Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Forvextir og vextir á endurhverfum ríkisvíxlakaupum lækkaðir um 0,3% Seðlabanki fylgir eftir lækkun skammtímavaxta FORVEXTIR og vextir á endur- hverfum ríkisvíxlakaupum, sem eru algengasta viðskiptaform Seðla- bankans við innlánsstofnanir, lækka um 0,3 prósentustig frá 1. júlí nk. samkvæmt ákvörðun banka- stjórnar Seðlabanka íslands. Eftir breytingarnar verða forvextir reikningskvóta 6,1% í stað 6,4% áður, en ávöxtun í endurhverfum ríkisvíxlakaupum 7,0% í stað 7,3% áður. „Okkur hefur fundist að vextir á peningamarkaði hafi verið ansi há- ir, ekki síst þegar við höfum fengið ítrekað staðfestingu á lægri verð- bólgu. Því teljum við að það sé ástæða til þess að reyna að draga þessa vexti niður. Þá hefur þetta verið þróunin á markaðnum þar sem Hefur ítrekað fengið stað- festingu á lægri verðbólgu skammtímavextir hafa farið lækk- andi undanfarnar vikur. Við vildum fylgja þessu eftir,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabanka- stjóri, í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður hvort vænta mætti frekari aðgerða í þessa átt á næst- unni sagði Birgir ísleifur að fylgst yrði með hvemig þessar breytingar reyndust. Ekki hefðu verið teknar ákvarðanir um frekari skref. Frá 10. mars sl. hafa endurhverf ríkisvíxlakaup verið algengasta við- skiptaform Seðlabankans við inn- lánsstofnanir. Áður var Seðlabank- inn með tvenns konar flokka í end- urhverfum verðbréfakaupum; ríkis- víxlana sem bankinn keypti í 10 daga og önnur ríkisbréf sem hann keypti í 30 daga. Síðara formið var lagt niður tímabundið 10. mars og hefur ekki verið endurvakið enn. Með endurhverfum ríkisvíxlakaup- um er átt við að banki sem þarf tímabundið á peningum að halda, selur Seðlabankanum ríkisvíxla en skuldbindur sig um leið til þess að kaupa þá aftur innan 10 daga. Fyrir það borgar hann nú 7,0% vexti. Reikningskvóti viðskiptabank- anna hjá Seðlabanka var lækkaður úr 20 dagmilljörðum í 10 dagmillj- arða 10. mars sl. „Við höldum kvót- anum óbreyttum, enda sýnist okkur lausafjárstaða bankanna hafa verið það góð upp á síðkastið að það þurfí ekki að auka hann. En við lækkum hins vegar vextina úr 6,4% í 6,1%,“ sagði Birgir ísleifur. Birgir ísleifur sagði ennfremur að Seðlabankinn hefði undanfarna daga lækkað ávöxtun á skamm- tímabréfum í tilboðum sínum á Verðbréfaþingi íslands. „Við lækk- uðum ávöxtun ríkisvíxla í tilboðum okkar í dag [föstudag] um 0,3% og í óverðtryggðum 2ja ára ríkisbréf- um lækkuðum við um 0,1-0,3 pró- sentustig." Samtiingar í farmannadeilunni undirritaðir Evrópumótið í brids Möguleikar Islendinga úr sögunni Vilamoura, Morgunblaðið ÍSLENSKA bridslandsliðið t'apaði af sæti á næsta heimsmeistara- móti þegar það fékk aðeins 13 stig í næst síðustu umferð Evrópu- mótsins í brids í gærkvöldi. Þegar aðeins einum leik er ólok- ið á mótinu er íslenska liðið í 7. sæti og vantar 21 stig upp í fjórða sætið. Þótt liðið vinni síðasta leik- inn með mesta mun í dag er það nánast útilokað að það dugi til að ná fjórða sætinu. íslendingar unnu Tékka og Austurríkismenn 17-13 í gær, en töpuðu fyrir Spánveijum 13—17. Fyrir síðustu umferð hafa ítalir 547.5 stig í efsta sætið, Pólveijar 532.5 stig, Hollendingar 527,5 stig, Frakkar 523 stig, Svíar 518 stig, ísraelsmenn 511,5 stig og íslendingar 502 stig. ■ Heimsmeistaramótssætin/47 ÍffFpfeWaW* ....--------- Brotið blað t sorphirðu MORGUNBLAÐINU í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað „Pappírs- blað“. í blaðinu eru kynnt- ar nýjungar í sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu. Verkfalli frestað Morgunblaðið/Sverrir til 1. ágúst VERKFALLI yfirmanna á kaupskipum og ferjum var frestað í fyrrinótt þegar nýir kjarasamningar fimm far- mannafélaga í Farmanna- og fiskimannasambandi íslands og viðsenyenda þeirra voru undir- ritaðir í húsnæði ríkissátta- semjara. Farskip létu strax úr höfn eftir að verkfalli hafði verið frestað. Samningarnir kveða m.a. á um 11,4% launa- hækkanir á samningstímanum, sem gildir til ársloka árið 1996, sérstaka 12.000 kr. eingreiðslu undir lok samningstímans, sér- staka