Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 47
I
I
I
I
I
:
l
i
i
I
8
I
I
3
I
I
og elsku Björgu okkar og biðjum
guð að gefa henni styrk.
Arndís Magnúsdóttir.
Ég lít út um gluggann hér á
Löngumýri. Ljósgrænn litur á laufi
og mildur andblær strýkur létt um
greinar trjánna. Fuglarnir kveða
við raust. Þeir hafa byrjað búskap
víða, bæði í greinum tijánna og í
mosató á jörðu niðri. Þar ríkir feg-
urð og friður nú að loknum hörðum
vetri. Þetta er garðurinn hennar
Ingibjargar frá Löngumýri, hennar
sem nú hefur kvatt okkur hér og
haldið heim til ennþá betri dvalar
þar sem ekki er þjáning né sorg.
Þegar ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að ráðast til starfa á Löngu-
mýri kynntist ég Ingibjörgu fyrst.
Hún sýndi okkur sem tókum við
hjartabarninu hennar tiltrú, gaf góð
ráð en reyndi ekki að stjóma okk-
ur. Hún hafði látið stjómartaumana
í annarra hendur. En hún bað Guð
að leiða okkur og styðja. Þessara
forréttinda hef ég notið í bráðum
28 ár, að eiga fýrirbæn þeirra Ingi-
bjargar og Bjargar vinkonu hennar
vísa hvern dag. Starf Ingibjargar á
Löngumýri er mörgum kunnugt.
Hvemig hún af elju og ótrúlegri
bjartsýni byggði upp skóla sinn á
Löngumýri. Og þau 23 ár sem hún
var skólastjóri var skólinn fjölsótt-
ur. Flestar stúlkumar sem ég hef
hitt eiga héðan góðar minningar
um skemmtilegan og gefandi tíma.
Það sýnir tryggð gamalla nemenda
við skólann að sl. haust, er haldin
var hátíð í tiiefni þess að 50 ár
voru liðin frá stofnun skólans, sóttu
hann heim u.þ.b. 200 nemendur.
Ingibjörg lét af störfum á Löngu-
mýri 1967 og kom hún þar síðast
1969. Oft var talað um að hún
kæmi, en hún sagði mér að hún
treysti sér ekki til að koma norður
og sjá ekkert, en þá var hún orðin
blind. En þegar ég sagði henni frétt-
ir héðan að norðan sá hún ávallt.
staðinn og umhverfi hans fýrir sál-
arsjónum sínum. Allt starf hennar
tók mið af því að gera sem mest
og best. Ég hygg að óskir hennar
hvað varðar lífsstarfið birtist í þessu
bænaversi hennar:
Gef þú mér Drottinn styrk til starfa
styð mig að leysa hveija þraut.
Leyf mér að vinna landi þarfa
ljósbera verða á ævibraut
svo flutt geti öðrum friðinn þinn
fullan af gleði í hjörtum inn.
Þegar ég hitti hana síðast á af-
mælisdegi hennar sat hún glöð og
furðu hress og tók á móti kveðjum
og heillaóskum vina og vanda-
manna. Hveijum hefði þá dottið í
hug að svo skammur tími væri til
kveðjustundar. Ég vissi ekki svo
gjörla hvað hægt væri að gefa Ingi-
björgu í afmælisgjöf. En skyndilega
fékk ég hugmynd. Garðurinn henn-
ar var henni svo kær. Ég hvíslaði
í eyra hennar að gjöf okkar Hólm-
fríðar yrði að planta sérstakan af-
mælislund í Löngumýrargarðinn.
Brosið breiddist yfir andlit hennar
og hún var sýnilega ánægð með
þetta, en spurði: „Hvenær ferðu að
láta planta í Hólinn?" „Ég mun
byija á því í sumar,“ svaraði ég og
ennþá sá ég að það gladdi hana.
í 103. Davíðssálmi segir svo: „Dag-
ar mannsins eru sem grasið, hann
blómgast sem blómið í mörkinni.
Þegar vindur blæs á hann er hann
horfinn og staður hans þekkir hann
ekki framar.“ En staður Ingibjargar
hér á Löngumýri mun þó þekkja
hana lengi um mörg ókomin ár:
Kirkjan hennar stendur í þakkar-
skuld við hana fyrir þá stóru gjöf.
Megi okkur auðnast að nýta hana
sem best eins og Ingibjörg vildi.
Og viljayfirlýsingin er á steininum
sem hún sendi fyrir nokkrum árum.
Lokaorð þjóðsöngsins okkar; „Verði
gróandi þjóðlíf með þverrandi tár
sem þroskast á Guðsríkis braut“.
Guði séu þakkir fyrir Ingibjörgu
Jóhannsdóttur frá Löngumýri.
Margrét K. Jónsdóttir,
Löngumýri.
Fleiri minningargreiimr um
Ingibjörgu Jóhannsdóttur
bíða birtingar og munu birtast
í blaðinu næstu daga
MINNINGAR
+
Útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
HÓLMFRÍÐAR ÞÓRU
GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Ármúla
i Önundarfirði,
Frostafold 57,
verður gerð fró Langholtskirkju þriðju-
daginn 20. júní kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, láti
Langholtskirkju njóta þess.
