Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 12
12 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hátíðahöld á þjóðhátíðardeginum 17. júní með hefbundnu sniði í höfuðborginni
Miðbærinn
þungamiðja
hátíðahaldanna
HÁTÍÐARDAGSKRÁ þjóðhátíðar-
dagsins í Reykjavík verður með
hefðbundnum hætti fram að há-
degi. Forseti borgarstjórnar,
Guðrún Ágústsdóttir, leggur blómsveig frá
Reykvíkingum að leiði Jóns Sigurðssonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu og hefst at-
höfnin kl. 10.
Hátíðardagskrá við Austurvöll hefst kl.
10.40 með ávarpi formanns Þjóðhátíðar-
nefndar, Steinunnar V. Óskarsdóttur. Því
næst leggur forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, blómsveig frá íslensku þjóðinni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Davíð
Oddsson forsætisráðherra flytur ávarp. Fjall-
konan flytur ávarp sitt, Kvennakór Reykja-
víkur syngur og Lúðrasveitin Svanur leikur.
Skátar standa heiðursvörð að venju.
Klukkan 11.15 verður guðsþjónusta í
Dómkirkjunni. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir predikar, Dómkórinn syngur og Sigrún
Hjálmtýsdótt'r syngur einsöng.
Skrúðganga leggur af stað frá Hlemmi
kl. 13.30 og önnur frá Hagatorgi kl. .13.45.
Lúðrasveitir og skátar fara fyrir göngunum.
Skemmtidagskrá í miðbænum
Skemmtidagskrá hefst á þremur leiksviðum
í miðbænum kl. 14; á Ingólfstorgi, í Lækjar-
götu og í Hljómskálagarði. Fram koma ýms-
ir skemmtikraftar og listamenn. Einnig er
boðið upp á fjölmörg skemmtiatriði um allan
miðbæinn sem hátíðargestir geta tekið þátt
í og fylgst með. í Hallargarðinum og Hljóm-
skálagarðinum eru leiktæki og sýningaratr-
iði, árabátar og kanóar verða á Tjörninni
og Sautjánda júní lestin ekur um Vonar-
stræti. Götuleikhúsið fer um hátíðarsvæðið,
Brúðubíllinn sýnir við Tjarnarborg, teikni-
listaverk verða í Austurstræti, Forn-
bílaklúbburinn verður með sýningu í Vonar-
stræti og þannig mætti lengi telja. í Tjarnar-
sal Ráðhússins verður kórsöngur, óperusöng-
ur og fleira.
Uppákomur víðs vegar
um bæinn
Á Kjarvalsstöðum verður opnuð sýningin
íslensk myndlist kl. 14. Á sama tíma hefst
sérstök dagskrá í Árbæjarsafni, þar sem ljós-
myndari mun taka gamaldags svarthvítar
myndir af þeim gestum sem þess óska og
kynning verður á þjóðbúningum og búninga-
silfri. Eldri borgarar gera sér glaðan dag á
Hótel íslandi milli kl. 14 og 18. í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal
verður ýmislegt til skemmtunar og dagskrá-
in hefst kl. 15. Trúðar, tröll og eldgleypar
verða á staðnum, Furðuleikhúsið verður með
sýningu kl. 16 og farið verður í skrúðgöngu.
Þá mun Trítiltoppur heimsækja barnadeildir
Landakots- og Landspítala.
Við höfnina, á miðbakka eru sælífsker,
árabátur, eimreið og leiktæki og þar er úti-
vistartjald, þar sem hægt er að setjast niður
og borða nestið sitt. Þá er sýningin ísland
og hafið í Hafnarhúsinu og er hún opin
milli 13 og 17.
Kvölddagskrá í miðbænum
Um kvöldið verður skemmtun á tveimur
sviðum í miðbænum. Á Ingólfstorgi verða
gömlu dansarnir stignir fram eftir kvöldi en
rokkið tekur við um miðnætti. í Lækjargötu
verða tónleikar vinsælla hljómsveita. Á báð-
um stöðum lýkur dagskrá kl. 2 eftir mið-
nætti. Strætisvagnar Reykjavíkur verða með
ferðir úr miðbænum að skemmtun Iokinni.
Hafnarfj örður
Hafnfirðingar hefja hátíðarhöld kl. 8 þegar
skátar draga fána að húni. Dagskrá hefst í
Hellisgerði kl. 13 og þaðan fer skrúðganga
af stað kl. 13.45. Gengið verður upp Reykja-
víkurveg, inn Hraunbrún og inn á Víðistaðat-
ún.
