Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 14
14 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikskólar bindast
vináttuböndum
ÞAÐ VAR vinalegt andrúmsloft í leikskólanum Hlíðabóii í gær,
þegar leikskólarnir Klappir, Holtakot og Hlíðaból bundust vin-
áttuböndum. Þá var skjalfest framtíðarsamvinna leikskólanna,
samstarf barnanna, samvinna starfsfólks og foreldrafélaga og
samnýting búnaðar og kennslutækja. Léku krakkarnir af öllum
leikskólunum sér saman og virtist vináttan fara vel af stað.
Átta þúsund í
Laufás í fyrra
GAMLI bærinn í Laufási var opn-
aður fyrir ferðamönnum 1. júní
og hefur þegar töluverður fjöldi
lagt þangað leið sína, en síðastlið-
ið sumar lögðu rúmlega átta þús-
und manns land undir fót til að
skoða kirkjuna og bæinn.
Um þessar mundir er verið að
endurbyggja hluta bæjarins, en
auk þess er áætlað að þök bæjar-
ins verði lagfærð í sumar. Um-
hverfi kirkjunnar hefur verið tekið
í gegn og er keppst við að hafa
sem snyrtilegast kringum staðinn.
Boðið upp á kaffi og kleinur
Aðstaða er fyrir ferðafólk að
setjast við borð á bæjarhlaðinu,
þiggja hressingu og njóta um leið
útsýnisins yfir Laufásshólmana og
út á Eyjafjörð.
Eins og undanfarin tvö sumur
verður gestum boðið að kaupa sér
kaffi og kleinur gegn vægu verði
og börnum boðið upp á ávaxta-
safa. Þegar stærri hópar eru á
ferð er betra að tilkynna komu
sína fyrirfram og auk þess er
hægt að óska eftir baðstofusöng
tveggja ungra stúlkna, sem sitja
þá uppáklæddar við vinnu sína og
syngja íslensk lög og sálma.
Laufásbær og kirkjan verða
opin alla daga í sumar frá kl.
10-18 eða allt til 15. september.
Aðgangseyrir fyrir einstaklinga
eldri en tólf ára er 200 kr., en
hópum er veittur afsláttur.
Fólk að norðan
fer í störfin
STEFNT er að því að Umbúðamið-
stöðin hf, sem verður til húsa á
tveimur neðstu hæðum Linduhúss-
ins gamla, flytji hluta af starfsemi
sinni norður með haustinu eða um
leið og húsnæðið verður tilb'úið.
„Þetta verður sjálfstæð fram-
leiðslulína," segir Bjarni Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri Sölumið-
stöðvarinnar.
Þrjátíu starfsmenn verða
hjá fyrirtækinu á Akureyri
„Helmingur af vinnslulínu fyrir-
tækisins verður fluttur norður. Við
reiknum með að það verði að
mestu leyti ráðið fólk fyrir norðan
til þessara starfa og þá um fimmt-
án til sextán manns.“
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu fyrr í þessari viku er búist
við að Sölumiðstöð Hraðfrystihús-
anna flytji norður í lok ágúst, en
hún verður til staðar á þriðju hæð
Linduhússins gamla. Búist er við
að fyrirtækið muni hafa um þijá-
tíu starfsmenn í þjónustu sinni á
Akureyri, þar af að minnsta kosti
tuttugu og einn sem þegar eru
starfsmenn SH og flytjast búferl-
um til Akureyrar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
FRAMKVÆMDÍR standa nú yfir við gamla Linduhúsið.
Glæsilegt
skemmti-
ferðaskip
EITT glæsilegasta skemmti-
ferðaskip í heimi, Royal Viking
Sun, lagðist að höfn á Akureyri
í gær, en það fær hæstu einkunn
í nýútkominni yfirlitsbók yfir
skemmtiferðaskip um allan heim.
Ekki er nóg með að skipið sé
glæsilegt heldur er þetta lengsta
skip sem tekið hefur verið að
bryggju á Akureyri eða 204
metrar að lengd.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frosti hf. festir
kaupá
SAMNINGAR voru undirritaðir
7. júní síðastliðinn vegna kaupa
útgerðarfélagsins Frosta hf. á
Grenivík á togaranum Jóhanni
Gíslasyni af Útgerðarfélagi Akur-
eyrar. „Við gerðum þetta til að
styrkja stöðu okkar,“ segir Jakob
Þorsteinsson skipstjóri, en Frosti
hf. seldi togarann Frosta ÞÁ 229
togara
í lok mars. „Við fáum rétt um
átta hundruð þorskígildistonn með
togaranum og tvöföldum þannig
kvótann.“ Frosti hf. mun verða
áfram í samstarfi við Útgerðarfé-
lag Akureyrar, sem byggist á því
að togarinn mun landa þar og síð-
an verður hluta aflans ekið til
vinnslu á Grenivík.