Kristján Þorgeirsson, Sigriður Ólafsdóttir,
Guðmundur Þorgeirsson, Guðrún Þorsteinsdóttir,
Þórunn Þorgeirsdóttir, Þórir Þorláksson,
Svanlaug Þorsteinsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, afa og
langafa,
BJÖRNS GUNNARSSONAR
frá Skógum í Öxarfirði,
áðurtil heimilis
f Stigahlíð 2.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Kristveig Björnsdóttir, Ásta'Björns
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir alla þá samúð og vináttu sem okkur hefur
verið sýnd við andlát og útför sonar míns, föður okkar, bróður,
afa og fóstursonar,
JÓHANNESAR GUÐMUNDSSONAR.
Margrét Jósefsdóttir,
Birta Jóhannesdóttir, Jóhann Þór Jóhannesson,
Guðmundur Jóhannesson, Maria Jóhannesdóttir,
Anna Jóhannesdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
Daníel Örn Sandholt,
Haukur Nielsson og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR HJALTADÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks Hrafnistu.
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Bjarni Einarsson,
Þuríður Eyjólfsdóttir Haukeland,
Elísabet Auður Eyjólfsdóttir, Ólafur Kristjánsson,
Ásmundur Eyjóifsson, Þun'öur ísólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, afa, langafa og langalangafa,
EYJÓLFS GÍSLASONAR
frá Bessastöðum
i' Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
DAS, Hrafnistu í Reykjavík.
Fyrir hönd vandamanna,
Erlendur Eyjólfsson, Helga Aberg,
Gfsli Eyjólfsson, Hildur Káradóttir,
Guðjón Ármann Eyjólfsson, Anika J. Ragnarsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför ástkærr-
ar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SKÚLÍNUFRIÐBJÖRNSDÓTTUR,
Ásvallagötu 21,
Reykjavík.
Hrefna Bjarnadóttir,
Einar B. Bjarnason, Bára Jónsdóttir,
Friðbjörn K.B. Bjarnason, Sigri'ður Beinteinsdóttir,
Jón Tómas Bjarnason,
Ketill B. Bjarnason, Helga Gi'sladóttir,
Kristinn Þ. Bjarnason,
Jónína E. Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
JÓNASAR G. HALLDÓRSSONAR
rakarameistara
frá Siglufirði.
Hermína Jónasdóttir Lilliendahl, Karl Lilliendahl,
Guðný Jónasdóttir, Jónmundur Hilmarsson,
Stefán Jónasson, Hulda Baldursdóttir,
Dagný Jónasdóttir, Sigurður Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
systur og mágkonu,
EDDU PÉTURDÓTTUR,
Stórholti 4,
Akureyri.
Inger L. Jónsdóttir,
Kristján Jónsson,
Sigurlaug Jónsdóttir,
Þorvaldur Pétursson,
Stella Bryndi's Pétursdóttir,
María Péturdóttir,
Guðmundur Pétursson,
og
Davfð Baldursson,
Sigurbjörg Einarsdóttir,
Baldur Skjaldarson,
Jón Árnason,
Sigrún Gunnarsdóttir
barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir færum við öll-
um þeim fjölmörgu, sem styrktu okkur
í sorg okkar með blómum, samúð og
hlýju við skyndilegt fráfall elskulegs eig-
inmanns, föðúr okkar, tengdaföður og
afa,
SIGURÐAR M.
SÓLMUNDARSONAR,
Dynskógum 5,
Hveragerði.
Guð blessi ykkur öll.
Auður Guðbrandsdóttir,,
Sólmundur Sigurðsson, Margrét Ásgeirsdóttir,
Anna Kristín Sigurðardóttir, Magnús Ögmundsson,
Guðbrandur Sigurðsson, Sigríður Helga Sveinsdóttir,
Bryndi's Sigurðardóttir, Kent Lauridsen,
Steinunn Margrét Sigurðardóttir, Andrés Úlfarsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkkur samúð og vinarhug við
aldlát og jarðarför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
KRISTÍNAR S.
SIGURBJÖRNSDÓTTUR,
Hólabraut 5,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrun-
arheimilisins Sólvangs, Hafnarfirði
Sigrún Þorsteinsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Viggó Þorsteinsson, Margrét Bjarnadóttir,
Hjördís Þorsteinsdóttir, Gfsli Sigurgeirsson,
Sigurbjörn Þorsteinsson, Sigrfður S. Þormóðsdóttir,
Þorsteinn Þorsteinsson, Margrét Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, systur, ömmu og lang-
ömmu,
MARÍU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Skeljagranda 3.
Herborg Friðjónsdóttir, Freyja Þorsteinsdóttir,
Birna Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Rögnvaldsson,
Ólafur Halldórsson, Ýr Sigurðardóttir,
Anna M. Halldórsdóttir, Björk Gunnarsdóttir,
Erna M. Halldórsdóttir,
Friðjón Guðjohnsen,
María Friðbertsdóttir,
Óskar Friðbertsson,
Tinna Ólafsdóttir,
Kári Bertelsson.