Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 25
ERLENT
Shell frestar að
sökkva olíupalli
Bensínstöð sprengd í Þýskalandi
Hamborg, Kaupmannahöfn. Reuter.
Reuter
Samið við
flugmenn
hjá SAS
SAMNINGAR tókust í kjara-
deilu flugmanna hjá SAS í fyrri-
nótt. Laun flugmanna hækka
um 3,95%. Talsmenn flug-
manna lýstu ánægju með niður-
stöðuna en talsmenn SAS
sögðu samkomulagið hafa meiri
kostnað í för með sér fyrir fé-
lagið en gott væri.
Dreng bjarg-
að úr rústum
BJÖRGUNARMÖNNUM tókst
í gær að bjarga ungum dreng
úr rústum húss sem hrundi í
jarðskjálfta í bænum Egion í
Grikklandi í fyrradag. Gamallar
konu sem heyrðist til úr rústun-
um, er ákaft leitaað. Tala lát-
inna var komin í 20 í gær og
enn var 10 saknað.
Dularfullur
sjúkdómur
DULARFULLUR sjúkdómur,
sem læknum hefur enn ekki
tekist að bera kennsl á, hefur
dregið a.m.k. 150 manns til
dauða í ríkinu Bihar á Indlandi
á nokkrum dögum.
Umboð til
bindandi
samkomulags
RÁÐHERRAR sjávarútvegs-
mála í ESB-ríkjunum ákváðu á
fundi sínum á fimmtudag að
veita framkvæmdastjórninni
umboð til að ganga frá bind-
andi samkomulagi á Úthafs-
veiðiráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í New York. Búist er við
að gengið verði frá nýju sam-
komulagi á úthafsveiðiráðstefn-
unni, sem stendur frá 24. júlí
til 4. ágúst. Emma Bonino, sem
fer með sjávarútvegsmál í
framkvæmdastjórninni, sagði
að framkvæmdastjórninni yrði
falið að reyna að auka áhrif
fjölþjóðlegra fiskveiðisamtaka
til að vemda fískistofna, treysta
fullveidi ríkja og jafna ábyrgð
á milli strandríkja og úthafs-
veiðiríkja.
MÓTMÆLI gegn þeirri fyrirætlan
olíufyrirtækisins Shell að sökkva
borpalli í Atlantshafi magnast enn
og sýndu stjórnendur fyrirtækisins
fyrstu merki um að þeir væru að
láta undan þrýstingnum þegar
þeir lýstu yfír því að aðgerðinni
yrði frestað til að fá aukinn tima
til að skýra sína hlið málsins.
Umhverfisverndarsamtök
fordæma árás
I gær var tveimur bensín-
sprengjum varpað á bensínstöð
Shell í Hamborg í Þýskalandi.
Slökkviliði tókst að hemja eldinn
áður en hann náði til bensíndæla
og -geyma. Engan sakaði í tilræð-
inu. Umhverfísverndarsamtök,
sem berjast gegn Shell, fordæmdu
það að gripið hefði verið ofbeldis
og sögðu að það væri ekki rétta
leiðin til að ná fram markmiðum
sínum.
Stjórnmálamenn allra flokka og
kirkjuleiðtogar í Þýskalandi hafa
hvatt almenning til að sniðganga
Shell. Það ber þessari almennu
andstöðu vitni að Helmut Kohl
kanslari hugðist taka málið upp á
fundi iðnríkjanna sjö í Halifax í
Kanada.
Auken skorar á Dani að
sniðganga Shell
Svend Auken, utanríkisráðherra
Dana, skoraði í gær á þjóðina að
fara að ráði Þjóðveija og hætta
að skipta við Shell uns málið yrði
leyst.
Bensínsala Shell* i Þýskalandi
hefur að sögn fyrirtækisins dregist
talsvert saman vegna mótmæl-
anna.
Umhverfisverndarsamtökin
Greenpeace hyggjast um helgina
senda liðsmenn sína á bensínstöðv-
ar Shell i Belgíu, Bretlandi, Hol-
landi, Sviss og Þýskalandi til að
skora á bílstjóra að hunsa Shell.
