Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 17
Tebar hjá NLFÍ
Morgunblaðið/Helga Björg Óskarsdóttir
Hólmþór Morgan, hönnuður
hússins, klippti á borðann við
vígslu nýja golfskálans.
Hveragerði - Á Heilsustofnun Nátt-
úrulækningafélags íslands, Hvera-
gerði, hefur undanfarið verið unnið
ötullega að ýmsum breytingum á
innra starfi stofnunarinnar. Einn lið-
ur í þeim breytingum er opnun á
tebar í matsal stofnunarinnar. Á te-
barnum eru nú þegar 30-35 tegund-
ir af tei og fleiri eru væntanlegar á
næstunni.
Á tebarnum er einnig fáanleg te-
blanda hússins sem er sérblönduð
úr um 20 jurtategundum af yfirmat-
reiðslumanni HNLFI, Francois Fons.
Sú teblanda verður á boðstólum í
sumar en önnur er betur hentar vetr-
artímanum verður blönduð í haust.
Guðmundur Bjömsson, yfirlæknir
HNLFÍ, sagði starfsfólk stofnun-
arinnar um árabil hafa tínt fjallagrös
og aðrar jurtir til notkunar í te. „Frá
gamalli tíð hefur fólk lengi haft trú
á notkun jurtaseyðis í lækningaskyni
og getum við sagt að jurtaseyðið sé
viðbót við þær hefðbundnu lækning-
ar sem notaðar eru á Heilsustofnun-
inni. Með því að bjóða uppá ýmiss
konar grasaseyði erum við einnig að
halda í þær hefðir sem fmmkvöðlar
NLFI, Jónas Kristjánsson læknir og
fleiri sköpuðu á upphafsárum stofn-
unarinnar."
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
GUÐMUNDUR Bjarnason, yfirlæknir og Francois Fons,
matreiðslumeistari, skála í heilsutei í byijun dags.
Nýr golf-
skálií
Sandgerði
Sandgerði - Fyrir skömmu var
vígður nýr golfskáli í Vallarhúsum
í Sandgerði. Húsið er teiknað af
Hólmþóri Morgan og er 218 fm
að flatarmáli.
í húsinu er búningsaðstaða fyrir
karla og konur, snyrtiaðstaða fyrir
bæði kynin, herbergi fyrir stjóm
og nefndir klúbbsins, þá er einnig
gott eldhús og veitingaaðstaða.
Kostnaður er komin í þrettán millj-
ónir. Er þá ótalin 3.000 stunda
sjálfboðavinna klúbbfélaga en um
20 manns komu að verkinu þó
vinnan hafi aðallega hvílt á herðum
6 manns.
Bæjarfélagið hefur lagt sitt af
mörkum en golfklúbburinn hefur
fengið 15 milljóna króna lán, sem
greiðist á 5 árum, til uppbyggingar
svæðisins.
Golfklúbbur Sandgerðis, GSG,
var stofnaður árið 1986 og hafa
stofnfélagar unnið sleitulaust síðan
að uppbyggingu vallarins. Golfvöll-
urinn, sem hannaður er af Hann-
esi Þorsteinssyni, golfvallahönn-
uði, er níu holu völlur og stendur
hann á sjávarkambinum í fallegu
umhverfi og er orðinn mjög góður.
Félagar í GSG telja nú um hundr-
að manns og er félagsstarfið mjög
öflugt enda öll aðstaða orðin frá-
bær.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Kross
gefinn
Egilsstaða-
kirkju
EGILSSTAÐAKIRKJU hefur verið
gefinn kross sem settur var á turn
kirkjunnar nýverið. Það er Gunn-
þóra Björnsdóttir sem gefur kross-
inn til minningar um eiginmann
sinn, Harald Gunnlaugsson. Kross-
inn er smíðaður úr ryðfríu stáli af
Vélaverkstæðinu Víkingi og ljósa-
búnaður er unninn af Rafverkstæði
Sveins Guðmundssonar.
Aukabúnaður á mynd álfelgur, aukaljós, samlitir stuðarar
RENAULT CIÍO RN MARGVERÐLAUNAÐUR
ÞÆGILEGUR, SNARPUR OG SPARNEYTINN
5 DYRA Á VERÐI FRÁ KR 1.049.000 Á GÖTUNA
REYNSLUAKTU RENAULT
ÞAÐ ER VEL ÞESS VIRÐI
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR • ÁRMÚLA 13
SÍMI: 568 1200 • BEINN SÍMI: 553 1236
RENAULT