greiðslu fyrir yfirvinnu á stórhátíðum og breytingar á starfsaldurshækkunum stýri- manna. í tengslum við gerð kjarasamninganna gáfu far- mannafélögin út hliðstæða yfir- Iýsingu og starfsmenn ÍSAL gáfu í seinustu viku um sam- ræmda afgreiðslu samninga og gerð heildarkjarasamninga fyr- ir félögin öll. Forsendum launastefn- unnar ekki raskað Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, segir að vinnuveitendum hafi reynst örðugt að halda sig við þá launastefnu sem mörkuð var í vetur í svokölluðum ASÍ/VSÍ samningum í þeim kjarasamn- ingum sem gerðir hefðu verið að undanförnu, undir vaxandi þrýstingi. Hann segist þó ekki telja að grundvallarforsendum hefði verið raskað. Benedikt Þ. Valsson, fram- kvæmdastjóri FFSÍ, segist vera sæmilega sáttur við samning- ana. Að lokinni kynningu á efni þeirra fer fram skrifleg at- kvæðagreiðsla um samningana meðal félagsmanna og verða atkvæði talin 1. ágúst. Verði samningarnir felldir hefst verkfall yfirmanna þá að nýju. ■ Samið um/10 Forsætis- ráðherra til Namibíu og Litháen DAVÍÐ Oddsson, forsætis- ráðherra, hefur þegið boð dr. Sam Nujoma, forseta Nami- bíu, um að koma ásamt eigin- konu sinni, frú Ástríði Thor- arensen, í opinbera heimsókn til landsins dagana 4. til 7. júlí nk. Meðan á heimsókninni stendur mun forsætisráð- herra eiga viðræður við nam- ibíska ráðamenn og hitta ís- lendinga sem búsettir eru í Namibíu en starfsmenn Þró- unarsamvinnustofnunar ís- lands hafa um nokkurra ára skeið aðstoðað Namibíumenn við rannsóknir og uppbygg- ingu á sviði sjávarútvegs. Einnig starfa allmargir Is- lendingar við sjávarútvegs- fyrirtæki í Namibíu en í land- inu eru búsettir liðlega eitt hundrað íslendingar, segir í frétt frá forsætisráðuneytinu. í för með forsætisráð- herrahjónunum verða Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, og eiginkona hans, Helga Einarsdóttir, Sigríður Snævarr, sendiherra, Kjartan Gunnarsson, eiginmaður hennar, Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráð- herra, Guðmundur Ámason, deildarstjóri í forsætisráðu- neyti, og Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ. Fundur í Vilníus í dag, laugardag, situr for- sætisráðherra fund með for- sætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Viln- íus. Á fundinum verður rætt um alþjóða-, öryggis- og efnahagsmál og leiðir til að efla samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkj anna. I för með forsætisráðherra eru Albert Jónsson, deildar- stjóri í forsætisráðuneytinu og Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri Norðurlanda- skrifstofu forsætisráðuneyt- isins. Nýr leiklistargagn- rýnandi Morgunblaðsins SVEINN Haraldsson er nýr leiklistargagn- rýnandi Morgunblaðs- ins. Sveinn hefur starfað á Morgunblað- inu sem prófarkales- ari og hóf nýlega að skrifa greinar um leiklist í blaðið. Auk þess hefur hann starf- að við kennslu. Sveinn lauk BA- prófí frá Háskóla ís- lands 1987 með ensku sem aðalgrein og sagnfræði sem auka- grein. Hann hefur stundað doktorsnám í enskum bókmenntum við Háskól- ann í Oxford á Englandi síðan haustið 1989 og vinnur nú að loka- ritgerð um tengsl skáldsins W.H. Auden við ísland. Hann hefur hlot- ið styrki frá breskum aðilum, ORS- styrk frá stjórnvöldum í Bretlandi og styrk frá William Morris-félag- inu vegna rannsókna sinna á verk- um og lífi skáldsins og flutti 1993 í London í boði þess félags fyrirlestur um tengsl Morris við ís- land. Sveinn hefur skrif- að fyrir safnritið Northern Antiquities undir ritstjóm Andrew Wawn ritgerðina „The North Begins Inside: Auden, Ancestry and Iceland“, en bókin var gefin út af Hisarlik Press í London á sl. ári. Störf sín sem leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins hefur Sveinn Haraldsson með því að skrifa um Ég kem frá öðrum löndum með öll mín ævin- týri aftan á mér sem frumsýnt var í Kaffileikhúsinu í fyrrakvöld, og birtist gagnrýni hans á bls. 3 í Menningarblaðinu í dag. Sveinn mun starfa við hlið Soff- íu Auðar Birgisdóttur sem kynnt var lesendum blaðsins laugardag- inn 6. maí sl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.