Morgunblaðið - 17.06.1995, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MIIMIMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
* *
t
Dóttir mín, fósturdóttir, móðir og hálfsystir,
ÁSTA LOVÍSA HERMANNSDÓTTIR,
Borgarholtsbraut 72,
Kópavogi,
lést 6. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Margrét Þorsteinsdóttir, Daníel Daníelsson,
Guðmundur Þorsteinn Ásgeirsson,
Anna Björk Daníelsdóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNIM GUÐJÓNSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
íÁstúni, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 15. júní.
Hrafnhildur Matthfasdóttir, Jón H. Guðmundsson,
Birgir Matthíasson, Guðrún Ásmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN FRIÐLEIFSDÓTTIR
frá Siglufirði,
Bólstaðarhlið 58,
lést í Landspítalanum 10. júní sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þorgeir Pétursson,
Friðleifur Björnsson, Elva Guðbrandsdóttir,
Gunnar Þór Friðleifsson, Ómar Ingi Friðleifsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
HÖRÐUR H. BJARNASON
fyrrv. símstöðvarstjóri,
Holtsbúð 27,
Garðabæ,
lést í Landakotsspítaía fimmtudaginn 15. júnf.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Bryndis Bjarnason,
börn og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
ÞURÍÐUR EGGERTSDÓTTIR,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
er látin.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Starfsfólk elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar fær innilegar þakk-
ir fyrir umönnun og hlýhug.
Gunnar Steingrímsson, Hulda Færseth Steingrimsdóttir,
Ragnar Steingrimsson, María Guðnadóttir,
Marfa Steingrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HILDE MARIA FREITAG
PÁLSSON,
Iðufelli 6,
Reykjavík,
lést á Kumbaravogi, Stokkseyri,
fimmtudaginn 15. júní sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrfður Pálsdóttir, Kristbjörn Þorkelsson,
Halldór Pálsson, Hjörleifur Pálsson,
Páll S. Pálsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓHANNES BJARNASON
verkfræðingur,
Laugarásvegi 43,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðju-
daginn 20. júnf kl. 13.30.
Margrét Ragnarsdóttir,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Einar Örn Stefánsson,
Guðrún Jóhannesdóttir, Ævar Guðmundsson,
RagnarJóhannesson,
Bjarni Jóhannesson, Auður Þórarinsdóttir
og barnabörn.
GISLINA
VILHJÁLMSDÓTTIR
+ Gíslína Vil-
hjálmsdóttir
fæddist 5. október
1922 í Reykjavík.
Hún lést 7. júní sl.
Foreldrar hennar
voru Vilhjálmur Ás-
grímsson og Gíslína
Erlendsdóttir.
Systkini Gíslínu eru
Vilhjálmur S. Vil-
hjálmsson rithöf-
undur, látinn, Guð-
munda Vilhjálms-
dóttir húsmóðir, lát-
in, Erlendur Vil-
hjálmsson fyrrv.
deildarsfjóri og Ingibjörg Vil-
hjálmsdóttir húsmóðir. Gíslína
kvæntist Hafsteini Ólafssyni.
Þau slitu samvistir. Börn Gísl-
ínu og Hafsteins eru Helga
Sólveig, f. 30. janúar 1945, lát-
in, hún átti 3 börn,
og Ólafur Kristinn,
f. 17. desember
1948, kvæntur
Ernu Kristínu Júl-
íusdóttur, f. 10.
nóvember 1947.
Þau eiga 2 dætur.
Ennfremur ól Gís-
lína upp og gekk í
móðurstað Hjördísi
Jónsdóttur, dótt-
urdóttur sinni. Gís-
lína gekk í Kvenna-
skólann 1936-1940
og hóf síðan störf
hjá Trygginga-
stofnun ríkisins þar sem hún
starfaði þar til hún lét af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Gíslína verður jarðsungin i
Dómkirkjunni nk. mánudag, 19.
júní, og hefst athöfnin kl. 13.30.
OLAFUR
INGIMUNDARSON
+ Ólafur Ingi-
mundarson
fæddist á Hörðubóli
í Miðdölum 26. októ-
ber 1902. Hann lést
á heimili sonar síns
í Englandi 8. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Ingimund-
ur Guðmundsson frá
Hrútafirði og Jens-
ína Jóelsdóttir frá
Skarðsströnd. Ólaf-
ur var einkabarn
móður sinnar, en
Ingimundur átti tvö
börn með síðari
konu sinni, þau Inga, hæstrétta-
lögmann í Reykjavík, og Guriði,
bankastarfsmann í Reykjavík.
