnaði hann
til ýmissa ummæla framsóknar-
manna í kosningabaráttunni um
þessi efni og sagði að nú reyndi á
hvort framsóknarmenn væru reiðu-
búnir til að lögfesta sinn eigin texta.
Til þess gæfist tími því í frumvarpi
þingmanna Framsóknarflokksins
væri gert ráð fyrir að lögin tækju
gildi 1. júlí í sumar. Nú væri tími
til að standa við stóru orðin, því
neyðarástand ríkti á heimilum í land-
inu vegna greiðsluerfiðleika.
Þarf að breyta
gjaldþrotalögum
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sagði að ákveðnir gallar væru
á frumvarpinu, þótt það væri gott.
Þannig þyrfti að breyta gjaldþrota-
lögum og öðrum lögum á sviði dóms-
málaráðuneytisins til þess að frum-
varpið næði tilgangi sínum. Því
þyrfti að koma til samstarf dóms-
mála- og félagsmálaráðuneytisins.
Þá væri frumvarpið einkum byggt á
sams konar lagasetningu í Svíþjóð
og nauðsynlegt væri einnig að skoða
lagasetningu í Noregi um þessi efni.
Málið væri brýnt og það yrði skoðað
í nefnd sem sett hefði verið á lagg-
irnar til að fara yfir þessi mál. Laga-
setning tæki tíma og ekki mætti
hrapa að neinu.
Iðgjöld viðlagatrygginga
Alagið áfram 10%
EFNAHAGS- og viðskiptanefnd
Alþingis leggur til að hætt verði
við að hækka álag á viðlagatrygg-
ingargjald í 20% næstu fimm ár
til að afla ofanflóðasjóði aukinna
tekna og varð frumvarpið þannig
breytt að lögum á síðasta starfs-
degi Alþingis á föstudag.
I staðinn er lagt til að hlutur
ofanflóðasjóðs í heildartryggingar-
iðgjöldum Viðlagatryggingar ís-
lands verði hækkaður um 3 pró-
sentstig úr 35% í 38% og að sú
ráðstöfun standi í sex ár en ekki
fimm eins og áður var fyrirhugað.
Samkvæmt þessu er áætlað að
heildartekjur Ofanflóðasjóðs á
næstu sex árum verði 1.446 millj-
ónir króna.
Alagið á viðlagatryggingagjald
verður áfram 10% eins og ákveðið
var með lagabreytingu fyrr í vetur
og er áætlað að það afli Öfanflóða-
sjóði 255 milljóna króna í tekjur á
næstu fimm árum.
Til viðbótar mun hlutur Ofan-
flóðasjóðs í iðgjöldum Viðlaga-
tryggingar nema 192 milljónum
króna á ári eða samtals um 1.152
milljónum króna á næstu sex árum.
Samanlagt verða því tekjur sjóðs-
ins 1.446 milljónir króna.
FRÉTTIR
! 5 ÍLC'Í , r, I S
i*®»| i
-'■
i
■ 'VÍ' - : - : i
HÁ birkitré láta víða á sjá í jaðri Aðaldalshrauns.
Sandskaflar
eyða birkiskógi
Laxamýri. Morgnnblaðið.
Landgræðslufulltruinn á
Húsavík, Guðrún Lára Pálma-
dóttir, gerði nú í vikunni úttekt
á ástandi gróðurs í mellöndun-
um inn af Skjálfanda ásamt
nokkrum starfsmönnum Land-
græðslunnar.
í fyrstu var svæðið vestan
Láxár skoðað og var að athugun
lokinni ákveðið að auka áætlað
áburðarmagn úr fjórum tonnum
í átta þar sem svæðinu hefur
lítið verið sinnt á undanförnum
árum nema að sáð var melgresi
í fyrra í allmarga hektara lands.
Víða hefur gróður rýrnað og
sandfok í ána hefur aukist eins
og fram kemur á loftmyndum.
Þá var ákveðið að sá grasfræi
með áburðinum til þess að þétta
gróðurþekjuna og mun það
verða gert með kastdreifara
þar sem svæðið er víða illt yfir-
ferðar vegna hraungijóts.
Að því loknu var skógarjaðar-
inn vestan Aðaldalsflugvallar
skoðaður og kannaðir þeir
sandskaflar sem eytt hafa stór-
um birkitrjám og hafið innreið
sína inn í algróðið land. Voru
menn sammála um að þarna
þyrfti að grípa til aðgerða til
þess að koma í veg fyrir þá
eyðingu sem hafin er á svæðinu.
Ljóst er að þarna er um veruleg-
an kostnað að ræða og munu
starfsmenn Landgræðslunnar
gera tillögur til úrbóta.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Þingsályktunar-
tillaga Alþingis
Förgun olíu-
borpalls harð-
lega mótmælt
ALÞINGI hefur samþykkt tillögu
til þingsályktunar þar sem harð-
lega er mótmælt ákvörðun breskra
stjórnvalda að leyfa Shell-olíufé-
laginu að sökkva olíuborpallinum
Brent Spar í Atlantshafið.
Þingsályktunartillagan hljóðar
svo í heild: „Alþingi ályktar að
mótmæla harðlega þeirri ákvörðun
breskra stjórnvalda að veita Shell-
olíufélaginu leyfi til að sökkva olíu-
pallinum Brent Spar með margvis-
legum eiturefnum í Atlantshafið.
Skorar þingið á bresk stjómvöld
að endurskoða ákvörðun sína og
koma í veg fyrir að olíumannvirkj-
um á bresku yfirráðasvæði í Norð-
ursjó verði fargað með þessum
hætti.“
/ ,r> » i i i < > » «ii i i i t «•• i, i .* i-—T---V1- \
/ ....................................
/ f 1 ...M
; f;;i
i - - 1
BESTU KAUPIN
-núna!
DAEWOO PENTIUM TÖLVUR
60Mhz, 8MB, 420MB, 14" kr. 139.900 stgr. m/vsk
75Mhz, 8MB, 420MB, 14" kr. 159,000 stgr. m/vsk
90Mhz, 8MB, 420MB, 14" kr. 169.900 stgr. m/vsk
lOOMhz, 8MB, 420MB, 14" kr. 189.000 stgr. m/vsk
• 8MB vinnsluminni • 420MB diskur E-IDE • 14" SVGA litaskjár
• PCI • Mús, motta, Dos og Windows.
UART 16550 alvöru rabtengi fyrir Intemetiö
DAEWOO 486/66 frá kr. 104.900 stgr. m/vsk
Úrval margmiðlunarpakka frá kr. 18.600 stgr. m/vsk
Hágæba bleksprautuprentar frá kr. 19.900 stgr. m/vsk
Mótöld frá kr. 14.900 stgr . m/vsk
Úrval aukahluta, frí uppsetning í nýjar tölvur
v!5T TENGT& T/LBÚ/Ð S
RAÐGREIÐSLUR ^§8^ Úppsetningaþjonusta EJS sS
EINAR). SKULASON H
Grensásvegi 10, Sími 563 3000