Hátíðarsamkoma verður sett á Víðistaða-
túni kl. 15. Hátíðarræðu flytur Lúðvík Geirs-
son og fjallkonan flytur ávarp.
Kvöldskemmtun í miðbæ Hafnaríjarðar
hefst kl. 20.30 og þar munu koma fram
Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Pez, Stólía, Botn-
leðja, Laddi, Bubbleflies og Svala Björgvins-
•dóttir, Radíusbræður og Jet Black Joe. Á
Ráðhústorgi verða gömlu dansarnir stignir
frá kl. 21 við undirleik Guðmundar Stein-
grímssonar og félaga.
Garðabær
Hátíðahöldin í Garðabæ eru í umsjá skátafé-
lagsins Vífils. Við Garðabæjarhöfn verður
boðið upp á útsýnissiglingu og koddaslag
milli 9.30 og 11.30. Fjársjóðsleit verður við
skátaheimilið milli 10 og 12 og á sama tíma
verður gróðursetning í Sandahlíð í umsjón
Skógræktarfélags Garðabæjar.
Hátíðarstund verður í Vídalínskirkju kl.
13 og skrúðganga leggur af stað þaðan kl.
13.30. Sigrún Gísladóttir forseti bæjarstjóm-
ar setur hátíðina við Flataskóla kl. 14. Fjall-
konan flytur ávarp og Lúðrasveit Garðabæj-
ar leikur. Ymiss skemmtiatriði verða við
Flataskóla og Garðaskóla milli 14.30 og 16.
Kaffihlaðborð Kvenfélags Garðbæjar
verður í Garðalundi kl. 15 og skemmtun
verður í íþróttamiðstöðinni milli 16 og 17.
Hátíðahöldum dagsins lýkur með diskóteki
fyrir yngstu kynslóðina sem haldið verður í
Garðalundi kl. 20.30 og stendur það til kl.
22.30.
Seltjarnarnes
Skrúðganga leggur af stað frá dælustöðinni
við Lindarbraut kl. 13.30. Gengið verður upp
Hofgarða, eftir göngustígum Strandahverfis
og niður Nesveg að Eiðistorgi.
Hátíðin verður sett kl. 14 á Eiðistorgi.
Þar mun Lúðrasveit Seltjarnamess flytja
ættjarðarlög og fjallkonan flytur ávarp. Sel-
kórinn mun syngja nokkur lög og leikþátt-
urinn Mókollur á þjóðhátíð verður fluttur
kl. 14.45. Sýndir verða fimleikar og Brass-
bandið kemur fram. Hátíðinni verður slitið
kl. 15.30, en kl. 22 hefst ball á Eiðistorgi.
Kópavogur
Hátíðahöldin í Kópavogi hefjast með því að
skólahljómsveit Kópavogs leikur við Kópa-
vogshælið og á sama tíma hefst víðavangs-
hlaup fyrir 16 ára og yngri við Vallargerði-
svöll. Áð því loknu verða verðlaun afhent
klukkan 11 á Rútstúni.
Eftir hádegi fer skrúðganga frá Mennta-
skólanum í Kópavogi klukkan 13.30 áleiðis
á Rútstún. Skólahljómsveit Kópavogs og
skátar fara fyrir göngunni. Á milli 14 og
18 verður útihátíð á Rútstúni og meðal efn-
is verða ræðuhöld og kórsöngur, ávarp fjall-
konunnar, danssýning barna, Spaugstofan
verður með skemmtiatriði og fluttur verður
leikþáttur um Línu langsokk. Þá spila þrjár
hljómsveitir, tívolí verður á staðnum, félaga-
samtök verða með veitingasölu, Hjálparsveit
skáta verður með hjólarall, fjársjóðsleit og
fleira og félagar úr Leikfélagi Kópavogs
verða með götuleikhús. Klukkan fimm verð-
ur síðan knattspyrnuleikur á Kópavogsvelli.
Mosfellsbær
Skrúðganga heldur frá íþróttahúsinu kl. 14
og setning hátíðardagskrár verður við úti-
svið kl. 14.20. Þar verða fluttar hátíðarræð-
ur og menningarverðlaun Mosfellsbæjar
verða afhent.
