Morgunblaðið - 17.06.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 45
gátum sagt allt við og þú hjálpaðir
okkur alltaf.
Það sem mér fannst mest gaman
hjá þér var að á kvöldin lágum við
saman uppí rúmi og spjölluðum
saman um margt. Þá sagði ég þér
frá vandamálum mínum og þú
hjálpaðir mér.
Elsku amma, þú dekraðir dæma-
laust við okkur og það var alltaf
jafngaman að koma til þín.
Mér og Gísla þykir þú tvímæla-
laust besta amma í heimi og ég
vona að allir eigi jafngóða ömmu
og þig.
Okkur Gísla þykir mjög leitt að
þú ert farin frá okkur, við munum
sakna þín voðalega mikið eins og
allir sem þekkja þig munu gera.
Þín barnabörn,
Þóra og Gísli Hrafn.
Gíslína Vilhjálmsdóttir tengda-
móðir mín lést snögglega á heimili
sínu 7. júní sl., svo snögglega að
við sem eftir stöndum áttum okkur
varla á því. Þetta er mikill missir
fyrir okkur nánasta fólkið hennar
því mikill tími hennar fór í að hugsa
um okkur. Hún var með eindæmum
barngóð og mikið fyrir lítil börn og
veit ég að hún hlakkaði mikið til
að taka á móti nýjasta fjölskyldu-
meðlimnum með okkur sem er
væntanlegur eftir rúman mánuð.
Gilla var með eindæmum ráðagóð
og þau eru ófá heilræðin sem hún
hefur gefið mér í gegnum árin og
betri ferðafélaga get ég ekki hugs-
að mér.
Elsku Gilla, ég þakka þér fyrir
allt og kveð þig með þessum fallega
sálmi.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Erna.
KRISTÍN
FRIÐ-
LEIFS-
DÓTTIR
+ Stefanía Kristín Friðleifs-
dóttir fæddist á Siglufirði
22. ágúst 1918. Hún lést á Land-
spítalanum 10. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar voru Friðleif-
ur Jóhannsson og Sigríður Stef-
ánsdóttir. Systkinin voru sex.
Kristín átti einn son, Friðleif
Björnsson. Hún giftist Þorgeiri
Péturssyni 1987.
Kristín var jarðsungin frá
Fossvogskapellu 16. júní.
ÉG kynntist Stefaníu og Þorgeiri,
sem síðar varð eiginmaður hennar,
í Búrfellsvirkjun þar sem við störf-
uðum saman fyrir 30 árum.
Síðan hefur kunningsskapur okk-
ar haldist. Ég var heimagangur hjá
þeim hjónum og undi mér sem í
foreldrahúsum.
Alúð og umhyggja þeirra kom
m.a. fram í því að það var sama á
hvaða tíma ég kom, ávallt sat örlæt-
ið í fyrirrúmi í mat og drykk og
því sem þau töldu mig vanhaga um.
Það er sárt að sjá á eftir traust-
um og sönnum vini.
Fyrir þessi kynni vil ég þakka
af alhug og megi guð og gæfan
styrkja eftirlifandi eiginmann Stef-
aníu, ættingja og vini til hinstu
stundar.
Kær kveðja,
Sigurður B. Arason.
-J I _ | Krossar
I I áleiði
I viðarlit og mábðir.
Mismunandi mynsnjr, vönduo vinna.
Sími 91-35929 og 35735
►
Helstu niðurstöður
ársreiknings 1994
Efnahagsreikningur 31.12.1994 í þúsundum króna
Veltufjármunir 1.983.797
Skammtímaskuldir 20.661
Hreint veltufe: 1.963.136
Fastafjármunir: /
Langtímakröfur 10.051.301
Varanlegir rekstrarfjármunir 19.918
10.071.219
Hrein eign til greiðslu lífeyris: 12.034.355
Yfírlit um breytingar á hreinni eign
til greibslu lífeyris fyrir árib 1994
Fjármunatekjur, nettó 774.258
Iðgjöld 683.664
Lífeyrir (310.765)
KostnaSur (rekstrargjöld - rekstrartekjur) (37.988)
Matsbreytingar 207.765
Hækkun á hreinni eign á árinu: 1.316.934
Hrein eign 10.717.421
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris: 12.034.355
Ýmsar kennitölur
Raunávöxtun 7,7%
Raunávöxtun að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar 7,3%
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum 45,5%
Kostnaður í hlutfalli af iðgjöldum 5,3%
Kostnaður í hlutfalli af eignum
(meðaltal hreinnar eignar í árslok og ársbyrjun) 0,3%
Starfsmannafjöldi 7
H Hinn 1. janúar 1995 sameinuðust
LífeyrissjóSur bókagerðarmanna, Lífeyrissjóður
félags garðyrkjumanna og Lífeyrissjóður múrara,
Sameinaða lífeyrissjóðnum.
B Sjóðfélagar fá sent yfirlit yfir iðgjöld tvisvar á ári
og eru hvattir til að bera (oau saman við
launaseðla. Beri þeim ekki saman er áríðandi að
hafa samband við sjóðinn (oví verði vanskil á
greiðslum geta dýrmæt réttindi glatast.
I Frá 1. apríl 1 995 var heimilt að draga 2% af 4%
framlagi í lífeyrissjóð frá tekjum við álagningu
skatta við staðgreiðslu.
■ Lífeyrissjóðurinn greiðir félögum elli- og
örorkulífeyri og mökum látinna félaga,
fjölskyldulífeyri. Samtrygging sjóðfélaga um
örorku- og fjölskyldulífeyri tryggir félögum
og mökum (oeirra lífeyri við óvænt áföll.
■ I árslok 1 994 fór fram tryggingafræðileg úttekt
á sjóðnum og á hann að fullu eignir á móti
skuldbindingum.
Skipting iögjalda
■ Ellilífeyrir ■ Örorkulífeyrir Fjölskyldulífeyrir
I Lífeyrissjóðurinn er deildaskiptur og er fyrirfram
ákveðið hve stór hluti iðgjaldsins stendur undir
hverri tegund lífeyrisréttinda. 73% fer til greiðslu
ellilífeyris, 15% til örorkulífeyris og 12% til
fjölskyldulífeyris.
lífeyrissjóðurinn
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Simi 568 6555, Myndsendir 581 3208
Grænt númer 800 6865
Stjórn Sameinaða lifeyrissjóbsins:
Benedikt Daviðsson, Guðmundur Hilmarsson
Hallgrímur Gunnarsson, Orn Kjærnested
Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóri