Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 9 Halldór Jónsson yfirlæknir Spennandi að fá að kynnast starfi kin- versks skurðlæknis Morgunblaðið/Golli ÞORSTEINN, afmælisbarn dagsins, klippir á borðann og opnar göngustíginn formlega. Nýr stígur í Heiðmörk HALLDÓR Jónsson með tvo boltalaxa úr Ytri Rangá, 8 og 12 punda fiska. Gengur vel íYtri Rangá STORI straumurinn hefur ekki alls staðar skilað laxatorfum. Víða hefur glæðst mjög, en annars staðar er enn dauft og drungalegt, s.s. í ám í næsta nágrenni Reykjavíkur. Má þar nefna Leirvogsá og Úlfarsá sem hafa aðeins gefíð örfáa laxa hvor. Rangársvæðið líflegt... Milli 40 og 50 laxar eru nú komn- ir á land af Rangársvæðinu, lang flestir úr Ytri Rangá, en örfáir að auki úr Eystri Rangá. Mest hefur veiðst á svæðinu frá Ægissíðufossi og niður á Klöpp, en svæði IV og efri hlutar svæðis 2 hafa einnig gefíð laxa. Þetta er með bestu byxjunum í Rangánum. Þá hefur það vakið eftir- tekt, að smálax hefur verið með í aflanum frá byijun, en það hefur hingað til verið talið vita á gott ef árs fiskur úr sjó veiðist snemma á veiðitíma. Þá hafa óvenjulega margir mjög stórir urriðar veiðst í Ytri Rangá, bæði á urriðasvæðinu fyrir ofan Arbæjarfoss og einnig neðar, á laxasvæðunum. Allt að 9,5 punda fískar. Glæðist í Kjós “Þetta er mishitt hjá mönnum, sumir eru mistækir en aðrir gera betur. Það eru komnir um 90 laxar á land og það hefur komið talsvert af nýjum laxi í straumnum. Helst er að vanti að laxinn dreifí sér betur um ána, en vonandi fer hann að gera það á næstu dögurn," sagði Axel Jóhanns- son veiðivörður við Laxá í Kjós í gærkvöldi. Talsvert af smálaxi er gengið í ána og vatnið í ánni er gott. Reytist úr Hítará Tíu laxar voru komnir úr Hítará á ládegi í gær, helningurinn 10 til 12 Dund og helmingurinn smálax. Um 20-30 bleikjur hafa einnig verið færð- ir til bókar, flestar 1,5 til 2 pund og lestar dregnar á flugu eins og laxam- r. Laxinn er ekki vel dreifður í Hít- irá, allir að þremur undanskildum eru ir Kverkinni, hinir þrír úr næsta stað yrir ofan, Breiðinni. Enn er mikið atn í ánni, en alveg tært. Fyrir þrem- ir dögum veiddist fyrsti laxinn á væðinu Hítará 2, nánar tiltekið í jrjótá. Þar hafa einnig veiðst nokkr- • vænir silungar. Góður pappír til endurvinnslu ERFITT er að segja til um hversu löng aðgerðin verður sem kínverski læknirinn dr. Zhang Shaocheng og dr. Halldór Jónsson, yfirlæknir bæklunardeildar Landspítalans munu gera á baki Hrafnhildar Thoroddsen í næstu viku, en hún slasaðist alvarlega í bílslysi árið 1989 og hefur að mestu verið bundin í hjólastól síðan. Segir Halldór það vera spennandi tæki- færi að fá að kynnast starfi kín- versks skurðlæknis á þennan hátt. Að sögn Halldórs er búist við því að aðgerðin verði löng. Venju- lega taki svona aðgerðir hjá Zhang um sex tíma, en sökum þess hversu langt er liðið frá slysinu gæti hún dregist lengur en það. Halldór gerði á sínum tíma tvær aðgerðir á hryggsúlu og mjaðmagrind Hrafnhildar, en hvorutveggja brotnaði illa í slysinu. Þær aðgerð- ir beindust eingöngu að því að festa hryggsúluna saman aftur til að halda mænugöngunum í réttri lög- un. Taugarnar líkjast spagetti Halldór mun hitta Zhang þegar hann kemur hingað til lands í næstu viku og þá munu þeir fara í gegnum allar rannsóknir sem gerðar hafa verið á Hrafnhildi og gera áætlun um aðgerðina sem ráðgert er að verði á föstudag. Hann segir að búið sé að kort- leggja svæðið með segulómtæki, þeir viti hvernig mænugöngin líti út, en ekki sjáist nákvæmlega hvar taugarnar liggja í gegnum örberði sem er í mænugöngunum. Hann segir að taugum í mænu- göngunum sé hægt að líkja við spagetti í potti þar sem þær fljóti í mænuvökvanum. Ekki sé vitað hvort taugarnar hversu mikið taugarnar hafi marist við áverk- ann: þær virðast vera saman í knippi líkt og spagetti sem fests hafi saman. Ef svo er þá þurfi þeir að kanna hvort hægt sé að ná taugunum í sundur eða hvort þurfi að tengja fram hjá þeim. Spennandi tækifæri Halldór segir það óneitanlega spennandi fyrir sig sem skurðlækni að gera þessa aðgerð ásamt kín- verskum starfsbróður sínum. Ekki sé mikið vitað um lækningar í Austurlöndum, menn þar skrifi minna um aðgerðir og rannsóknir sem þeir stunda en læknar á Vest- urlöndum og því hafi lítil vitneskja borist um þá hluti til Vesturlanda. Það sem læknar í Asíu svo skrifa sé aðallega birt í læknaritum þeirra landa sem þeir starfa í sem berast ekki mikið útfyrir landssteinana, einna mest sé vitað um störf lækna í Japan. NÝR göngustígur hefur verið lagður í Heiðmörkinni fyrir ofan Vífilsstaði. Tveir hópar unglinga úr Reykjavík ásamt þremur flokksstjórum og táknmálstúlki hafa lagt stíginn og var hann opnaður formlega í gær. Göngustígurinn er tæplega eins kílómetra langur og tengir saman elsta svæði skógræktarinnar og eitt af þeim nýjustu. Alls unnu um 50 unglingar, þar af fimm heyrnarlausir, að verkinu sem hófst áttunda dag mánaðarins. Komu hóparnir að úr tveimur áttum og tengdu þeir stíginn síð- an saman með steinbrú sem þeir byggðu úr grjóti sem til féll við stígsgerðina. Veðrið lék ekki við hópana því ýmist var þreifandi þoka eða rigning meðan á stígs- gerðinni stóð. Þegar stígurinn var opnaður var veður aldrei þessu vant þurrt og gott þó sólarlaust væri. Að athöfninni lokinni héldu vinnuflokkarnir veglega veislu og lagði hver unglingur eina köku til teitisins. X VANDAÐIR STAKIR JAKKAR FRÁ laugardag og sunnudag QnmarKÍÁm B A fclrArín KlÁtn H DrtffardíGvHri*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.