Fimmtán fulltrúar frá Norðurlöndunum á samstarfsfundi á Akureyri
Framtíð Mennta-
smiðjunnar óviss
Linda flyt-
ur suður í
september
STARFSEMI Sælgætisgerðarinn-
ar Lindu verður flutt suður í sept-
ember, þar sem hún verður sam-
einuð rekstri Sælgætisgerðarinnar
Góu. Ástæðuna segir hann vera
þá að Metró hafí sagt upp leigu
Lindu fyrir norðan og bætir'við:
„Stefnir ekki allt í átt að samruna
í þjóðfélaginu."
Það eru tólf manns sem vinna
hjá fyrirtækinu fyrir norðan og
verður þeim sagt upp vegna flutn-
inganna. „Þeir fá auðvitað sinn
löglega uppsagnarfrest. Það verða
sumir á launum til áramóta,“ seg-
ir Helgi.
UM ÞESSAR mundir eru fímmtán
fulltrúar frá Norðurlöndunum
staddir á Akureyri á samstarfsfundi
samnorræna verkefnisins „Voks
nær“. Jafnframt munu þeir kynna
sér framkvæmd verkefnisins hér á
landi.
Menntasmiðja kvenna á Akureyri
var skipuð samstarfsaðili í verkefn-
inu fyrir íslands hönd af mennta-
málaráðuneytinu fyrir rúmu ári.
Starf hennar hefur síðan falist í því
að innleiða lýðháskólanám á íslandi
og reyna jafnframt að tengjast öðr-
um menntastofnunum, t.d. Tölvu-
fræðslunni.
Verkefnið „Voks nær“ er í umsjá
Norræna lýðháskólans í Gautaborg
og fjármagnað af Norrænu ráð-
herranefndinni. Höfuðmarkmið’
verkefnisins er að finna nýjar leiðir
í fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum,
meðal annars til þess að bæta
möguleika atvinnulausra á vinnu-
markaðnum og jafnframt auka
möguleika fólks sem þegar er á
vinnumarkaðnum til að festa sig
þar í sessi.
Öflugast í Svíþjóð og
Danmörku
Undanfarið eitt og hálft ár hafa
fulltrúar verkefnisins á Norðurlönd-
unum kynnt sér framgang þess í
hveiju landi fyrir sig og er Island
síðasta landið sem þeir heimsækja.
Þannig er ætlunin að miðla reynsl-
unni af ólíkum leiðum á milli landa
eða eins og Sturla Bjerkaker verk-
efnisstjóri segir: „Norðurlöndin eru
nógu lík til að skilja hvert annað,
en líka nógu ólík til að hafa eitt-
hvað til að tala um.“
Starf samstarfshópsins hefur
verið hvað öflugast í Svíþjóð og
Danmörku. Sænska verkefnið
„Námskeðjan" er í Norrköping og
miðast við að mennta ófaglærða eða
þá sem ekki hafa lokið grunnskóla-
prófí, en eru með vinnu. Þannig
aukast líkur þeirra á að halda sér
á vinnumarkaðnum. Feijuferðir
munu að mestu leggjast niður í
Korsör í Danmörku eftir byggingu
Stórabeltisbrúarinnar. Þar er því
unniðað því að mennta ferjufólkið
áður en það missir vinnuna, svo það
verði betur undir það búið að finna
sér nýja atvinnu.
„Stjórnvöld eru að vakna til með-
vitundar um mikilvægi fullorðins-
menntunar,“ segir Valgerður
Bjarnadóttir, jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúi Akureyrarbæjar. Til marks
um það má nefna að Menntamála-
ráðuneytið hefur ákveðið að styrkja
Menntasmiðju kvenna sem þróunar-
verkefni tvö næstu skólaár og verja
til þess allt að þremur milljónum
króna á hvoru ári, að því tilskildu
að Félagsmálaráðuneytið og Akur-
eyrarbær geri slíkt hið sama. „Við
erum komin með vilyrði frá Akur-
eyrarbæ, en svar á eftir að berast
frá Félagsmálaráðuneytinu. Við vit-
um því ekki enn hvort Menntasmiðj-
an lifir eða deyr,“ segir Valgerður
að lokum.