Ólafur kvæntist 1936 Rósu
Teitsdóttur, f. 21. apríl 1912, og
hafa þau búið allan tímann á
Grund, Austurgötu 15, Keflavík.
Börn þeirra eru: 1) Kristbjörg,
f. 1937, d. 1985, síðast húsmóðir
í Noregi, gift Birgi
Guðsteinssyni og
áttu þau fjögur
böm. 2) Guðmundur
f. 1938, háskóla-
kennari í Bretlandi,
kvæntur Leu Dav-
íðsdóttur, þau eiga
fimm börn. 3) Sigur-
vin, f. 1942, tækni-
fræðingur í Noregi,
kvæntur Gunhild
Hannesson, eiga
þau tvö börn. 4) Sig-
ríður, f. 1948, hjúkr-
unarfræðingur í
Danmörku, gift
Finn Jegárd, þau eigajujú böm.
Lengst af starfaði Olafur við
byggingarstörf í Keflavík, eink-
um sem múrarameistari. Hann
tók mikinn þátt í starfi aðvent-
ista á Suðurnesjum.
Útför Ólafs fer fram frá
Keflavíkurkirkju mánudaginn
19. júní.
MEÐ nokkrum orðum vil ég minn-
ast látins góðvinar, sem ég þekkti
fjöldamörg ár. Allan þann tíma bar
aldrei skugga á kynni okkar, kynni
sem urðu þó nokkuð náin. •
Burðarásarnir í skaphöfn og sam-
skiptum þessa dagfarslega hægláta
manns voru hæverska, heiðarleiki,
traust vinfesta, áreiðanleiki, mann-
gæska, alvörugefni, sem gaf þó gott
svigrúm fyrir græskulausa glettni
og ljúfa gleði í góðvinahópi. Öll
framganga hans grundvallaðist
raunar á þeirri djúpstæðu trú, sem
hann bar í bijósti og iðkaði af kost-
gæfni. Hún var hreyfiaflið og setti
aðalsmerki sitt á manninn. Auðvitað
var hann, sem og hver annar íslend-
ingur, fastur fyrir, ákveðinn í skoð-
unum, en alltaf opinn og fús til sam-
stiilingar þar sem á kunni að greina.
Eljusamur var hann, féll aldrei verk
úr hendi og mátti hvergi vamm sitt
f nokkru vita.
Ólafur unni tónlist hjartanlega.
Sjálfur lék hann á orgel og söng við
raust. Þessi kunnátta kom sér vel,
því um margra ára bil var samkomu-
hald Aðventsafnaðarins á Suður-
nesjum til húsa á heimili hans. Var
hann þá allt í senn, organisti, söng-
stjóri og raunar á vissan hátt safnað-
arhirðir.
Tíðar voru komur mína á heimili
hans. Fastir liðir voru auðvitað söng-
ur við organleik, fyrst og fremst,
ásamt munaði þess besta sem fram
varð borið hveiju sinni með rausn,
því gestrisni og höfðingslund réð
húsum. Fyrir öll þessi góðu sam-
skipti þakka ég. Blessuð sé minning
míns kæra bróður.
Elsku Rósa, börnin, barna- og
barnabömin. Við sendum ykkur inni-
lega samúð og biðjum Guð að styrkja
ykkur í reynslu skilnaðarins.
Sólveig og Jón Ifjörleifur
Jónsson.
t
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, systir,
amma og langamma,
JENSÍNA SIGURVEIG
JÓHANNSDÓTTIR,
Álfheimum 29,
áður Auðkúlu,
Arnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi
15. júní.
Guðlaug B. Guðjónsdóttir,
Jóhanna Guðjónsdóttir, Davið Pétursson,
Skúli Guðjónsson,
Friðrik Guðjónsson, íris Þorkelsdóttir,
Baldur Guðjónsson, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Friðrik J.Á. Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
HINN 7. júní sl. andaðist á heimili
sínu, Hringbraut 90 í Reykjavík,
Gíslína Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi
deildarstjóri við Tryggingastofnun
ríkisins og fer útför hennar fram
frá Dómkirlqunni mánudaginn 19.
júní.
