Morgunblaðið - 17.06.1995, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 33
ARI Teitsson og Elín Magn-
úsdóttir í gróðurhúsi sínu á
Hrísum. Feðgarnir á Brún
boruðu eftir heitu vatni á landi
sínu og fengu upp 50 stiga
heitt vatn sem notað er ti! að
halda yl í gróðurhúsinu en þar
eru ræktaðar rósir, tómatar
og gúrkur til heimilisnota.
ég get sinnt bústörfunum. Ég geri
líka ráð fyrir að verða áfram í hálfu
starfi sem héraðsráðunautur.
Ástæðan er auk þess sú að ég vil
ekki slitna úr tengslum við landbún-
aðinn. Það er ágætt að heyra í
bændum og láta þá skamma sig,
það herðir í manni og veitir manni
líka víðari sýn,“ segir Ari.
„Með sameiningunni er stefnt að
því að stilla betur saman strengi
bænda og tengja saman faglegu
hliðina og kjarahliðina. Kjarabar-
átta bænda er æ meira að verða
barátta um að framleiða góða vöru
með lágmarkstilkostnaði og það er
einfaldlega spurning um faglega
þekkingu, nákvæmni og aga í
vinnubrögðum. Ég hef lagt mikla
áherslu á að menn horfist í augu
við þetta, því heimurinn fer harðn-
andi,“ segir Ari.
„Það hefur einnig verið unnið að
því seinustu tvö árin að upplýsa
almenning betur um eðli landbúnað-
ar, stöðu hans og hlutverk í þjóðar-
búskapnum. Skýrasta dæmið um
þetta er að við höfum reynt að opna
nokkur bú fýrir almenningi og vor-
um með sérstaka kynningardaga í
ágúst í fyrra og ætlum að endur-
taka það í sumar svo þjóðin viti
betur hvað landbúnaðurinn er. Við
viljum vera mjög opnir fyrir hrein-
skilinni umræðu um eðli landbúnað-
arins og stöðu hans. Landbúnaður-
inn verður ekki rekinn hér nema í
sátt við þjóðina og liður í því er að
við séum opnir og fúsir að sýna
hvað við erum að gera og veita
þjóðinni hlutdeild í því eftir því sem
kostur er,“ segir hann.
Þetta eru samtök stéttar sem
berst fyrir lífi sínu
Ari var spurður hvaða höfuð-
áherslur hann legði sem formaður
Bændasamtakanna. „Þetta eru
raunverulega samtök stéttar sem
berst fyrir lífi sínu,“ svarar Ari.
„Það ríkir ennþá sátt um að það
eigi að vera hér landbúnaður sem
uppfylli þarfir þjóðarinnar fyrir alh
ar helstu dagvörur, mjólkurvörur,
kjöt og jarðargróður, eftir því sem
kostur er á, en það þarf töluvert
fyrir því að hafa að það verði sátt
um þetta áfram. Það er hart að
okkur sótt. Með meiri alþjóða-
hyggju og alþjóðaverslun þurfum
við að gæta að okkur og framleiða
þannig vörur, bæði að því er varðar
gæði og verð, að þjóðin vilji neyta
þeirra. Á næstu misserum munum
við glíma við þessa jafnvægislist,
að bændur haldi viðunandi lífskjör-
um, sem þeir hafa margir hveijir
ekki í dag og að landbúnaðarvör-
umar séu þannig úr garði gerðar,
að því er varðar gæði og verð, að
það sé sátt um neyslu þeirra. Þetta
tengist aukinni alþjóðaumræðu og
harðnandi heimi í verslun og við-
skiptum."
Áð sögn Ara er mjög brýnt að
gerðar verði breytingar á búvöru-
samningnum, og þoiir enga bið að
leyst verði úr bráðavanda sauðfjár-
framleiðslunnar. „Formleg vinna er
hafin við endurskoðun á búvöru-
samningi sauðfjárframleiðslunnar
og ég geri ráð fyrir að fljótlega
eftir að því lýkur munum við skoða
búvörusamninginn í heild sinni. Það
er nauðsynlegt að breyta honum
þannig að þessi flata niðurfærsla á
framleiðslumöguleikum allra
bænda á innanlandsmarkaði verði
stöðvuð ef neyslan á innanlands-
markaði heldur áfram að minnka,
sem ég vona að verði ekki. Það
gengur ekki að færa alla jafnt nið-
ur og nauðsynlegt er að gera breyt-
ingar sem gera mögulegt að fram-
leiðendum fækki, ef ekkert nýtt
kemur til.
Þetta verður sérstaklega erfitt
fyrir þá sem ekki geta haldið áfram.