Umhverfisverndarsinnar halda
þvi fram að Brent Spar pallurinn
sé fullur af eiturefnum, sem muni
leka út í sjó þegar pallinum verði
sökkt. Talsmenn Shell halda því
fram að engin hætta sé á ferðum
og þeir séu staðráðnir í að sökkva
honum þótt þvi hafí verið frestað.
Chirac í
sviðsljósinu
JACQUES Chirac, forseti
Frakklands, hefur sett mark
sitt á fund iðnríkjanna sjö, sem
hófst í hafnarborginni Halifax
á austurströnd Kanada á
fimmtudagskvöld. Það var að
hans undirlagi að fundurinn
hófst á því að gefin var út
áskorun að kvöldi fimmtudags
um að lögð yrðu niður vopn í
Bosníu í stað þess að ræða al-
þjóðleg efnahagsmál, eins og
ráðgert hafði verið. Leiðtog-
arnir sjö sneru sér að efna-
hagsmálum í gær þegar rædd
voru áform um stofnun neyð-
arsjóðs til að forða gjaldeyris-
kreppum og aukin framlög til
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.
Chirac hrifsaði til sín sviðsljós-
ið á ný þegar hann lýsti yfir
því að „gjaldeyrisbrask [væri]
alnæmi hagkerfa okkar“ og
var enn miðdepillinn þegar
hann var ljósmyndaður í gær
ásamt Bill Clinton Bandaríkja-
forseta, Tomiichi Murayama,
forseta Japans, Jacques Sant-
er, forseta framkvæmdastjóm-
ar Evrópusambandsins, Helm-
ut Kohl, kanslara Þýskalands,
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Lamberto Dini,
forsætisráðherra Ítalíu.
Hleranir á Spáni
Rætt um
afsagnir
ráðherra
Madrid. Reuter.
SPÆNSKA ríkisstjórnin kom saman
til fundar í gær til að ræða hlerunar-
hneykslið, sem valdið hefur miklu
uppnámi á þingi og meðal almenn-
ings á Spáni. Hefur yfirmaður
spænsku leyniþjónustunnar sagt af
sér vegna þess og ekki er útilokað,
að einhveijir ráðherrar neyðist til að
gera það einnig.
Ríkisstjómin lét undan þrýstingi
frá stjórnarandstöðunni í fyrradag
og féllst á að skýra nákvæmlega frá
hlerununum í sameinuðu þingi í
næstu viku. Skýrt var frá því í gær
að Narcis Serra aðstoðarforsætisráð-
herra myndi á miðvikudag svara
spumingum þingmanna um hlerun-
armálið. Talsmenn stjórnarandstöð-
unnar töldu hins vegar að Felipe
Gonzalez forsætisráðherra ætti að
sitja fyrir svörum.
Orðrómur er um, að Serra, sem
var aðstoðarforsætisráðherra og
varnarmálaráðherra fram til 1991
og Julian Garcia Vargas, núverandi
varnarmálaráðherra, muni neyðast
til að segja af sér. Serra neitar því
þó og segir, að ríkisstjórnin hafí ekki
skipað fyrir um hleranimar.
-----» ♦ ♦-----
Saka Japani
um hugleysi
Peking. Reuter.
KÍNVERJAR deildu í gær á japönsku
stjórnina og sögðu hana skorta hug-
rekki til að horfast í augu við og
viðurkenna árásarstefnu Japana í
síðari heimsstyijöld. Sögðu þeir, að
þetta styngi í stúf við „ábyrga af-
stöðu“ Þjóðveija til styijaldarinnar.
Gagnrýnin á Japani kom fram í
grein eftir Wang Dajun, fréttaskýr-
anda hjá Xinhua-fréttastofunni, én
litið er á hana sem opinber viðbrögð
við loðinni yfirlýsingu japanska
þingsins um ábyrgð Japana.
„Japanir, ólíkt Þjóðveijum, hafa
aldrei gengist undanbragðalaust við
þeim grimmdarverkum, sem þeir
unnu í síðasta stríði," skrifar Wang,
„og hefur það hneykslað fólk víða
um heim.“
Wang fór mjög lofsamlegum orð-
um um leiðtoga Þjóðveija fyrir að
viðurkenna og fordæma glæpi nas-
ista en í Kína týndu milljónir manna
lífinu meðan Japanir réðu htuta
landsins á ámnum 1931-’45.