Vil ég fyrir hönd samstarfsfólks
minnast hinnar látnu heiðurskonu
með nokkmm orðum. Gíslína var
yngst bama þeirra Vilhjálms Ás-
grímssonar verkamanns og sjó-
manns og konu hans Gíslínu Er-
lendsdótt.ur. Þau bjuggu lengi á
Eyrarbakka en fluttust til Reykja-
víkur með 4 elstu böm sín. Þetta
gerðu þau hjónin m.a. til þess að
auðvelda bömunum skólagöngu, en
þau vom greind og námfús.
Bræður Gíslínu vom þeir Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson, blaðamað-
ur og rithöfundur, mörgum kunnur
af höfundarheitinu „Hannes á hom-
inu“ og Erlendur Vilhjálmsson,
deildarstjóri lífeyrisdeildar Trygg-
ingastofnunar ríkisins um áratuga
skeið. Erlendur lifir systur sína og
er nú á níræðisaldri. Systurnar vom
þær Guðmunda og Ingibjörg, hús-
freyjur í Reykjavík. Guðmunda er
nú látin.
Gíslína var yngst systkinanna,
fæddist í Reykjavík 5. okt. 1922.
Hún hlaut ágæta menntun, útskrif-
aðist frá Kvennaskólanum í Reykja-
vík vorið 1940. Alla tíð rækti hún
vináttu sína og skólasystra í
Kvennaskólanum. En lífsbaráttan
tók skjótt við. Ung giftist hún Haf-
steini Ólafssyni bifreiðastjóra og
stofnuðu þau heimili í Reykjavík.
Börn þeirra Hafsteins voru Helga
Sólveig og Ólafur Kristinn. Helga
Sólveig giftist bandarískum manni,
Samuel Otineru. Helga Solveig and-
aðist 1968 og lét eftir sig syni í
Bandaríkjunum, þá Gísla og John.
Áður hafði Helga Sólveig eignast
dótturina Hjördísi Jónsdóttur og
annaðist Gíslína uppeldi hennar að
mestu. Hjördís er móðir tveggja
bama. Umhyggja Gíslínu gagnvart
Hjördísi var aðdáunarverð. Olafur
Kristinn er bifvélavirki. Hann er
kvæntur Emu Kristínu Júlíusdótt-
ur, dætur þeirra em Helga Sólveig
og Lilja Dögg. Þau Gíslína og Haf-
steinn skildu 1964.
Hóf þá Gíslína störf hjá Trygg-
ingastofnuninni á nýjan leik, hafði
unnið þar áður en hún stofnaði
heimili. Gíslína vann svb óslitið við
lífeyrisdeildina þar til hún lét af
störfum fyrir aldurs sakir, þá orðin
deildarstjóri yfir sínu sviði.
Gíslína stundaði vinnu sína af
mikilli samviskusemi, var henni trú-
að fyrir vandmeðfömum verkefn-
um. Lengi hafði hún með höndum
afgreiðslu heimildarbóta, svokall-
aðra uppbóta. Hélt hún vel utan
um þann bótaflokk og gætti þess
að þeir, sem verst vora settir fengju
sanngjarna afgreiðslu.
Það auðveldaði Gíslínu mjög
störfin hve vel hún þekkti til að-
stæðna almennings og lífsbaráttu.
Þeirrar þekkingar hafði hún aflað
sér í föðurgarði og af eigin raun.
Hún bjó lengst af í verkamannabú-
stöðunum við Hringbraut og þekkti
alla byggingarsögu þess hverfis og
atbeina Héðins Valdimarssonar í
þeim efnum. Gíslína var krati eins
og flest hennar fólk. Var lærdóms-
ríkt að ræða við hana um þjóðmál
og félagsmál ýmiskonar, svo sem
málefni fatlaðra, aldraðra og ein-
stæðra foreldra. En Gíslína var
raunsær krati, hún vissi að engum
almannatryggingum verður haldið
við, ef atvinnuvegirnir em ekki
öflugir. Skilningur hennar á al-
mannatryggingum var því næmur
og laus við óskhyggju.
Samstarfsfólk hennar sendir öll-
um afkomendum, ættingjum og
skylduliði innilegar samúðarkveðj-
ur. Gott er að minnast konú, sem
alla tíð stóð fyrir sínu. Var sífellt
að greiða götu annarra af mikilli
fómfýsi og elskusemi.
Hvíl þú í friði, friður Guðs þig
blessi.
Hilmar Björgvinsson.
Okkur Gísla hefur alltaf þótt
vænt um þig og þykir það enn.
Þótt þú værir amma okkar varstu
líka trúnaðarvinkona okkar sem við