Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 23

Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ1995 23 ÚRVERIIMU Ahrif verkfallsins á fiskmarkaði Fiskverð töluvert hærra en venjulega VEGNA verkfalls sjómanna hefur verið rhun minna selt af físki á fisk- mörkuðum landsins að undanfömu en ella. Uppistaðan í þeim afla sem verið er að bjóða upp er færafiskur og verð hefur jafn og þétt farið hækk- andi. Sérstaklega hefur fengist gott verð fyrir ýsu á mörkuðunum en lítið hefur veiðst af henni undanfarið. A Faxamarkaðnum hefur að mestu verið boðinn upp fiskur af krókabát- um og litlum netabátum. Einnig hef- uí verið boðið í fisk sem vestfírskir línu- og dragnótabátar hafa fengið fyrir Suðurlandi og landað í Þorláks- höfn. Á Faxamarkaðnum hefur líka verið boðið í físk frá Patreksfirði en þar hefur verið þokkalegur afli hjá krókabátum, þó brælur og hvítasunn- an hafí sett strik í reikningin. Að sögn Ólafs E. Ólafssonar hjá Faxa- markaðnum hafa það mest verið smærri verkendur sem kaupa fiskinn, aðallega saltfískverkendur. Verðið hefur rokið upp Ólafur sagði að fiskur hafi óneit- anlega rokið upp í verði í verkfall- inu. Vanalega væri mikill ýsuafli í net á Breiðafirði á þessum tíma en væri í algeru lámarki núna. Netaýsa á Breiðafirði hafí því verið að fara á allt upp í 235 krónur á kílóið. Þorskur hefur einnig hækkað um 15-20 krónur í verkfallinu. Hann var á um 85 krónur á Faxamarkaðnum fyrir verkfall en er núna um hundrað krónur að sögn Ólafs. Hjá Fiskmarkaði Breiðafjarðar fengust þær upplýsingar að hjá þeim hafí verið nægur fískur í verkfallinu og farið mest upp í 200 tonn á dag. Fiskurinn kemur mest frá trillum og dragnótabátum, en eigendur þeirra róa á fulium dampi því þeir voru ekki í verkfalli. Hallgrímur Guðmundsson hjá Fiskmarkaði Breiðafjarðar sagði að verðið væri alltaf að síga upp á við. Meðalverðið á þorski væri nú rúm- lega 100 krónur og verð á kola hafi einnig hækkað, ekki endilega vegna verkfailsins heldur vegna þess að kolinn væri nú að fíta sig eftir hrygn- ingu. Hallgrímur sagði að glimrandi verð væri á ýsunni, en sáralítið magn. Það væru mest fisksalar sem keyptu ýsuna en einnig útflytjendur sem þurfa að selja upp í samninga. Þorskverð hækkað um 30-35 krónur „Þetta hefur verið lélegt. Frá nokkrum tonnum uppí 10-15 tonn á dag í verkfallinu," sagði Grétar Frið- riksson hjá Fiskmarkaði Hafn- arfjarðar. Hann sagði að fískurinn væri aðallega frá smábátum og neta- bátum sem eigendumir róa sjálfír á. Grétar sagði að verð hafí farið hækkandi og verð á þorski hafí hækkað um 30-35 krónur í verkfall- inu og væri nú um hundrað krónur. Hátt verð væri á ýsu og nýlega hafi selst nokkur hundruð kíló af netaýsu á 219 krónur kílóið sem færi líklega á Ameríkumarkað. Einnig væm físk- salar mikið að kaupa físk sem og litlir saltfískverkendur til að halda sér gangandi. Ertu að hugsa um Mnifáiii? HWW10IHS9ÍIHh6 Þú hefur 4 mismunandi möguleika Aö fara í TVÍ (krefst stúdentsprófs) og læra kerfisfræði og forritun í 2 ár (um 50% falla eftir 1. önn). Að fara i tölvunarfræði í HÍ (krefst stúdentsprófs) og læra kerfisfræði og forritun í 3-4 ár (um 40% falla í lok 1. árs). Að fara á mörg stutt tölvunámskeið hjá tölvuskólum og læra ýmislegt hagnýtt (en þú færð ekki samhengi og yfirsýn). Að fara í námiö TÖLVUNOTKUN í FYRIRTÆKJAREKSTRI hjá okkur. Á 19 vikum muntu öðlast heildaryfirsýn og ítarlega þjálfun í notkun þess búnaðar sem algengastur er í dag og um næstu framtíð. Námið okkar er einnig ágætis undirbúningur fyrir frekara nám í tölvufræðil Þegar þú útskrifast getur þú nýtt þér tölvur til aö leysa fjölbreytt og spennandi verkefni og veitt öðrum ráðgjöf og aðstoö. Þú verður sá starfskraftur sem flest tölvuvædd fyrirtæki sækjast eftir. Unnt er aö stunda námið með vinnu. 569 77 <Q> NÝHERJI 69 STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS OG NÝHERJA 10 66 SuúrnunarTtíag ísiancb Velkomin um borð i Boeing 737 vél Emerald Air til Englands. 30 júní hefst reglu-bundið flug frá ffeflavík alla þriðjudaga og föstudaga. Nýr valkostur i farþegaflugi og laegri fargjöld. Petta verð gildir til 24.06/95. Góða ferð! Sölustaðir: Feröaskrifstofan Alis, simi 565-2266 Ferðaskrifstofan Ferðabær, simi 562-3020 öiigjöidinnifaiin iverði Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, sími 552-3200 Ferðaþjónusta bænda, sími 562-3640 Ferðaskrifstofa Stúdenta, simi 561-5656 Norræna ferðaskrifstofan, simi 562-3632 Ferðaskrifstofa íslands, sími 562-3300 EMERALD AIR - lengra fyrir lægra verö WÍKRJ/GP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.