Boðið verður upp á skoðunarferðir um
Mosfellssveit og fara rútur frá Álafossvegi
kl. 15, 16 og 17. Hátíðardagskrá stendur
fram eftir degi og ýmislegt verður á döf-
inni; spákona, tívolí, andlitsmálun, reiptog
ofl.
Sigrún Hjálmtýsdóttir kemur fram í
Teppasal í Álafosskvos kl. 21 og karaokee-
keppni verður á útisviði. Sniglabandið tekur
við kl. 21 og dagskrárlok verða kl. 2.
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á áttatíu og tveimur stöðum á landinu á morgun
Fundur um
15 þúsund konur
skráðar í hlaupið
KVENNAHLAUP ÍSÍ er orðinn ár-
legur viðburður í íslensku íþróttalífi.
Næstkomandi sunnudag kl. 14.00
hlaupa konur af stað víðs vegar um
landið en stærsta hlaupið er í
Garðabæ.
Þátttaka í Kvennahlaupinu hefur
aukist ár frá ári. í fyrra hlupu
13.800 konur og í ár hafa 15.000
konur þegar skráð sig. Vonast að-
standendur hlaupsins til þess að
fjöldinn verði ekki undir 16.000
þetta árið. Þær konur sem ekki hafa
skráð sig en langar að hlaupa með
geta skráð sig sama dag og hlaupið
fer fram. Fyrir fimm árum, þegar
hlaupið var fyrst haldið, fór það fram
í Garðabæ og á 7 stöðum víðs vegar
um landið en nú eru staðirnir orðnir
82.
íslenskt kvennahlaup
í útlöndum
Nú ber svo við að íslenskar konur
í útlöndum munu ekki láta sitt eftir
liggja þrátt fyrir fjarlægðir frá
Fróni. Þannig hlaupa íslenskar kon-
ur m.a. í Danmörku, Svíþjóð og
Færeyjum. Leikhópurinn Perlan er
staddur í Belgíu og ætla leikkonur
hópsins að hlaupa þar. Allar íslensku
konumar sem búsettar eru í Namíb-
íu ætla að hlaupa. Hópur þarlendra
kvenna er reyndar heillaður af uppá-
tæki íslensku kynsystra sinna og
ætlar að slást í hóginn.
íþróttasamband ísland stóð fyrir
fyrsta kvennahlaupinu árið 1990.
Þremur árum síðar voru landssam-
tökunum íþróttir fyrir alla falin
framkvæmd hlaupsins en markmið
samtakanna var að auka þátttöku
landsbyggðakvenna.
Kvennahlaupið á sér skandínav-
íska fyrirmynd en markmið þess er
að efla þátttöku kvenna í almenn-
ingsíþróttum og hvetja þær til að
ástunda holla lífshætti, segir Helga
Guðmundsdóttir _ framkvæmdastjóri
Kvennahlaups ÍSÍ. Fyrirkomulag
hlaupsins virðist þjóna markmiði
þess vel, eins og þátttakan sýnir,
enda geta bæði byrjendur og þær
sem eru lengra komnar fundið vega-
lengdir við hæfi, segir Helga enn-
fremur.
Morgunblaðið/Sverrir
UNGAR OG gamlar, byrjendur og þrautþjálfaðar, í borg og
sveit taka konur út um allt land þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ.
Alþjóðahval-
veiðiraðið
ALMENNUR opinn fundur verður
haldinn mánudaginn 19. júní nk. á
Grand Hótel kl. 20.30 á vegum Sjáv-
amytja og Lífs og lands. Fundarefn-
ið er Alþjóðahvalveiðiráðið og starf
samtakanna framundan.
Þá mun Þórður Hjartarson, full-
trúi samtakanna á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Dublin, fjalla um
fundinn og sjónarmið þeirra sem
standa með okkur í baráttunni fyrir
því að sjálfbær nýting náttúruauð-
linda njóti skilnings almennings og
stjórnvalda sem víðast í heiminum,
segir í fréttatilkynningu frá stjórn
Sjávamytja.
------»■■♦ ♦---
Nýr sveitar-
stjóri í Grund-
arfirði
Grundarfirði. Morgunblaðið.
BJÖRG Ágústsdóttir lögfræðing-
ur verður ráðin sveitarstjóri í
Grundarfirði frá 15 júlí nk. Hún
kemur í stað Magnúsar Stefánsson-
ar, sem kosin var á þing í Alþingis-
kosningunum nú í vor. Björg starf-
aði áður sem fulltrúi sýslumannsins
í Snæfellsnessýslu.