það hefur verið rætt um að Jarða-
sjóður ríkisins kaupi jarðir sem eru
að fara úr notkun og í sjálfu sér
er mjög æskilegt að sá hluti lands-
ins, sem ekki er nýttur til landbún-
aðar, sé í eigu ríkisins til að varð-
veita landið. Okkur ber skylda til
að skila landinu jafn góðu til næstu
kynslóðar eins og við tókum við því
og ef ekki er þörf fyrir það til land-
búnaðar er æskilegast að ríkið beri
ábyrgð á því,“ segir hann.
Samdráttur í neyslu og
tekjuhrun sauðfjárbænda
Ari dregur enga dul á að sauð-
fjárbændur eigi við mjög alvarlegan
vanda að etja. „Vandinn í dag staf-
ar fyrst og fremst að því að það
Morgunblaðið/Rúnar Þór
hefur orðið mikill samdráttur í
neyslu kindakjöts á síðustu árum.
Neyslan innanlands var yfir 8.500
tonn um 1990 en neysía síðustu
tólf mánaða var tæplega 7.000
tonn. Búvörusamningurinn gerði
ráð fyrir ábyrgð á ákveðnu magni
sem er áætlað áður en bændur setja
á að hausti. Svo líður ár þar til
þetta kjöt kemur í sláturhús og
annað ár áður en markaðstímabil-
inu raunverulega lýkur. Ef mikill
samdráttur er í neyslu safnast upp
birgðir, sem hafa valdið miklum
erfiðleikum. Þetta kerfi gat vel
gengið á meðan það var hugsað
fyrir lítt breytta neyslu en þegar
samdrátturinn hófst söfnuðust upp
birgðir. Hinn hluti vandans stafar
af tekjurýrnun vegna minnkandi
framleiðslu og minni sölu,“ segir
hann.
Að sögn Ara eru kjör sauðfjár-
bænda þó mjög misjöfn. Margir
bændur hafí möguleika á að stunda
aðra atvinnu með sauðfjárbúskapn-
um en staðreyndin sé engu að síður
sú að sauðfjárbændur hafa orðið
fyrir alvarlegu tekjuhruni og út-
reikningar Hagþjónustu landbúnað-
arins á búreikningum 113 sauð-
fjárbúa, leiða í ljós að gera megi
ráð fyrir 60% launasamdrætti á
árunum 1993 til 1996 miðað við
óbreyttan búvörusamning. Að gefn-
um tilteknum forsendum kemur
fram í útreikningunum að að meðal-
tali voru 488 þús. kr. afgangs til
greiðslu launa af búrekstri á sauð-
fjárbúi á árinu 1994 og að aðrar
tekjur af búrekstri hafi numið 178
þús. kr. á árinu. Þetta byggist á
þeirri forsendu að greiðslumark til
framleiðslu kindakjöts muni fara
niður í sem svarar 6.250 tonn á
verðlagsárinu 1996/97. Áframhald-
andi lækkun greiðslumarks á tekjur
bænda myndu skv. spánni leiða til
þess að á næsta ári yrðu árstekjur
fyrir sauðfjárbúskap komnar niður
í 251 þús. kr., en kostnaður minnk-
ar þó ekki að sama skapi. Þetta
þýðir með öðrum orðum að meðal-
búið mun halda eftir rúmum 20
þús. krónum á mánuði á næsta ári
fyrir sauðfjárframleiðsluna til
greiðslu launa og hagnaðar (sjá
töflu).
„Miðað við óbreyttan búvöru-
samning verður veru-
leg niðurfærsla á
framleiðslumöguleik-
um sauðijárbænda á
næsta ári og þetta
sýnir betur en orð fá
lýst hvað það er von-
laust að halda áfram
óbreyttum búvöru-
samningi, það er í
raun útilokað," segir
Ari. Að hans sögn
afla þó margir þess-
ara bænda umtals-
verðra tekna utan bús, sem ekki
koma fram í ofangreindum tölum
en í sumum sveitum séu nánast
engir möguleikar á að bæta tekjur
sínar utan búrekstrar.
„Þetta er orðið hrikalegt vanda-
mál á sumum svæðum. Núna er
verið að vinna að því að breyta
lausaskuldum bænda í föst lán hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins en
umsóknarfrestur rann út í mars og
það hefur komið í ljós að tæplega
500 bændur þurfa á þessu að halda,
stór hluti þeirra er sauðfjárbænd-
ur.“
„Landbúnaðurinn
getur staðist sam-
keppnina f ráútlöndum
með hæfílegum stuðn-
ingi og sanngjarnrí
toliverndu
PRINCE POLO
í NÝ|UM BÚNINGl
• stundum koma
Prínce Polo pásur!
Lífið snýst ekki bara um vinnustundir og vísitölur,
stundum eru það pásurnar sem Iffga mest upp á sálartetrið; Prince Polo pásurnar.
Nú er Prince Poio komið f nýjar og betri umbúðir.
Mundu það næst þegar þú vilt slappa af!