Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
ANNA María Helgadóttir, Þorgrímur og Sigríður
hjá sunnudagstertunum.
Þingeysk ferðaþjónusta
Blóm, grænmeti,
gisting og tertur
Laxamýri. Morgunblaðið.
Sumarhátíð í Vestur-
Húnavatnssýslu
FERÐAÞJONUSTAN í Heiðarbæ í
Reykjahverfi er tekin til starfa. Er
sem fyrr í boði gisting og matur
fyrir ferðafólk og sundlaugin laðar
og til sín marga gesti. Alla sunnu-
daga er tertuhlaðborð og er vin-
sælt að drekka þar kaffi, fara í
sund og heita potta.
Það eru Þorgrímur J. Sigurðsson
bóndi að Skógum II og kona hans
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FERÐAMÁLARÁÐ íslands hef-
ur verið á fundaferð um landið til
að kynna m.a. starf þess, ræða
horfur og starfsemina í Evrópu.
Frummælendur voru Magnús Odds-
son, ferðamálastjóri, og Dieter Jó-
hannsson, forstöðum. skrifstofu
Ferðamálaráðs í Frankfurt.
Sigríður Hjálmarsdóttir sem eru með
húsið á leigu og hafa aðstoðarfólk
úr hreppnum. Góð aðsókn hefur
verið síðan opnað var enda hefur
veður verið gott og sólin leikið við
hvem sinn fíngur. Þá er stutt í Garð-
ræktarfélag Reykhverfínga þar sem
ferðafólk getur keypt sér grænmeti
á heildsöluverði. Mikil blómasala
hefur verið eftir að hlýnaði.
Fundurinn var ágætlega sóttur
og vakti erindi Magnúsar athygli
fundarmanna, er hann sýndi mönn-
um að umferð ferðamanna hefur
minnkað á Austurlandi s.l ár. Þótti
mönnum það sæta furðu því 4%
allra koma um Austurland, með
ferjunni Nörronu.
l^aldstæði og
hestaleiga í
Viðey
Á LAUGARDAG kl. 14.15 verður
hálfs annars tíma gönguferð á norð-
urströnd Viðeyjar. Farið verður frá
kirkjunni. Á sunnudag verður stað-
arskoðun heima við kl. 15.15. Veit-
ingar seldar í Viðeyjarstofu. Báts-
ferðir eru báða dagana kl. 13.
Tjaldstæði eru nú leyfð í Viðey
og eru einkum ætluð fjölskyldufólki.
Staðarhaldari og ráðsmaður taka á
móti pöntunum. Hestaleiga er einnig
tekin til starfa.
í fréttatilkynningu er minnt á að
enda þótt helgardagskráin verði ekki
hluti lýðveldishátíðahaldanna tengist
Viðey sjálfstæðisbaráttunni og sé því
kjörið að leita þangað á þjóðhátíð.
---------------
Kynningarfundur
Göngugarpa
GÖNGUGARPAR hyggjast halda
kynningarfund um fyrirhugaðar
gönguferðir um Norður-írland sem
verða 15.-22. ágúst og í Dólómítun-
um 22. ág.-2. sept. Fundurinn verður
19. júní kl. 20.30 að Hávallagötu 24,
í húsnæði Búseta.
Gönguklúbburinn var stofnaður
fyrir 3 árum og hefur verið farið í
gönguferðir til Majorka og um Vest-
firði. Meginmarkmið hans eru
gönguferðir og náttúruskoðun.
Áhersla er lögð á að kynnast fáförn-
um stöðum og lítt snortinni náttúru
og fara um fomar leiðir.
í nýútkomnu fréttabréfí er sagt
nánar frá þessum ferðum, svo og
öðrum sem eru fyrirhugaðar. Upp-
selt er í gönguferð um Vestfirði um
verslunarmannahelgina en hægt að
skrifa sig á biðlista. Þá er á döfínni
gönguferð til Majorka í haust.
SUMARHATIÐ V-Húnvetninga
Bjaiiar nætur er hafin og stendur
til 9. júní og eru hvers kyns
skemmtanir, hestamót, ferðir og
sýningar á dagskrá.
Ætlunin er að gera hátíðina að
föstum lið á þessum árstíma.
Má nefna nokkur atriði: göngu-
ferð í Hveraborg í Hrútafirði á Jóns-
messunni kl. 14-18. Einnig er heim-
sókn á Tannstaðabakka sama dag
kl. 12-18 og er börnum sérstaklega
boðið að koma og skoða dýrin á
heimilinu. Hestamót Þyts er á
Króksstaðamelum og minnt er á
Byggðasafnið í Reykjaskóla. Þá
verður Jónsmessugrill við Staðar-
skála og síðan varðeldur.
Útivistardagur er 25.júní og er
þá veiðidagur í stórum og smáum
vötnum fyrir hálft gjald. Geta veiði-
menn skráð sig í keppni. Þáttakend-
ur velja vatnasvæði og fá veiðikort.
Verðlaun fyrir „þann stóra“ og
„flesta fiska“ eru veitt. Upplýsingar
eru gefnar í Staðarskála.
Föstudaginn 30. júní beinist at-
hygli að Vatnsnesi og er hlaðborð á
fjörukambi kl. 19 og einnig verður
bögglauppboð og dansað í tjaldi.
Laugardaginn 1. júlí er hópreið yfir
Hópið kl. 14-18 í umsjá Hestaleig-
unnar í Galtanesi. Gönguferð er um
Borgirnar kl. 16-18 og kvöldvaka
og útigrill við Víðidaistungurétt kl.
20. Annar útivistardagur er 2. júlí
og stendur Staðarskáli fyrir kynnis-
ferð um héraðið, ferð er að Árnar-
vatni frá Laugarbakka kl. 14 og 7.
júlí er stórdansleikur á Hvamms-
tanga þar sem Sniglabandið leikur.
Afmælishátíðin „Höndlað í heila öld“
verður á Hvammstanga 8. júlí en
höfnin þar var löggilt verslunarhöfn
1895, og verða m.a. útimarkaður,
gönguferð um söguslóðir, annáll
verslunarmanna og ball.
Þriðji útivistardagurinn er 9. júlí
og vert er að greina frá verslunar-
minjasýningu í gamla VSP-pakkhús-
inu á Hvammstanga sem verður
opin í allt sumar.
Ferðamál í brennidepli
Velkomin um borö í Boeing 737 vél Emerald Alr til N-írlands. 30 júní hefst reglu-bundið flug frá Ifeflavík alla
þriðjudaga og föstudaga. Nýr valkostur i farþegaflugi og lægri fargjöld. Petta verð gildir til 24.06. 95. Góða ferð!
öll gjöld innifalin i verði
Sölustaðir:
Ferðaskrifstofan Alis, sfmi 565-2266
Ferðaskrifstofan Feröabær, sími 562-3020
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, sími 552-3200
Ferðaþjónusta bænda, sími 562-3640
Ferðaskrifstofa Stúdenta, simi 561-5656
Norræna ferðaskrifstofan, sími 562-3632
Ferðaskrifstofa íslands, sími 562-3300
EMERALD AIR
- / e ngra fyrir I æ g ra v e rð