Morgunblaðið - 17.06.1995, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
fcv'- ' * Mfr,, ■' mm
HVSraf - >• 1 í* í k
1 J ff| |É
i 1 s y $ -
1 \ 1 Pl Wi K í ■ ‘
/ f,: § Já " ,Y,^. J ^ {•] gk • 1
Morgunblaðið/Ámi Helgason
NEMENDUR10. bekkjar sem útskrifuðust frá Grunnskólanum í Stykkishólmi.
Umræða um stofn-
un öldungadeildar
Stykkishólmi - Um 50 manns
mættu á fund til umræðu um að
stofna til öldungadeildar við
Grunnskólann í Stykkishólmi. Á
fundinum mættu gestir frá Fjöi-
brautaskóla Akraness, Eiríkur
Guðmundsson aðstoðarskóla-
meistari og Helga Guðmundsdóttir
námsráðgjafi við sama skóla.
Eiríkur kynnti möguleikana á
að koma þessari deild á hér í
Hólminum og hversu margt þyrfti
að athuga áður en til úrslita kæmi
í þessu máli. Hann sagði að nú
væri verið að hætta við öldunga-
deildina á Akranesi, og gæti það
að sínum dómi komið til mála að
koma slíkri deild upp við skólann
hér. Að dómi þeirra sem sóttu
fundinn virtist mestur áhugi fyrir
að koma upp kennslu á sjúkraliða-
braut og nokkrar konur væru þess
fýsandi að sækja þann skóla nú,
eða deild sem yrði stofnuð hér.
Skólalok
í Stykkis-
hólmi
Stykkishólmi - Grunnskólanum í
Stykkishólmi var slitið miðviku-
daginn 31. maí. í ræðu skóla-
stjóra kom fram að skólastarfið
gekk vel í vetur ef undan er
skilið kennaraverkfall sem setti
mjög strik í reikninginn.
Nemendur í grunnskólanum í
vetur voru 245. Framhaldsdeild
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
var starfrækt í vetur eins og
undanfarin ár. Á fyrri önn
stunduðu 48 nemendur nám í
framhaldsdeild og 39 nemendur
á þeirri seinni og er það betri
aðsókn en oft áður. Því voru í
skólanumum 290 nemendur og
starfsfólk um 37.
Nemendur komu nú í fram-
haldsdeild frá Grundarfirði.
Þeim var ekið daglega á milli
og gekk það vel á meðan tíðar-
farið var gott. Það komu kaflar
í vetur hér eins og annars stað-
ar og erfitt var að fara á milli.
Verið er að kanna hvort mögu-
leiki sé að hafa heimavist fyrir
aðkomunemendur í framhalds-
deild.
Margir gestir heimsóttu skól-
ann í vetur. Ræddu þeir m.a.
um elstu nemendur grunnskól-
ans og skaðsemi reikinga og
annarra vímuefna. Búnaðar-
bankinn sá um fjármálanám-
skeið og verða slík námskeið
árlega hjá 9. bekk.
Skólastjóri Grunnskólans í
Stykkishólmi er Gunnar Svan-
laugsson og aðstoðarskólastjóra
Eyþór Benediktsson.
Vatna-
vextir í
Hrafnkelu
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
NORRÆNIR skógræktarmenn í Guttormslundi í Hallormsstað.
Norrænir skógræktarmenn
funda á Hallormsstað
Egilsstöðum - Um 30 manns
funduðu á Hallormsstað á árlegum
samstarfsfundi norrænna skóg-
ræktarmanna.
Fundur þessi er haldinn í fyrsta
skipti á íslandi en hann hefur hing-
að til verið haldinn til skiptis á hin-
um Norðurlöndunum. Þema fundar-
ins er „Innfluttar tjátegundir -
ógnun eða ávinningur“ og þykir
viðeigandi að halda fund um þetta
málefni hér á landi þar sem íslend-
ingar hafa meiri reynslu af notkun
erlendra tijátegunda en aðrar Norð-
urlandaþjóðir sem byggja sína rækt
á eigin tegundum.
