Morgunblaðið - 17.06.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
Helgi Hálfdanarson
Hormónar og fleira
ÁRNI Björnsson læknir sendir mér
mjög vinsamlega kveðju í Morgun-
blaðinu 14. þ.m. og um leið fallega
hugsað svar við ummælum mínum
í sama blaði 18. f.m. og 8. þ.m.
Grein hans fer ofurlítið á hlið við
þessi skrif mín, og kem ég að því
hér á eftir. En fyrst hlýt ég að
þakka mjög vel fyrir einstaklega
hlý orð í minn garð.
Af grein Arna virðist mér mega
ráða, að ég hafí lagzt gegn jafn-
rétti kvenna og karla til hvaða
starfa sem væri. Sá misskilningur
hafði áður komið fram, og honum
svaraði ég í síðari grein minni, svo
ekki varð um villzt, að ég hélt.
Að öðru leyti ræðir Ámi læknir
mjög um hormóna og vafasamar
kenningar um háttemi þeirra. En
mergur málsins í grein mingi,- var
engin vafasöm hormónakenning,
heldur sú augljósa staðreynd, að
konur eru í mikilvægum atriðum
öðruvísi í laginu en karlar, og guði
sé lof fyrir það, hvað sem öðm líð-
ur. Þessi blessuð staðreynd, sem
storkar öllum kenningum um horm-
ónabúskap, stenzt sem betur fer öll
„kynslóðabil" og hefur frá ómuna
tíð valdið því sem ég kallaði náttúr-
lega verkaskiptingu kynjanna, eða
eins og segir í grein minni:
„Konunni hefur fallið í skaut að
annast börn og heimili og e.t.v.
einhver störf utan heimilis, sem
eftir aðstæðum geta samrýmzt
þeim verkahring. Hins vegar hefur
það komið í hlut karla að annast
fremur þau störf, sem sízt mega
truflast af meðgöngu, barnsburði,
mylkingu og umhirðu ungbama.
Sjálfkrafa koma þar til flest þau
viðfangsefni, sem fremur em bund-
in samfélagi en heimili. Síðan hefur
það farið eftir aðstæðum, hversu
mjög starfssvið kvenna og karla
hafa skarazt."
Nú hafa röggsamar konur kraf-
izt þess, að störfum í sem flestum
greinum sé deilt sem næst að jöfnu
milli kynja. Þessa kröfu kallaði ég
firra, og hefði mátt taka dýpra í
árinni; hún er allt annars eðlis en
jafnréttiskrafan, enda svo að sjá
sem mikill hluti allrar kvenþjóðar
sé harla áhugalítill um slíkar öfgar.
Ekki þarf að ræða svo sjálfsagð-
an hlut, að konur eru jafnfærar
körlum til hvaða starfa sem er.
Hitt skiptir máli, hvemig þjóðfélag-
inu kemur bezt að starfskröftum
þegnanna sé ráðstafað. Og þá verð-
ur ekki fram hjá því horft, að með
hinum elskulega mun kynjanna
hefur náttúran fyrirfram tekið frá
handa konum það hlutverk sem
allt annað byggist á. Það hlutverk
hef ég leyft mér að kalla forrétt-
indi fremur en kvöð; og mig furðar
ekki, að flestar konur virðast lítt
fúsar til að hlaupast frá því til
annarra starfa, sem minna er um
vert.
Rækt mæðra við börn sín er
ekki eingöngu níu mánaða með-
ganga og síðan mislangur tími
bijóstagjafar. Þegar því skeiði lýk-
ur, taka við mörg ár enn vandasam-
ari umhyggju, og það þótt aðeins
væri um eitt barn að ræða. Víst
era aðstæður margra mæðra slík-
ar, einkum vegna fjölskylduhátta,
að þær eru ekki bundnar heima við
öllum stundum. Í grein minni kall-
aði ég eðlilegt, að þá sinntu þær
störfum utan heimilis, svo sem
hugur og hæfni stæðu til. En að
vilja fyrir hvern mun komast frá
búi og börnum til annarra starfa,
hvernig sem á stendur heim'a fyrir,
kallaði ég án allrar hormónataln-
ingar vott af karleðli. Að örva þró-
un í þá átt, svo sem gert er með
jafnkvótakröfu hinna manndóms-
miklu kvenna, kalla ég vítavert.
Undir greinarlok segir Ámi
Björnsson: „að hvoragur okkar
geti breytt því, að konumar muni
fyrr eða síðar komast upp að hlið-
inni á körlunum í kapphlaupinu um
forystu í þjóðfélaginu." Af þessum
orðum mætti ráða, að ég hafi lagzt
á móti því, að konur gegni „forystu
í þjóðfélaginu". En í grein minni
segir:
„Það er sjálfsögð jafnréttiskrafa,
að þær konur, sem til þess era
náttúraðar, fái að gegna þing-
mennsku og ráðherradómi og
hveijum þeim störfum sem löngum
hafa talizt karlastörf, ef þær eru
til þess hæfar.“
Áð svo mæltu ítreka ég þakkir
mínar til Áma læknis Bjömssonar
fyrir fallega og mjög vinsamlega
grein.
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ1995 27
Ódýr
lúxusvél
MTD 072
Ódýr lúxusvél með 3,75 hp B&S
Sprint mótor, sláttubreidd 20"
eða 50 sm, stór og breiðhjól,
útbúin auðstillanlegum
hjólalyftum. Meðfærileg í
flutningi og geymslu.
Verð kr. 24.900,-
<2B
G.Á. PÉTURSSON HF
Faxafen 14 • Sími 685580
-kjarnimálsins!
Nú er rétti tíminn
í ár er sérlega hagstætt að fjárfesta í atvinnu-
tækjum. Það er vegna sérstakra laga um
flýtifyrningar atvinnutækja sem keypt eru árin
1994 og 1995. Þau má fýrna allt að tvöfaldri
venjulegri fyrningu, næstu þrjú rekstrarár eftir að
þau eru keypt. Fjárfesting í ár er því heillaráð.
Við gefum þérgóð ráð
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
hvers kyns atvinnutækja. Við getum bent þér á
leiðir þar sem þú losnar við að binda rekstrarfé
í tækinu og þar sem fyrirgreiðsla þín í viðskipta-
bankanum helst óskert.
Þú kannt eflaust að meta að geta fengið 100%
fjármögnun en njóta samt staðgreiðsluafsláttar
hjá seljanda tækisins.
Slyót qfgreiðsla
Fjármögnun með Kjörleiðum
Glitnis er fljótleg. Þegar
nauðsynleg gögn liggja fyrir
af þinni hálfu, er umsókn
þín afgreidd á skjótan hátt.
Ut er komið upplýsingarit um
Kjörleiðir Glitnis. Þar er á
einfaldan hátt fjallað um
ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða <
líttu inn og spjallaðu við J
ráðgjafa okkar. Jj
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 155 Reykjavík Sfmi 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
0TTÓ • GRAFlSK HÓNNUN LJÓSM: THE