Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 48

Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 48
48 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 MÖRGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Kærar þakkir til allra þeirra, er sýndu samúð, hlýhug og virðingu vegna and- láts og útfarar móður minnar, MARÍU MARKAN ÖSTLUND. Pétur Östlund. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, VILBORGAR BJARNFREÐSDÓTTUR. Hanna Lárusdóttir, Ingjaldur Sigurðsson, Guðrún Helga Bjarnadóttir, Kristinn S. Asmundsson, Bryndfs Sumarliðadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Haraldur Helga- son fæddist á Felli í Vopnafirði 25. september 1920. Hann lést á Landspít- alanum 7. júní sl. Foreldrar hans voru Helgi Frímann Magnússon bóndi á Felli og Matthildur Vilhjálmsdóttir frá Sunnudal í Vopna- firði. Systkini Har- aldar voru Gunn- laugur Þór, látinn, Jóhanna Magnea, Elís Steinþóra og Jón Valdimar og Kristján Hólm- steinn. Haraldur ólst upp á Bjargi í Vopnafirði, þangað sem fjölskyldan fluttist, og kenndi sig við þann stað. Kona Haraldar var Jón- ína Andersen. Þau áttu fjögur börn, Helgu, Tómas, hann býr í Fær- eyjum, Erlu og Valdimar. Harald- ur og Jónina slitu samvistir. Harald- ur var matreiðslu- meistari og starf- aði um árabil sem bryti og mat- sveinn til sjós. Útför hans fór fram frá Áskirkju 16. júní. EG kynntist Haraldi hjá íslenskum aðalverktökum árið 1970 en hann var matreiðslumeistari þar um nokkurra ára skeið. Ég kveð nú þennan vin minn með sárum söknuði og þakka hon- um allt það góða sem hann kenndi mér, ekki síst í matreiðslu, því það litla sem ég kann í matargerð er mest frá honum komið. Örlæti var ríkur þáttur í fari hans alla tíð. Kunningsskapur okkar styrktist mikið þegar ég flutti í Hátún 10. Hann tók á móti mér með höfðings- skap og einlægu vinarþeli. Fyrir þetta allt vil ég þakka. Megi guð og gæfan styrkja börn hans og ættingja til hinstu stundar. Kær kveðja, Sigurður B. Arason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upptýs- ingar þar um má lesa á heimasiðum. HARALDUR HELGASON ATVIN N tf A UGL YSINGAR Kennarar Kennara vantar að Heppuskóla, Hornafirði. Meðal kennslugreina er sérkennsla. Upplýsingargefurskólastjóri í síma 4781321. Skólastjóri. ________ fbrmax FORMAX HF. MÝRARGATA 2,101 REYKJAVlK Óskum eftir að ráða starfsmann við ryðfría smíði. Aðeins vanur maður kemur til greina. Upplýsingar hjá Formax hf. í síma 562 6800. BORGABSPÍTALIMM Uppeldisfulltrúi óskast að meðferðarheimili fyrir börn á Kleifarvegi 15, í 100% starf, sem fyrst. Uppeldismenntun eða starfsreynsla áskilin. Spennandi og krefjandi starf. Upplýsingar veitir deildarstjóri í síma 581 2615. & Mosfellsbær Leikskólinn Hlíð óskar eftir að ráða leikskólakennara með sérkennslu sem meginviðfangsefni. Til greina kemur að ráða þroskaþjálfa eða fólk með aðra uppeldismenntun. Staðan er laus frá miðjum ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar gefur undirrituð í síma 566 7375. jf y Kennari óskast í heila stöðu næsta skólaár. Kennslugreinar: Tónmennt í grunnskóla, forskólakennsla og hljóðfærakennsla. Upplýsingar veitir skólastjóri, Atli Guðlaugs- son, í símum 463 1171 og 462 2582. Náttúruverndarráð Sjálfboðaliða vantar í lúpínuslátt f Bæjarstaðaskógi Dagana 3.-9. júlí nk. stendur Náttúruvernd- arráð fyrir lúpínuslætti í Bæjarstaðaskógi í þjóðgarðinum Skaftafelli. Nánari upplýsingar og skráning er á skrif- stofu Náttúruverndarráðs, sími 562 7855. Leikskólastjóri. Hárgreiðsla Óskum að ráða hársnyrtisvein eða -meistara á stofu okkar sem fyrst. Næg vinna í boði fyrir réttan einstakling. Við erum í Hafnarstræti 5 í hjarta Reykjavíkur. Guðrún Hrönn veitir upplýsingar á staðnum þriðjudaginn 20. júní nk. á vinnutíma eða í síma 561 4640 þann sama dag. Framtíðarstarf Umsvifamikið þjónustufyrirtæki í Breið- holti, sem leggur metnað sinn í góða þjón- ustu við viðskiptavini, óskar að ráða drífandi einstakling til starfa strax sem vaktstjóra. Einhver reynsla af verslunar- og/eða þjón- ustustörfum nauðsynleg. Vaktavinna. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er til hádegis miðviku- daginn 21. júní nk. Guðni Jónsson RÁÐGIÖF & RÁDNJNGARþ|ÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22 Hár Meistari eða sveinn óskast í hlutastarf sem fyrst. Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar: „H - 302“. Byggingastjóri Verktakafyrirtæki, sem er að fara í gang með stórt verkefni í borginni, óskar að ráða strax drífandi byggingastjóra til að sjá um daglega stjórnun á staðnum. Reynsla sem byggingastjóri nauðsynleg. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er til 22. júní nk. Guðnt Tónsson RÁDGIÖF & RÁDNINGARþJÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22 Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Kennara vantar í fullt starf í sálfræði við skólann á haustönn 1995. Umsóknum skal skilað til rektors á skrifstofu skólans fyrir 1. júlí. Rektor. Tónlistarskóli ísafjarðar Tónlistarkennarar Tónlistarkennara vantar við Tónlistarskóla ísafjarðar næsta skólaár í eftirtöldum greinum: Blásturshljóðfæri Forskóli Tónfræðigreinar Umsóknir berist til skólastjóra, Sigríðar Ragnarsdóttur, Austurvegi 11, 400 Isafirði. Hún veitir einnig allar nánari upplýsingar í símum 456 4926 og 456 3010. Tónlistarskóli ísafjarðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.