Um 20 sérfræðingar sem sitja
fundinn koma frá hinum Norður-
löndunum en fjórir íslenskir sér-
fræðingar í þessum málum sitja
ráðstefnuna. Að sögn Þrastar Ey-
steinssonar tijákynbótafræðings
og fagmálastjóra Skógræktar rík-
isins, er mikill ávinningur fyrir ís-
lendinga að taka þátt í svona ráð-
stefnu. Þar hitta þeir norræna kol-
lega sína sem eru að vinna að svip-
uðu.
Auk þess opna slík samstarfs-
verkefni möguleika á frekara sam-
starfi sem hugsanlega getur notið
stuðnings úr norrænum vfsinda-
sjóðum. Ráðstefnan fer fram á
ensku og er ekki opin almenningi.
Vaðbrekku. Morgunblaðinu.
ÁIN Hrafnkela í Hrafnkelsdal
mældist í vatnavöxtunum nú
vatnsmeiri en hún hefur nokkurn
tíma áður mælst.
Fréttaritari hitti að máli þá Óla
Grétar Sveinsson og Karl Jensen
Sigurðsson þar sem þeir voru að
rennslismæla Hrafnkelu við beitar-
húsin Þórisstaði í Hrafnkelsdal.
Að sögn Óla Grétars er mikill
munur á vatnsmagni Hrafnkelu
eftir árstíðum og sem dæmi um
það fer rennsli á vetuma ofan í
nánast ekki neitt og hefur mælst
allt niður í 0,9 rúmmetra á sek-
úndu þegar það hefur mælst
minnst. Núna mældist rennslið 103
rúmmetrar á sekúndu sem er
jafnmikið rennsli og jafnan í vor-
flóðum. En í flóðunum fyrr í vik-
unni mældist það 140 rúmmetrar
á sekúndu sem er mesta rennsli
sem mælst hefur í ánni frá því
mælingar hófst um 1970.
BEINT
LEIGUFLUG
TIL BILLUND
DANMÖRK
Kr 30.900*
FL0GIÐ ALLA MIÐVIKUDAGA í
SUMAR.
Barnaafsláttur kr. 9.000
*Verð pr. mann, flug og
flugvallaskattar.
Flug og farfugla-
heimili í BILLUND
Ódýrt og þægilegt.
Kr30.640*
Verð á mann miðað við
2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11
ára. Innifalið flug, gisting á
farfuglaheimili í Billund í eina
viku og öll flugvallagjöld.
R SUMARS
SUMARHUS I DANMÖRKU
RIBE
Sumarleyfisparadís með ótal
möguleika.
Kr 44.925*
'Staögreiðstuverð á mann miðað víð 2 fullorðna
og 2 taðrn, 2ja-11 ára, í 2 vikur I júll-12. ágúst.
Innilallð flug til Billund, Ibúð A1, ferð til og frá
llugvelli erlendis og öll flugvallagjöld.
KOLDING
Glæsiíbúðir í miðjum bæ.
Kr 46.370*
'Staðgrelðsluverð mlðað við 4 i Ibúð A4,2 fullorðna
og 2 börn 2ja—11 ára í 2 vikur í |úll.
Innilalið flug til Billund, fbúð, ferð til og frá flugvelli
og öll llugvallagjöld.
FLUG 0G BILL
BILLUND - ÖRSTUTT í LEG0LAND
Kr. 32.750*
‘Staðgreiðsluverð miðað við 4 í bíl í A-flokki, 2 fullorðnir og 2 börn,
2ja—11 ára. Innifalið flug til Billund, bíll I A-flokki í 2 vikur,
ótakmarkaður km. fjöldi og flugvallagjöld.
KAUPAMANNAHÖFN
Tívolí, Bakkinn-verðandi menningarborg Evrópu.
Kr. 34.820*
Staðgreiðsluverð miðað við 4 í bíl f A-flokki, 2 fullorðna og 2 börn
2ja—11 ára. Innffalið flug til Kaupmannahafnar, bíll I A-flokki f 2 vikur,
ótakmarkaður kmfjöldi og flugvallagjöld.
FERÐASKRIFSTOFAN
SIMI 565 2266